Morgunblaðið - 14.08.1988, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 14.08.1988, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 1988 raðauglýsingar — raðauglýsingar —raðauglýsingar Verktakafyrirtæki Til sölii lítið verktakafyrirtæki í byggingariðn- aði. Góð verk, mikil velta framundan. Hent- ugt fyrir duglega smiði, múrara eða menn vana byggingariðnaði. Greiðslur með skulda- bréfum, skiptum á fasteign eða bifreið. Áhugasamir sendi inn nafn og símanúmer á auglýsingadeild Mbl. merkt: „V - 2790". Miðstöðvarkatlar Til sölu 58 KW lofthitunarketill og 110 KW vatnshitúnarketill. Upplýsingar í síma 92-12638. Kvóti til sölu Til sölu 100 tonn af þorski og 50 tonn af ýsu. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt: „F - 199“ fyrir 21. ágúst. Til sölu vélar og tæki Vegna endurnýjunar og hagræðingar eru eftirtaldar vélar og tæki til sölu: International H510 hjólaskófla, árg. '79. International H65C hjólaskófla, árg. '76. Caterpilar 235 grafa, Bedford tankbíll, Avelin Bradford veghefill, 2 stk. Bomag BV10 valtari, Sindra malarvagn, Van Hool malarvagn, Daf 3300 dráttarbíll, Hino vörubíll, 6 tonn, Case F580 traktorsgrafa, Kröll K80 byggingakrani, Liebherr 33K byggingakrani, árg. 1982. árg. 1979. árg. 1982. árg. 1982. 1984. 1983. 1982. 1982. árg. 1982. árg. 1971. árg. 1983. arg. árg. árg. árg. Ofangreind tæki eru til sýnis áhugasömum kaupendum næstu daga eða eftir nánara samkomulagi. Upplýsingar veitir Magnús Ingjaldsson í síma 53999 næstu daga. | | HAGVIRKI HF § SÍMI 53999 Til sölu ný ónotuð IBM PS/2 model 50, IBM litaskjár, IBM Proprinter XL-24. Mjög góð greiðslukjör. Upplýsingar í síma 40623. tilboö — útboð Hl ÚTBOÐ Bygging brúar á Bústaðavegi Forval Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. gatnamálastjórans í Reykjavík, auglýsir forval vegna fyrirhugaðs útboðs á byggingu brúar á Bústaðavegi yfir Miklubraut. Forvalsgögn verða afhent á skrifstofu vorri á Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, frá og með mánu- deginum 15. ágúst nk. gegn kr. 10.000 skila- tryggingu. Forvalsgögnum skal skilað á sama stað eigi síðar en 1. september nk. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800 Útboð Vesturlandsvegur í Hvalfirði Fossaá - Galtargilslækur Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofan- greint verk. Lengd vegarkafla 5,2 km, fylling- ar 63.000 m3, skeringar 43.000 m3, burðar- lög 36.000 m3 og klæðing 34.000 m2. Verki skal að fullu lokið 1. ágúst 1989. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisns í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 16. þ.m. Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14.00 þann 29. ágúst 1988. Vegamálastjóri. Útboð Stjórn verkamannabústaða í Kópavogi óskar eftir tilboðum í lóðarfrágang (malbikun, hleðslur, túnþökur og hellulögn) við fjölbýlis- húsin Hlíðarhjalla 51-61. Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofu Guðmundar Magnússonar, Hamraborg 7, Kópavogi, 3. hæð, gegn skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á skrifstofu Stjórnar verkamannabústaða í Kópavogi, Hamraborg 12, Kópavogi, 3. hæð, föstudaginn 19. ágúst kl. 15.00. VerkfræÖistofa Guömundar Magnússonar Verkfræóiráðgjafar FR V. Hamraborg 7,200Kópavogi. S. (91) 42200. Þórsmerkurferð sjálfstæðismanna á Suðurlandi Þórsmerkurferð dagana 24.-25. september næstkomandi er á dag- skrá kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi og er fólk í Suðurlandskjördæmi hvatt til þess að skella sér í Mörkina og njóta feguröar haustlita og samvista i liflegum félagsskap. I Þórsmerkur- ferð sjálfstæðismanna verður farið i gönguferðir, varöeldur, grill- veisla, söngur og skemmtan, en gist verður í skálum Austurleiðar í Húsadal. Farið verður frá Selfossi kl. 9.30 á laugardagsmorgni og frá Vest- mannaeyjum á sama tíma flugleiðis. Á leiðinni frá Selfossi mun rút- an stansa við Vegamót á Hellu, Hvolsvelli og við Markarfljót. Hús Austurleiðar eru mjög vel búin, svefnskálar, matsalir, böð og gufu- böö. Þeir sem ætla i Þórsmerkuferöina eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við einhvern af stjórnarmönnum kjördæmisráðs og láta skrá sig hjá Árna Johnsen í sima 91 -73333, Guðjóni Hjörleifssuni i síma 98-12548, Arndísi Jónsdóttur i sima 98-21978, Aðalbirni Kjart- anssyni í síma 98-78170 eða Guðna Einarssyni í sima 98-71263. Látið ykkur ekki vanta i skemmtilega haustlitaferð í Þórsmörk. Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi. Af „alögum“ og óhöppum á Siglufirði eftir Örlyg Kristfinnsson Sunnudaginn 7. ágúst sl. birtist í Morgunblaðinu frétt frá Siglu- firði, sem bar yfirskriftina „Álögin á Álfhóli", höfð eftir Matthíasi Jó- hannssyni, fréttaritara blaðsins á Siglufírði. Þeir, sem þekkja söguna um Álf í Saurbæ og núverandi að- stæður á Siglufírði, eru ekki ánægð- ir með þá furðulegu túlkun á at- burðum og þeim mikla misskiln- ingi, sem kemur fram í fréttinni. Þar spyrðir fréttaritarinn saman í eina kippu það, sem hann telur fréttnæmast: óhöpp og aftur óhöpp og það sem meira er: ástæðan fyrir þeim er fundin. Allt verður til óham- ingju á Siglufírði, „eftir að grafíð var fyrir útsýnisskífu á hólnum". Eða með öðrum orðum: Menn, sem ekki virtu „álög á Álfhóli", eru vald- ir að óhöppum og álögum! Þungur áfellisdómur það. Söguna um Álf bónda í Saurbæ er að fínna í Grímu, tímariti um þjóðleg fræði XI, bls. 51. Hún er rituð af Jóni Jóhannessyni frá Siglufírði á fyrri hluta aldarinnar og byggð á munnmælasögum úr Siglufírði og Fljótum. Þar má lesa, að Álfur í Saurbæ á Siglufírði hafí verið auðugur bóndi og fjölkunnugur. Er Álfur gerðist gamall, lét hann gera haug mikinn (Álfhól) við Fjarðará og setti í hann skip sitt og gersemar. Gekk svo sjálfur þar, er hann fann dauða sinn nálgast, og lét byrgja hauginn. Hann „lét svo um mælt að engum skyldi hlýða að rjúfa hauginn og njóta gersema hans meðan jaxiar hans voru ófundnir". Munnmæli herma „að fyrr á öldum hafi tvisvar verið freistast til að rjúfa haug Álfs". I fyrra sinn sýndist gullleitar- mönnum kirkjan og staðurinn á Hvanneyri standa í ljósum logum, og í seinna sinn virtist Fjarðará flæða upp í hólinn. En hvort tveggja reyndust sjónhverfíngar. 1921—'22 freistuðu auðæfí Álfs ungra manna til að grafa f Álfhól, án þess að þeir fyndu neitt fémætt né nokkuð óvanalegt bæri fyrir. (Lokið út- drætti úr frásögninni í Grímu.) Á síðustu áratugum hefur aðeins einu sinni verið grafíð í Álfhól. í kringum 1970 grófu starfsmenn Flugmálastjórnar holu þar til að steypa fastan staur fyrir vindbelg. Og allir vita, að gæfa hefur fylgt flugi til Siglufjarðar (og vonandi verður svo um alla tíð). Þegar stöpull var steyptur fyrir hringsjá á dögunum, var ekki graf- ið í hólinn heldur var gömul gryfja fyllt með möl (gamalt rask lagað) og steypt þar ofaná. Þar greindi fréttaritarinn ekki rétt frá. Siglfírskir trillusjómenn hafa þurft að þola óvenju mikið gæfta- og fískileysi á þessu ári. Þar varð engin breyting á við nýja hringsjá á Alfhóli. Vélar bila tíðum og það er gert við þær. „Hálfónýt" malbik- unarvél í Skagafírði komst í lag eftir 3—4 daga. Óveður og góðviðri skiptast á, þar ráða ekki handaverk mannanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.