Morgunblaðið - 14.08.1988, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 14.08.1988, Qupperneq 58
58 99 í síðustu herúti- iegunni var næturæfing með hernum sjálfum. Maður varð ^var við þyrlurnar fljúgandi fyrir ofan sig. U 99 ANDRI KRISHNA MENONSSON Hver veit nema ______MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14, ÁGÚST 1988_ ~ „ Veraldarvanur en dvollt á heimaslóðum “ þeir eigi eftir að dveljast þarna alla ævi. Ganga ber- fættirumströndina oghafa það gott. ii ALAN WAYNE JOHNSTON 9 J^Þ/jóskan kom upp í mér og ég ákvað að sýna þeim fram á að þetta væri hægt. Fór til Patreksfjarðar og niður ínæsta línubát, réð mig þar og án þess að nokk- ur vissi var égfarin út á sjó daginn eftir. ii FJÓLA MAGNÚSDÓTTIR Svo virðist sem dregið hafi úr áhuga íslendinga sjálfra á að vinna úr verðmætum hafsins. Langvarandi vinnuaflsskortur hefur þjakað frystihúsin meðan vinnuaflsvandi annarra at- vinnugreina er tiltölulega nýr af nálinni. Enn hafa íslendingar ekki farið þá leið að brúa bilið með inn- flutningi fólks frá þróunarl- öndum eins og svo mörg nágrannaríki. En allt er breytingum undirorpið eins og fréttir síðustu vikna bera með sér. Meira hefur þó munað um þann hóp fólks sem kemur frá menningar- svæðum líkum okkar. Þetta fólk kemur hingað ekki með framtíðarbúsetu í huga. Flest af því það vill kynnast fjarlægum Iöndum og lýð- um af eigin raun. Eru þess- ir erlendu farandverka- menn, sem við fáum tæki- færi til að kynnast svo náið, ekki betri sendiherrar þjóða sinna heldur en opinberir diplómatar, rígbundnir af prótokollum og embættis- skyldum. Allmargir and- fætlingar okkar eru í þess- um hópi. Hvað fær þetta fólk til þess að ferðast yfir hálfan hnöttinn, alla leið að heimsskautsbaug nyrðri, og vinna störf sem þorri heima- manna kærir sig ekki um. hnston er tvítugur Nýsjálendingur, fæddur í smábænum Paraparaumu. Ég rakst á hann þar sem hann sat yfir kaffíbolla með vinum og kunn- ingjum og spurði hann hvað hann væri að gera á íslandi? Ég kom til íslands frá Frakk- landi en þar hafði ég eytt mánuði í að ganga um Frakkland með bak- poka og svefnpoka meðferðis. Hing- að kom ég fyrir tilstilli föður míns. Hann var hér á skákmóti og sagði mér að hér væri fólkið vinsamlegt og næga vinnu að fá. — Hefurðu ferðast víða? Já, ég hef eitt tveim árum í ferða- lög. Ég vann fyrir stjómina í Nýja Sjálandi við uppsetningu rafmagns- staura. Við vorum langt frá allri byggð og mjög einangraðir og það hjálpaði líklega til við það að mér tókst að safna peningum til að ferð- ast sem mest um Evrópu. í fyrr- nefndu starfí notuðum við svipaðan búnað og notaður er hér til land- mælinga. Oft vomm við í 150—180 metra hæð og hættan var sú að falla niður. — Byijaði síðan ferðalagið stóra? Ég byijaði á því að fara til Eng- lands og starfaði þar sem aðstoðar- maður múrara. Ég dvaldist í þijá mánuði í Englandi en fór síðan UMSJÓN STEINUNN ÁSMUNDSDÓTTIR OG ARI GÍSLI BRAGASON júlí sl. átti ég leið um Dalvík og frétti þar af ungri konu sem kallar ekki allt ömmu sína að því er virðist. Hún heitir Fjóla Magnúsdóttir og er fædd 30. mars 1964. Hún vakti forvitni mína fyrir það að hafa verið til sjós af og til í nokkur ár. Einhvem veginn er það viðtekin skoðun að sjómennska sé eingöngu karlastarf og að sú kona sem hætti sér inn á þær slóðir hljóti að vera karl í krapinu svo ekki sé meira sagt. Svo að ég fann Fjólu á Skíða- brautinni á Dalvík, þar sem hún býr á heimili móður sinnar. Þar var tekið á móti mér með ilmandi kaffí og kræsingum og svo settumst við út í garð, í glampandi sólskini og ijómablíðu, með kaffið okkar og hófum spjallið. — Hefur þú búið á Dalvík alla þína ævi? Nei, ég er nú hálfgerð flökku- kind. Sextán ára fór ég fyrst á stúf- ana, til Tálknafjarðar, að vinna í físki í tvo mánuði. Þar byijar reynd- ar mín sjósaga ef svo má að orði komast. Bróðir minn og strákur sem ég var með þá, voru -alveg handviss- ir um að kvenmaður gæti ekki ver- ið til sjós og ómögulegt að fá þá ofan af þeirri skoðun. Þijóskan kom upp í mér og ég ákvað að sýna þeim fram á að þetta væri hægt. Fór til Patreksfjarðar og niður í næsta línubát, réð mig þar og án þess að nokkur vissi var ég farin út á sjó daginn eftir. — Hvemig reiddi þér af í þess- ari frumraun? Það var strembið til að byija með. Skipstjóranum leist nú ekkert á mig, því honum fannst ég vera svo lág í loftinu og mikill glanni. Ég hékk eiginlega bara á lunning- unni þegar ég var að gogga í físk- ana. Svo hann setti mig í aðgerð til þess að ég færi nú örugglega ekki í sjóinn. Þessi bátur, sem hét Birgir, var fyrstur til að fá sjálf- virka beitningavél og það var ein- mitt maður að setja hana upp um það leyti sem ég kom. Síðar kom hann til Dalvíkur til að setja beitn- ingavél í bát sem heitir Brimnes, frétti af mér á staðnum og bað mig að fara með körlunum í fyrsta túr- inn til að sýna þeim hvemig með- höndla skyldi vélina. Sem og ég gerði og ílengdist þar síðan í rúma fjóra mánuði. Eitt ár bjó ég svo á Akranesi, var þar í skóla og líka var ég á ísafírði í svipað langan tíma. Þar var ég á húsmæðraskóla og starf- aði síðan sem trommuleikari í hljómsveitinni Sokkabandinu. Síðla hausts 1984 fór ég svo sem au- pair til Bandaríkjanna, nánar tiltek- ið til San José í Kalifomíu. — Frá Dalvík til San José, hvem- ig gekk sú dvöl fyrir sig? Það gekk ekki vel til að byija með, ég lenti hjá íjölskyldu sem segja má að hafí verið með svartan iðnað. Þau vom með tuttugu og þijú böm í pössun og eina gamla kerlingu frá Víetnam til að gæta tveggja yngstu bamanna. Hún skildi ekki stakt orð í ensku né yfír- leitt nokkum hlut. Síðan átti ég að passa afganginn af krakkaskaran- um. Ég var ræst klukkan sex á morgnana til að elda morgunverð ofan í heimilisfólkið og svo komu öll bömin klukkan sjö. Húsmóðirin var heima til að taka á móti þeim, en lét sig svo hverfa fljótlega eftir það og sótti snyrtistofur og hádegis- verðarboð með vinkonum sínum. Þannig að ég sá um öll bömin, heimilisstörfín og flest annað, var í vinnunni allan sólarhringinn. Eftir þijá mánuði varð það mér til bjargar að ég kynntist indælis konu frá Islandi, sem er sölustjóri hjá fyrirtæki sem selur tölvuborð þama úti. Hún vissi að forstjóra fyrirtækisins, sem einnig er kona, vantaði einmitt au-pair stúlku fyrir sjö ára gamlan son sinn og það varð úr að ég flutti mig til hennar. Þetta var um jólin 1984. Það var eins og að koma úr helvíti og upp til himnaríkis að vinna fyrir þessa konu. Hún keypti handa mér lítinn sportbíl til afnota, bensínið fór á kreditkortið hennar, sundlaug í garðinum, flott kaup og mikill frítími, því drenginn passaði ég aðeins frá eitt til fjögur á degi hveij- um. Þarna lifði ég í vellystingum praktuglega, rétt eins og greifí, fram í júní en varð þá að koma heim vegna veikinda. Var reyndar nær dauða en lífi þegar ég kom og var send í snarhasti á Landspítalann þar sem ég mátti dúsa í tvær vik- ur. Ég átti í basli með þessi veik- indi fram í vetrarbyijun en þá fór ég að lagast. A Dalvík var ég svo fram á haustið ’87, leigði mér íbúð og vann mest í frystihúsinu en einn- ig í nokkum tíma í íþróttahúsinu sem nk. sundlaugarvörður. Ég hef Iengi gengið með ljósmyndadellu, var með aðstöðu í skólanum á Dalvík til að vinna fyrir sjálfa mig, framkalla og fleira. Þar kom að mér fannst tímabært að gera eitt- hvað í því máli, það er að segja að athuga með námsmöguleika erlend- is í ljósmyndun. Ég sótti því um skóla í smábænum Munkaljungby í Svíþjóð og komst inn. Áður en ég fór út um haustið var ég allt sumar- ið á sjó, á bát sem heitir Baldur og hafði reyndar leyst af við og við sem kokkur á Björgúlfí áður. Þegar ég lagði svo land undir fót og fór til Svíþjóðar átti ég bæði fyrir skóla- gjöldunum og öllu uppihaldi og slapp því alveg við að taka lán eða að liggja uppá einhveijum með pen- inga. Síðan kom ég heim í byijun júní og fór beint á Baldur aftur. Ég hef varla komið í land síðan og þetta er fyrsta fríið mitt í sumar. Nú virðist ekki vera mikið um að kvenfólk sé til sjós, það fréttist þá í það minnsta lítið af því. Hvem- ig er nú þetta líf? í raun og vem er þetta ekki al- gengt og þær sem em til sjós fara þá yfírleitt sem kokkar. Og enn minna er um að stelpur fari sem hásetar á sjó, því að það er ansi hreint erfítt og mikil skorpuvinna. Maður þarf jafnvel að standa heilan sólarhring ef eitthvert fiskerí er og stundum lengur. Mér fínnst ég kannski ekki vera nein manneskja til að vinna sem háseti því starfíð er það erfítt að ég get ekki gert allt sem strákamir gera. Þeir em þama að lyfta fjömtíu kílóa köss- um, fullum af físki, og hendandi þessu til og frá. Ég hef ekki næga krafta í slíkt. Og þó veltingur sé eða bræla þarf maður alltaf að standa sig, það er ekkert til sem heitir að vera veikur úti á sjó og leggjast með tæmar upp í loft þar til maður jafnar sig. Maður þarf að gjöra svo vel að standa sína tólf tíma ef maður ætlar að vera eitt- hvað á bátnum. — Nú ert þú sterkbyggð og kná, hefurðu ekki fyllilega roð við strák- unum? Jú, jú, en samt skila ég ekki al- veg fullri vinnu á við þá. Ég er nú mest í að slíta innan úr og blóðga og rista, aðgerðin er ekkert mál. En það em alltaf átök í þessu, t.d. þegar verið er að taka trollið. Draumastarfið til sjós er hins vegar kokkurinn, í því em líka talsvert meiri peningar en í hásetastarfinu. — Hvernig skiptast hlutimir á milli skipveija vanalega? Hásetamir fá minnst, þó svo að kannski vinni þeir mest. Auðvitað hvílir mesta ábyrgðin og vinnan á skipstjóranum. Hann fær held ég ömgglega tvo hluti, hásetinn einn, kokkur einn og kvart, vélstjóri einn og hálfan og bátsmaður og neta- maður einn og einn áttunda. Ég held að ég fari rétt með þetta svona. Að vera með tíu strákum á sjó em náttúmlega viðbrigði til að byija með. Á Baldri em bara tveir svefnklefar og ég deili öðmm þeirra með tveimur strákum. Vaktirnar em þannig að maður vinnur í tólf tíma, á svo frí í fímm og hálfan og á þeim tíma borðar maður, þvær sér og sefur. Svefninn verður því aldrei lengri en fimm tímar í senn. Svo ef ekkert fískerí er þá er setið inni og horft á vídeó, spilað og spjallað eða unnið það sem gera þarf úti. — Þér hefur gengið vel að kom- ast af við strákana eða hvað? Jú, þeir em afskaplega indælir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.