Morgunblaðið - 17.08.1988, Page 1
64 SIÐUR B
185. tbl. 76. árg.
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Verkfall kolanamumanna 1 Póllandi:
Yfirvöld viður-
kenni Samstöðu
Varsjá. Reuter.
ÞRJÍJ þúsund verkamenn i kolanámu í bænum Jastrzebie í Suður-
Póllandi hófu verkfall i gær. Sjö hundruð menn halda til í námunni,
en hundruð lögreglumanna umkringdu hana í gær. Stanislaw Pasek,
einn verkfallsmanna, sagði í simtali við fíeuíers-fréttastofuna að for-
stjóri Manifest Lipcowy-námunnar hefði fyrirskipað að öll framleiðsla
yrði stöðvuð um sinn. Námumennimir krefjast þess að Samstaða, hin
ólöglega verkalýðshreyfing i Póllandi, verði viðurkennd auk þess sem
þeir krefjast launahækkana.
Verkfallið hófst þegar þtjú hundr-
uð verkamenn sem mættu á nætur-
vakt á mánudagskvöld neituðu að
fara niður í námuna. Verkamenn sem
mættu til vinnu eftir hádegi í gær
fengu ekki að fara inn á námusvæðið.
Námumennimir settu á stofn 33
manna verkfallsnefnd sem lagði fram
kröfugerð til stjómvalda í tuttugu
liðum. Meðal þess sem námumenn-
imir fara fram á er að yfírvöld viður-
kenni Samstöðu, en um þessar mund-
ir eru átta ár liðin frá stofnun henn-
ar. Þá vilja verkfallsmenn að laun
verði hækkuð, aðbúnaður á vinnu-
stað bættur og að fyrrum námu-
Dollar lækkar
vegna aukins
viðskiptahalla
London. Reuter.
menn, sem sagt hefur venð upp
störfum vegna stjómmálaafskipta,
verði ráðnir á ný.
„Við munum ekki gefast upp fyrir
hótunum yfírvalda og vonum að aðr-
ir námuverkamenn gangi í lið með
okkur," sagði Stanislaw Pasek í sam-
tali við Reuíers-fréttastofuna. Hann
sagði að um fjórðungur verkamanna,
sem starfa við námuna, tækju þátt
í verkfallinu.
Pasek sagði að Karol Grzywa,
yfirmaður námunnar, hefði lesið upp
yfirlýsingu þess efnis að vinnslu yrði
hætt í námunni þar til yfírvöld hefðu
ákveðið annað. Skömmu eftir að
Grzywa hafði lesið upp yfirlýsinguna
umkringdi lögregla námuna.
Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu,
sagði í símtali við Peuters-fréttastof-
una, að verkfallið væri afleiðing þess
að stjómvöldum hefði mistekist að
halda aftur af verðbólgu í Póllandi,
sem nú væri um 50%.
AP
Grænfriðungar gengu í hringi fyrir framan veitingastað Burger
-Krng’-keðjunnar í Washington og æptu: „Stöðvið hvalveiðar strax.“
Ungi maðurinn fremst á myndinni ber spjald sem á er letrað:
„Vísindaveiðar íslendinga eru yfirskin." Um 100 manns tóku þátt í
mótmælunum í Washington að sögn grænfriðunga sjálfra.
Bandaríkin;
Dan Quayle
varaforseta-
efni Bush
New Orleans. Reuter.
GEORGE Bush, varaforseti
Bandaríkjanna og forsetaefni
Repúblikanaflokksins, tilkynnti i
gær að hann hefði valið Dan Qua-
yle, öldungadeildarþingmann frá
Indíana, sem varaforsetaefni sitt.
Bandariska sjónvarpsstöðin NBC
greindi frá þvi i gær að George Bush
hefði tilnefnt Dan Quayle, sem vara-
forsetaefni sitt í forsetakosningunum
sem fram fara 8. nóvember næst-
komandi. Sjónvarpsstöðin sagði að
jafnframt hefði öðrum, sem orðaðir
hafa verið við útnefningu, verið til-
kynnt að þeir hefðu ekki orðið fyrir
valinu sem varaforsetaefni.
Bush kom til New Orleans upp
Mississippi-á með fljótabáti. Hann
tilkynnti við móttökuathöfn að hann
hefði valið Quayle sem varaforseta-
efni sitt. „Ég hef ákveðið að velja
þennan fyrirmyndarþingmann til að
vera varaforsetaefni mitt og ráðlegg
landsfundarmönnum að fara að
dæmi rnínu," sagði Bush. Quayle,
sem tók sæti í öldungadeild Banda-
ríkjaþings árið 1980, nýtur stuðnings
ihaldssamari repúblikana. Það vakti
furðu að hann var meðal þeirra sem
tóku á móti Bush við komuna til New
Orleans.
Sjá fréttir af landsfundi
repúblikana á bls. 24.
Grænfriðungar í Bandaríkjunum mótmæla hvalveiðum íslendinga:
Friðsamleg- mótmæli við
veitmgastaði í 74 borgum
GENGI Bandaríkjadollars lækk-
aði í gær er þær fréttir bárust að
viðskiptahalli Bandaríkjanna
hefði aukist í júnímánuði. Þegar
gjaldeyrisviðskiptum lauk i Lond-
on síðdegis i gær var dollarinn
skráður á 1,8705 vestur-þýsk
mörk en á mánudag fengust
1,8822 mörk fyrir hann.
Um tíma fengust aðeins 1,86
mörk fyrir dollarann en gengi hans
hækkaði aftur er líða tók á daginn.
Kváðust nokkrir fjármálasérfræðing-
ar telja að linnulítil hækkun dollars
á undanfömum vikum væri á enda
runnin.
í skýrslu stjómvalda sem birt var
í gær kom fram að viðskiptahalli
Bandaríkjanna í júnímánuði nam
12,54 milljörðum dollara (um 570
milljörðum ísl. kr.) og hafði hann
aukist frá í maí er hann var sagður
9,76 milljarðar (rúmir 440 milljarðar
ísl. kr.).
Náttúruverndarsamtökin
Greenpeace mótmæltu í gær hval-
veiðum íslendinga i 74 borgum
Bandaríkjanna. Grænfriðungar
söfnuðust saman við veitingastaði
skyndibitakeðjanna Wendy’s,
Burger King og Long John Silver
með skilti og borða og hrópuðu
slagorð. Mótmælin fóru friðsam-
lega fram.
Mótmæli grænfriðunga voru ekki
ætluð til æsinga, að sögn Deans
Wilkinsons, talsmanns þeirra í Was-
hington. „Veitingahúsaeigendur
voru eflaust ekkert hrifnir, en þetta
voru friðsöm mótmæli og við hvött-
um fólk alls ekki til þess að snið-
ganga viðkomandi fyrirtæki, heldur
láta í ljós áhyggjur vegna hvalveiða
íslendinga og hvetja veitingahúsin
til þess að kaupa ekki íslenskan físk,“
sagði hann.
Að sögn Wilkinsons sýndu fjöl-
miðlar mótmælunum meiri áhuga en
oft áður. „í Washington voru sex
sjónvarpsstöðvar, íjórar útvarps-
stöðvar og nokkur dagblöð viðstödd
mótmælin. í Orlando fylgdust allar
fréttastofur borgarinnar með og ein
útvarpsstöðin sendi beint út frá mót-
mælunum," sagði hann. í Fíladelfíu
fengu grænfriðungar rokkhljómsveit
í lið með sér og vöktu mikla at-
hygli, að sögn Wilkinsons. Grænfrið-
ungar halda því fram að þeir hafí
safnað 250 þúsund undirskriftum
gegn hvalveiðum íslendinga.
Að sögn blaðafulltrúa Long John
Silver, Bruce Cottons. hafði hann litl-
ar fregnir haft af mótmælum græn-
friðunga og sagði hann að sér virt-
ust þau fremur máttlítil. Aðspurður
um viðbrögð fyrirtækisins, sagði
Cotton afstöðu þess til fískkaupa af
íslendingum óbreytta og að ekki
væri á dagskrá að hætta þeim.
Dean Wilkinson hélt því fram að
í Seattle hefði fulltrúadeildarþing-
maður demókrata, Donald Bonker,
tekið þátt ( mótmælunum. Hefði
Bonker lýst því yfir að hann hygðist
flytja þingsályktunartillögu á Banda-
ríkjaþingi um refsiaðgerðir vegna
hvalveiða íslendinga. Bonker er
þekktur baráttumaður fyrir algjöru
hvalveiðibanni.
Bob Hennessy, blaðafulltrúi Don-
alds Bonkers, sagði hins vegar í sam-
tali við Morgunblaðið að þetta væri
á misskilningi byggt. Þingmaðurinn
hefði kynnt tillögu í þessa veru í jan-
úarmánuði og hefði ekki í hyggju
að leggja fram aðra slíka. Tillaga
Bonkers hefur verið tekin til með-
ferðar í undimefndum fulltrúadeild-
arinnar, en henni er einkum beint
gegn hvalveiðum Japana.
Morgunblaðið náði f nótt tali af
Halldóri Ásgrímssyni, sjávarútvegs-
ráðherra, en hann sagðist ekki geta
tjáð sig um málið þár sem hann
skorti nákvæmar upplýsingar. Að
sögn Yngva Yngvarsonar, sendiherra
íslands í Washington höfðu sendi-
ráðsmenn ekki orðið varir við mót-
mæli grænfriðunga né borist nein
gögn um þau. Ekki höfðu þeir heldur
orðið varir við að sagt væri frá mót-
mælunum í fjölmiðlum vestra.
Sjá bls. 2: Hyggjast draga úr
kaupum á íslenskum físld um 20%.
Sovétríkin;
Rit fyrrum leiðtoga fjarlægð
Moskvu. Reuter.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að fjarlægja ritverk Leoníds Brezhnevs og
Konstantíns Tsjemenkos, fyrrum leiðtoga Sovétríkjanna, úr bókasöfn-
um að því er sagði f gær f Izvestiu, málgagni Sovétstjómarinnar. Blað-
ið birti bréf frá bókasafnsverði einum á Krim-skaga, sem kvaðst hafa
fengið fyrirmæli þessi á fundi ásamt starfsbræðrum sfnum.
Fram kom að verk Míkhaíls hefðu verið út fyrir mars 1985 en
Súslovs, fyrrum hugmyndafræð-
ings kommúnistaflokksins, og
Viktors Grishíns, fyrrum formanns
Moskvudeildar flokksins, yrðu enn-
fremur fjarlægð. Grishín er sá eini
þessara manna sem enn er á lífi.
I bréfinu sagði að ákvörðun þessi
tæki einnig til allra ritverka um
stjóm- og efnahagsmál sem gefín
einmitt þá komst Míkhaíl S. Gorb-
atsjov, Sovétleiðtogi, til valda. Á
bréfinu var hins vegar ekki ljóst
hvort þessi ákvörðun gilti eingöngu
um bókasöfn á Krím-skaga eða
gervöll Sovétríkin.
í bréfinu, sem I. Zavgorodnyaja
undirritaði, sagði ennfremur að
bókavörðum hefði verið falið að
fjarlægja allar heimildir um flokks-
þing kommúnistaflokksins, er hald-
in vom á árunum 1961 til 1981. Á
22. þingi flokksins, sem Níkíta
Khrústsjov stýrði árið 1961, var
m.a. samþykkt að fjarlægja jarðn-
eskar leifar Jósefs Stalíns úr graf-
hýsi Leníns við Rauða torgið í
Moskvu.
Sovétsérfræðingar kváðust í gær
vera undrandi á fréttum þessum
þar sem Gorbatsjov hefði lagt
áherslu á að fyllt yrði upp í „eyð-
ur“ í sögu Sovétríkjanna.