Morgunblaðið - 17.08.1988, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 17.08.1988, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988 3 Manntal tekið 1981: Niðurstöður birtar í fyrsta lagi á næsta ári Mun ekki nýtast okkur sem skyldi, segir hagstofustjóri ENN liggja engar niðurstöður fyrir úr manntali sem Hagstofa Islands lét gera í byijun árs 1981. Að sögn Hallgríms Snorrasonar hagstofustjóra sér nú loks fyrir endann á úrvinnslu manntalsins. „Okkur er ákaflega annt um að birta upplýsingar úr manntalinu, jafnskjótt og þær eru til reiðu. Urvinnslan hefur tekið mjög langan tíma og því mun mann- talið ekki nýtast okkur sem skyldi. En það var nyög ýtarlegt og ætti því þrátt fyrir það að veita okkur talsverðar upplýs- ingar, t.d. um fjölskylduna og atvinnumál. Niðurstöðurnar munu einnig nýtast okkur í sam- anburði við fyrri manntöl og seinni tíma rannsóknir," sagði Hallgrímur. Stefnt er að því að Rekstrarfjármögn- un í fiskeldi: Fulltrúar þriggja ráðuneyta leita leiða A ríkisstjórnarfundi í gær var ákveðið að fulltrúar frá land- búnaðar-, forsætis- og fjármála- ráðuneyti könnuðu leiðir til að ná því markmiði sem starfandi nefnd er gerir athugun á starfs- skilyrðum fiskeldis hér á landi telur nauðsynlegt varðandi rekstrarfjármögnun fiskeldis- fyrirtækja. I áfangaskýrslu nefndarinnar sem nýlega var kynnt var lagt til að fiskeldi hér á landi nyti ríkis- ábyrgðar á rekstrarlánum eða að stofnað verði sérstakt ábyrgðarfé- lag á vegum banka og sparisjóða. „Markmiðið er að leysa þann vanda sem við er að etja, og er þessum fulltrúum ætlað að kanna hvaða leiðir eru færar í því sam- bandi," sagði Jón Helgason land- búnaðarráðherra. birta fyrstu niðurstöður fyrri- hluta næsta árs. Unnið hefur verið úr manntals- gögnunum með hléum allt frá 1981 og ástæða hins langa úrvinnslutíma er sú, að stofnanimar sem við verk- ið fást eru smáar, með þröngan fjár- hag og fámennt starfslið, að sögn Hallgríms. „Verkið er feikilega stórt og þungt í vöfum en við bind- um vonir við að endanleg úrvinnsla hefjist á næstu mánuðum. Við von- umst til að ekki fari fyrir þessu manntali eins og því fýrsta sem gert var hérlendis. Niðurstöður þess voru ekki birtar fyrr en 77 árum eftir að það var unnið,“ sagði Hall- grímur. Hann sagði að reynslu starfsfólks Hagstofunnar að vinna sem þessi tæki langan tíma en rúm 7 ár væri of mikið. Æskilegt væri að vinna við svona könnun taki um 3 ár en það væri þó býsna háleitt markmið. Það ætti að vera hægt að birta grundvallaratriði fljótt þótt endan- leg úrvinnsla myndi vara mun leng- ur. í lögum um Hagstofuna segir að henni bera að gera manntöl. Ekki er kveðið á um hversu langur tími skuli líða milli manntala en að sögn Hallgríms miða flestar þjóðir við að þau séu gerð á 10 ára fresti. Síðasta manntal á Islandi var gert 1960. Hið fyrsta var gert 1703 og á 20 til 30 ára fresti til ársins 1865. Frá 1870 til 1960 voru manntöl gerð á 10 ára fresti. Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um hvort taka eigi manntal í byijun næsta áratug- ar en að sögn Hallgríms verður að taka ákvörðun um það innan skamms. CXg) V/SA STYRKTARAÐILI ÓLYMPÍULIÐS ÍSLANDS Gaf út um 20 fals- aða tékka 26 ÁRA gamall maður er nú í haldi hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins, grunaður um að hafa stolið ávísanahefti á skemmti- stað í Reykjavík og gefið út úr þvi rúmlega 20 falsaðar ávísan- Lögreglan á Akranesi handtók manninn á mánudag að beiðni Rannsóknarlögreglu ríkisins og var hann færður til yfirheyrslu í Reykjavík. Að sögn Ragnars Vign- is, aðstoðaiyfirlögregluþjóns hjá RLR, var maðurinn ölvaður er hann var handtekinn og vildi lítið tjá sig um afbrot sín. Eru yfir- heyrslur yfir honum skammt á veg komnar og ekki er vitað hversu mikla fjármuni hann hefur komist yfir Kpeð fölsunum sínum. Ákvörð- un hafði ekki verið tekin um það í gær hvort óskað yrði eftir gæslu- varðhaldsiírskurði yfir manninum. Hann hefur áður komið við sögu lögreglunnar. EINA KORTIÐ sem veitir aögang að hraöbönkum erlendis auk helmingi fleiri banka en nokkurt annaö Meö VISA upp á vasann og PIN- númerið* bak viö eyraö geturðu nælt þér í skotsilfur í skyndi - vasapeninga í réttri mynt - bara með því að ýta á hnapp - jafnt á kvöldin sem um helgar árið um kring. VISA opnar þér fleiri dyr en nokkurt annað greiðslukort. Á SJÖUNDU milljón viðtökustaða um veröld alla auk 220.000 banka og 26.000 hraðbanka á helstu ferðamannastöðum. *) Hafðu samband við VISA ÍSLAND ef þú þarft að fá PIN-númerið (persónulega innsláttarnúmerið þitt) endurútgefið. Dæmi: Bretland Bandaríkin Danmörk Finnland Hraöbankar 1.920 12.293 150 241 Bankar 5.121 65.111 560 366 V/SA Dæmi: Frakkland Portúgal Spánn Svíþjóö Hraðbankar 2.399 278 3.295 122 Bankar 13.034 350 30.106 2.160 Allt sem þarf

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.