Morgunblaðið - 17.08.1988, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988
5
IX HEIMSREISAN
INNIFALIÐ:
Flugferðir, akstur, heimsreisufararstjórn,
lúxusgisting á vönduðustu hótelum,
morgunverður og fullt fæði á ferðalögum
ílndlandi.
Þrátt fyrir yfirburði á mörgum sviðum er
veröið lægra en annars staðar, aöeins kr.
165.700,- í 26 daga.
irisVN
Fettaskrifstofan Otsfn hf
Varautan-
ríkisráð-
herraKína
til íslands
Varautanríkisráðherra Kína,
Zou Nan, dvelur ásamt fylgdarliði
á íslandi 25. til 29. ágúst nk. í
boði Steingríms Hermannssonar
utanríkisráðherra.
í fréttatilkynningu frá utanríkis-
ráðuneytinu segir að auk viðræðna
við utanríkisráðherra muni varaut-
anríkisráðherrann m.a. hitta að máli
forsætisráðherra og samgönguráð-
herra. Jafnframt mun varautanríkis-
ráðherrann heimsækja Alþingi í boði
forseta Sameinaðs þings.
Varautanríkisráðherrann mun
einnig skoða söfn í Reykjavík og
heimsækja Vestmannaeyjar og
Þingvelli.
Rúna Guðmundsdóttir.
Rúna Guð-
mundsdóttír
látín
LÁTIN er í Reykjavík Rúna Guð-
mundsdóttir, kaupmaður í París-
artískunni, 62 ára að aldri.
Rúna fæddist í Reykjavík 12.
mars 1926, dóttir hjónanna Guð-
mundar Guðmundssonar skipstjóra
og síðar bónda á Móum á Kjalarnesi
og Kristínar Teitsdóttur. Rúpa
stundaði nám við Kvennaskóla Is-
lands 1940-44. Alla sína starfsævi
vann hún við verslun, var verslunar-
stjóri Markaðarins í Reykjavík frá
1955 og þar til hún stofnaði París-
artískuna árið 1963. Þeirri verslun
stýrði Rúna til dauðadags.
Eftirlifandi eiginmaður Rúnu er
Magnús Guðmundsson stórkaup-
maður. Hún lætur eftir sig 2 upp-
komin börn, Guðmund Hermanns-
son, sveitarstjóra í Þorlákshöfn, og
Rúnu Hauksdóttur, lyfjafræðing.
Grindavík.
Barnaheimili í
gömlu kirkjunni
Grindavik.
Bæjarráð Grindavíkur hefur ósk-
að eftir því við safnarstjórn
Grindavikursafnaðar að fá gömlu
kirkjuna, sem var aflögð fyrir
nokkrum árum, fyrir barnaheim-
ili í haust.
Mikil ekla er á leiksskólarými og
því hafa verið reyndar leiðir til að
bæta úr mestu vandræðunum meðal
annars með því að bærinn hefur
tekið þátt í gjöldum til dagmæðra
og eins tók bærinn yfir rekstur leik-
skólans sem fiskvinnslustöðin
Gullvík kom á fót fyrir tveimur
árum.
Nú hefur verið ákveðið að hætta
þeim rekstri og hafa forstöðukonur
leikskólans gert tillögur til bæjar-
ráðs hvernig hentugt verði að nýta
gömlu kirkjuna sem nú stendur auð
og ónotuð eftir að JC Grindavík lagði
upp laupana í vetur.
Safnaðarstjórnin hefur svarað
bæjarráði og tekið vel í málið en
sett fram ákveðin skilyrði sem tekin
verða fyrir í bæjarráði eftir sumarfrí.
Kr.Rpn.
Gamla kirkjan í Grindavík fær nýtt hlutverk.
Morgunblaðið/Kr.Ben.
Heimsreisa IXsameJnarundur
heimsins í þremur löndum þar
sem leyndardómar og dulúð
blandast saman við 5000 ára
gamlasögu.
INDLAND
- Voldugt en dulúðugt land viskunnar og
ótrúlegraandstæðna.
Áfangastaðir: Bombay - Jaipur - Agra
- Khajuraho - Varanasi.
NEPAL
- Gætt hrikalegri en stórbrotinni
náttúrufegurð í hliðum hæstu fjalla heims,
HIMALAYA.
Áfangastaðir: Kathmandu. Boðið uppá
eins og tveggja daga ferðir frá
Kathmandu, m.a. til Tiger Tops og Pokhara.
SRILANKA
(Ceylon) - Eitt fegursta djásn jarðar, jarð-
nesk paradís. Vikudvöl við bestu aðstæður
ánýjuHilton hóteli.
ÚTSÝNAR-
HEIMSREISA
- á engan sinn líka
Þú upplifir og fræðist um
UNDUR HEIMSINS með einstöku móti í
heimsreisum ÚTSÝNAR. Heimsreisufarar
hafa nú þegarferðast til flestra merkustu
menninngarsvæða heimsins og bæta nú
við reynslu sína veröld sem ekki a sinn líka.