Morgunblaðið - 17.08.1988, Side 18

Morgunblaðið - 17.08.1988, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988 4- Borgin, völlurinn og þjónustan eftir Tómas Inga Olrich í kjölfar hörmulegs slyss, sem nýlega varð á Reykjavíkurflugvelli, hafa umræður um staðsetningu flugvallarins verið teknar upp að nýju. Andstæðingar flugvallarins hafa að vonum talið slysið renna stoðum undir þá skoðun sína, að flugvöllurinn ógni lífí þeirra, sem nærri honum búa eða eru þar á ferð um aðalumferðaræðar borgar- innar. í umíjöllun um framtíð Reykjavíkurflugvallar eru öryggis- mál þeirra, sem um hann fara og eins hinna sem nálægt honum lifa og hrærast mjög mikilvægur þátt- ur. Ótvíræðir kostir flugvallarins sem samgöngumannvirkis að öðru leyti verða léttvægir fundnir, ef öryggismálin eru ekki sem skyldi. Það er því sjálfsagt að leita allra leiða til að auka öryggi flugvallarins og draga einnig úr þeirri flugum- ferð, sem ekki á beint erindi til hans. Hins vegar má umræðan um ör- yggismálin ekki leiða til þess, að menn verði glámskyggnir á hlut- verk og kosti flugvallarins og fjalli um framtfð hans út frá þröngum hagsmunum. Þess hefur einmitt gætt í kjölfar slyssins, sem og raun- ar oft áður. Er þá einkum átt við skoðanir, sem fram komu í sjón- varpsviðtölum, annars vegar við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og hins vegar við Bjarna Magnússon, en bæði eru þau borgarfulltrúar. Naflinn og útlimirnir Nú hefur sú þróun orðið í þessu landi, og ætti að vera flestum ljós, þótt þeir sitji í borgarstjórn Reykjavíkur í nafni Kvennalistans eða Alþýðuflokksins, að mjög margvíslega þjónustu þarf að sækja til höfuðborgarinnar. Eru raunar fá þjóðfélög vestræn, sem að sama skapi eru miðstýrð og ísland. Þótt margir séu, eins og undirritaður, ósáttir við það, hve Islendingar eru háðir ríkis- og stofnanaveldi höfuð- borgarinnar, er raunveruleikinn þó það sem gildir. Og samkvæmt hon- um er naflinn í Reykjavík, og fátt satt að segja sem bendir til þess að miklar stökkbreytingar verði á þeirri skipan í náinni framtíð. Á meðan svo er, er talsverður hluti þjóðarinnar mjög háður góðum samgöngum við höfuðborgina. Og jafnvel þótt eitthvað dragi úr mið- stýringu, eru góðar samgöngur einn mikilvægasti þáttur í menningu nútímans. Menn ættu því að hugsa sig tvisvar um áður en þeir leggja til að horfíð verði marga áratugi aftur í tímann í samgöngumálum. Víðtæku þjónustuhlutverki höf- uðborgarinnar fylgja að sjálfsögðu miklir fjárhagslegir kostir fyrir Reykjavík og Reykvíkinga. En hlut- verkinu fylgja líka skyldur, og þá fyrst og fremst sú að rækja hlut- verkið eins vel og kostur er og áfallaminnst fyrir þá sem þjón- ustunnar njóta. Tvenns konar veikleiki Reykjavík er ekki vel fallin til að vera þjónustumiðstöð fyrir ís- lendinga. Ræður þar einkum tvennt. Borgin stendur á útnesi og er því ekki miðlæg. Fyrir fámenna þjóð í stóru landi er lega höfuð- borgarinnar því óhagstæð, svo fremi sem menn hverfa ekki að því ráði að flytja alla þjóðina til suðvest- urhomsins. Hitt atriðið, sem gerir Reykjavík erfítt fyrir að sinna þjón- ustuhlutverki sínu sem skyldi, má að mestu rekja til mannlegra mis- taka. Það hefur mistekist að skipu- leggja höfuðborgina með tilliti til þjónustuhlutverksins. Með öðrum orðum, Reykjavík hefur notið þeirra fríðinda, sem hlutverki hennar fylgja, án þess að hafa, í skipulags- málum, tekist að sinna skyldum sínum. Atlögvr að Miðbænum Það sem mestu varðar fyrir þá, sem sækja þjónustu til Reykjavík- ur, er virkur miðbær, þar sem stofn- anir og þjónustumiðstöðvar eru saman komnar á tiltölulega litlu svæði. Miðbær Reykjavíkur er að sjálfsögðu Kvosin og nánasta um- hverfí hennar. Liggja til þess gildar sögulegar ástæður. Þar er auk þess yfrið land til að þjóna svo fámennu þjóðfélagi sem okkar, jafnvel þótt þjónustunni hafi vaxið fiskur um hrygg langt um- fram það, sem æskilegt getur talist og sé í mörgum tilfellum nánast þröngvað upp á þegnana. í Reykjavík hefur sú dapurlega þróun orðið, að þar hafa, víðs vegar um borgina, risið upp þjónustu- kjamar, sem gegna hlutverki mið- bæjar. Þar má nefna „nýja mið- bæinn“ í Kringlunni, Mjóddina, Ártúnshöfða, Hlemm og Skeifuna. Sum þessara svæða eru öll á lengd- ina, eins og til dæmis Skeifan- Ármúlinn. Milli þessara kjama liggja langar verslunargötur, eins og Laugavegurinn og Suðurlands- brautin. Má segja að verslun og viðskipti og hver önnur þjónusta í Reykjavík lúti einhveiju torráðnu miðflóttaafli, sem bitnar jafnt á borgarbúum sem og þeim sem þangað sækja. Miðbæjarkjarnar Reykjavíkur grafa undan starfsemi hins raunverulega hefðbundna mið- bæjar. Flakkinu milli þessara þjón- ustukjama fylgja hnútar og stíflur í umferðinni, ásamt fylgifiskum, slysum og mengun. Er svo komið að margir þeirra, sem sækja þjón- Tómas Ingi Olrich ustu til höfuðborgarinnar, bera ekki við að vera bíllausir; er algengt að menn þveitist 60—100 km á dag milli Heródesa og Pílatusa kerfís- ins. Þessu fyrirkomulagi hefur að sjálfsögðu fylgt mikil offlárfesting í verslunar- og skrifstofuhúsnæði og álag á umferðarkerfí með til- heyrandi útgjöldum fyrir þjóðfélag- ið. í 250 þúsund manna þjóðfélagi og á höfuðborgarsvæði, þar sem helmingurinn býr, er þróun á borð við þá, sem hér hefur verið lýst, fáránleg. Skipulag, gamalt og nýtt Hluta af þessu afvegaleidda skipulagi má rekja til þess er sam- þykkt var í aðalskipulagi Reykjavík- ur 1962—1983 að leggja niður gamla miðbæinn sem slíkan og byggja upp nýjan miðbæ í Kringl- unni. Sá stakkur, sem þá var snið- inn, hefur reynst dýr og mun þó líða langur tími, áður en bitið verð- ur úr nálinni. Enn er unnið að upp- byggingu Kringlunnar af miklum krafti og sömu sögu er að segja af öðrum þjónustuþyrpingum í Reykjavík. I endurskoðuðu nýju aðalskipu- lagi borgarinnar, sem staðfest var í júlí sl., er horfið frá þessum glötun- arstíg og lagður grundvöllur að endurreisn miðbæjarins. Ýmislegt er að gerast, sem bendir til þess að Reykjavík verði gert kleift að sinna betur þjónustuhlutverki sínu. Ég vil nefna þær breytingar, sem nú eru í deiglunni í húsnæðismálum ráðuneytanna, þótt enn sé óljóst hve miklum hluta þeirra verður komið fyrir í miðbænum. Listasafn íslands, sem var að vísu dýr bygg- ing, en jafnframt tímabært framlag þjóðarinnar til íslenskrar myndlist- ar, sómir sér mjög vel á sínum stað. Umhverfi tjarnarinnar tekur nú miklum stakkaskiptum. Ráðhús það, sem Reykjavíkurborg hefur nú hafíð smíði á, er einnig til þess líklegt að efla miðbæinn, ekki síst ef Reykvíkingar bæru gæfu til að standa saman um þessa vel hönn- uðu og smekklegu byggingu, sem af framsýni og skynsemi hefur ver- ið valinn staður við tákn borgarinn- ar, Tjörnina. En þetta gengur böksulega, sennilega að hluta til vegna þess að of margir þeirra, sem um málin ijalla, gera sér ekki fyllilega grein fyrir því, hve þjónustuhlutverk borgarinnar gerir miklar kröfur til skipulags hennar. Stærsta tromp borgarinnar Þegar í ljós kemur hve erfiðlega hefur gengið að skipuleggja Reykjavík með tilliti til höfuðborg- arhlutverksins, er raunalegt að heyra því gerða skóna, að nú skuli fórna stærsta trompinu, sem borgin getur með fullum rétti státað af sem þjónustumiðstöð og höfuðborg ís- lands, Reykjavíkurflugvelli. Þeir, sem fullyrða með Ingibjörgu Sól- rúnu Gísladóttur, að landið undir flugvellinum sé illa nýtt og völlurinn vond fjárfesting, verða að loka aug- unum fyrir ærið mörgum stað- reyndum, bæði að því er varðar fjár- mál, samgöngumál og síðast en ekki síst öryggismál. íslendingar nýta mikið flugsam- göngur. Um Reykjavíkurflugvöll er ætlað að fari á þessu ári 280 þús- und manns og að þeir greiði í far- gjöld um 780 milljónir. Flugvöllur- inn er vinnustaður um 1.200 manns. Fyrir utan launagreiðslur, greiðir völlurinn veruleg bein gjöld til borg- arsjóðs. Óbeinar tekjur borgar og borgarbúa af innlendum ferða- mönnum verða ekki metnar með góðu móti, en flestum ábyrgum borgarfulltrúum hlýtur að vera ljóst að þar er um miklar íjárhæðir að stuðlum Stef í Myndlist Bragi Ásgeirsson Myndlistarmaðurinn Bjarni H. Þórarinsson vill koma víða við í listinni og í senn vera samkvæmur sjálfum sér og tíðarandanum. Á bak við myndsköpun hans hafa að jafn- aði verið heilmikil heilabrot um myndefnið og efniviðinn á milli handanna. Eftir að hafa verið gagntekinn af hugmyndafræðilegu listinni og jafnframt einn af höfuðpaurum unga fólksins á bak við athafnasem- ina í gamla húsinu fallega við Suð- urgötu 7, hóf hann að munda pentskúfínn í anda nýbylgjumál- verksins og sýndi hér hressileg til- þrif. En tilþrifin með sígilda miðlin- um virðast aðeins hafa verið frávik frá reglunni, því að nú er hann kominn aftur í hugmyndafræðina og að þessu sinni á bólakaf. Víst á strangflatalistin miklu fylgi að fagna um þessar mundir, og menn fínna 5 þessum traustu markvissu formum nokkuð öryggi á óöruggum og ruglingslegum tímum í myndlist- inni. Jafnvel þótt þetta óöryggi sé fyrst og fremst tengt ytri hliðinni og listamarkaðinum, þar sem við- komandi hafa spennt bogann of hátt með fjarstýringarbrölti sínu. Þótt þeir hinir sömu gangi vísast seint svo langt, að mörlandinn á klakanum liggi ekki vel við skoti. Sýningu sína á neðri hæð Ný- listasafnsins nefnir Bjami „Sjón- háttafræði", og telur hugtakið nýja stefnu og fræðigrein í myndlist — og hefur af því tilefni boðið til sjón- þings. Myndverkin sjálf virka þó líkast æfingum í formfræði, og Bjami gefur gamalgrónum aðferðum ný nöfn, sem opinbera væntanlegan nýjan útgangspunkt. Hann raðar formum á frekar kunnuglegan hátt og nefnir aðferðina einbendu, tvíbendu og þríbendu, og í þeim em svo stuðlar, stef í stuðlum, innrím, útrím, rafrím, rofrím og í næsta sjónmáli sér gerandinn krossbendu og hringbendu, en hefur ekki enn hafíst handa á þeim vettvangi. Þetta er allt gott og blessað og vel og vandvirknislega unnið úr formum og litum, þannig að mynd- heildimar em hinar þekkilegustu fyrir augað — líkastar tjöldum fyrir listræna glugga. En þegar þess er gætt að hug- myndimar vöknuðu ekki fyrir nema 2—3 mánuðum, er varla að búast við, að þær séu með öllu gmndvall- aðar og komnar í sinn endanlega búning og því farsælast að vera varkár í umsögn, þar til skilgrein- ingin liggur ljós fyrir. Og auðvitað em form alltaf form og jafnmikil- væg í sjálfu sér og þannig fortek ég ekki, að margt og merkilegt kunni að koma frá þessum rann- sóknum Bjama H. Þórarinssonar, en ef ekki þá bætist hann einfald- lega í hóp þeirra mörgu, er fundu upp heita vatnið, og þeim fjölgar raunar stöðugt. Bjarni H. Þórarinsson myndlistarmaður. Birgir Andrésson listamaður „Skúlptúrar og form“ Á efri hæð Nýlistasafnsins er Birgir Andrésson með eins konar innsetningu í formi tilbúinna skúlpt- úra og niðursneiddra einlitra forma. Skúlptúramir em í formi gam- allrar hurðar svo og rúms, sem einn- ig mun komið til ára sinna, en ger- andinn hefur málað svart og bætt við þrem uppstoppuðum lundum. Þetta er angi af „ready made“- listinni, sem dadaistinn Marchel Duchamp gerði svo fræga fyrir margt löngu. Birgir Andrésson hefur alla tíð verið áltekinn af hugmyndafræði- legu listinni og er hér samur við sig, þótt ekki fylgi nein stefnuyfir-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.