Morgunblaðið - 17.08.1988, Page 19
19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988
ræða. Reykjavíkurflugvöllur er því
uppspretta mikilla tekna, beinna og
óbeinna, og mikils vert fyrir borgar-
stjórn að veikja ekki rekstrargrund-
völl þessa mannvirkis. Miðað við
það fjármagn, sem bundið er í
mannvirkjum, er flugvöllurinn vafa-
laust arðsamasta samgöngumann-
virki á landinu, sem jafnframt hefur
þann kost, legu sinnar vegna, að
veita viðskiptavinum Flugleiða og
annarra flugfélaga, sem völlinn
nota, afbragðs þjónustu.
Ný viðhorf erlendis
Af þessari legu flugvallarins eru
Islendingar raunar öfundsverðir.
Það hefur komið í ljös á undan-
gengnum áratugum, að alþjóðlegir
flugvellir, sem staðsettir eru langt
frá þeim borgum, sem þeir eiga að
þjóna, gegna ekki hlutverki sínu í
innanlandsflugi sem skyldi. Lega
þeirra dregur úr áhuga manna á
að fljúga og grefur undan arðsemi
innanlandsflugs. Frakkar hafa
brugðist við þessum vanda með því
að efla innanlandssamgöngur með
hraðskreiðum járnbrautarlestum,
sem skila farþegum inn í borgar-
miðju. Margar aðrar þjóðir, þar á
meðal Bretar, hafa horfið til þess
ráðs að rýma til fyrir innanlands:
flugvöllum inni í miðborgum. I
London er nú nýr innanlandsflug-
völur, City Airport (eða London
Docks Stolport) nánast í hjarta
borgarinnar. Á meðan aðrar þjóðir
sjá sig tilneyddar til að verja millj-
örðum til að koma sér upp aðstöðu
fyrir innanlandsflug inni í borgum,
tala skammsýnir borgarfulltrúar
um að fórna styrkustu stoðinni
undir innanlandsflugi íslendinga,
Reykjavíkurflugvelli, sem hefur alla
þá kosti sem aðrar þjóðir sækjast
eftir með ærnum tilkostnaði.
Flug við síbreyti-
legar aðstæður
Það er eitt sérkenna íslenskra
flugsamgangna, að þær verður að
skipuleggja með tilliti til afar
breytilegs veðurfars. Farþegar
þurfa að mæta á Reykjavíkurflug-
velli hálfri klukkustund fyrir brott-
för. Stundum kemur fyrir að þessi
stutta stund er nægilega löng til
að veður spillist svo að ekki sé
hægt að fljúga. Á vissum flugvöll-
um landsins geta aðtæður breyst á
lýsing athöfnum hans (manifestati-
on).
Birgir kemur fram eins og hann
er klæddur og segir enga sérstaka
heimspeki liggja að baki verkanna
og að þau séu það, sem þau líta
út fyrir að vera.
En það er raunar ekki nema
hálfur sannleikur, því að bak við
þá listsköpun, sem Birgir aðhyllist,
er heilmikil hugmyndafræði, hvort
sem hann og aðrir, sem aðhyllast
hana, gera sér það ljóst eða vilja
gera sér ljóst.
Það er rúmið með lundunum, sem
höfðaði einna mest til mín, enda
gæti það tengst lifun úr fortíðinni
og væri þannig í beinu sambandi
við uppruna listamannsins. Þannig
á jafnan að jarðtengja nýlistir dags-
ins, því að annars verður þetta að
endurtekningu af vinnu annarra.
Gamla hurðin fær skoðandann
vafalítið til að hugsa margt og þá
mun tilganginum náð, en svörtu
formin á veggjunum virka sem til-
brigði til áherslu, þótt þau eigi vafa-
lítið einnig að skoðast sem sjálfstæð
verk.
Að vissu marki eru þetta ljóðræn
verk með sterkri skírskotun til for-
tíðarinnar...
mjög skömmum tíma. Það er því
mjög mikilvægur þáttur í íslenskum
flugsamgöngum að ekki líði langur
tími frá brottför frá dvalarstað til
flugtaks. Ef notast ætti við
Keflavíkurflugvöll í stað Reykjavík-
urflugvallar, þyrftu farþegar í inn-
anlandsflugi að leggja af stað frá
Reykjavík einni og hálfri til tveimur
klukkustundum fyrir brottför frá
Keflavík. I mörgum tilvikum færu
farþegar því af stað til Keflavíkur
án þess að hafa neina vissu fyrir
því að komast á leiðarenda. Þeir
sem hafa kynnst gremju flugfar-
þega og raunverulegum vandræð-
um, sem fylgja aflýstu flugi þegar
á flugvöll er komið, hljóta að sjá
hvílík afturför það yrði að beina
innanlandsflugi til Keflavíkur í stað
Reykjavíkur.
Það hefur aukist mjög að farnar
séu dagsferðir til Reykjavíkur. Er
þá oft um starfsferðir að ræða.
Fast hefur verið sótt á það á fjöl-
förnum leiðum, eins og til dæmis á
leiðinni frá Akureyri til Reykjavík-
ur, að flgoið sé snemma að morgni
til þess að vinnudagurinn nýtist sem
best. Ef flogið yrði til Keflavíkur,
og farþegar mættu reikna með að
verða að veija sex klukkustundum
í ferðir fram og til baka, væru dags-
ferðir raunar úr sögunni.
Ahættan flutt til — og aukin
Öryggismál Reykjavíkurflugvall-
ar hafa verið í brennidepli. I þeirri
umræðu hefur það horfið í skugga
flugslyssins hörmulega að
Reykjavíkurflugvöllur hefur reynst
mjög öruggur.
Mér vitanlega hefur ekki orðið
banaslys á Reykjavíkurflugvelli,
sem tengist reglubundnu áætlunar-
flugi.
Á leiðinni frá Reykjavík til
Keflavíkur hafa hins vegar 27
manns beðið bana frá 1970 til 1987,
og tala slasaðra er legíó. Þeir, sem
leggja til að innanlandsflug til'og
frá höfuðborginni verði flutt til
Keflavíkurflugvallar, eru að leggja
til stóraukna umferð á Reykjanes-
braut. Með því er verið að beina
farþegum frá tiltölulega öruggum
flugvelli til umferðaræðar, sem
kostað hefur marga vegfarendur
lífið eða limlestingar. Þeir, sem
slíkan málflutning hafa uppi, eru í
raun að leggja til að stórlega verði
dregið úr öryggi farþega, sem
leggja leið sína til og frá höfuð-
borginni, auk þess sem lagt er til
að þjónusta við þá verði stórlega
skert og þeim aukin vandræði og
óvissa með ýmsum hætti.
Leitum ekki langt
yfir skammt
Ég vil leyfa mér að leggja til að
leitað verði raunhæfra leiða til að
auka öryggi á Reykjavíkurflugvelli.
Það samgöngumannvirki hefur
reynst vel og er tvímælalaust einn
mikilvægasti þátturinn í góðum
samgöngum við höfuðborgina.
Verður ekki annað sagt en að í
umræðum um þessi mál sé mál-
flutningur borgarstjóra Reykjavík-
ur yfirvegaður og skynsamlegur og
betur miðaður við hagsmuni borg-
arbúa og skyldur borgarinnar gagn-
vart landsmönnum en röksemdir
fyrrnefndra borgarfulltrúa, þar sem
ærið margt virðist byrgja sýn.
Uti á landi búa margir sem eiga
mikilla hagsmuna að gæta í þessu
máli. Þeir hafa hins vegar ekki
mikið látið til sín heyra. Sennileg-
asta skýringin er sú, að þeim finnst
hugmyndin um flutning innanlands-
flugsins frá Reykjavík svo fáránleg
að hún taki ekki nokkru tali og
verði því síður framkvæmd.
Höfundur er kennari á Akureyri.
Ætlar þú í maraþon?
Ef svo er,
þá eru skórnir hér
/A % #
/Á
4>'!'
Meiriháttar tilboðsverð
vegna Reykjavíkur maraþons. Mf
AIR MAX FÆST Á EFTIRTÖLDUM STÖÐUM:
Braga Sport,
Suðurlandsbraut 6.
Sími 91-686089.
íþróttabúðin, Sport Gallerí, Frísport, Sportbúðin Maraþon,
Borgartúni 20. Reykjavíkurvegi 68. Laugavegi 6. Sunnuhlíð 12, Akureyri.
Sími 91-20011. Sími 91-652228. Sími 91-623811. Sími 96-27771.