Morgunblaðið - 17.08.1988, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988
Hydro Alummium:
Hefur enn áhuga
á byggingu álvers
Frá Knut Andreas Skogfstad fréttaritara Morgnnblaðsins í Noregi.
HYDRO Aluminium (Norsk Hydro hefur um þessar mundir
Hydro) hefur enn áhuga á því
að byggja álver á íslandi og þá
helst í samvinnu við aðra. Á
sinum tíma hafði Hydro áhuga á
að vera með í ATLANTAL-
verkefninu, það er hinu fyrir-
hugaða álveri í Straumsvík, en
kom of seint inn í myndina. Þetta
kom fram í samtölum Morgun-
blaðsins við forráðamenn Hydro
í Ósló.
Erró sýn-
ir 1989
í FRÉTT af væntanlegum
sýningum Errós, Helga Þorg-
ils og Kristjáns Guðmunds-
sonar í blaðinu í gær var sagt
að sýning Errós yrði haustið
1988 en ekki haustið 1989 eins
og rétt er.
Síðar í inngangi fréttarinnar
var sagt að sýningarnar yrði á
næsta ári og birtist þessi leið-
rétting því til áréttingar.
mikinn áhuga á því að auka fram-
leiðslugetu sína á hrááli þar sem
verð þess er hátt og búist er við
að það haldist þannig í náinni
framtíð. Þar fyrir utan hefur Hydro
þörf fyrir meira magn af hrááli í
vinnslustöðvar sínar og því er áhug-
inn nú ekki eingöngu bundinn við
hið háa verð sem er á hrááli.
Forráðamenn Hydro segja að ís-
land sé áhugaverð staðsetning fyrir
nýtt álver. Þeir staðfesta að fyrir-
tækið sé nú að leita fyrir sér um
byggingu álvers bæði heima fyrir
og erlendis, en vilja ekki gefa upp
hvaða lönd önnur en ísiand koma
til greina. Þær kröfur sem Hydro
gerir um nýtt álver er að raforku-
verðið sé samkeppnisfært og að til
staðar sé menntað vinnuafl á þessu
sviði.
íslensk stjómvöld hafa haft sam-
band við norska mengunarvama-
ráðið (SFT) sem hefur umsjón með
að mengunarvamir við álveM Nor-
egi og annan iðnað séu í lagi. íslend-
ingar hafa óskað eftir upplýsingum
um hvemig vandamál í sambandi
við mengun frá álvemm í Noregi
em leyst.
Morgunblaðið/Hydro Aluminium
Álverið í Árdal, en þar hefur markvisst verið unnið að því að draga úr mengun.
Noregur:
Fullkomnar mengunar-
vamir eru í nýju álverunum
Frá Knut Andreas Skogstad fréttaritara
NORSKUM álverum hefur tekist
að minnka að mun mengun og
afrennsli hættulegra efna út I
umhverfið. Kemur hvorttveggja
til, skipanir stjórnvalda og eigið
rgunblaðsins f Noregi.
frumkvæði iðnaðarins. Mjög full-
komnar mengunarvarnir eru í
nýjustu norsku álverunum enda
voru þau hönnuð með það fyrir
augum og er mengun af þeirra
völdum í lágmarki.
Megnið af norskum álvemm em
komin nokkuð til ára sinna og það
hefur kostað mikla fjármuni að
koma mengunarvörnum í þeim í
viðunandi horf. Sem dæmi má nefna
álverið í Árdal sem er í ejgu Hydro
Aluminium. Þar hefur verið mark-
visst unnið að því að draga úr meng-
un og segir aðstoðarforstjóri álvers-
ins, Sveien Hove, að þeim hafi tek-
ist að minnka flúormengunina um
helming á skömmum tíma.
Það sem gert var í Árdal-álverinu
var að farið var nákvæmlega yfir
framleiðsluferlið í verinu og því
breytt með hliðsjón af því að minnka
útstreymi hættulegra efna út í
umhverfið. Þannig tókst að minnka
flúormengunina um helming og
kostaði það verið aðeins 3-4 milljón-
ir n.kr. Hinsvegar er flúor ekki eina
hættulega efnið sem myndast við
framleiðslu á áli. Þar koma einnig
til brennisteinn, tjara og ryk. Til
að minnka hlutfall þessara efna út
í umhverfíð á sama hátt og flúorið
er áætlað að það kosti álverið um
100 milljónir n.kr. Brennisteinn er
helsta orsök fyrir súru regni sem
verið hefur vandamál í Noregi á
undanfömum árum.
Peugeot-reiðhjól
20-25% verðlækkun
15eða18gíra
verðfrákr.
25.860,-
útsöluverð
frá
kr. 8.960,-
úfsöluverð
kr. 3.375,-
T.d. ékkert út og afganginn á VISA - EURO
raðgreiðslum í 4 mánuði.
JOFUR HF.
NÝBÝLAVEGI2 KÓPAVOGI
S. 42600.
p—
VfSA
SflKBB
m
Klaus Rifbjerg
og Páll Páls-
son leiðréttir
í Morgunblaðinu sunnudaginn
14. ágúst 1988 er viðtal Páls Páls-
sonar við Klaus Rifbjerg rithöfund
og forstjóra. Gyldendal-bókaútgáf-
unnar í Danhmörku. Á einum stað
í viðtalinu segir svo orðrétt:
— Ogí haust ætlar Gyldendal að
gefa út „Þar sem Djöflaeyjan rís“
eftir Einar Kárason, — fyrsti höf-
undurinn, sem forlagið geftur út á
eftir Laxness . . .
„Já, það er rétt og er fyrir til-
verknað ráðgjafa okkar hér í húsinu
í íslenskum bókmenntum. Ég hef
ekki lesið þá bók ennþá . ..“
Hér fer spyrillinn, Páll Pálsson,
rangt með, og forstjórinn er ekki
svo fróður að geta leiðrétt villuna:
Árið 1949 gaf Gyldendal út
skáldsögðuna „Á bökkum Bola-
flóts“ eftir Guðmund Daníelsson,
undir nafninu „Jorden er min“ í
þýðingu Martins Larsens, sem þá
var sendikennari við Háskóla Is-
lands.
Því til staðfestingar fylgir hér
ljósprent af útsíðum bókarkápunn-
ar.
Aðrar skáldsögur Guðmundar
gefnar út í Danmörku komu út hjá
Forlaget Fremad. Á kassettum
eru þær núna að koma út hjá „Lyd-
bogsudgaven, Den grimme Ælling"
í Odense.
Guðmundur Daníelsson