Morgunblaðið - 17.08.1988, Page 23

Morgunblaðið - 17.08.1988, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988 23 Hættuleg ljósmynd? Myndin „hættulega" af sjávarútvegsráðherrum íslands og- Noregs í glaðlegum samræðum á bílastæðinu utan við flugstöðvarbygg- inguna í Bodo. Uppi varð fótur og fit meðal varðmanna norska hersins þeg- ar fréttaritari „Fiskaren", Tor- ill MUnter, tók meðfylgjandi mynd af sjávarútvegsráðherr- um íslands og Noregs, Halldóri Asgrímssyni og Bjarna Mork Eidem, þegar Halldór heimsótti hinn norska starfsbróður sinn um daginn. Þótt myndin sé hin sakleysislegasta að sjá þótti hermönnum vissara að hafa allan varann á og vildu gera filmur og vélar ljósmyndara upptækar af öryggisástæðum. Ráðherrarnir voru að koma til Bodo í Norður-Noregi með flugvél og lentu á herflugvellinum þar. Blaðamenn biðu þeirra eins og títt er við slíkar heimsóknir. A bílastæðinu utan við flugstöðvar- bygginguna stöldruðu ráðherr- arnir við, blaðamenn ræddu við þá um fískirí og ljósmyndarar smelltu af. Þá bytjaði ballið. Varð- menn komu gráir fyrir jámum og heimtuðu myndavélar af ljós- myndurum, sem voru frá „Fiskar- en“ og „Nordlandsposten". Sögðu þeir þarna vera bannsvæði hersins og myndatökur alls ekki leyfðar. Ljósmyndaramir voru aldeilis ekki á því að láta myndavélar sínar af hendi, enda töldu þeir sig ein- urigis hafa tekið sakleysislegar myndir af tveimur ráðhermm að ræða aflabrögð. Herinn krafðist þess þá að hafa menn viðstadda framköllun fílmanna og var það látið eftir þeim. Þegar hins vegar komið var inn á ritstjórn „Nord- landsposten“, þar sem átti að framkalla filmumar, var ritstjór- inn ekki aldeilis á þeim buxunum að hafa hervörslu í myrkrakomp- um sínum og fleygði dátunum á dyr. Við það reiddist offisérinn í Boda og hótaði að kæra ritstjó- rann til lögreglu. í leiðara „Fisk- aren“ á föstudag er fjallað um þetta atvik og segir þar m.a. um framkomu hersins: „Osvífnin get- ur stundum orðið svo mikil, að hún samlagast hugtakinu „heimsku.“ Sven R. Helskog rit- stjóri „Nordlandsposten" hefur kært atvikið til samtaka fjölmiðla í Noregi. Morgunblaðið/Sverrir Heilsugæslustöðin við Hraunberg í Breiðholti er um 900 fermetrar að stærð með aðstöðu fyrir sex lækna. Breiðholt: Um 25 milljónir til heilsugæslustöðvar UM 25 milljónum króna var í ár veitt til heilsugæslustöðvarinnar við Hraunberg í Breiðholti, sem þjóna á Breiðholti I og III. Að sögn Guðmundar Pálma Kristins- sonar yfirverkfræðings bygginga- deildar Reykjavíkurborgar, standa vonir til að lokið verði við lagningu loftræstistokka og ann- arra lagna í stöðinn á þessu ári og hún máluð. Heildarkostnaður við heilsugæslu- stöðina er um 86 milljónir króna og greiðir ríkið 85% kostnaðarins en Reykjavíkurborg 15%. Bygginga- framkvæmdir hófust haustið 1986 en staðið hefur á fjárveitingum úr ríkissjóði til framkvæmdanna að sögn Guðmundar. Er vonast til að nægilegt fé fáist á næsta ári til kaupa á búnaði og að stöðin geti þá fljót- lega tekið til starfa. Heilsugæslu- stöðin er 900 fermetrar að stærð og er gert ráð fyrir að sex læknar starfi við hana í framtíðinni auk hjúkrun- ar-_og skrifstofufólks. Ákveðið hefur verið að reisa aðra heilsugæslustöð í Seljahverfí á lóð neðan við Olduselsskóla og á hún að þjóna Breiðholti II. Hefur 1 millj- ón króna verið veitt til frumhönnunar hennar. AF INNLENDUM VETTVANGI eftir GUÐJÓN GUÐMUNDSSON Verslun Sigurðar Pálmasonar á Hvammstanga: Gjaldþrotíð kemur víð marga og ýmsír óttast keðjuverkandi áhrif ATVINNULÍF á Hvammstanga varð fyrir töluverðu áfalli þegar hin rótgróna Verslun Sigurðar Pálmasonar var lýst gjaldþrota 22. júlí síðastliðinn. Ljóst er að gjaldþrotið kemur við marga, bæði fyrirtæki og einstaklinga. Fimmtán manns misstu vinnu sina við gjaldþrotið. Ottast margir að gjaldþrotið hafi keðjuverkandi áhrif þar sem fjárhagur margra skuldareigenda stóð höllum fæti fyrir. Má þar nefna að Sparisjóðurinn á staðnum þarf að taka á sig þriðja skellinn á tveimur árum; fyrst var Vélamiðstöð- in hf. lýst gjaldþrota 1986, þá hænsnabú sem rekið var á Þóreyj- anúpi á Vatnsnesi og loks Verslun Sigurðar Pálmasonar. Þessir þrír aðilar áttu allir viðskipti við Sparisjóðinn. Þá skuldaði versl- unin hreppnum um 5,6 milljónir króna, aðallega vegna vangold- inna gatnagerðargjalda. Oskað var eftir gjaldþrota- skiptum eftir að reikningar síðasta árs og bráðabirgðauppgjör fyrstu mánuða þessa árs lágu fyr- ir. Reikningar sýndu að bókfært eignafé fyrirtækisins var neikvætt um 56 milljónir króna og var um tap á rekstrinum að ræða fyrstu mánuði þessa árs. Skömmu eftir gjaldþrot Sigurð- ar Pálmasonar hf. stofnuðu um 70 einstaklingar hlutafélag um rekstur verslunarinnar. Þeir keyptu dagvörulagerinn og gerðu leigusamning sem gildir til janúar á næsta ári. Verslunin heitir nú Vöruhús Hvammstanga hf. og stjórnarformaður hins nýja félags er Haraldur Tómasson læknir. Verslunin er í helmingi þess hús- næðis sem Verslun Sigurðar Pálmasonar var starfrækt í. Fjór- ir vinna í versluninni og er hún opin frá kl. 11 til 6. Að sögn Haraldar Tómassonar hyggst hið nýja hlutafélag ekki fara út í sam- keppni við Kaupfélag Vestur- Húnvetninga á staðnum heldur veita því heilbrigt aðhald. Kaupfélagið stendur nokkuð traustum fótum og í kjölfar gjald- þrots Verslunar Sigurðar Pálma- sonar bættust því nýir viðskipta- vinir. Vöruhús Hvammstanga hætti lánsviðskiptum, en veitir þess í stað 5% staðgreiðsluafslátt, hvort sem greitt er með reiðufé eða greiðslukorti. Haraldur Tóm- asson, stjómarformaður, sagðist bjartsýnn á framtíð Vöruhússins Haraldur Tómasson sijórnar- formaður Vöruhússins á Hvammstanga. og sagði það „komið til að vera". Gjaldþrotið á Hvammstanga var erfíður biti fyrir marga að kyngja, einkum eldra fólkið sem tengir sögu staðarins gjaman við Verslun Sigurðar Pálmasonar. Sigurður Pálmason fæddist 21. febrúar 1884 á Æsustöðum í Vestur-Húnavatnssýslu og nam Morgunblaðið/Ámi Sæberg Steinhúsið sem Sigurður Pálmason byggði árið 1926. Þar var rekin verslun til ársins 1982.Í bakgrunni er nýja verslunarhús- næðið en verslunin var á neðstu hæð hússins. hann búfræði í Noregi. Hann hóf verslunarrekstur á Hvammstanga árið 1913 ogbyggði stórt steinhús árið 1926, þar sem útgerðarfyrir- tækið Meleyri er nú til húsa. Sig- urður keypti sláturhús Kaupfélags Vestur-Hunvetninga og starf- rækti það þar til hann byggði nýtt og fullkomnara sláturhús ásamt frystihúsi. Bændur taka slátur- húsið á leigu Sláturhúsið hefur verið rekið á undanþágu mörg undanfarin ár, eins og nær helmingur allra slát- urhúsa í landinu. Nú hafa um 30 bændur í Húnavatnssýslu hins vegar tekið sláturhúsið á leigu og hyggjast þeir hefja slátrun í þess- ari viku. Það er bændum mikið kapps- mál að reka sláturhúsið því þeir hafa undanfarin ár haslað sér völl með ófryst kjöt. Sláturhúsið er lítið og er lítill tilkostnaður við að hefja og hætta slátran og bændur vinna iðulega sjálfir við slátrunina. Stærri sláturhús eru hins vegar óhagkvæm að sögn Sigfúsar Jónssonar bónda í Lind- arbrekku, sem segir þau ekki í stakk búin að slátra í óhefðbund- inni sláturtíð þar sem þau séu frek á mannafla. Sigfús sagði að um fjórðungur þess fjár sem slátr- að var 1987 hefði farið ófryst á markað og að þessi markaður væri að aukast. „Það væri skref aftur á bak að hætta þessum litlu slátrunum. Þetta er yfírborgaður markaður sem kemur bændum og neytendum til góða,“ sagði Sigfús Jónsson. Bændumir hafa sótt um slátur- leyfí til landbúnaðarráðuneytis en enn er óvíst hvemig farið verður með þá umsókn. Ef vel tekst til með reksturinn næstu mánuði stefna bændur að því að gera húsið löggilt, að því tilskildu að þeir fái sláturleyfí. í sláturhúsinu er góð frystigeymsla sem tekin var í gegn í fyrra fyrir talsverða upphæð, að sögn Sigfúsar. Hann sagði að brýnustu lagfæringamar á sláturhúsinu felist í þvi að hægt verði að lesa saman skrokk og innyfli. Það er, að dýralæknir geti samtímis skoðað skrokk dýrs- ins sem slátrað hefur verið og innyfli þess. Til þess að svo megi vera verður að/setja upp nýtt færiband og auk þess þurfa að koma til ýmsar smærri lagfæring- ar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.