Morgunblaðið - 17.08.1988, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988
31
Flugskólamenn um skýrslu um öryggismál í flugi:
Stendur yfirvöld-
um nær að bæta sig
Margt í skýrslunni fellur undir atvinnuróg
„ÉG GET nú byrjað á að segja, að þessir menn sem gerðu skýrsluna
hafa aldrei komið hér mn,“ sagði Jytte Marcher Jónsson hjá Flug-
skóla Helga Jónssonar þegar hún var beðin að segja álit sitt á þeirri
gagnrýni, sem fram kemur á störf flugskóla í skýrslu um öryggi i
einkaflugi. 1 skýrslunni eru flugskólar gagnrýndir harðlega fyrir
slæleg vinnubrögð, eins og fram kom í frétt Morgunblaðsins á sunnu-
dag. Jytte sagði þessa skýrslu vera atvinnuróg, sem ekki ætti við
rök að styðjast, og Oddur Jónsson hjá flugskólanum Flugtaki sagði
að sér sýndist gagnrýnin ekki síður eiga við um reglur og vinnu-
brögð yfirvalda, sem bera ábyrgð á skipulagi flugmála.
„Þetta er hreinn og klár atvinn- undirslqota ekki brautina, Þú getur
urógur,“ sagði Jytte Mercher Jóns- ekki heldur kennt þeim þar að meta
son. „Þeir ættu frekar að reyna að veðrið. Það eru ákveðnir menn sem
langar að vera með þetta tæki og.
fá að starfrækja það á frídögum."
taka saman skrá um hvetjir hafa
kennt þeim mönnum sem eru að
lenda fyrir utan braut og eru að
gera allar þessar skyssur. Við erum
mjög rejð og sár að fá þetta yfir
okkur. Á næsta ári erum við búin
að vera hér á flugvellinum og kenna
flug í 25 ár og við höfum alltaf
talið okkur standa okkur í stykk-
inu. Það þýðir ekki fyrir það opin-
bera að gefa út svona skýrslu og
koma svo og klappa á bakið á okk-
ur og segja: „Það er nú ekki átt
við þig!,“ sagði Jytte.
Meðal þess sem gagnrýnt er í
skýrslunni er að flugskólar kenni á
einkavélar, sem nemendur eru
skráðir hlutaeigendur að, allt niður
í 1% eignarhlutfall, og að kennsla
úti á landi sé mjög ófullkomin.
„Við höfum alltaf verið á okkar
eigin vélum, við kennum ekki á
neinum einkavélum og við kennum
ekki úti á landi. Öll kennslan fer
fram hér og hér eru fastir flug-
kennarar á launum allt árið. Á tíma-
bili minnkaði kennslan hér, því að
þá komst þessi tíska á að kaupa
sér bara hlut í flugvél og komast
síðan einhem veginn yfír skírteini.
Og þegar menn höfðu einhvem veg-
inn komist yfir skírteini, jafnvel
atvinnuflugmannsskírteini, þá settu
þeir á fót flugskóla og byijuðu að
kenna. Menn auglýstu og auglýstu,
það kemur hópur af fólki og það
er hvatt til þess að kaupa sér „rellu“
eins og sagt er og svo komu menn-
imir bara og kenndu á þetta. Á
þessu tímabili minnkaði kennslan
hjá okkur. Um tíma þurftum við
að fá flugkennara úr þeirra hópi
og það var hreinasti hryllingur,“
sagði Jytte. Hún sagði að þau hefðu
minnkað við sig á meðan þetta
tímabil væri að ganga yfír, en það
virtist vera í rénum núna.
Jytte kvaðst vera sammála þeim
tillögum nefndarinnar, sem vann
skýrsluna, að þrengja reglur um
notkun einkavéla í kennslu. Hik-
laust ætti að afnema slíkar heimild-
ir. „Og svo á að hafa gætur á hveij-
ir verða flugkennarar. Það er ekki
sjálfgefið, þó að maður komist ein-
hvem veginn yfir atvinnuflug-
mannsskírteini, að hann sé þar með
hæfur til að kenna flug. Að kenna
flug er feikimikil vinna, ef það á
að bera einhvem árangur. Og það
hefur gífurlega mikið að segja að
ala nemandann upp í fluginu, að
umgangast flugvélina með honum.
Ef menn eru alltaf i kennsluvélinni
með því hugarfari að þeir ættu að
vera á öðmm stað, þá getur þetta
aldrei lánast," sagði Jytte og
skírskotaði til þeirra, sem kenna
flug til að safna tímum á meðan
þeir bíða eftir starfi hjá flugfélagi.
„Líka hafa verið á ferð atvinnuflug-
menn, sem em að ná sér í skatt-
fijálsa peninga. Þeir hafa farið upp
um allar sveitir eins og ryksugur
og smalað inn námskeiðum þar sem
kannski heimingurinn af nemend-
unum hefur náð prófi.“
Ein tillaga nefndarinnar er að
keyptir skuli flughermar til að nota
við kennslu og þjálfun flugmanna.
Um það segir Jytte: „Þetta er bara
bull. Þú getur ekki kennt mönnum
þar lendingar, að yfirskjóta ekki eða
Jytte gagnrýnir harðlega þá til-
lögu nefndarinnar að færa atvinnu-
flugnám inn í Háskólann. „Við fáum
enga betri flugmenn með því. Þvert
á móti. Við þekkjum það hér úr
flugkennslunni, að hingað koma
alls konar menn sem geta slengt
tölvu upp á borð og reiknað hundr-
að formúlur í hvelli, en að þeir hafí
nokkra tilfínningu fyrir flugvélum
eða flugi, það er ekki til. Við fáum
þá lakari flugmenn. Flugið er bara
hreinn og klár fagskóli og það er
hætt við að menn rofni úr tengslum
við það ef þeir eiga að læra það í
háskóla. Einhverjir bestu flugmenn
sem maður hefur kynnst eru til
dæmis iðnaðarmenn, sem hafa
brennandi áhuga á fluginu, sjálf-
stæðir duglegir menn sem geta rek-
ið nagla í spýtu án þess að hann
bogni, ekki einhverjir sem hafa
bara setið í skóla alla sína tíð. Það
er ekki nóg að menn séu bara með
í huga: „Ja ég er nú stúdent, jafn-
vel verkfræðingur", við höfum haft
hina menntuðustu menn sem hefur
gengið mjög illa að skilja einföld-
ustu hluti af því að það var öðruv-
ísi kennt í Háskólanum. Einn höfð-
um við, eðlisfræðing, sem neitaði
að til væri afl sem heitir miðflótta-
aflið. Hann var að sýsla við ein-
hveija allt aðra krafta. Við gáfumst
upp en trúum því að hann muni
einhvem tíma kynnast miðflóttaafl-
inu á flugleiðinni," sagði Jytte M.
Jónsson að lokum.
„Þetta kemur eiginlega öfugt út,
því að þeir eru að gagnrýna sjálfa
sig,“ sagði Oddur Jónsson hjá flug-
skólanum Flugtaki aðspurður um
álit á gagnrýni skýrslunnar. „Það
eru þeir sem eiga að sjá um þetta.
Það kemur nefnilega ekkert frá
yfirvöldum um hvernig þetta eigi
að vera, þannig að þeir geta ekki
ætlast til að ástandið sé betra en
það er.“ Oddur sagði gagnrýni
skýrslunnar ekki geta átt við um
Flugtak, en kvaðst ekki geta sagt
um aðra aðila. „Flugkennsla hjá
okkur er orðin töluvert samræmd,
menn hafa hér samráð um kennsl-
una. Við erum tiltölulega nýteknir
við fyrirtækinu og búnir að breyta
þessu töluvert.“
Oddur var spurður um réttmæti
þeirrar gagnrýni, að samkeppni
flugskóla væri svo mikil, að kæmi
mður á fjárhagi þeirra og getu til
að sinna viðhaldi flugvéla. „Það er
ekki rétt,“ sagði hann. „Það er al-
gjör fjarstæða. Viðhald flugvélanna
er bundið ákveðnum tímum og eftir
þennan ákveðna tímafjölda flýgur
vélin ekki. Þá er hún orðin óflug-
hæf.“ Um þá fullyrðingu, að flug-
virkjar hafi útskrifað vélar án þess
að þær væru í lagi, sagði Oddur:
„Það er náttúrulega þeirra mál að
hafa aðhald á því, þeir eru ábyrgir
fyrir því flugvirkjarnir þannig að
ég myndi ekki halda að þeir skrif-
uðu út eitthvað sem ekki er í lagi.
Flugvirkinn er ábyrgur fyrir sinni
vinnu gagnvart loftferðaeftirlitinu."
Oddur sagði Flugtak vera með
eigið námsefni, sem kennarar skól-
ans hafa tekið saman. Hann sagði
að það væri til bóta að fá námsefni
á íslensku, eins og skýrslan mælir
með að gefið verði út.
Skýrslan gagnrýnir flugkennslu
úti á landi, einkum vegna þess að
kennslan sé léleg og að þjálfun
skorti við stjómað flug að flugvöll-
um eins og t.d. í Reykjavík. „Það
er til í dæminu," sagði Oddur.
„Hingað hafa komið menn utan af
landi sem hafa ekki vitað hvað sneri
upp eða niður." Hann sagði Flugtak
hafa sent kennara út á land áður
fyrr, en eftir að hann og fleiri tóku
við skólanum í ársbyijun hafi slíkt
ekki verið gert.
Morgunblaðið/Kr.Bén.
Dr.Björn Björnsson fiskifræðingur aðstoðar Peter Smith við valið á
lúðunum sem sendar voru til Skotlands.
Eitt þúsund lifandi
lúður til Skotlands
Grindavík.
SKOSKI sjávarlíffræðingurinn, Peter Smith, sem var staddur í
Keflavík í síðustu viku í þeim tilgangi að kaupa lifandi lúður hélt
utan siðast liðinn laugardag með norska tankskipinu Gunnar Junior
og hafði eitt þúsund lúðum i farteskinu.
Upphaflega ráðgerði Peter Smith höfðu aflast á laugardag þó fullri
að fá 1500 lúður til tilraunaeldis í
skoskri tilraunaeldisstöð, sem rekin
er af skoska ríkinu, en þær vonir
brugðust þar sem veður hamlaði
veiðum fyrstu tvo dagana sem þær
voru fyrirhugaðar.
Norska tankskipið sem flytur lúð-
umar er bundið öðmm verkefnum
og því var haldið utan til Skotlands
með þær þúsund lúður sem þegar
tölu væri ekki náð.
Að sögn Dr. Björns Björnssonar
fiskifræðings sem aðstoðaði skot-
ann við móttökuna á lúðunni var
hann þokkalega ánægður með feng-
inn en svo verður að bíða og sjá
til hvort tekst að ala lúðumar í
Skotlandi líkt og hefur tekist í
Grindavík.
Kr.Ben.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 16. ágúst.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Þorskur
Ýsa
Ufsi
Karfi
Steinbítur
Langa
Lúöa
Koli
Skötuselur
Samtals
Selt var aðallega úr Stálvík Sl, Jökli VE, Frá VE og Sæfaxa VE.
I dag verða m.a. seld 112 tonn af þorski, 6 tonn af ufsa, 3 tonn
af karfa, 5 tonn af undirmálsfiski og 2 tonn af blönduöum afla
úr Otri HF.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
39,00 36,00 36,52 49,886 1.821.612
63,00 20,00 60,08 7,843 471.201
17,00 15,00 16,50 92,420 1.525,382
21,00 19,00 20,89 11,640 243.161
26,00 23,00 23,27 1,048 24.382
26,00 26,00 26,00 0,476 12.379
170,00 70,00 132,96 0,202 26.864
29,00 29,00 29,00 0,257 7.452
185,00 185,00 185,00 0,006 1.110
25,24 163,779 4.133.543
Þorskur 40,00 37,00 37,58 121,270 4.557.457
Undirmál 15,00 15,00 15,00 0,018 270
Ýsa 76,00 35,00 62,44 3,091 193.005
Karfi 22,00 20,00 20,74 1,623 33.658
Ufsi 19,00 15,00 17,70 31,987 566.050
Steinbítur 22,00 22,00 22,00 0,220 4.840
Hlýri 21,00 21,00 21,00 2,194 46.079
Langa 23,00 23,00 23,00 0,680 15.640
Lúða 185,00 80,00 103,19 0,578 103,19
Sólkoli 40,00 40,00 40,00 0,736 29.440
Skarkoli 38,00 32,00 36,20 1,823 65.932
Skötuselur 210,00 210,00 210,00 0,009 1.290
Samtals 33,94 164,230 5.573.962
Selt var aðallega úr Vigra RE. í dag verða m.a. seld 15 tonn
af ufsa og 15 tonn af karfa úr Þrymi BA.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 39,00 26,50 37,66 26,428 995.182
Undirmál 20,00 16,00 17,54 6,240 109.440
Ýsa 69,50 31,00 44,54 11,575 515.501
Ufsi 15,60 15,00 15,01 2,925 43.898
Karfi 19,00 15,00 17,14 4,584 78.583
Steinbitur 24,00 24,00 24,00 0,278 6,672
Hlýri+steinb. 24,00 24,00 24,00 0,039 936
Skarkoli 40,50 40,50 40,50 0,660 26.730
Lúða 122,00 65,00 91,71 0,140 12.895
Grálúða 5,00 5,00 5,00 0,128 640
Skata 50,00 50,00 50,00 0,012 600
Samtals 33,79 53,010 1.791.077
Selt var aðallega úr Sigurborgu KE og Þuríði Halldórsdóttur GK.
I dag verða seldir 250 kassar af blönduðum afla úr Gnúpi GK
og 840 kassar af þorski úr Hauki GK.
Grænmetisverð á uppboðsmörkuðum 16. ágúst.
SÖLUFÉLAG GARÐYRKJUMANNA
Gúrkur 93,14 2,170 202.120
Sveppir(1 ,fl.) 444,00 0,148 65.712
Sveppir(2.fl.) 220,00 0,044 9,680
Tómatar 136,49 4,392 599.460
Paprika(græn) 252,00 0,500 126.000
Paprika(rauð) 365,00 0,270 98.550
Paprika(gul) 394,82 0,055 21.715
Paprika(blá) 314,00 0,020 6.280
Gulrætur(ópk.) 184,60 1,630 300.900
Gulræturjpk.) 171,51 1,390 238.400
Jöklasalat 123,80 0,435 53.855
Blómkál 82,73 1,288 106.561
Kínakál 134,36 1,452 195.084
Hvítkál 86,94 8,160 709.400
Spergilkál 203,71 0,255 51.945
Sellerí 173,68 0,370 64.260
Eggaldin 157,50 0,050 7.875
Smágúrkur 93,80 0,025 2.345
Rófur 88,38 2,000 176.750
Kinahreðkur 97,00 0,005 485
Bufftómatar 124,00 0,018 2.232
Sérrítómatar 303,00 0,004 1.212
Chilipipar 399,00 0,005 1.995
Chilipip.(gulur) 403,00 0,004 1.612
Samtals 3.137.960
Einnig voru seld 216 búnt af grænkáli fyrir 6.912 krónur, eða
32 króna meðalverö, 200 búnt af dilli fyrir 8.800 krónur, eða
44 króna meðalverð, 400 búnt af steinselju fyrir 12.900 krón-
ur, eða 32,25 króna meðalverð, 1.230 stykki af salati fyrir 64.920
krónur, eða 52,78 króna meöalverö,