Morgunblaðið - 17.08.1988, Page 32

Morgunblaðið - 17.08.1988, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988 , , Morgunblaðið/Rúnar Þór Arni Arnason eigandi húsnæðis númer 26 við Glerárgötu vill að lánsloforð Húsnæðismálastjórnar verði einskorðað við húsnæði sitt. Sigurður E. Guðmundsson framkvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar ríkisins segir hinsvegar að engin loforð né samningar um það húsnæði hafi verið undirritaðir. Undirbúningsfélagið að Félagsstofnun stúdenta á Akureyri ætti því að geta keypt íbúðir á frjálsum markaði, eins og nú stendur til að gera. Lánsloforðið ekki bundið við húsnæði Glerárgötu 26 - segir Sigurður E. Guðmundsson framkvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar ríkisins Þýskur tón- listarmað- ur á Norð- urlandi ÞÝSKUR tónlistarmaður, sem kallar sig Hans Blues and Boogi- e.raun á næstunni ferðast um Norðurland á vegum Jassklúbbs Akureyrar. Þetta er í annað skiptið sem Hans kemur til lands- ins, en hann hélt tónleika hér um svipað leyti í fyrra. Hans spilar á ýmsar gerðir af gíturum og syngur með allar teg- undir af blús, segir í fréttatilkynn- ingu. Hann heldur tónleika í Hótel Reynihlíð við Mývatn þann 18. ágúst. 19. og 20. ágúst heldur hann tónleika á veitingastaðnum Uppan- um á Akureyri og þaðan heldur hann til Reykjavíkur. í lok ferða- lagsins heldur hann síðan tónleika á Hótel Höfn í Homafirði þann 24. ágúst. Þessi tónleikaferð hans hér- lendis er hluti af tónleikaferð um Evrópu sem hann fer í árlega. Hans Blues and Boogie STJÓRN Húsnæðisstofnunar ríkisins fundaði sl. mánudag um málefni stúdentaíbúða á Akur- eyri og hélt sig við fyrri ákvörð- un um 25 milljóna króna lánslof- orð á yfirstandandi ári. Jafn- framt var á fundinum lagt fram bréf frá Arna Árnasyni eiganda húss númer 26 við Glerárgötu, sem til álita kom að kaupa fyrr á árinu af hálfu áhugamanna- samtaka um málefni háskólans. í bréfinu fer hann þess á leit við stjórnina að hún einskorði lánsloforðið við Glerárgötu 26 og að réttir aðilar gangi til samninga við sig svo skjót lausn fáist á húsnæðisvanda stúdenta. Sigurður E. Guðmundsson framkvæmdastjóri Húsnæðis- stofnunar ríkisins sagðist í sam- tali við Morgunblaðið í gær búast við að stjómin tæki afstöðu til erindis Árna á næstu einni til tveimur vikum. Spurningin væri aðeins sú hvort lánsloforðið skuli einskorðað við Glerárgötu 26. „Lánsloforðið var veitt stúdenta- görðum á Akureyri í vor og á fundi sínum í fyrradag sá stjórnin enga ástæðu til _að ítreka þá samþykkt. Það sem Árni er að fara fram á er að Húsnæðismálastjórn ein- skorði sig við það að lánið fari til kaupa á Glerárgötu 26 og ekkert annað. Húsnæðismálastjórn hefur hinsvegar þegar tekið þá afstöðu gagnvart stúdentasamtökunum að þetta lán megi notast til kaupa á hvaða íbúðum sem samtökin telja boðlegar og hæfa fyrir slíka starf- semi,“ sagði Sigurður. Það undirbúningsfélag, sem nýlega var sett á laggimar til kaupa á stúdentaíbúðum, hefur farið þess á leit við Húsnæðismála- stjóm að það fái að yfirtaka lánslo- forðið af Skildi, sem ekki þótti hæft til að standa að slíkum kaup- um samkvæmt skilgreiningu fé-- lagsmálaráðuneytisins. Yfirtöku- beiðnin mun vera í athugun innan stofnunarinnar og sagðist Sigurð- ur fastlega búast við að 'á hana yrði fallist. Stúdentasamtökin hafa látið hafa það eftir sér að áhugi sé mestur fyrir íbúðakaupum á fijálsum markaði enda myndu þær verða bestar í endursölu þegar að því kæmi að byggja varanlega stúdentagarða. Ennfremur segir Árni í bréfi sínu til Húsnæðismálastjórnar frá 14. júlí sl.: „Málið virðist vera komið í sjálfheldu og enda þótt mér sé vel ljóst, að Húsnæðisstofn- un beri ekki skylda til að stuðla að samtökum tií að eiga og reka stúdentagarð á Akureyri, þá hafa mál þróast þannig að tii stendur — að áliti stjórnar Eyrar hf. — að misnota frumkvæðið og lánslof- orð á þann hátt, að gæti teflt þessu markmiði í tvísýnu. Þess vegna eru ofangreind tilmæli sett fram og stjóm Húsnæðisstofnunar beð- in að taka af skarið um hvort það sé raunverulegur vilji hennar að umræddri fjánæitingu sé varið til að kaupa ótilteknar íbúðir á ýms- um stöðum á Akureyri — ýmist nýjar eða notaðar — eða herbergi og íbúðir á einum stað í húsi, sem er sérstaklega hannað sem stúd- entabústaður í samræmi við kröfur Húsnæðisstofnunar. “ í bréfi sem Húsnæðismálastjórn skrifaði Guðmundi Stefánssyni formanni Skjaldar þann 29. mars sl. kemur fram að stjórnin hafði samþykkt að veita Skildi lán úr Byggingasjóði verkamanna að fjárhæð 25 millj. kr. til byggingar eða kaupa á 20 íbúðum. Lánið væri fyrsti hluti heildarláns til framkvæmdanna og ætti íjár- hæðin að koma til útborgunar með jöfnum greiðslum mánaðarlega á tímabilinu júli til desember 1988. Gögn þyrftu að berast fýrir 1. júní ella myndi útborgun seinka. Þá segir ennfremur í bréfi Húsnæðis- málastjórnar: „Þegar. gögnin hafa borist, má vænta þess að stjórnin taki ákvörðun um veitingu síðari hluta heildarlánsins þannig að samtals nemi það allt að 85% af samþykktum byggingarkostnaði eða kaupverði hlutaðeigandi íbúða. Mun síðari hlutinn þá væntanlega koma til greiðslu í tólf jöfnum fjár- hæðum, þ.e. mánaðarlega á árinu 1989.“ Sigurður sagði að í þessu svarbréfí stofnunarinnar til Skjaldar væri hvergi minnst á Glerárgötu 26 né heldur í sam- þykkt Húsnæðismálastjórnar. Því hefðu engin loforð eða samningar verið undirritaðir varðandi það húsnæði. Athugasemd vegna hestaíþróttamóts í Mosfellsbæ: Eyf irskum hestamönn- umvar bönnuð þátttaka MORGUNBLAÐINU hefur bor- ist eftirfarandi athugasemd frá Jónsteini Aðalsteinssyni for- manni íþróttadeildar hesta- mannafélagsins Léttis, Akur- eyri, vegna hestaíþróttamóts í Mosfellsbæ dagana 12.-14. ágúst 1988. „Ég, og eflaust margir aðrir, vil mótmæla því að mót þetta verði kallað íslandsmót í hesta- íþróttum og sigurvegarar hverrar greinar kallaðir íslandsmeistarar. Frá árinu 1978 hefur verið haldið íslandsmót í hestaíþróttum og hafa allir hestamenn landsins haft þar rétt til þátttöku, hafí þeir náð lágmarks punktafjölda í einstaka greinum þegar þess hefur verið krafist. Hingað til hafa þátttak- endur þessara móta keppt undir sínu nafni á eigin ábyrgð eins og stendur í leikreglum. Ekki er kraf- ist sérstakrar félagsaðildar kepp- andans í leikreglum, enda oftast ekki getið í mótaskrá né heldur þegar greint er frá úrslitum í fjöl- miðlum. Nú allt í einu hefur það gerst að eyfírskum hestamönnum hefur verið bannað að taka þátt í þessu móti sem halda skal í Mosfellsbæ. Sér er nú hver íþróttaandinn. All- ir hljóta að sjá að ekki er hægt að kalla það Islandsmót og sigur- vegara í einstökum greinum ís- landsmeistara, þegar t.d. fyrrver- andi og núverandi Islandsmeistur- um i einstökum greinum er nú allt í einu bönnuð þátttaka í þessu móti. Einnig hefur það komið fram í tímaritinu Eiðfaxa, 7. tbl. 1988, sem fullyrðing að „knapar ey- fírsku félaganna geti ekki tekið þátt í íþróttamótum". Þessi sama skýring var gefin þeim knöpum úr Eyjafírði sem hugðust taka þátt í Mosfellsbæjarmótinu 1988 sem menn eru svo að kalla Is- landsmót. Ég spyr, hvaðan fá menn þessar fullyrðingar? Ég veit ekki betur en að Eyfírðingar hafi haldið mörg íþróttamót á þessu ári, t.d. í Svarfaðardal, á Akur- eyri og á Melgerðismelum í Eyja- fírði. Einnig hafa Eyfírðingar tek- ið þátt í íþróttamóti með Þingey- ingum. Allt frá því að íþróttaráð Lands- sambands hestamanna var stofn- að hefur verið unnið markvisst að því að íþróttadeildimar fengju hestaíþróttir viðurkenndar af ISÍ. Stóra skrefið var stigið á ársþingi íþróttaráðs þann 27. nóv. 1987 á Húsavík að láta til skarar skríða. Á fundinn mætti Sigurður Magn- ússon, framkvæmdastjóri ISÍ, með umboð til þess að bjóða hesta- menn velkomna í samtökin. Á þinginu var samþykkt að leggja Iþróttaráð niður í núverandi mynd um leið og inngangan í ÍSÍ yrði að veruleika. Nú spyr ég, getur það verið að stjóm íþróttaráðs hafí dregið stofnun sérsambands hestaíþróttamanna á langinn til að útiloka eyfírska knapa og hina rómuðu eyfírsku hesta frá hesta- íþróttamótum á árinu 1988? Getur þá þessi stjóm komið til með að fara með umboð allra hesta- íþróttamanna á Islandi í nýju sér- sambandi innan ÍSÍ. Góðir hestaíþróttamenn. Ég álít að þetta Mosfellsbæjarmót geti aldrei risið undir nafninu íslands- mót í hestaíþróttum 1988, þar sem sumum hestaíþróttamönnum er bönnuð þátttaka í mótinu. Knýjum á og stofnum sérsamband í hestaíþróttum sem fyrst þar sem allir hestaíþróttamenn sameinast eins og við samþykktum á Húsavík í nóvember 1987 og höld- um svo íslandsmót í hestaíþrótt- um.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.