Morgunblaðið - 17.08.1988, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 17.08.1988, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988 Minning: BrynjólfurJ. Brynjólfs son, veitingamaður í dag verður gerð frá Fríkirkj- unni í Reykjavík útför Brynjólfs J. Brynjólfssonar veitingamanns, sem andaðist f Landakotsspítala 2. ágúst síðastliðinn eftir skamma en stranga legu. Brynjólfur fæddist í Reykjavík 10. apríl 1907, sonur hjónanna Guðrúnar Jósepsdóttur og Jóns Brynjólfssonar skósmíðameistara og leðurkaupmanns. Jón var sonur Brynjólfs bónda Einarssonar á Hreðavatni í Borgarfirði og Guð- rúnar Hannesdóttur frá Skrapa- tungu á Skagaströnd. Foreldrar Guðrúnar voru Jósep Magnússon verkamaður í Melkoti í Reykjavík og Sigríður Gestsdóttir Lund í Hafnarfirði. Önnur böm Guðrúnar og Jóns vom þessi: Kristján verslun- armaður, ókvæntur, Magnús leður- kaupmaður, kvæntur Marie_ f. Brask, Jón sútari, kvæntur Ástu Guðmundsdóttur, Anna Margrét, gift Karli Kristinssyni forstjóra í Bjömsbakaríi, sem öll em látin, og Sigríður, gift Sveini Zoéga for- stjóra. Hálfbróðir þeirra var Tryggvi heitinn Jónsson forstjóri í Ora, kvæntur Kristínu Magnús- dóttur. Brynjólfur ólst upp á heimili for- eldra sinna í miðbæ Reykjavíkur, bæði í Austurstræti 3 og Bratta- götu 5. Hann lauk prófi frá Verslun- arskóla íslands 1927 en hugur hans stóð til sjómennsku. Ætlaði hann því í Stýrimannaskólann en varð frá að hverfa sakir litblindu. Á sumrin hafði hann verið messadrengur á skipum hf. Eimskipafélags íslands og héit því nú áfram. A Þorláks- messu sté hann á land í Kaup- mannahöfn og hóf eftir jólin nám í matargerðarlist, sem hann lauk í júní 1930. Þá réðst hann aftur til Eimskipafélagsins og var lengi bryti á skipum þess, lengst á ms. Brúar- fossi, allt fram á stríðsárin. Það er erfitt að setja sig í spor þeirra, er sjóinn sóttu á þeim ámm og áttu sífellt á hættu að verða fyrir árás og þar kom að Brynjólfur kaus að fara í land. Hann starfaði enn um hríð hjá Eimskipafélaginu, en opn- aði 16. maí 1943 veitingahúsið Café Höll í Austurstræti 3, sem hann rak allt til ársins 1970. Auk þess átti hann m.a. hlut að rekstri Hressingarskálans fram á það síðasta og Valhallar á Þingvöllum um árabil. t Eiginkona mín, RÚNA GUÐMUNDSDÓTTIR, Fjölnisvegi 8, Reykjavík, andaðist í Borgarspítalanum mánudaginn 15. ágúst. Magnús GuAmundsson. t Faöir minn og sambýlismaöur, ARI PÁLL VILBERGSSON, fiskmatsmaöur, verður jarösunginn frá Bústaöakirkju fimmtudaginn 18. ágúst kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameins- fólagið. Karl Geir Arason, Helga Magnúsdóttir. t Þökkum innilega auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug viö andlát og útför MAGNÚSAR MAGNÚSSONAR framkvœmdastjóra frá Eyrarbakka. Sérstakar þakkir færum viö starfsfólki hjúkrunardeildar Hrafnistu, Hafnarfirði. Kristfn Borghildur Thorarensen, Sigurður Magnús Magnússon, Dröfn Guömundsdóttir, Sesselja og Magnús. t Þökkum hjartanlega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför systur okkar, GUÐRÚNARJÓNSDÓTTUR frá Ási, Lokastfg 16, Reykjavfk. Sérstakar þakkir okkar til starfsfólks Hafnarbúða fyrir góða umönnun. Jónfna, Þurfður og Margrót. t Þökkum innilega auösýnda samúö, vináttu og hlýhug við andlát míns ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, sem andað- ist á heimili sínu í London, JAMES CRONIN Sérstakar þakkir færum viö Landssamtökum hjartasjúklinga. Guö blessi ykkur öll. Jakobfna Cronin, Jóhanna Cronin, John Cronin, Benedikt Cronln, William Cronin, George Cronin, Philip Cronin, Anna Cronin, Ólafur H. Ólafsson, Reynir B. Skaftason, Josie Cronin, Karen Cronin, Julie Cronin, Sue Cronin, Sandra Cronin og barnabórn. Jón Brynjólfsson andaðist 1. febrúar 1942. Guðrún ekkja hans bjó áfram á heimili þeirra við Stýri- mannastíg til dauðadags, 26. ágúst 1964. Brynjólfur reyndist móður sinni vel í ellinni, létti undir og stytti henni stundir eftir mætti. Brynjólfur kvæntist 4. október 1947 Klöru Aiexandersdóttur Des- embers Jónssonar verslunarmanns í Reykjavík og fyrri konu hans, Sólveigar Ólafsdóttur. Klara fædd- ist 30. desember 1922 og andaðist 14. september 1967 eftir langvar- andi sjúkdómslegu. Brynjólfur og Klara eignuðust þrjár dætur. Elst er Sigríður Margrét, f. 4. janúar 1948. Hún er gift Alexander Speck- er endurskoðanda og býr í Sviss. Eiga þau eina dóttur barna, Nínu Kristínu. Hún átti áður Peter Meier og með honum tvö böm, Klöru Ingu og Magnús. Næst er Ragnheiður flugfreyja, f. 26. mars 1949, gift Baldri Jónssyni framkvæmdastjóra söludeildar Mjólkursamsölunnar í Reykjavfk, þeirra böm eru Brynjólf- ur, Helga Bestla og óskírð stúlka. Yngst er Sólveig flugfreyja, f. 30. ágúst 1950, gift Vigfúsi Ásgeirs- syni eðlisfræðingi, deildarstjóra hjá Kristjáni Ó. Skagfjörð hf., böm þeirra era Ágústa Þuríður og Klara Iris. Klara Alexandersdóttir var mikil- æf kona, höfðingi og hvers manns hugljúfi. Var hún öllum harmdauði og saknaði Brynjólfur hennar mjög, þó að ekki bæri hann harm sinn á torg. Hann bjó til dauðadags á Sólvallagötu 61, þar sem þau höfðu búið sér og dætram sínum gott og fagurt heimili. Eftir því sem tímar liðu fluttust þær úr föðurgarði og síðustu árin bjó Brynjólfur einn. Meðan heilsan leyfði hafði hann mikla ánægju af að búa gestum sínum góðan málsverð, sannarlega var hann meistarakokkur. En hann hlaut að lúta sömu örlögum og aðr- ir er ellin færðist yfír, og kom nú sjaldnar meðal manna en áður. En hvorki breyttist bros né hlýtt hand- tak eða hvarf glettnin úr brúnum augum. Hann gat verið stríðinn en laus við illkvittni og hafði jafnan gamanyrði á vöram. En allir fundu alvörana, er undir bjó. Brynjólfur var drengur góður og vinfastur, skapmikill, gagnrýninn og kröfu- harður við sjálfan sig og aðra. Þótti sumum nóg um. Þó að kastast gæti í kekki var hann manna fegn- astur að slíðra sverðið. Eg kynntist Brynjólfi, Klöra og Kransar, krossar og kistuskreytingar. Sendum um allt land. GLÆSIBLÓMIÐ GLÆSIBÆ, ÁKhcimum 74. sími 84200 i I dætram þeirra fyrir þijátíu áram. Þá hafði ég fyrir skömmu fellt hug til Guðrúnar systurdóttur hans, sem Brynjólfi var á marga lund sem dóttir og hann jafnan bar á höndum sér. Við voram ætíð velkomin á heimili þeirra og eigum þaðan margra ánægjustunda að minnast. Síðar urðum við nágrannar í ellefu ár, garðar okkar snera saman og sama sláttuvélin dugði báðum. Samgangur var næstum daglega, hann var hollráður og góður granni og bömum okkar kær frændi. Blessuð sé minning hans. Benedikt Blöndal í dag verður til moldar borinn vinur minn Brynjólfur J. Brynjólfs- son. Ég átti því láni að fagna að kynnast Brynjólfi er ég tengdist Qölskyldu hans og hafa þau kynni varað ffarn á þennan dag. Brynjólfur missti konu sína, Klöra Álexandersdóttur, fyrir aldur fram, frá þremur ungum dætram. Eftir fráfall Klöra hélt Brynjólfur heimili fyrir dætur sínar þar til þær stofnuðu sín eigin heimili. Eftir það bjó hann einn á heimili sínu fram á síðasta dag. Á heimili Brynjólfs, á Sólvalla- götu 61, vora ajlir aufúsugestir og er mér minnisstætt hve Brynjólfur tók mikinn þátt .í umræðunni með unga fólkinu þegar verið var að leggja á ráðin um framtíðina. Ætíð var Brynjólfur stórhuga og hvatti hann okkur til að leggja á brattann og helst að fara ótroðnar slóðir frek- ar en að sigla á hefðbundin mið. Hann var einarður í skoðunum og kom til dyranna eins og hann var klæddur. Brynjólfur var vel að sér í atvinnumáium og verslunarsögu þjóðarinnar og hin síðustu æviár hans fylgdist hann vel með því sem var að gerast og var sem fyrr ótrauður að hvetja menn til árvekni og framsýni. Ég vil að lokum þakka Brynjólfí fyrir þær mörgu ánægjustundir sem við áttum saman. Jafnframt vil ég þakka honum fyrir þá vináttu og trygglyndi sem hann sýndi mér og fjöl_skyldu minni. Ég votta dætram hans mína inni- legustu samúð í sorg þeirra. Megi hann hvíla í friði. Guðmundur Þ. Pálsson Vart er hægt að segja að sorg- legt sé er aldrað fólk og lasburða fellur frá. Samt er eitthvert tóma- rúm í huga mér nú er hann Brynjólf- ur minn er horfinn. Hann tengdist svo mjög mínum æskuáram. Ævinlega átti ég mitt annað heimiji hjá Biynjólfi og Klöra, hvort heldur sem var á Sel- tjamamesinu eða á Sólvallagöt- unni. Var samgangurinn á milli heimila okkar svo mikill að dætum- ar þijár urðu mér sem systur og era enn í dag. Heima hjá þeim var ávallt líf og Qör, mikill gestagangur og ætíð allir velkomnir. Brynjólfur var kokkur góður og lét hann ekki sitt eftir liggja er slegið var upp veislu á bænum sem var reyndar æði oft. Klara var sannarlega fyrirmynd- arhúsmóðir. Hennar miðpunktur í tilveranni var fjölskyldan og heimil- ið, enda árangtirinn eftir því. Heim- ilið ætíð fágað og fint og dætumar einstaklega kurteisar og prúðar. Hjá þeim hjónum átti ég athvarf og reyndust þau mér ákaflega vel er ég átti erfiðar stundir sem ungl- ingur. Þar fékk ég hlýju og skilning og er ég þeim éilíflega þakklát fyrir. Hann Brynjólfur missti svo sann- arlega mikið er hann missti hana Klöra sína. Hann bar þó höfuðið hátt og beindi huganum að velferð dætranna þriggja. Þeim hefur öllum vegnað vel í lífínu og var hann ákaflega stoltur af þeim og öllum bamabömunum sínum. í síðustu heimsókn minni til hans á Sólvalla- götunni sýndi hann mér bandmynd af Siggu Möggu og fjölskyldunni í Sviss og varð ég þess vör að hann var hvorki að horfa á hana í fyrsta né annað sinn. Brynjólfur fylgdist ávallt með mér og fjölskyldu minni og fann ég að honum var mjög annt um velferð okkar allra. Ósjaldan hringdi hann til að samgleðjast okkur er vel gekk eða bara til að rabba um daginn og veginn og for- vitnast um hagi okkar. Aðdáunarvert var að fylgjast með því hve dætumar og tengda- synimir önnuðust hann vel í veik- indum hans. Vöktu þau yfír honum síðustu vikumar og vora Sólveig og Ragnheiður hjá honum er hann skildi við. Ég er viss um að Klara er nú búin að umlykja hann hlýjum faðmi sínum og að hann er alsæll að vera loksins búinn að ná endurfundum hennar að nýju. Hafí Brynjólfur minn þökk fyrir allt og allt. Elsku Sulla, Ragnheiður og Sigga Magga, ég sendi ykkur og fjölskyldum ykkar mínar dýpstu samúðarkveðjur. tris Dungal Svæðisútvarp Vestfjarða: Utsendingar hefj- ist á næsta ári RÍKISÚTV ARPIÐ hefur lagt fram í fjárlagatillögum fyrir árið 1989 að svæðisútvarp fyrir Vest- firði taki tU starfa á næsta ári. Á fundi útvarpsráðs, sem haldinn var á Egilsstöðum um helgina, var ályktað að svæðisútvarp skyldi hefjast á ísafirði í síðasta lagi í október 1989. Að sögn Magnúsar Amar Ant- onssonar, útvarpssjóra ríkisút- varpsins, er fjárveiting til svæðisút- varpið háð ákvörðun Alþingis um §ármál ríkisútvarpsins. Á Isafirði er nú starfandi fréttamaður, sem einnig starfar við dagskrárgerð. Til að svæðisútvarp geti tekið til starfa á ísafirði þarf að koma þar upp aðstöðu fyrir almenna dagskrár- gerð fyrir landsrásirnar og reksturs svæðisbundins útvarps. Markús sagði að svæðisútvarp á ísafírði, yrði lfklega með svipuðu sniði á Egilsstöðum, þar sem sent er út tvo daga í viku, fimmtudaga og föstu- daga, hálftíma í senn. Reyndar var ákveðið á fundi útvarpsráðs að lengja þann tíma upp í klukkustund hvom dag, í haust. Svæðisútvarp á Vestfjörðum yrði sent út um dreif- kerfi rásar 2, líkt og svæðisútvarp á Norður- og Austurlandi. Syðsti hluti Vestfjarða, sunnan Arnarfjarðar, fær útsendingar frá Stykkishólmi og þarf því að hag- ræða dreifíkerfinu til að svæðisút- varp nái til allra Vestfiarða með útsendingu frá ísafriði, að sögn útvarpsstjóra. Hann kvaðst ekki þora að fullyrða hvort það yrði erf- itt, hvorki tæknilega né fjárhags- lega, en taldi þó að svo gæti orðið. Hólmavík er einnig utan þess svæð- is sem svæðisútvarp myndi ná til að óbreyttum aðstaeðum. Það þarf því að taka það til sérstakrar um- fjöllunar, sagði Markús. Og einnig hvort svæðisútvarp eigi að laga eft- ir kjördæmaskipan, eða hvort taka eigi tillit til annarra skilyrða. Til að mynda taka mið af óskum við- komandi byggðarlags. í útvarpslögum er gert ráð fyrir að svæðisútvarp sé í öllum kjör- dæmum, en Markús sagði að sú ákvörðun hefði verið tekin að koma þvi fyrst upp í þeim landshlutum sem fjarst liggja frá Reykjavík, til að efla tengslin við þá og tengslin innan byggðarlagsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.