Morgunblaðið - 17.08.1988, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988
fclk í
fréttum
Það er hjónasvipur með Önnu
og Ingimar.
INGEMAR STENMARK
„Má ég
kynna
frænku
mína“
Má ég kynna frænku mína“
sagði skíðakappinn þekkti í
spaugi, þegar hann kom á golfmót
í Svíþjóð, nú fyrir stuttu. Hann var
alls ófeiminn og spókaði sig fyrir
framan myndavélarnar með sína
heittelskuðu. Hann skildi við konu
sína fyrir fáum árum og eiga þau
eina dóttur.
Kærasta hans heitir Anna Karin
og er 27 ára gömul. Hún hefur
hvorki áhuga á skíðum eða golfi
eins og hann sjálfur. Hún starfar í
verslun, kaupir inn skó og töskur,
en ekki er vitað hvort þau hittust
fyrst við búðarborðið. Samkvæmt
heimildum er mjög óvenjulegt að
Stenmark mæti á golfmót með vin-
konur sínar, og telja menn að nú
sé hann í giftingarhugleiðingum á
ný-
GARÐABÆR
Vel
heppnað
fjölskyldu-
mót
Hátt í 2000 manns mættu á
„Stjörnumót" Garðbæinga
síðastliðinn laugardag. Dagskráin
var mjög fjölbreytt. Knattspyrnu-
leikur var háður milli Stjörnunnar
og Víkveija og sigraði Stjarnan
með 9 mörkum gegn engu. Veittar
voru veitingar, og sýnt var listflug.
Uppistaðan í mótinu var þriðju
deildar leikur milli Stjömunnar og
Víkvetja. Háð var vítaspyrnukeppni
í leikhléi, þar sem kunnir garð-
bæingar sýndu boltafimi. Var Lilja
Hallgrímsdóttir, forseti bæjar-
stjómar, hittnust og fékk í vinning
kjötskrokk og ískóla. Veitingar voru
veittar frítt, hamborgarar og pylsur
frá Kjötmiðstöðinni, og ískóla til
að skola hálsinn.
Listflug var sýnt við góðar undir-
tektir, og mynduðu þeir stjörnu í
loftinu. Fimm menn komu með
keppnisboltann fyrir Stjörnuleikinn
í fallhlíf. Einnig léku ungir garð-
bæingar í sjötta flokki innbyrðis,
og bærinn sýndi teikningar af nýju
íþróttahúsi sem er í byggingu. Heið-
ursgestir mótsins voru bæjarstjór-
inn Ingimundur Sigurpálsson, og
Bragi Friðriksson sóknaiprestur, en
hann er einn af stofnendum Stjörn-
unnar í Garðabæ.
Stjörnugestir fengu konfekt og ískóla eins og þeir gátu í sig látið.
Um 4000 hamborgarar og pylsur frá Kjötmiðstöðinni voru hesthúsað-
ir af mótsgestum.
Ungir og upprennandi garðbæingar sýndu leikni sína i knattspyrnu.
íPaiTUFX í
8URKM
. >.
mm
Tracy Scoggins
Goldie Hawn
Veður var gott og lét yngri kynslóðin sig ekki vanta.
Morgunblaðið/Einar Falur