Morgunblaðið - 17.08.1988, Qupperneq 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988
*
Aster...
' o-í't
... að vera umlukt sam-
an.
TM Reg. U.S. Pat Off.—tll rights raaarvad
° 1987 Loa Angeles Twnes Syndicate
Varstu að reyna að ala
hann upp á ný?
HÖGNI HREKKVÍSI
/,HVAÐ ER CaOTT NlA'FN Á RMLLA LJÓN ?*'
Sjónarmið útvarpshlustenda og dag-
skrárgerðarmanna verða að breytast
Til Velvakanda.
Flestir frjálslyndir íslendingar
fognuðu því á sínum tíma, þegar
einokun ríkisins á útvarpsrekstri
var aflétt. Ekki endilega vegna
óánægju með Ríkisútvarpið, heldur
. vegna þess að hömlur eins og voru
í gildi á þessu sviði eru ósamrýman-
legar grundvallarhugmyndum vest-
rænna manna um lýðræði og frelsi
einstaklingsins.
En frelsinu fylgir ábyrgð og þeir
Ágæti Velvakandi!
Oft á tíðum er verið að finna að
því, hvernig fólk hegðar sér í um-
ferðinni, vanvirðir umferðarreglur
og sýnir hvert öðru þjösnaskap.
Sjálfsagt er margt satt í þessu, en
margir hafa það sér til afsökunar,
að skipulagi og fyrirkomulagi í
umferðinni er að mörgu leyti ábóta-
vant. Því er stundum þannig hátt-
að, að svo virðist sem yfirvöld geri
ýmsar breytingar til reynslu, breyti
síðan á nýjan leik, og þegar ekkert
gengur er lokað fyrir alla bílaum-
ferð, ef ekki vill betur til.
Nýlegt dæmi um mikla hand-
vömm má sjá við lóð lögreglustöðv-
arinnar við Hverfísgötu. Innkeyrslu
hefur verið breytt neðst á Snorra-
braut. Þar hafa menn gerst svo
djarfir, að leggja akbraut inn á lóð-
ina, yfir gangbraut og held ég að
slíkt hljóti að vera einsdæmi í heim-
inum.
Þeir sem aka niður Snorrabraut
þurfa því að vera vel á verði þegar
lögregluþjónar þjóta þvert yfír göt-
una, örfáum metrum áður en komið
er að hringtorginu. Þarna hefur að
vísu verið sett upp skilti: „Innakstur
sem starfa að útvarpsrekstri hafa
vissulega töluverðum skyldum að
gegna. Þetta virðist mörgum að-
standendum hinna einkareknu út-
varpsstöðva ekki vera ljóst. í raun
er dapurlegt hversu mikils metnað-
arleysis gætir í dagskrárgerð þeirra
og efnistökum. Dagskrá hinna nýju
stöðva byggist nær eingöngu á eng-
ilsaxneskri dægurtónlist og hið tal-
aða orð á mjög í vök að verjast.
Það er ekki hægt að fordæma létt
bannaður", en undirmerki: „Nema
lögreglu“. Þetta ber ótvírætt að
skilja þannig, að einungis merktar
lögreglubifreiðar megi aka þarna
inn. Hins vegar hef ég líka oft séð
lögreglumenn fara þarna inn á
einkabílum og hlýtur það að vera
ólöglegt.
I annan stað getur það ekki ver-
ið æskilegt, að setja undirmerki
með undantekningum undir bann-
merki, þó það hafi verið gert gagn-
vart SVR á fáeinum stöðum. Öðru
máli gegnir um boðmerki. Loks má
benda á, að þurfi akandi maður,
sem kemur austur Skúlagötu, ein-
hverra hluta vegna að þeysa inn á
lögreglustöðina, til dæmis vegna
árásar eða slyss, verður hann að
taka á sig alllangan krók til þess
að komast inn á lóðina.
Hér hljóta að hafa verið gerð
mistök, sem leiðrétta þarf hið bráð-
asta. Bæði til að slys hljótist ekki
af og eins til þess að lögreglumenn-
irnir sjálfir þurfí ekki að bijóta
umferðarreglur til þess að komast
á vinnustað.
Kveðja,
Ökumaður.
afþreyingarefni alfarið, en hins veg-
ar er óæskilegt að ekkert annað
komist að.
íslenskri tungu og menningu
stafar hætta af þessu þegar til
lengri tíma er litið. Ungt fólk, sem
alið er uþp við þessa síbylju og
þekkir ekki annað öðlast tæplega
þá tilfínningu fyrir móðurmálinu,
sem nauðsynleg er til að nota það
rétt. Erlend orð og hugtök verða
fólki tamari en íslensk, orðaforði
minnkar og virðing fyrir fallegu og
hreinu máli hverfur.
Ekki bætir það úr skák, að allir
helstu bögubósar þjóðarinnar virð-
ast starfa á þessum stöðvum. Vissu-
lega eru nokkrir dagskrárgerðar-
menn þeirra sæmilega máli famir,
en flestir tala enskuskotið hrogna-
mál. Slæðist íslensk orð með eru
þau jafnan í röngu falli, rangri
mynd eða tíð.
Það sem þessir menn hafa fram
að færa er ámóta ómerkilegt og
málfar þeirra. Yfirleitt láta þeir sér
nægja, að þvaðra um veðrið, segja
hlustendum hvað klukkan sé og
slúðra um einkalíf dægurlaga-
söngvara. Sú var tíðin, að greind-
ustu og merkustu menn þjóðarinnar
upplýstu og fræddu almenning með
erindum og umræðum í útvarpinu.
En nú virðist engu máli skipta hvort
menn hafi eitthvað fram að færa,
aðalatriðið er að þeir séu „hressir“.
Af þessu má vera ljóst, að vissar
hættur fylgja hinu nýtilkomna frelsi
í útvarpsmálum. Ekki kemur þeim
er þetta ritar þó í hug, að breyting-
ar á lögum eða reglugerðum séu
rétta leiðin til úrbóta. Eins væri
afturhvarf til ríkiseinokunar bæði
óframkvæmanlegt og óæskilegt.
Eina raunhæfa leiðin til að sporna
við hinum óæskilegu áhrifum fjölg-
unar útvarpsstöðva er hugarfars-
breyting. Ef sjónarmið dagskrár-
gerðarmanna og hlustenda breyt-
ast, þá er von til þess að íslending-
ar geti nýtt fjölmiðlabyltinguna
menningu sinni til framdráttar.
Útvarpshlustandi.
Skípulagsmistök
við lögreglustöðina
Yíkverji skrifar
eir sem eru akandi á ferðalagi
frá Berlín til Hannover ættu
að gefa sér tíma til að fara smá-
krók til Wolfsburg og skoða þar
bílasmiðjur Volkswagen. Þar eru
skipulagðar ókeypis skoðunarferðir
er heíjast með kvikmyndasýningu
og síðan er ekið með gestina um
hinar risavöxnu smiðjur, þar sem
framleiddir eru 4.000 bílar á dag,
svo sem Golf, Jettur og Polo.
I Wolfsburg er stærsta bílasmiðja
í heimi. Hefur bærinn byggst upp
í kringum Volkswagen. I ár eru 50
ár síðan Hitler lagði homsteininn
að smiðjunum þama. Þá var engin
byggð á þessum slóðum og segir
sagan, að jámbrautarlestir sem
vom á ferð í nágrenninu hafi verið
stöðvaðar og farþegunum skipað
að fara til að hlýða á foringjann
flytja ræðu sína og klappa fyrir
honum.
Hinn eini og sanni Volkswagen,
Bjallan, er ekki framleiddur lengur.
Síðasta smiðjan fyrir hann var í
Mexíkó.
Fyrir fímmtíu ámm var ætlunin
að Bjallan yrði almenningseign
Þjóðverja og var allt skipulag við
smiðjurnar í Wolfsburg við það
miðað, að þangað gæti hinn al-
menni borgari komið og sótt sinn
ódýra fjöldaframleidda bíl. Stríðið
setti strik í þennan reikning eins
og svo marga aðra. Að því loknu
lenti Wolfsburg, sem er skammt frá
landamærum A-Þýskalands, á
hemámssvæði Breta. Þeim þótti
ólíklegt að nokkur vildi eignast bíl,
sem væri með vélina þar sem far-
angurinn á að vera og létu ekki
rífa framleiðslulínumar. Í mars
1946 höfðu 1.000 Bjöllur verið
smíðaðar, í maí 1981 vom þær
orðnar 20 milljónir.
XXX
Starfsmenn Volkswagen í Wolfs-
burg em 65 þúsund og athafna-
svæði fyrirtækisins er tæpir 20
ferkílómetrar. Stæðið við smiðjurn-
ar rúmar 10.000 nýja bíla, eða sem
svarar framleiðslu á tveimur og
hálfum degi. Bílamir em aðeins
framleiddir eftir pöntun, þannig að
ekki er þörf fyrir stærra birgða-
svæði.
Daglega flytja 29 jámbrautar-
lestir vaming frá smiðjunum í
Wolfsburg, en í hverri lest em um
320 bílar. Alls starfa 260 þúsund
manns hjá Volkswagen og fyrirtæk-
ið hefur framleitt 52 milljónir bíla
frá 1945 til ársloka 1987.
Eins og áður sagði er vel þess
virði að skjótast upp hraðbrautina
til Wolfsburg ef menn em á ferða-
lagi á þessum slóðum í Vestur-
Þýskalandi. Lega verksmiðjanna
þarna í útkanti Vestur-Þýskalands,
ef svo má að orði komast, minnir
á, hve skipting Þýskalands hefur
breytt öllum hugmyndum manna
um skipulag samgangna og stað-
arval fyrir stórfyrirtæki.
Um 100 km fyrir sunnan Wolfs-
burg, einnig skammt frá
landamæmm A- og V-Þýskalands,
er Harz-fjallasvæðið. Þar em vin-
sælir ferðamannastaðir og gömul
fræg keisaraborg, Goslar.
Á þessum slóðum vænta menn
greinilega ferðamannaviðskipta við
Dani og aðra Norðurlandabúa, því
að matstaðir og aðrir þjónustustað-
ir nota skandinavísku gjaman í
auglýsingum sínum. Þá virtust
margir Hollendingar leggja leið sína
á þessar slóðir, ef marka má þjóð-
emi manna af númemm bílanna,
sem þeir aka. Er notalegt að dvelj-
ast þama og ýmislegt forvitnilegt
að sjá, svo sem eins og stafkirkja
að norrænni fyrirmynd og jám-
náma, sem starfrækt hefur verið í
1.000 ár en var lokað nú í sumar
vegna þess, að jámgrýtið var upp-
urið.
, Eins og í Belgíu varð Víkveiji
var við það í Vestur-Þýskalandi, að
þeir sem ferðast með VISA-kort
hafa um mun færri kosti að velja,
vilji þeir nota kortið sitt til að taka
út peninga í bönkum eða kaupa í
verslunum en þeir sem nota
EUROCARD. Það em miklu stærri
bankar, sem veita EUROCARD-
þjónustu í þessum löndum en
VISA-þjónustu og þess vegna em
útibúin tiltölulega fá fyrir VISA-
korthafana.