Morgunblaðið - 17.08.1988, Blaðsíða 53
53
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988
GOLF/SAUÐARKROKUR
GLÍMA
Keppendur í Volvo/Esso-mótinu með verðlaunagripi.
Morgunblaðlð/Bjöm Bjömsson
Bjöm jaf naði vallarmet ið
OPNA Volvo/Esso-mótið var
haldið helgina 13. og 14. ágúst
á Golfvelli Sauðárkróks við
Hlíðarenda. Ágætt veður var
báða dagana og tókst mótið
hið besta. Þátttakendur voru
42, frá Hornafirði, Vestmanna-
eyjum, Blönduósi, Akureyri og
Húsavík, auk heimamanna.
Að sögn Gunnars Steingríms-
sonar mótsstjóra tókst þetta
mót í alla staði ágætlega, þó hefðu
þeir sem að því stóðu gjama viljað
sjá fleiri konur með-
Bjöm al keppenda.
Bjömsson Vegleg verðlaun
skritar voru f boði, en öll
aðalverðlaun gáfu
fyrirtækin Volvo og Esso, en einnig
var keppt um mörg aukaverðlaun
sem gefinvoru af Flugleiðum, Aust-
urbakka, íslensk-ameríska og Golf-
búð Davids Bamwell.
Ágætur árangur náðist og meðal
annars fór Bjöm Axelsson, Golf-
klúbbi Akureyrar, 18 holumar á
74 höggum og jafnaði þar með
vallarmetið sem þeir Sigurður
Ringsted, Golfklúbbi Akureyrar, og
Axel Reynisson, Golfklúbbi
Húsavíkur, áttu.
Annars urðu úrslit þau að fæst
pútt báða dagana átti Viðar Þor-
steinsson, GA, næst holu eftir upp-
hafshögg á 3. braut sló Steinar
Skarphéðinsson, GSS, næst holu
eftir upphafshögg á 6. braut (ungl-
ingar) sló Guðmundur Sverrisson,
GSS, næst holu eftir upphafshögg
á 6. braut (karlar) sló Ámi Bj.
Ámason, GA.
Unglingar m/forgjöf Högg
1. Sigurpáll Sveinsson, GA 132
2. Guðmundur Sverrisson, GSS153
3. Magnús Skúlason, GHH 155
Unglingar án forgjafar Högg
1. Guðmundur Sverrisson, GSS181
2. Magnús Skúlason, GHH 183
3. Sigurpáll Sveinsson, GA 184
Konur m/forgjöf Högg
1. Andrea Ásgrímsdóttir, GA 144
2. Málfríður Haraldsdóttir, GSS
162
Konur án forgjafar Högg
1. Andrea Ásgrímsdóttir, GA 186
2. Málfríður Haraldsdóttir, GSS
222
Karlar m/forgjöf Högg
1. Hreinn Jónsson, GH 138
2. Öm Sölvi Halldórsson, GSS 140
3. Magnús Rögnvaldsson, GSS 141
Karlar án forgjafar Högg
1. Bjöm Axelsson, GA 155
2. Viðar Þorsteinsson, GA 156
3. ÞórarinnJónsson, GA 166
Þórarinn hreppti 3. sætið eftir
keppni í bráðabana við Hrein Jóns-
son, GH.
Mótsslit og verðlaunaafhending
fór svo fram í Golfskála GSS
síðdegis á sunnudag. Steinar Skarp-
héðinsson formaður Golfklúbbs
Sauðárkróks þakkaði þátttakendum
komuna og ágæta keppni og minnti
á að um næstu helgi verður Norður-
landsmótið í golfi haldið hér á Sauð-
árkróki og vænti hann þess að sjá
þar sem flesta.
GOLF / NESVOLLUR
Rúnar Gíslason sigraði
eftir spennandi keppni
Verðlaunahafar á Coka-Cola-mótinu, frá vinstri Sigurður Runólfsson, Guð-
jón Sveinsson, Svavar Haraldsson, Rúnar Gtslason, Peter Salmon, Viggó Viggós-
son, Ingi Jóhannesson og Sigurjón Gíslason.
TÆPLEGA100 kylfingar tóku
þátt í opna Coka-Cola-mótinu
á Nesveilinum um síðustu
helgi. Leiknar voru 36 holur og
sigraði Rúnar Gislason í keppni
án forgjafar, en Guðjón Sveins-
son með forgjöf.
viptingar voru talsverðar á
mótinu og efstu menn skiptu
oft um sæti. Rúnar Gislason, GR,
hélt sínu striki allan tímann. Hann
lék á 73 höggum fyrri daginn og á
75 höggum á sunnudeginum, sam-
tals á 148 höggum. Sigurjón Gísla-
son, GK, og Ingi Jóhannesson, GR,
urðu jafiiir í öðru sæti á samtals
150 höggum og þurfti því bráða-
bana til að knýja fram úrslit á milli
þeirra. Siguijón hafði betur og
tryggði sér silfurverðlaunin með því
að para aðra brautina, meðan Ingi
var einu höggi lakari.
Guðjón Sveinsson, GK, lék sér-
lega vel á sunnudeginum og tryggði
sér sigur með forgjöf með því að
leika þá á 61 höggi nettó. Hann lék
samtals á 129 höggum. Rúnar
Gíslason, varð í öðru sæti á 130
höggum og Sigurður Runólfsson,
NK, varð þriðji á 133 höggum nettó.
Auk hefðbundinna verðlauna
veitti Vífilfell sérstök verðlaun
þeim, sem næstir voru holu á 3.
og 6. braut. Þau hlutu Siguijón
Gíslason, Viggó Viggósson, GR,
Hans Kristinsson, GK, og Svavar
Haraldsson, NK. Einnig voru veitt
verðlaun fyrir lengsta teighögg á
2. braut Nesvallarins og átti Peter
Salmon, GR, lengstu höggin bæði
laugardag og sunnudag.
íslenzk glíma
alþjóðleg
keppnisgrein
Islenzkir glímukappar stóðu sig vel
í keppni í fangbrögðum í Frakklandi
SAMÞYKKT var á aðalfundi
IFCW, alþjóðasamtaka um
þjóðlegar glímuíþróttir, að
íslenzk glíma yrði ein þriggja
keppnisgreina á vegum sam-
bandsins árið 1990. íslenzk
glíma er því orðin alþjóðleg
iþrótt og gamall draumur
íslenzkra glímumanna þar með
orðinn að veruleika.
Islenzk glíma er þriðja greinin
sem IFCW viðurkennir. Hinar
tvær eru axlatök og „gouren“, sem
svipar nokkuð til júdó. Keltneska
meistaramótið í þjóðlegum glímu-
íþróttum fer fram á Islandi árið
1990 og þá verður keppt í greinun-
um þremur.
Fram að þeim tíma munu íslenzk-
ir glímumenn kenna íslenzka glímu
erlendis og erlendir þjlafarar kenna
hér axlatök og „gouren".
„Þetta fór eins og við vonuðum.
íslenzk glíma er- orðin alþjóðleg
íþrótt án þess að reglum hennar
verði nokkuð breytt", sagði Sigurð-
ur Jónsson hjá Glímusambandi ís-
lands í samtali við Morgunblaðið.
Góð frammistaða í Frakklandi
Islenzkir glímukappar stóðu sig
vel á Keltneska meistaramótinu í
þjóðlegum glímuíþróttum, sem
fram fór í Frakklandi samhliða að-
alfundi IFCW.
Amar Marteinsson sigraði í „go-
uren“ í yfírþyngdarflokki en varð í
öðru sæti í axlatökum. Amgeir
Friðriksson keppti í 72 kg flokki
og varð í 2. sæti í axlatökum og í
3. sæti í „gouren". Jón Birgir Vals-
son keppti í 81 kg flokki og varð í
2. sæti í axlatökum og í 4. sæti í
„gouren“. Karl Erlingsson varð í
3. sæti í bæði axlatökum og pgour-
en“ í 68 kg flokki. Fimmti Islend-
ingurinn, Heimir . Eðvarðsson
meiddist í upphafí og gat þess
vegna ekki keppt.
Islenzku glímukappamir halda
nú til Bretlands þar sem þeir munu
keppa í fangbrögðum og sýna ghmu
ásamt hópi ungra ghmumanna, sem
fór utan í gær. •*—-
SKOTFIMI / ÍSLANDSMÓT
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Einar P. Qarðarsson
Morgunblaöiö/Ámi Sæberg
Vfglundur Jónsson
Víglundur bestur
Víglundur Jónsson, SR, varð ís-
landsmeistari í haglabyssu-
skotfími, en mótið fór fram í Hafn-
arfírði um helgina. Víglundur fékk
191 stig, en félagi hans Einar P.
Garðarsson hafnaði í 2. sæti með
181. Stefán G. Stefánsson hlaut
176 stig og varð þriðji, en 13 kepp-
endur tóku þátt.
Þetta var fyrsta mótið á velli SH
og tókst það mjög vel í alla staði
undir stjóm Ferdinands Hansen, en
árangur var ekki eins góður og í
fyrra. IB Sjölander frá Danmörku
var yfirdómari, en hann hefur verið
íslenskum skotmönnum innan
handar, hélt námskeið í fyrra og
annað á Höfn í Hornafirði fyrir
skömmu. Sjölander var þjálfari
danska liðsins, sem fékk gullverð-
launin á Ólympíuleikunum í Los
Angeles 1984.
GOLF / FIRMAKEPPNI NK
Bílaborg sigraði
MIKIL þátttaka var f firma-
keppni Nesklúbbsins í golfi,
sem lauk fyrir nokkru. For-
keppni fór fram samhliða
meistaramóti klúbbsins og
komust 32 lið í 18 holu úrslita-
keppni. Leikið var með forgjöf
og sigraði Bflaborg, keppandi
Þorlákur Pétursson.
Sjóvá varð í öðm sæti, keppandi
Jón Haukur Guðlaugsson. Hót-
el Holiday Inn varð í þriðja sæti,
keppandi Þórður Orri Pétursson.
Brimborg varð í fjórða sæti, kepp-
andi Ottó Pétursson. Auglýsinga-
stofa Gunnars Gunnarssonar varð
fimmta, keppandi Jóhann Reynis-
son.