Morgunblaðið - 17.08.1988, Side 54
54
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988
Cesar
Luis
Menotti
CESAR Luis Menotti er einn
þeirra knattspyrnuþjáifara
sem nýtur hvað mestrar
virðingar í heiminum í dag.
Hann hefur náð mjög góð-
um árangri á ferli sínum
sem þjálfari.
Menotti er 49 ára að aldri,
er giftur og á tvo syni.
Hann er með háskólapróf í efna-
fræði.
■ Aðaláhugamál hans eru
bílar, veiðar og píanótónlist.
■ Hann hóf knattspyrnuferil
sinn sem ieikmaður með Rosario
Central í Argentínu árið 1960.
■ Síðar iék hann með tveimur
bestu félagsliðum Argentínu,
Racing og Boca Juniors.
I Menotti lék síðar með New
York Cosmos í Bandaríkjunum.
B Hann lék um tíma með Pelé
hjá brasilíska félaginu Santos.
É Menotti lauk leikferli sínum
með Sao Paulo í Brasilíu.
■ Eftir að hann hætti að ieika
með Sao Paulo fór Menotti strax
að þjálfa. Fyrsta félagið sem
hann þjálfaði var Huracan í
Argentínu. Þetta var árið 1971.
■ Huracan varð Argentínu-
meistari undir hans stjóm aðeins
tveimur árum síðar, árið 1973.
É Menotti varð landsliðsþjálf-
ari Argentínu árið 1974.
É Argentínumenn urðu heims-
meistarar undir hans stjórn er
úrslitakeppni HM var haldin í
heimalandi þeirra, árið 1978.
■ Árið eftir, 1979, stýrði Men-
otti unglingalandsiiði Argentínu
einnig til heimsmeistaratitils, í
Tókýó.
I Menotti var ráðinn þjálfari
spánska stóriiðsins Barcelona
1983 og stýrði því til sigurs í
helstu mótum þar í landi — liðið
varð spánskur meistari, bikar-
meistari og sigurvegari í „Super
Cup“.
■ Nokkrar bækur um knatt-
spyrnu hafa komið út eftir Men-
otti, hann hefur í nokkurn tíma
skrifað greinar um íþróttina og
gerðar hafa verið kvikmyndir
um þjálfun þar sem hann hefur
ieiðbeint. Hann starfaði sem
útskýrandi fyrir sjónvarpsstöðv-
ar á heimsmeistarakeppninni í
Mexíkó 1986 og á Evrópukeppni
landsliða í sumar í Vestur-
Þýskalandi.
■ Menotti þjáifaði Bocá Juni-
ors í Argenttnu keppnistímabilið
1986-87 og varð liðið í öðru
sæti í deildarkeppninni.
■ Leið hans lá til Spánar árið
eftir, en þá þjálfaði hann At-
letico í Madríd (tímabiiið
1987-88).
■ Menotti snéri síðan aftur til
heimalands síns í vor og þjálfar
í vetur stórliðið River Piate í
Buenos Aires.
Fegurðin, ánægjan
peningamir
og eigingimin
Snillingar
Með þessum orðum mínum vil
vara þá við, sem hugsa svona. Það
hafa alltaf verið til leikmenn, sem
hafa haft hæfileika, sem enginn
hefur véfengt. Áður fyrr voru það
leikmenn eins og Pedema, Moreno,
Sivori, Pele, Bobby Charlton, Beck-
enbauer og í dag Maradona, Mic-
hel, Gullit, Baresi og margir aðrir.
Þeir uppfýlltu og munu uppfylla
vonir fjöldans, sem þarf .jafnmikið
á fegurð að halda og sannleika og
réttlæti", eins og argentínski rithöf-
undurinn Julio Cortazar orðaði það.
Ég kem á framfæri hugsunum
mínum í þeirri von að skapa megi
hátíðarstemningu á leikjum. Þetta
hef ég verið að reyna sem knatt-
spymuþjálfari. Mér hefur ekki alltaf
tekizt það en ég hef aldrei gefizt
upp á því að dreyma um það tak-
mark og beijast fyrir því.
Maðurinn þróast, er til og hann
dreymir, vegna sköpunargáfu
sinnar en ekki vegna hæfni sinnar
til að eyðileggja.
Cesar Luls Menottl.
Snillingar
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Brasilíumaðurinn Pele og Argentínumaðurinn Maradona, sem eru saman á
myndinni, eru meðal þeirra „snillinga" knattspyrnusögunnar sem Menotti minn-
ist á í greininni. Þeir eru meðal þeirra sem hafa haft hæfíieika, „sem enginn
hefur véfengt," segir hann. Slíkir leikmenn „uppfylltu og munu uppfylla vonir
fjöldans, sem þarf „jafnmikið á fegurð að halda og sannleika og réttlæti", eins
og argentínski rithöfundurinn Julio Cortazar orðaði það,“ segir Menotti.
MAÐURINN þróast, er til og
hann dreymir, vegna sköpun-
argáfu sinnar en ekki vegna
hæfni sinnartil að eyðileggja.
Þannig langar mig að byrja orð
mín til ykkar allra, sem hafið
ánægju af knattspyrnuíþrótt-
inni. Þið ásamt leikmönnum
hafið gert knattspyrnuna að
vinsælasta og mest spennandi
leik veraldar.
Allt mitt líf hef ég, hvar sem
ég hef verið og hvenær sem
er, reynt eftir beztu getu að halda
á lofti fegurð leiksins. Mér er ofar-
lega í huga hæfileikar nokkurra
knattspyrnusnillinga, sem hafa gef-
ið knattpyrnunni svo margt og hafa
með leikstíl sínum sett mark sitt á
lið sín. Þessir ódauðlegu snillingar
hafa auðgað knattspymuíþróttina
með sköpunargáfu sinni, hæfileik-
um og hugmyndaauðgi.
Ég hef hins vegar miklar áhyggj-
ur af því, að áhrif auglýsinga-
mennsku, sem á ekkert skylt við
fótbolta, eigi eftir að aukast og það
komi niður á gæðum íþróttarinnar.
Hættan er nú þegar alls staðar fyr-
ir hendi. Til dæmis eru venjulegir
pústrar, sem eiga sér stað í leikjum,
að snúast upp í að menn „rífí hvem
annan í sig“. Ég vara sterklega við
þróun í þessa átt.
Uðsheildin
Allt frá því að ég byijaði að
þjálfa, hef ég reynt að gera að veru-
leika draum minn um lið, sem gerir
hvort tveggja að ná árangri og
kemur til móts við áhorfendur með
skemmtilegum leik. Ég álít gæði
skipta miklu máli. Líf mitt og starf
væri innantómt án þeirra.
Með hverri athöfn sinni sviptir
sérhver einstaklingur hulunni af
lífsstíl sínum, sem á endanum er
aðeins einn af þeim þáttum sem
móta ákveðið þjóðfélagskerfi. Ef
11 leikmenn fara allir að leika eftir
eigin geðþótta og hugsa bara um
sjálfa sig, finnst mér það vera svik
við leikinn. Að mínum dómi er leikn-
um nefniiega ætlað að skapa
ánægju og koma fólki í hátíðar-
skap. Að minnsta kosti á að stefna
að því.
Peningar
Í þessari fyrstu grein minni byija
ég á því að útskýra þær heimspeki-
legu hugmyndir mínar, að knatt-
symu eigi að skilgreina sem ákveð-
ið listform. Einnig mun ég ræða
mismunandi skoðanir í þeim efnum.
Ég ætla í upphafí að hrekja ásök-
un sem oft heyrist: Það eru ekki
peningar, sem eru að eyðileggja
knattspymuíþróttina eða að gera
hana risminni. Hvers vegna ættu
peningar að spilla aðeins leikmönn-
um og þjálfurum í knattspymu en
ekki tónlistarmönnum, skáldum og
listmálurum? Peningar geta aldrei
breytt listamanni eða orðið honum
til minnkunar, þótt þeir geti dregið
lítillega úr gæðum og tilgangi starfs
hans.
Aðalatriðið í þessu er sú fyrirlit-
lega afstaða þeirra, sem líta á vinnu
sína, einfaldlega sem tækifæri til
að koma sér sjálfum á framfæri,
alveg sama hvort um er að ræða
blaðamenn, þjálfara eða stjómend-
ur liða. Þama á ég við þá, sem
dreyma um völd og hugsa þannig:
„Sá sem sigrar hefur tækifæri á
að selja sig og hlýtur þess vegna
að vera beztur."
Bobby Charlton er
eirin „snlllinganna"
að mati Menottis.
Beckenbauer
og Menotti
skrifa fyrir
Morgunblaðið
CESAR Luis Menotti og
Franz Beckenbauer skrifa í
framtíðinni, næsta árið að
minnsta kosti, greinar um
knattspyrnu í Morgunblaðið.
Báðir eru þetta heimsfrægir
knattspymuþjálfarar, Beck-
enbauer skrifaði greinar hér
í blaðið um Evrópukeppni
landsliða fyrr í sumar, og
Menotti bætist nú sem sagt
við. Hvor um sig mun skrifa
eina grein í mánuði, Becken-
bauer um knattspymuna í
Evrópu en Menotti einblínir á
Suður-Ameríku, þar sem hann
starfar, auk þess sem hann
mun ijalla um knattspyrnuna
á Spáni, en þar hefur hann
þjálfað.