Morgunblaðið - 25.09.1988, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1988
um baminu um höfuðið og segjum:
„Þetta verður allt gott, vertu róleg-
ur.“ Við vitum að hjá baminu allt
verður gott og þannig verður það
líka hjá okkur, hinum fullorðnu.
Þessi setning hefur hefur skipt
miklu máli í lífi mínu. Þegar ég var
flórtán ára gömul skrifaði ég í dag-
bókina mína: Sál mín er eins og
harpa sem erfitt er ná hreinum
hljómi á og enn er ég að reyna að
stilla þessa hörpu.“
Söngkennslu hóf Svanhvít um
1960 og hana stundar hún enn.
Fyrst hóf hún einkakennslu en svo
var henni boðin staða við tónlistar-
háskóla. Fyret vildi hún ekki þiggja
þá stöðu. „Ég vildi alltaf vera fijáls
og vildi ekki binda mig, en svo var
ég nánast lokkuð til að taka stöð-
una. Mér var leitt fyrir sjónir að
ég fengi gott kaup, frí á sumrin
og gæti svo alltaf hætt ef mér líkaði
ekki. Ég sló á endanum til og nokkr-
um ámm seinna var mér boðin próf-
essorsstaða. Til þess að geta tekið
við henni varð ég að fá.austurrísk-
an ríkisborgararétt. Mér var boðið
úti að hafa þann íslenska áfram af
því ég var prófessor. Hér heima var
ekki tekið neitt tillit til þess. Mér
var neitað um að hafa íslenskan
ríkisborgararétt jafnframt aust-
urrískum. Ég varð að velja og það
sámaði mér satt að segja. Ég hafði
áður misst íslenskan ríkisborgara-
rétt þegar ég giftist Jan, en þá var
mér boðinn hann aftur þegar ég
kom heim. Nú er þetta eitthvað
öðmvísi og það á ég erfitt með að
sætta mig við. Ekki síst vegna þess
að með ámnum hef ég alltaf verið
að nálgast landið mitt. Hér áður
liðu stundum mörg ár milli þess sem
ég kom heim til Islands og það var
slæmt. Mér finnst svo þýðingarmik-
ið fyrir mig að koma hingað því
hér gerist svo margt innra með
mér. Ég geng sem í draumi en samt
gerist svo margt. Kannski endar
þetta einhvem tíma með því að ég
fer ekki aftur út. Stundum þegar
ég sit í vetrarkuldunum úti í Vínar-
borg þá hugsa ég um hve gott ég
hefði það heima á íslandi. Úti er
fjarskalega hátt til lofts í öllum
húsuin og illa kynt svo maður skelf-
ur af kulda. Á íslandi er mátulega
hátt til lofts og húsin hlý. Með
hverju árinu sem líður færist ég nær
öllu hér heima..
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
Hvatt til
hækkunar
olíuverðs
Mexico City. Reuter.
GRO Harlem Brundtland, for-
sætisráðherra Norges, og Miguel
de la Madrid, forseti Mexico,
hafa hvatt til þess að olíuverð
verði hækkað til þess að unnt
verði að bæta efnahagsástandið
í rílgum þriðja heimsins.
Miguel de la Madrid sagði á ráð-
stefnu, sem lauk í gær í Mexico
City, að verð á olíu að undanfömu
hefði verið „fráleitt". Fjölmörg þró-
unarríki hefðu orðið fyrir alvarleg-
um áföllum auk þess sem óhóflega
hefði verið gengið á aðrar náttúru-
auðlindir af þessum sökum.
Gro Harlem Brundtland, sem er
formaður embættismannanefndar
Sameinuðu þjóðanna um umhverf-
is- og þróunarmál, sagði að brýnt
væri að olíuverð yrði hækkað og
að þess yrði freistað að halda verð-
inu stöðugu. Fátæk ríki hefðu
neyðst til að grípa til rányrkju og
náttúruspjalla til að vega upp á
móti tekjutapinu. Áhrifa þessarar
röksunar á lífríkinu kjmni hins veg-
ar að gæta um heim allan yrði ekki
gripið til viðeigandi aðgerða í því
skyni að treysta efnahagsástandið
í löndum þessum. Brundtland hvatti
til þess að dregið yrði úr skulda-
byrði þróunarríkja og kvaðst telja
brýnt að þróunaraðstoð yrði aukin
til muna.
hvíld
Jfll
flfm Jf M
Kanan
c
í vetur bjóða þaulvanir fararstjórar Flugleiða
nýja og gamalreynda farþega velkomna til hinnar
fögru eyjar, GRAN CANARIA. Þar fara náðugir
dagar í hönd á þægilegum gististöðum, íslenskum
Kanaríförum að góðu kunnir, t.d. San Valentin
Park og Corona Blanca. Tveir nýir staðir eru
Broncemar og Barbacan Sol.
Beint dagflug til Gran Canaria:
Föstudaginn 04.11. ’88, 3ja vikna ferð
„ Föstudaginn 25.11.’88, 25 daga ferð
S Þriðjudaginn 20.12. ’88, 22ja daga ferð
I Miðvikudaginn 11.01. ’89, 3ja vikna ferð
< Miðvikudaginn 01.02. ’89, 3ja vikna ferð
| Miðvikudaginn 22.02. ’89, 3ja vikna ferð
* Miðvikudaginn 15.03. ’89, 3ja vikna ferð
Miðvikudaginn 05.04. ’89, 3ja vikna ferð
Verðdæmi: Frá kr. 52.200* á mann miðað við
þrjá saman í íbúð á BRONCEMAR í 3 vikur.
Brottför 4. nóvember.
* Staðgreiðsluverð miðað við gengi 29.8.’88. Verð án
flugvallarskatts.
Upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða,
Lækjargötu, Hótel Esju og Kringlunni;
umboðsmenn um land allt og ferðaskrifstofurnar.
Upplýsingasími: 25 100.
FLUGLEIDIR
fynr þíg
FERÐASKRIFSTOFAN ÚRVAl
- fólk sem kann sitt fag!
Pósthússtrœti 13 - Sími 26900
FEROfl,
MIDSTÚDIN
Aðalstræti 9, Sími: 28133
moivm
Hallveigarstíg 1, Sími: 28388
FEROASKRIFSTÖFAN
POLARIS
Kirkjutorgi 4 Sími622 011
FERÐASKRIFSTOFA
SÍMI 641522 HAMRABORC I I
larandi
VESTURGÖTU 5 • REYKJAVÍK • SÍMI 622420
FERÐASKRIFSTOFA
REYKJAVÍKUR
AÐALSTKATI 16 101 REYKJAVÍK
SlMI 621490