Morgunblaðið - 25.09.1988, Blaðsíða 36
36
morgunblabið. ÓLYMPÍULEIKARMIR j SEOUL ’88 SUNNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1988
HANDKNATTLEIKUR
Svartnætti í „Sól
íí
Steinþór
Guðbjartsson
skrifarfrá
Suður-Kóreu
Eftir sigurinn gegn Svíum á
Spánarmótinu í síðasta mánuði
var talað um sálfræðilegan sigur,
sem hefði mikið að segja á Ólympíu-
leikunum. Sú von að
sigra Svía á stór-
móti brást hinsveg-
ar í Suwon í gær,
en það sem verra
var, tapið var stórt og markatalan
getur haft alvarlegar afleiðingar,
er upp verður staðið í þessari keppni
og leikmennimir voru heillum
horfnir gegn Svíum. Þeir mættu
taugaóstyrkir til leiks gegn yfirveg-
uðum mótherjum og úrslitin voru
ráðin í hálfleik.
Sóknarleikur íslenska liðsins var í
molum. Mikið var um ótímabær
skot og spilið var ráðleysislegt.
Island-Svíþjóð
14 : 20 (6:12)
Suwan í Suður-Kóreu, handknattleikur
ÓL, laugardaginn 24. september 1988.
Leikurinn í tölum: 0:1, 1:1, 1:4, 3:5,
5:8, 5:11,6:12, 7:12, 7:14, 9:16, 12:18,
13:18, 13:20, 14:20.
Mörk íslands: Alfreð Gíslason 3, Atli
Hilmarsson 3, Kristján Arason 3/2,
Sigurður Gunnarsson 2, Geir Sveinsson
2 og Þorgils Óttar Mathiesen 1.
Varin skot: Einar Þorvarðarson 7.
Utanvallar: 8 mínútur.
Mörk Svíþjóðar: Per Carlen5, Erik
Hajas 5, Per Carlsson 3, Par Jilsen 2,
Staffan Olsson 2, Magnus Wislander
1, OlaLindgren 1 ogBjöm Jilsen 1/1.
Varin skot: 20/1.
Utanvallan 6 mínútur.
Dómarar: Per Erik Sjöng og Jan Rolf
Ludvigen frá Noregi.
i„i ii,
| SIGLINGAR
Mastrið á
Leifi heppna
brotnaði og
segl rifnuðu
GunnlaugurJónas-
son var kallaður í
lyfjapróf í Pusan
„ÞAÐ VAR brjálað veður og
haugasjór - 7 vindstig og rign-
ing - þegar siglingakeppnin
hófst hér í dag. Þrátt fyrir það
var látið keppa,“ sagði Ari
Bergmann Einarsson, flokk-
stjóri siglingamannanna í sam-
tali við Morgunblaðið i gær.
Það gekk á ýmsu hjá siglinga-
mönnunum Gunnlaugi Jónas-
syni og Ísleifí Friðrikssyni. í upp-
hafi fylltist bátur þeirra af sjó. Þrátt
fyrir það voru þeir í
þriðja sæti á fyrstu
bauju og í tólfta
sæti á annarri
bauju. Þegar lengra
var komið, lentu þeir félagar síðan
í brotsjó.
„Mastrið fauk í tvennt og segl
rifnuðu. Þeir Gunnlaugur og Isleif-
ur urðu að hætta keppni og dettur
þessi dagur því út hjá þeim. Sex
dagar af sjö telja. Þetta var sorg-
legt, því að þeim gekk vel í byrjun
og maður var farinn að vera spennt-
ur að sjá hvemig framhaldið yrði,“
sagði Ari Bergmann.
Þegar þeir Gunnlaugur og ísleif-
ur komu í land var Gunnlaugur
kallaður í lyQapróf og látinn pissa
í glas.
Þegar heim var komið, hófst
skipasmíði hjá þeim félögum.
Danskur seglasaumari aðstoðaði þá
við að sauma saman seglin og þeir
fengu nýtt mastur, sem var mælt
upp. Þeir fluttu búnaðinn af brotna
mastrinu yfír á það nýja.
Mörg önnur óhöpp áttu sér stað
í gær. Mikið var um árekstra og
varð til dæmis að steypa upp í göt
og sprungur á nokkrum bátum.
SigmundurÓ.
Steinarsson
skrifarfrá
S-Kóreu
Sóknamýtingin var 26% í fyrri hálf-
leik, en aðeins betur gekk eftir hlé
og var sóknamýtingin í leiknum
27,4% en 58,8% hjá Svíum.
Hvað eftir annað klúðruðu menn
dauðafærum, sátu eftir og Sviar
þökkuðu fyrir sig, brunuðu upp og
skoruðu. Menn gerðu ótrúlegustu
mistök og var refsað fyrir.
Olsson lokaði markinu
Mats Olsson hefur oft reynst íslend-
ingum erfiður og hann var hetja
Svía. Olsson hreinlega lokaði mark-
inu og 20 sinnum fengu Svíar knött-
inn eftir frábæra markvörslu, en
hann varði ótal mörg skot þar að
auki.
SUND
Leiði
Leikgleðin var ekki til staðar hjá
strákunum að þessu sinni og þeir
þoldu ekki álagið. Slíkt er um-
hugsunarefni, en þess ber að geta
að liðin almennt hafa ekki náð að
sýna sitt besta. Hver leikur er nán-
ast úrslitaleikur og ekkert má út
af bera. En sex marka tap gegn
Svíum er of mikið og nálgast kæru-
leysi. Svíar eru með ágætt lið, en
það gerði einnig mistök, sem
íslenska liðinu tókst ekki að not-
færa sér.
En enn er von. Júgóslavar eru
næstir á dagskrá, á mánudag, og
þá fá strákamir tækifæri til að
sanna sig, sem verður samt von-
andi ekki of seint.
Einar Þorvarðarson lék sinn 200.
landsleik í gær.
Þrjú íslandsmet
„EG byrjaði illa, fyrsta sundið
mitt var ekki nógu gott, í raun
alveg út í hött, en ég ýtti því
frá mér og mætti ákveðnari til
leiks eftir það,“ sagði Ragn-
heiður Runólfsdóttir við Morg-
unblaðið í gær eftir að hún
hafði sett Islandsmet í 200 m
fjórsundi. Ragnheiður synti á
2:22,65 mín og hafnaði í 24.
sæti af 35 keppendum.
Eg vissi hvar ég stóð og þetta
var fyrsta stórmótið, sem ég
keppi á með sjálfstraustið í lagi.
Þetta er vafalaust sterkasta sund-
mót sem haldið hef-
ur verið og miðað
við okkar markmið
getum við yfirleitt
verið ánægð, þó
sumstaðar hefði mátt gera betur,“
sagði Ragnheiður.
Steinþór
Guðbjartsson
skrifarfrá
Seoul
Ætlaði að hætta en held áfram
Ragnheiður hefur æft mjög vel
fyrir Ólympíuleikana, á hveijum
degi síðan 6. september í fyrra.
„Þetta hefur verið erfitt en reynslan
er dýrmæt og ég sé ekki eftir tíman-
um, sem farið hefur í sundið. Samt
var ég ákveðin í að hætta ef ég
bætti mig ekki hér, en ég er enn í
framför og langar til að halda áfram
sem og ég geri á Akranesi, þegar
heim kemur. Þá hefst undirbúning-
urinn fyrir bikarkeppnina sem verð-
SPJOTKAST
Reuter
Ragnheiður Runólfsdóttir á fullri ferð í Ólympíusundlauginni í Seoul í
fyrrinótt, á leið sinni að íslandsmeti í 200 m fjórsundi.
ur í nóvember. Ég er fegin að ég
náði mér á strik og árangurinn sýn-
ir að ég get enn bætt mig,“ sagði
Ragnheiður.
„Mjögðnægður"
Ég er mjög ánægður með bæði
sundin og metin þijú,“ sagði Ragn-
ar Guðmundsson eftir 1500 metra
skriðsundið. Ragnar setti íslands-
met í 400 m skriðsundi á sunnudag-
inn og bætti um betur í gær, setti
tvö met í sama sundinu.
Ragnar synti á 15:57,54 en átti
best áður 16:04,69. Hann hefur
bætt sig um tæpar 19 sekúndur
síðan á EM í ágúst í fyrra, en þá
synti hann á 16:16,25. „Ég setti
-nér það markmið að synda undir
16 mínútum og það tókst," sagði
Ragnar, sem fékk millitímann
8:30,69 eftir 800 metra, sem einnig
er íslandsmet.
Eðvarð í B-úrslit
Eðvarð Þór Eðvarðsson tók sig
á eftir 200 metra baksundið og
komst í B-úrsliit í 100 m baksundi.
Hann synti á 57,70 og hafnaði í
17. sæti en einn keppandinn mætti
ekki í B-úrslitin og tók Eðvarð því
sæti hans. Þá fékk hann tímann
58,20 og hafnaði í 8. sæti eða í 16.
sæti í greininni.
Magnús Már Ólafsson keppti í
50 metra skriðsundi, synti á 24,50
sekúndum og hafnaði í 40. sæti af
69 keppendum.
Steinþór
Guðbjartsson
skrifarfrá
Suðuf-Kóreu
Engin
hugsun
Það var engin hugsun í þessu
hjá strákunum, þeir spiluðu
ekki sinn bolta. Einhverra hluta
vegna er taugaóstyrkur einkenn-
andi fyrir liðið, þeg-
ar ekkert nema sig-
ur kemur til greina.
Það stóðst ekki
álagið að þessu sinni
og stórt tap var óumflýjanlegt,
sagði Bogdan, landsliðsþjálfari, við
Morgunblaðið strax að leik loknum.
Eins og við var að búast var
Bogdan allt annað en kátur. „Sókn-
arleikurinn var slakur og þegar
vömin er ekki betri en raun bar
vitni nægir ekki að skora 14 mörk
til að sigra. En auk mistaka okkar
létum við einn mann gera út um
leikinn og slíkt gengur ekki. Olsson
varði nær allt sem að marki kom,
en það er reyndar ekki í fyrsta
skipti gegn okicur. Hvað eftir annað
var hann eina hindrunin, sem'átti
eftir að yfírstíga, en strákamir réðu
ekki við hana.
Annars hafa flestir leikir hér
spilast undarlega enda ekki nema
von, þar sem öll lið em að keppa
um efstu sæti,“ sagði Bogdan.
„Eins og böm í sókninni"
„Við töpuðum fyrst og fremst á
afleitum sóknarleik — við vorum
eins og böm í sókninni," sagði Ein-
ar Þorvarðarson.
Einar lék sinn 200. landsleik og
var dapur. „Þetta var hrikalegt.
Þeir fengu hvert hraðaupphlaupið
eftir annað og skoruðu ódýr mörk
eftir okkar mistök. Þegar allt er
eðlilegt erum við með betra sóknar-
lið en þeir betra vamarlið. Á góðum
degi eigum við að sigra en með
svona leik eigum við langt í land,"
sagði Einar.
Handknattleikur
A-riðill:
Ísland-Svíþjóð........
..14:20
Júeróslavía-Alsír 23:22
So vétrí kin-Bandaríkin. 26:14
Stadan:
Sovétríkin ..3 3 0 0 72:50 6
ísland ..3 2 0 1 58:51 4
Svíþjóð ..3 2 0 1 59:54 4
Júgóslavía.... ..3 2 0 1 72:69 4
Alsír ..3 0 0 3 56:66 0
Bandaríkin.... ..3 0 0 3 52:79 0
B-riðill:
Suður-Kórea-Tékkóslóvakía. 29:28
Ungverjaland-Japan. 22:19
A-Þvskaland-Snánn . 21:20
Staðan:
Suður-Kórea. ..3 3 0 0 74:70 6
A-Þýskaland. ..3 2 0 1 68:61 4
Tékkóslóvakía 3 2 0 1 67:62 4
Spánn ..3 1 0 2 62:60 2
Ungveijaland..3 1 0 2 58:60 2
Japan ..3 0 0 3 56:72 0
Einar undir í „taugastríðinu"
Kastaði vel yfir 80 metra í upphitun en brást þegar í alvöruna kom
EINAR Vilhjálmsson varð undir
í taugastríðinu mikla, sem allír
bestu spjótkastarar heims
háðu á Ólympíuleikvanginum í
Seoul. Einar náði ekki að rjúfa
79 metra lágmarkið, sem hann
þurfti að gera til þess að kom-
ast í úrslitakeppnina — hann
var aðeins 8 sentimetra frá því
lágmarki, kastaði spjótinu
78.92 í sínu síðasta kasti, en
hafði áður kastað 78.46 og
75.64 metra.
Iupphituninni kastaði Einar vel
yfir 80 metra, köstin vom ekki
mæld en spjót hans Ienti „réttu"
megin við línuna sem gaf til kynna
lágmarkið til að
komast í úrslit. En
þegar út í alvöruna
kom kámaði gama-
nið. Það munaði þó
ekki miklu, að Einar kæmist í úrsli-
SigmundurÓ.
Steinarsson
skrifar
fráSeoul
takeppnina sem tólfti maður. Þegar
kiukkan var 12.24 að staðartíma í
Seoul, var Einar inni í úrslitunum.
Þá áttu aðeins átta kastarar eftir
að kasta — aðeins einn þeirra var
í hópi fremstu manna heims í spjót-
kasti, Finninn Tapio Koijus, sem
hafði áður kastað 76.42 og 78.26
metra. Koijus lagði allt sem hann
átti í síðasta kast sitt — spjótið
flaug vel yfir 80 metra markið, eða
81.42 metra.
Koijus fagnaði geysilega, en um
leið fór kuldahrollur um íslenska
áhorfendur — draumurinn um glæst
gengi Einars í Seoul var orðinn að
martröð. Um leið og spjót Kuijus
lenti, gerði Sigurður Einarsson,
spjótkastari, snöru um háls sér með
látbragði og herti að. Það þýddi að
Einar væri kominn út' úr úrslita-
keppninni. Tjaldið var fallið — önn-
ur tilraun Einars til að feta í fót-
spor föður síns á Ólympíuleikum,
að komast á verðlaunapall hafði
mistekist. Einar virðist ekki hafa
taugar til þess að glíma við jafn-
ingja sína á stórmótum.
Sigurður Einarsson náði sér held-
ur ekki á strik. Hann kastaði 69.18,
72.90 og 75.52 metra.
Finninn Seppo Ráty hóf spjót-
kastkeppnina og sett nýtt ólympíu-
met, 76.76 metra, með nýja spjót-
inu. Heimsmethafinn Jan Zelezny
frá Tékkóslóvakíu (87.66), kastaði
spjótinu 85.90 metra í sínu fyrsta
kasti og mældist það kast lengst í
undankeppninni.
Sjö spjótkastarar náðu lágmark-
inu í fyrsta riðli. Zelezny, Raty
(81.62), Sovétmaðurinn Ovtchinn-
ikov (80.26), Kimmo Kinnunen,
Finnlandi (80.24), Gerald Weiss,
A-Þýskalandi (80.22), Peter Berg-
lund, Svíþjóð (80.16) og Júgóslav-
inn Krdzalic (79.70).
Einar var í áttunda sæti og var
það því hans eina von á að komast
í úrslit, að aðeins fjórir næðu lág-
markinu í öðrum riðli.
Dæmið gekk ekki upp — Bretinn
David Ottley kastaði 80.98 metra
í sínu fyrsta kasti. Svíinn Dag
Wennlund kastaði 79.66 í öðru kasti
og Sovétmaðurinn Evcioukov kast-
aði 79.26 í öðru kasti. Þá kom 80.52
metra kast hjá V-Þjóðveijanum
Klaus Tafelmeier í þriðja kasti og
Finninn Koijus gerði draum Einars
að engu eins og fyrr ségir.
Það er orðið umhugsunarefni
hvers vegna Einar hefur ekki náð
að tryggja sér sæti í úrslitakeppn;
um á stórmótum undanfarin ár. í
sumar hélt maður að hann væri
búinn að yfirstíga þann erfíðleika,
með því að vinna sigra á mótum í
Finnlandi og Svíþjóð. Svo er ekki,
því að þegar út í alvöruna kemur,
feilur Einar á prófínu.