Morgunblaðið - 25.09.1988, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ,
ÓLYMPÍIILEIKARMIR Q%£> I SEOUL »88
SUNNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1988
SUND
Glæsilegt heimsmet Biondi
Kristín Otto vann fimmtu gullverðlaun sín, Matt Biondi hefur unnið fern og Janet Evans þrenn
MATT Biondi frá Bandaríjunum
bætti heimsmetið í 50 metra
skriðsundi og vann fjórðu gull-
veðlaun sín í Seoul. Kristín
Otto var í sigursveit Austur-
Þýskalands í 4 x 100 metra fjór-
sundi og vann fimmtu gullverð-
laun sín í Seoul. Janet Evans,
Bandaríkjunum, sigraði örugg-
lega í 800 metra skriðsundi
kvenna og vann þriðju gull-
verðlaun sín. Vestur-Þjóðverj-
inn Michael Gross fagnaði
sínum fyrsta Ólympíumeistar-
atitli í Seoul í gær er hann sigr-
aði í 200 m flugsundi.
Biondi synti í undanrásum á
22,39 sek en gerði enn betur
í úrslitasundinu, synti á 22,14 sek.
og bætti heimsmet landa sín, Tom
Jager sem varð annar, um 22/100
hluta úr sekúndu.
Janet Evans hafði mikla yfir-
burði í 800 metra skriðsundi kvenna
þar sem hún vann þriðju gullverð-
laun sín, synti á 8:20,20 mín. sem
er nýtt ólympíumet. Astrid Srauss
frá Austur-Þýskalandi varð önnur
á 8:22,09 mínútum.
Michael Gross var hinn öruggi
sigurvegari í 200 metra flugsundi
á 1:56.94 mín. sem er nýtt ólympíu-
met. Daninn Benny Nielsen nældi
sér óvænt í silfurverðlaunin á
1:58,24 mín.
Óvænt
Japaninn Daichi Suzuki varð
miöer óvænt ólvumDÍumeistari í 100
m baksundi karla. Hann synti á
55,05 sek. Heimsmethafinn Igor
Polianski frá Sovétríkjunum, sem
setti nýtt heimsmet í undanrásun-
um, 54,51 sek., varð að láta sér
lynda þriðja sætið. David Berkoff
frá Bandaríkjunum varð annar.
Hin 16 ára gamala austur-þýska
stúlka, Daniela Hunger, hafði
nokkra yfírburði í 200 metra fjór--
sundi kvenna, synti á 2:12,59 mín.
Elena Dendeberova frá Sovétríkjun-
um varð önnur og Noemi Ildiko
Lung frá Rúmeníu þriðja.
íÞRfam
FOLX
■ BÚLGARIR ákváðu í gær-
morgun að draga lyftingalið sitt úr
keppni Ólympíuleikanna eftir að
annar Búlgari var sviptur gullverð-
launum sínum vegna ólöglegrar
lyflatöku. í vikunni missti Mitko
Grablev (56 kg. fl.) gullverðlaunin
og í gær kom í ljós að Angel Guenc-
hev (67.5 kg fl.) hafði tekið sama
lyfið — furosemide.
■ LYFIÐ sem Búlgararnir
tveir tóku kemur í veg fyrir að
notkun anabólískra steríóða „Bol-
ans“ svokallaða, og annarra ólög-
iegra vöðvauppbyggjandi lyfja,
komi í ljós við lyfjapróf.
■ TVEIR þátttakendur í nútíma
fímmtarþraut karla hafa einnig ver-
ið dæmdir úr leik fyrir ólöglega
lyfjanotkun. Það eru Jorge Qu-
esada frá Spáni og Alexander
Watson frá Astralíu.
■ STEVE Cram frá Bretlandi,
sem álitinn var einn sá sigurstrang-
legasti í 800 m hlaupinu í Seoul,
komst ekki í úrslit. Hann varð sjötti
í sínum riðli á slökum tíma, 1:46,47
mín. Said Aouita vann riðilinn á
1:45,24 mín.
■ BRETAR urðu fyrir öðru
áfalli er Tom McKean, silfurverð-
launahafi í 800 m hlaupi á síðasta
Evrópumóti, var dæmdur úr leik.
Hann var aftarlega í sínum riðli er
200 m voru eftir en tróð sér í gegn
og varð fjórði, virtist hafa komist
í úrslit — en var talinn hafí komist
óiöglega fram úr.
■ EDWIN Moses vann sannfær-
andi sigur í sínum riðli í 400 m
grindahlaupi í gær, en úrslitin fara
fram í dag. Moses hljóp á 47,89 sek.
■ HELENA Sukova tenniskona
frá Tékkóslóvakíu, sem er fímmta
á styrkleikalista leikanna, tapaði í
gær fyrir Kim Il-Soon frá Suður
Kóreu, 6:2, 4:6, 6:2. Kim er 19 ára
og algjörlega óþekkt í tennisheimin-
um.
■ HENRI Leconte frá Frakkl-
andi er einnig úr leik, í tenni-
skeppni karlanna, tapaði fyrir
heimamanninum Kim Bong Soo í
2. umferð.
■ BEN Johnson sannaði ( fyrrí-
nótt að hann er fljótasti maður
heims á hlaupabrautinni, en hann
er ekki sá fljótasti að pissa! Hann
hafði svarað kalli náttúrunnar rétt
fyrir úrslitahlaupið og er hann var
tekinn í lyfjapróf eftir hlaupið tók
það Johnson tvær og hálfa klukku-
stund að pissa í glas.
■ GLORIA, móðir Bens Jo-
hnson, gaf honum góð ráð fyrir
úrslitahlaupið, en sá hann ekki
sigra. Hún var þó í áhorfendastæð-
unum en sat með lokuð augu og
bað fyrir syni sínum.
■ „ÉG var búin að segja Ben
að hlaupa á 9,78 sekúndum. Ég
veit ekki hvaðan þessa tala kom,
mér datt hún bara í hug,“ sagði
Gloria.
■ JOHNSON fékk að hitta móð-
ur sína og systur, Jean, stuttlega
áður en hann fór í lyfjaprófið. Þá
fékk hann að ræða við Brian
Mulroney, forsætisráðherra
Kanada, sem hringdi til að óska
Ben til hamingju.
FIMLEIKAR
Li Ning komst
ekki á pall!
Li Ning, þrefaldur gullverð-
launahafí frá ÓL í Los Angeles
1984, lauk keppni í Seoul án þess
að komast á verðlaunapall. Frekar
nöturlegur endir á glæsilegur fim-
leikaferli þessa 25 ára Kínveija sem
hefur nú ákveðið að hætta keppni.
Sovétmaðurinn Vladimir Artemov,
hefur nú tekið við nafnbótinni
„prins fímleikanna", en hann bætti
tveimur gullverðlaunum og einu
silfri í glæsilegt verðlaunasafn Sov-
étríkjanna, í keppni á einstökuim
áhöldum í gær.
SAGA
CLASS
GERUM
ŒKAR
BESTA
...OGAÐEINS BETUR!
0BSHR
ður
STYRKTARAÐILI
-TTU^P
w
FUJGLEIDIR