Morgunblaðið - 25.09.1988, Page 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1988
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Garðabær
Blaðbera vantar í Silfurtún og Bæjargil.
Upplýsingar í síma 656146.
Innri-Njarðvík
Blaðbera vantar strax.
Upplýsingar í 92-13463
22ja ára stúlka
með stúdentspróf og 1 ár í viðskiptafræði
óskar eftir atvinnu strax.
Nánari upplýsingar í síma 686854.
Deildarstjóri
Fyrirtækið er fjölmenn stofnun í miðborg
Reykjavíkur.
Deildarstjórinn mun koma fram fyrir hönd
stofnunarinnar við samningagerð og sér-
hæfir sig í einstökum atriðum því viðkom-
andi, ásamt því að hafa umsjón með tölfræði-
legri úrvinnslu og öflun gagna.
Til greina koma viðskiptafræðingar eða
umsækjendur með Verslunar-/Samvinnu-
skólapróf sem hafa víðtæka reynslu af stjórn-
un og tölvuvinnslu.
Umsóknarfrestur er til og með 30. septem-
ber nk. Ráðning verður sem fyrst.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Skóldvordustig /a - Wl Reykjnvik - Sinrn 621355
Ifl REYKJKJÍKURBORG
'I' au&at Stöeávi
Skóladagheimili
Breiðagerðisskóla
Starfsmaður óskast í fullt starf sem fyrst.
Fóstru- eða önnur uppeldismenntun æskileg.
Einnig er óskað eftir starfsmanni til afleys-
inga.
Komið í heimsókn og spjallið við okkur eða
hringið í síma 84558.
Geðdeild
Landspítala
Starfsmenn óskast nú þegar til starfa við
ræstingar. Starfstími og starfshlutfall sam-
komulagsatriði.
Nánari upplýsingar veita ræstingastjórarnir,
Stefanía Onundardóttir í síma 601530 og
Unnur Kjartansdóttir í síma 38160-89.
RÍKISSPÍTAIAR
GEÐDEILD lANDSPÍTALANS
Menningarstofnun
Norðurlanda á
Álandseyjum
var stofnuð með samvinnu norrænu ráð-
herranefndarinnar og landsstjórnar Álands.
Þetta er ein af þeim 50 varanlegu stofnunum
sem er kostuð af norrænu fjárhagsáætlun-
inni, en skrifstofa norrænu ráðherranefndar-
innar í Kaupmannahöfn stjórnar henni.
Menntastofnunin var sett á laggirnar 1985
og er í Mariehamn.
Verkefni stofnunarinnar er að efla álenska
menningu í samvinnu við menningarstarf-
semi hinna Norðurlandanna. Starfið byggist
á sambandi við félagssamtök eyjanna og
sérstaklega ber að efla starfsemi á sviði al-
mennrar menntunar ásamt skipulagi varð-
andi kennslumál og rannsóknir.
Stofnunin vill ráða
stjórnanda
til að taka að sér þessi verkefni.
Ráðning er til 4 ára (með möguleika á fram-
lengingu) og starfið hefst 1. maí 1989.
Laun og önnur starfskjör ráðast af kjara-
samningum starfsmanna við norrænar stofn-
anir í samræmi við hæfni umsækjanda.
Launaflokkur er A 74 eða A 25 (p.t. ca.
125.000-170.000 FIM (finnsk mörk) á ári.
Þar að auki kannski einhverjar viðbætur.
Ríkisstarfsmenn eiga rétt á 4 ára fríi til að
gegna stöðum við norrænar stofnanir og
reiknast starfstíminn eins og unnið væri í
heimalandi.
Umsóknir skulu sendar til:
Nordens Institut pá Áland, Sjálvstyrelse-
gárden, Pb 60, 22101 Mariehamn, Finland -
fyrir 11. nóvember 1988.
Frekari upplýsingar fást hjá Nordisk Institut
pá Áland, sími 358 28 15000.
Lagerstjóri
Óskum að ráða lagerstjóra til að sjá um vöru-
lager fyrirtækisins. Við bjóðum sanngjörn
laun. Góður vinnustaður. Vinnutími frá kl.
9-18. Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsækjendur hafi samband við Grím Laxdal
Kaffistofa
- ræstingar
Óskum að ráða starfskraft til að sjá um kaffi-
stofu og ræstingar fyrirtækisins. Við óskum
eftir duglegum og stundvísum aðila með
góða framkomu. Við bjóðum vinnutíma frá
kl. 9-15. Sanngjörn laun. Þarf að geta hafið
störf sem fyrst. Skemmtilegur vinn.ustaður.
Umsækjendur tali við Grím Laxdal fyrir 28.
september.
Framtíðarstörf
Óskum að ráða sem fyrst gott fólk til margv-
íslegra framtíðarstarfa. Þ.á m.:
★ Innkaupafulltrúa.
★ Ritara til margvíslegra starfa.
★ Ritara hálfan daginn, e.h.
★ Skrifstofumann við launaútreikning.
★ Afgreiðslugjaldkera.
★ Afgreiðslumann í bílavarahlutum.
★ Afgreiðslumann í byggingavöruverslun.
★ Rafvirkja út á land.
★ Roskinn mann til ýmiss konar útréttinga.
★ Góða menn til framleiðslustarfa. Góð
laun.
simspjomm w
BrynjólfurJónsson • Nóatún 17 105 RviK. • simi . 621315
• Alhliöa raöningaþjonusta
• Fyrirtækjasala
• Fjarmalaradgjof fyrir fyrirtæki
Ritari - móttaka
Fyrirtækið er eitt af stærstu umboðs- og
heildverslunum í Reykjavík og leitar að þjón-
ustuliprum og starfsglöðum ritara. Um er að
ræða starf í móttöku í einni af deildum fyrir-
tækisins. Vinnutími frá kl. 8.00/9.00-17.30.
Starfssvið: Tölvuvinnsla, færsla verkbókhalds,
umsjón með tímaskýrslum starfsmanna, út-
skrift reikninga, símavarsla o.fl.
Við leitum að: Ritara með verslunarmenntun
eða haldgóða starfsreynslu sem getur unnið
sjálfstætt, er nákvæmur og töluglöggur. Góð
framkoma og glaðlegt viðmót skilyrði.
Laun eru samkomulagsatriði.
Nánari upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðublöð-
um sem liggja frammi á skrifstofu okkar merkt-
ar: „Ritari - 559".
Hagvangurhf
Grensásvegi 13
Reykjavík
Sfmi 83666
Ráðningarþjónusta
Rekstrarráðgjöf
Skoðanakannanir
Bókhaldsþjónusta
ISAL
. Stúlkur - Piltar
Rafvirkjanám hjá ÍSAL
íslenska álfélagið hf. hefur í hyggju að ráða
nema í rafvirkjun á næstunni.
Fyrirtækið vill gjarnan ráða áhugasama
stúlku, sem hefur hæfileika til starfsins, en
piltar koma auðvitað líka til greina.
Umsækjendur munu gangast undir reynslu-
próf.
Umsóknum óskast skilað í pósthólf 244 í
Hafnarfirði eigi síðar en 3. október 1988.
Umsóknareyðublöð fást hjá Bókaverzlun
Sigfúsar Eymundssonar, Reykjavík, og Bóka-
búð Olivers Steins, Hafnarfirði.
Nánari upplýsingar veitir ráðningarstjóri í
síma 52365.
íslenzka álfélagið hf.
llll Þ®R 06
"||" þORSTEINN SF.
Getum bætt við okkur verkefnum. Öll almenn
trésmíðavinna, viðhald og nýbyggingar.
Upplýsingar í símum 76560 og 30547.