Morgunblaðið - 25.09.1988, Qupperneq 65
fæddist á Suðureyri í Súgandafirði
1. janúar 1919. Hún var elsta barn
og eina dóttir auk þriggja sona
þeirra Jóns Guðjónssonar og
Kristínar Salóme Kristjánsdóttur,
sem létust í hárri elli fyrir nokkrum
árum. Jón Guðjónsson gegndi virðu-
legu embætti hjá Eimskipafélagi
íslands allt til ársins 1943 er hann
fluttist búferlum með íjölskyldu
sína til ísafjarðar til að taka við
enn virðulegra embætti sem bæjar-
stjóri Isaíjarðarkaupstaðar, sem
hann gegndi að 5 árum undanskild-
um allt til ársins 1970.
Jón og Kristín voru Vestfírðingar
í húð og hár og að Guðrúnu Finn-
borgu standa því sterkar vestfírskar
ættir. Bræður Guðrúnar, sem allir
eru á lífí, eru Gunnar iðnrekandi,
Ingvi og Kristján sem hafa verið
búsettir í Bandaríkjunum um ára-
tugi.
Guðrún lauk hjúkrunamámi frá
Hjúkrunarskóla Islands 1944 og
hélt að svo búnu til náms og starfa
í Svíþjóð þar sem hún dvaldist til
1948.
Skömmu eftir heimkomuna
kynntist hún ungum húsasmíða-
meistara sem orðinn var ekkill, Jóni
Halldórssyni frá Amgerðareyri við
ísafjarðardjúp, f. 1917. Ástir tókust
með þeim og bar þann ávöxt sem
sjá má í þremur gæfuríkum bömum
þeirra. Þeim Halldóri lækni, f. 1950,
kvæntur Rannveigu Jónsdóttur
hjúkmnarfræðingij Kristínu arki-
tekt, f. 1951, gift Ola Hilmari Jóns-
syni arkitekt, og Guðrúnu ensku-
kennara, f. 1953, gift Þórði Ingva
Guðmundssyni framkvæmdastjóra.
Guðrún Finnborg var um margt
óvenjuleg kona. Hún var skarp-
greind. Hún fííkaði hins vegar ekki
greind sinni, jafnvel of hlédræg að
því að manni fannst stundum. Guð-
rún var víðlesin og án efa einhver
ötulasti viðskiptavinur Borgarbóka-
safnsins í Sólheimum. Guðrún var
mikill áhugamaður um andleg efni,
um líf á öðmm tilvemstigum, enda
trúuð mjög, þótt ekki bæri hún trú-
aráhuga sinn á torg. Þá sjaldan sem
hún fékkst til að ræða um þessi
efni fór maður úr þeim umrseðum
vitrari um þau mál en áður.
Fómfysi og umburðarlyndi vom
einhveijir skörpustu persónueigin-
leikar Guðrúnar, enda heimili henn-
ar eins konar miðstöð bama,
tengdabama og einkum bamabama
hennar. Minnti heimili hennar
stundum á heimili gömlu stórfjöl-
skyldnanna og er ekki laust við að
stundum hafí maður fengið sam-
viskubit yfír því að geta ekki endur-
goldið sem skyldi fómfysi og góð-
mennsku hennar í garð afkvæm-
anna. Síðustu árin lifði hún á vissan
hátt fyrir það að vera í nálægð við
barnabömin og sjá þau vaxa úr
grasi.
Það má segja að einn af mörgum
eiginleikum sem almættið gaf þeim
hjónum Guðrúnu og Jóni var hæfn-
in til að breyta örfoka melum í gróð-
urvinjar og tijálundi. Þijátíu ára
þrotlaus vinna þeirra hjóna, einkum
Jóns, sést í sumarbústaðarlandi
þeirra skammt utan við Reykjavík.
Yfír þeim stað hvílir góður andi. í
þeim skógarreit breiða eldri plöntur
greinar sínar yfir yngri og van-
máttugri til að tryggja þeim skjól
og hentug vaxtarskilyrði. í lifanda
lífi má segja að hlutverk Guðrúnar
hafí ekki verið ósvipað.
Sál hennar er nú horfin yfír á
önnur æðri tilverusvið en eftir situr
djúpur söknuður, þakklæti og virð-
ing fyrir þessari góðu og traustu
konu.
Þórður Ingvi Guðmundsson
Nú er sú fyrsta af æskuvinkon-
unum horfm yfír móðuna miklu.
Við vomm ungar þegar við kynnt-
umst fyrst, þrettán og fjórtán ára.
Við bundumst föstum vináttubönd-
um í skóla. Þau bönd h'afa ekki
slitnað fyrr en nú að dauðinn hegg-
ur sitt fyrsta skarð í hópinn.
Við kynntumst haustið 1932 þeg-
ar við byijuðum í Gagnfræðaskóla
Reylq'avíkur — Ingimarsskólanum
— sem þá var til húsa í gamla
Kennaraskólanum við Laufásveg.
Þó húsnæðið væri ekki sérlega
glæsilegt miðað við nútíma kröfur
bitnaði það þó ekki á neinn hátt á
L skólastarfínu. Við fengum inni í
r
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1988
65
þeim hluta hússins sem Kennara-
skólinn ekki notaði og mest fór
kennslan fram seinni hluta dags,
eftir venjulegan vinnudag Kennara-
skólans.
Kennarar Ingimarsskólans vom
einvalalið. Undir þeirra leiðsögn
fengum við þá undirstöðu sem við
búum að æ síðan.
Átta vomm við sem mynduðum
vinahópinn sem haldið hefur saman
allt fram á þennan dag.
Stella sem við kveðjum í dag var
hinn trausti miðpunktur þessa fé-
lagsskapar. Hún var hæglát, bros-
mild og hlý og traustur vinur vina
sinna ef eitthvað bjátaði á. Hún var
ein þeirra kvenna sem nutu sín
best við að gera eitthvað fyrir aðra,
enda valdi hún hjúkmnarstarfíð
sem ævistarf.
v Stella átti hamingjuríkt líf alla
sína ævi, fyrst á miklu menningar-
heimili í foreldrahúsum ásamt
bræðmm sínum þremur. Seinna í
hamingjusömu hjónabandi með
traustum og góðum eiginmanni Jóni
Halldórssyni byggingarmeistara.
Með honum eignaðist hún þijú böm
og dóttir Jóns frá fyrra hjónabandi
var ætíð sem hennar eigin. Hún
átti miklu bamaláni að fagna: Hall-
dór læknir, Kristín arkitekt, Guðrún
enskukennari og Steinunn fata-
hönnuður.
Á seinni ámm var heimiii Stellu
og Jóns miðpunktur allrar fjölskyld-
unnar. Þar vom bamabömin öll
sextán aufúsugestir og augasteinar
afa og ömmu.
Við söknum Stellu vinkonu okk-
ar, hennar rólega og hlýja viðmóts.
Hlýja og bjarta brosið hennar yljaði
okkur. Við sendum eiginmanni
hennar og fjölskyldunni allri inni-
legustu samúðarkveðjur.
Skólasysturnar
Greta María Jósefs-
dóttir - Kveðjuorð
Fædd 18. júní 1934
Dáinn 3. september 1988
Með örfáum orðum langar okkur
að minnast Gretu vinkonu okkar.
Ifyrir um það bil 10 ámm kynnt-
umst við henni. Þá vomm við allar
að flytja til Reykjavíkur og höfðum
gengið í gegnum svipaða reynslu,
sem varð til þess að við náðum
mjög vel saman. Upp frá því urðum
við mjög nánar vinkonur.
Margt skemmtilegt var brallað
og þar sem Greta var annars vegar
var alltaf gleði. Það fór ekki á milli
mála þegar Greta var glöð, sem
oftast var. Þá vitnuðum við vinkon-
umar oft í það að nú væm komnar
stjömur í augu hennar — þau skinu
svo skært þegar hún var giöð.
Ymislegt gengum við í gegnum,
bæði í gleði og sorg; og alltaf gátum
við treyst á Gretu. Ánægjustundim-
ar vom þó óendalega miklu fleiri
og átti lífsgleði Gretu ekki minnstan
þátt í því að svo var.
Eftir að Greta kynntist Úlfí, eftir-
lifandi manni sínum, áttum við
margar ánægjustundimar á heimili
þeirra. Matarboðin vom ófá og
bæði vom þau yndislegir gestgjaf-
ar.
Eftir að ljóst var hve alvarlegan
sjúkdóm hún gekk með, fannst okk-
ur stundum sem stjömumar væm
horfnar úr augum hennar. Ekki
brást þó baráttuviljinn og kjarkur-
inn, sem vora til staðar allt til
síðasta dags.
Við horfum nú á eftir dásam-
t
Elskulegur sonur okkar, bróðir og barnabarn,
HLYNURINGI BÚASON,
Vesturbergi 9,
Reykjavfk,
sem lést af slysförum þann 16. september, verður jarösunginn
frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 27. september kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hans, er vinsamlegast bent á íþróttafélag-
iö Leikni eða Handknattleiksdeild KR.
Hallbera Eiríksdóttir,
Elín Hrund Búadóttir,
Elín Eirfksdóttlr,
Jarþrúður Ásmundsdóttlr.
Búi Steinn Jóhannsson,
Eirfkur Steinn Búason,
Eirfkur Guðnason,
t
Þökkum öllum er sýndu okkur samúö og vináttu við andlát og
bálför móður minnar, tengdamóöur, ömmu og langömmu,
LIUU STEINGRÍMSDÓTTUR
frá Hörgslandskoti.
Jóhanna Sveinsdóttir, Guðmundur Ágústsson,
Sveinn Guömundsson, Málfrfður Ellertsdóttir,
Kristinn Guömundsson, Kristfn Axelsdóttir,
Guðmundur Guðmundsson, Rut Vilhjálmsdóttir
og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúö viö fráfall og útför
SVERRIS SVERRISSONAR
rennismlðs,
Kóngsbakka 6.
Kristfn Ragnarsdóttlr,
Sverrir Sverrisson,
Marfa Jónasdóttir,
G. Elva Sverrisdóttir,
Vilborg Sverrisdóttir,
Marfa Fönn Þórsdóttlr,
Jóhanna Jóhannsdóttir,
Unnur Ólafsdóttir,
Guðrún Guðmundsdóttlr,
Sverrir Jónsson,
Tryggvi Jónsson,
Þór Pálsson,
Guðmundur Þorleifsson,
JóhannJakobsson,
Ragnar Aðalsteinsson.
t
Hugheilar þakkir til allra þeirra sem sýndu samúð og vinarhug
vegna andláts föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
GUÐBJÖRNS ÞÓRARINSSONAR,
Langeyri.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á hjúkrunardeild Hrafnistu
í Hafnarfirði fyrir frábæra umönnun.
Engilráð Óskarsdóttir, Sigrföur Guðbjörnsdóttir,
Anna Björk Guðbjörnsdóttlr, Almar Grfmsson,
Þórunn Guðbjörnsdóttir, Einar Runólfsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
legri vinkonu, sem markaði djúp
spor í líf okkar beggja. Greta var
gefandi manneskja, svo mjög að líf
þeirra sem þekktu hana og elskðu
verða ekki söm á eftir.
Úlfur horfir nú á eftir annarri
konu sinni, sem hverfur á braut
vegna sama sjúkdóms. Harmur
hans er mikill, en dugnaður hans
var óbilandi þegar Greta lá banaleg-
una og hann var henni mikill styrk-
ur.
Þá er mikill harmur kveðinn að
Davíð, syni hennar, sem sér nú á
eftir móður sem unni honum mjög
og var það gagnkvæmt.
Við vottum Ulfí, Dadda, systkin-
um hennar og tengdafólki okkar
hjartanlegustu samúð. Megi góður
Guð blessa minningu Gretu.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tið.
Margs er að minnast,
maigs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem)
Harpa og Hulda
Til mhmingar uin
fjóra unga menn
Laugardaginn 17. september sl.
barst sú harmafregn að kvöldið
áður hefðu fjórir ungir menn látið
lífíð í umferðarslysi í Gnúpveija-
hreppi. Mannskæðara umferðarslys
hefur ekki orðið hér á landi.
Við slíkar fregnir drúpum við
höfði og spyijum enn á ný: Hvað
getum við gert til þess að atburðir
sem þessi endurtaki sig ekki? Eg
leyfi mér að beina spumingunni til
sérhvers lesanda og bið um að
málið verði rætt á heimilum, vinnu-
stöðum og í skólum — einkum við
ungt fólk. Á stundum sem þessum
mega orð sín lítils. Ég leyfí mér
þó að senda ástvinum hinna látnu
hugheilar samúðarkveðjur. Uhga
manninum sem komst lífs af úr slys-
inu óska ég góðs bata.
Óli H. Þórðarson
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför yndislegu konu minnar, móður, systur og mágkonu,
GRETU MARÍU JÓSEFSDÓTTUR,
Blikahólum 8.
Úlfur Markússon,
Davfð Margeir Þorsteinsson,
Hulda Jósefsdóttir,
Esther Jósefsdóttir, Guðbergur Ólafsson,
Eggert Jósefsson, Sigurborg Friðgeirsdóttir,
Ágúst Jósefsson, Elfn Þorvaldsdóttir.
t
Þökkum auösýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðarför systur
okkar, fóstursystur, mágkonu og frænku,
HULDU S. ÞORSTEINSDÓTTUR
frá Eyjóifsstöðum,
til heimilis að Stórageröi 32, Reykjavfk.
Guðrún Þorsteinsdóttir,
Hannes Þorsteinsson,
Kristfn Þorsteinsdóttir,
Margrót O. Josefsdóttir,
mágkonur og systkinaböm
Jóhanna Thorlacius,
Guðlaugur Guðmundsson,
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug við andlát móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
ELLENAR EINARSON,
Safamýri 23.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild l-A Landakotsspftala fyrir
umönnun og hjúkrun í veikindum hennar.
Edda Marfa Einarsdóttir, Þórður Waldorff,
Ása Lóa Einarsdóttir, Benóný Benediktsson,
Emma Hanna Einarsdóttir, Ólafur A. Jónsson
og barnabörn
t
Innllegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúö og hlýhug
við andlát og útför eiginmanns mfns, föður, tengdafööur og afa,
SIGTRYGGS RUNÓLFSSONAR,
Heiðargerði 11,
Reykjavfk.
Guðbjörg Sigurpálsdóttir,
Jón G. Sigtryggsson,
Frfða Sigtryggsdóttir,
Rósa Sigtryggsdóttir,
Magnús Sigtryggsson,
Sigrún Sigtryggsdóttir,
Vilberg Sigtryggsson,
Hreinn Sigtryggsson,
Svana Sigtryggsdóttir,
Runólfur Sigtryggsson,
Svala Sigtryggsdóttir,
og
Garðar Andrésson,
Karl Karlsson,
Lovfsa Bering,
Emil Karlsson,
Gerður Hjaltalín,
Ólaffa Ottósdóttir,
Ingólfur Sveinsson,
Halldóra Sigurðardóttir,
Þórir Sigurðsson
barnabörn.