Morgunblaðið - 11.12.1988, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.12.1988, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR/INNLENT MÓRGÚNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. DESEMBER 1988 Lífeyrissj óðirnir: Húsnæðis- stofnun vill 2% lækkun vaxta VIÐRÆÐUR eru hafiiar á milli Húsnæðisstofhunar og lífeyris- sjóðanna um endurskoðun á vöxt- um af skuldabréfum stofnunar- innar. Húsnæðisstofnun hefur Iagt til að vextirnir verði lækkað- ir í 5% á næsta ári, en þeir eru 7% á þessu ári og eiga samkvæmt núgildandi samkomulagi að vera á næsta ári annarsvegar 6,9% og hins vegar 6,5% fastir ársvextir. Þegar er fyrir hendi samningur um að lífeyrissjóðimir ráðstafi 55% af fé sínu til kaupa á skuldabréfum Húsnæðisstofnunar og viðræðurnar nú snúast því aðeins um vaxtastig- ið, að sögn Sigurðar E. Guðmunds- sonar, framkvæmdastjóra Hús- næðisstofnunar. Sigurður sagði að Húsnæðisstofnun hefði skrifað lífeyrissjóðunum í september og óskað eftir endurskoðun á vaxta- málum, en þá hafi verið ákveðið að bíða og sjá hver þróunin yrði í þeim efnum. Síðan hefðu vextir lækkað og ljóst að það yrði að taka tillit til þess. Sigurður sagði að ákveðið hefði verið að setja á fót vinnunefndir og stefnt væri að sámkomulagi fyr- ir áramót. Fyrsti fundurinn hefði verið ágætur og gæfi tilefni til bjartsýni. Atvinnuleysis- tryggingasj óður: Bætur til 6.000 ein- staklinga EIGNIR Atvinnuleysistrygginga- sjóðs voru um 1,8 milljarðar króna um síðustu áramót, og dygðu þær til greiðslu á fullum atvinnuleysisbótum til rúmlega 6 þúsund einstaklinga í 36 vikur. Fullar atvinnuleysisbætur til ein- staklinga eru nú 1.656 krónur á dag, eða 8.280 krónur á viku, en bætur eru greiddar fyrir 5 daga vikunnar. Atvinnuleysisbætur eru að hámarki greiddar fyrir 180 daga á hveiju 12 mánaða tímabili. Sjá frétt bls. E 1. Varðskip tók togara V ARÐSKIPIÐ Óðinn kom að tog- aranum Ásgeiri RE að meintum ólöglegum veiðum suðaustur af Kötlutöngum á föstudaginn. Samkvæmt upplýsingum Land- helgisgæzlunnar kom varðskipið að togaranum utan við svokallaða karfalínu, og við mælingu varð- skipsmanna reyndust veiðarfærin vera með of smáa möskvastærð. Togarinn var færður til hafnar í V estmannaeyjum. Eldur í Sjónarhóli SLÖKKVILIÐIÐ í Hafiiarfirði var kallað út að húsinu Sjónar- hóli á Reykjavíkurvegi um kl. 6 í gærmorgun. Var eldur laus í einu herbergja hússins. Slökkvi- starf gekk greiðlega og munu skemmdir af völdum eldsins ekki vera miklar. Eldsupptök eru ókunn. Álverð áfram hátt á heimsmarkaði: Stekkjarstaur kom fyrstur MENN greinir reyndar á um Qölda jólasveina fynr jól. Hvort hann hefur ruglazt í ríminu og og í samræmi við það hvenær þeir hefja göngu komið einum degi of snemma skal ósagt látið, sína til byggða. I einni þulunni kom Stekkjar- fn víst er að einn jólasveinanna lagði leið sína staur fyrstur, en þó ekki fyrr en þrettán dögum • Kringluna í gær og tók lagið fyrir börnin. Lokanir vegna vanskila söluskatts: Nýir eigendur teknir við helmingi fyrirtækjanna MENN frá tollstjóranum í Reykjavík heimsóttu um 100 fyrirtæki í nóvembermánuði til að loka þeim vegna vanskila á söluskatti. I nóv- ember í fyrra var hinsvegar aðeins farið í 18 fyrirtæki. Björn Her- mannsson tollstjóri segir að þessar tölur séu lýsandi dæmi um árið í heild. Imáli Bjöms kemur fram að af þessum 100 fyrirtækjum hafi um helmingur verið nýbúinn að skipta um eigendur þannig að ekki-var hægt að. loka þeim vegna skulda fyrri eigenda. Hann segir að það hafi farið mjög í vöxt á þessu ári að eigendur fyrirtækja komi sér undan því að borga söluskatt með því að selja fyrirtækin er skuldin er komin í eindaga. Oft sé um að ræða að fyrirtækið skipti aðeins um nafn en sömu eigendur haldi áfram rekstrinum. Frá því að umræða hófst í íjöl- miðlum um mikil vanskil á sölu- skatti nú í upphafí vetrar hafa van- skil minnkað nokkuð og menn borg- að upp gamlar skuldir sínar. „Ástandið hefur ekki versnað og að því leyti er þetta á réttu róli. En það hefur líka verið lögð gífur- leg vinna í að koma þessum málum á hreint hjá okkur," segir Bjöm Hermannsson. „Við höfum verið að taka út af skrá hjá okkur aðila sem voru orðnir gjaldþrota og gera þannig skuldatölumar raunhæfari." Bjöm gat ekki nefnt neinar tölur um þetta að svo stöddu þar sem þessi gjaldþrotamál ættu eftir að fá meðhöndlun hjá fógeta. Hinsveg- ar skipti fjöldi þeirra tugum. „Hin hliðin á þessu er sú að menn reyna með ýmsum hætti að koma sér hjá því að borga sölu- skatt. Algengast er að sömu aðil- amir skipti um nafn á fyrirtækjum sínum eða rekstri og bytji þannig upp á nýtt að skulda okkur,“ segir ^öm. IS AL greiðir hámarksorku- verð fram á mitt næsta ár SPÁR UM verðþróun á áli á heimsmarkaði gera ráð fyrir að verðið haldist hátt allavega fram á mitt næsta ár. Af þess- um sökum mun ISAL greiða Landsvirkjun hámarksorku- verð eða 18,5 mill fyrir hverja kílóvattstund, fram á þriðja ársQórðung næsta árs. Mill er einn þúsundasti hluti dollars. Bjarnar Ingimarsson fjármála- stjóri ÍSAL segir að staðgreiðslu- verð á áli á heimsmarkaði sé nú 2.470 dollarar tonnið en 3ja mán- aða verðið, sem orkuverð ISAL er miðað við, er nú 2.385 dollarar. Verð þetta hefur sveiflast á milli 2.300 og 2.400 dollara allt þetta ár. Þingflokk- arfundaum fimmvörp ÞINGFLOKKAR stjórnarflokk- anna héldu allir fundi um hádeg- isleytið í gær, en þar átti að kynna og ræða hugmyndir um framgang fjárlagafrumvarpsins og tekjuöflunarfrumvarpa ríkis- stjórnarinnar. Talsmenn þingflokkanna fóru á fund fjármálaráðherra í gærmorg- un og átti þar að reyna að ganga frá tillögum um afgreiðslu frum- varpanna á Alþingi. Alþýðublaðið segir í gær að vaxandi andstaða sé á meðal stjómarliða við tekjuöflun- arfrumvörpin og að fjárlög verði líklega ekki afgreidd fyrr en í febrú- ar. Þjóðviljinn segir í gær að flest bendi til þess að ríkisstjómin ætli að keyra öll tekjuöflunarfmmvörpin í gegn í næstu viku og hefur eftir Ólafi Ragnari Grímssyni, fjármála- ráðherra að hann vísi á bug hug- myndum um að fresta afgreiðslu fjárlaga fram yfir áramót. B-dagurinn nálgast: Eingöngu innlendur bjór í veislum hins opinbera? DÓMSORÐIÐ er fallið: Fimm tegundir og fimm prósent komma sex. Og slagur framleiðendanna um að komast i hillur ÁTVR getur hafist. Höskuldur og Ólafur Ragnar mörkuðu vígvöllinn í vikunni þegar þeir sögðu frá ölreglunum sem eiga að tryggja ríkissjóði milljarð á næsta ári. 115 krónur innlendur bjór, dýrari innfluttur og átappaður hér, dýrastur innfluttur á dósum. Fyrir þá sem ekki láta sér lynda fimm tegundir að súpa, verður bjórbúð í pakkhúsi Ríkisins í Reykjavík, þar verða fleiri tegundir, líklega á annan tug. Nú vandast málin þegar velja á fimm tegundir handa Is- lendingum að drekka. Að vísu verða tvær þeirra íslenskar og verður varla erfitt val. Hitt verður vandasamara að finna þijár er- lendar tegundir, enda úr þúsund- um að velja. í V-Þýskalandi einu eru u.þ.b. 1.600 bjórgerðir. Fram- leiðendur beijast með því að bjóða lágt verð og að sannfæra ÁTVR- menn um að þeirra tegundir séu þekktastar, því að taka skal mið af hveijar „ætla má að séu íslend- ingum kunnar,“ sagði Höskuldur. En, hvaða bjór er þekktur hér? Þrennt hefur einkum kynnt bjór- inn íslendingum. Ferðalög til út- landa, fríhafnarbjór og smyglaði bjórinn. I útlöndum hafa menn smakkað ýmsar tegundir eftir löndum og hér- uðum. í fríhöfn- inni hafa verið tvær íslenskar tegundir og fá- einar útlendar. Sem búast má við er ekki hægt um vik að fá opinberar upplýsing- ar um hinn smyglaða mjöð, en þær tegundir ku ekki hafa verið ýkja margar á liðnum árum. Eng- in leið er að henda reiður á teg- undunum sem menn kynnast í útlöndum. Þá verða ÁTVR-menn líklega að miða við fríhafnarbjór- inn og smyglið þegar þeir finna hinar „þekktu“ tegundir. Verðið er í stíl við tillögu sér- stakrar nefndar, sem fjallaði um bjórmálið og bjó í hendur ÁTVR og fjármálaráðuneytisins og tók BAKSVIÐ eftir Þórhall Jósefsson mið af því að hafa bjórinn ekki svo dýran, að smygl héldi áfram fullum fetum eftir B-dag. Sam- kvæmt traustustu heimildum Morgunblaðsins kostar kassi af smygluðum bjór á bilinu 3.500 krónur upp í 4.000. Hjá ÁTVR mun innfluttur bjór kosta nálægt 3.500 krónum kassinn. Tryggja á að innlendir fram- ■■■■ leiðendur geti selt, a.m.k. til ÁTVR, tvær milljónir lítra, helsta trygging- in felst í verð- lagningunni. Dósin verður 30 til 35 krónum ódýrari en sá inn- flutti. Þetta á að efla íslenskan iðnað, segir Ólafur Ragnar. Því verður að líkindum eingöngu inn- lendur bjór í veislum hins opin- bera. Ekkert er vitað um hve mikið íslendingar muni kneyfa af miðin- um. Sjö milljónir lítra eru forsend- an í fjárlögunum, en ef fólkið fúls- ar við íslenska bjórnum, þá þarf að drekka meira því að ríkið fær ekki miklar tekjur af bjór sem það kaupir sjálft og veitir. Þeir eru til sem treysta á mun meira þamb en sem nemur sjö milljónum lítra. Nokkrir veitinga- mepn búa sig undir B-dag og fjár- festa glatt í innréttingum og krá- arsölum. Einn þeirra sagði Morg- unblaðinu, að ef allir ættu að græða eins og vonir þeirra standa til, þá þyrftu íslendingar, eða a.m.k. Reykvíkingar, að vera blindfullir af bjórþambi hvem ein- asta dag ársins! Þótt helstu reglurnar hafí verið kynntar, er ýmislegt óljóst. Hvers vegna áldósir en ekki plastdósir eða flöskur? Hver tekur við tómu dósunum og safnar þeim saman? Hvers vegna verður aðeins ein bjórbúð, en ekki til dæmis líka á Akureyri og Egilsstöðum? Hvers vegna eru tegundir ekki valdar samkvæmt neytendakönnun? Kannski þarf engar áhyggjur að hafa nema af því hvernig liðfá lögreglan á að fylgjast með að gestir Kvosarkránna og aðrir bjórkneyfarar láti vera að aka undir áhrifum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.