Morgunblaðið - 11.12.1988, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 11.12.1988, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR/YFIRLIT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. DESEMBER 1988 INNLENT Ríkissljórnin leggur fram skattafrumvörp Ríkisstjórnin lagði fram þijú tekjuöflunarfrumvörp á mánudag, en þau frumvörp tengjast af- greiðslu fjárlaga. Viðamest þeirra var frumvarp um hækkun vöru- gjalds. Stjómarflokkarnir hafa ekki enn komið sér saman um öll þau frumvörp sem fyrirhugað er að leggja fram í tengslum við fjár- Iþg og eiga að færa ríkissjóði um 5 milljarða króna í viðbótartekjur. Þannig er frumvarp um hækkun tekju- og eignaskatts enn í með- ferð þingflokka. Viðræður voru í vikunni milli stjómarflokka og stjómarandstöðu um afgreiðslu fjárlaga og mála þeim tengdum, en raddir um að afgreiðslu íjár- laga verði frestað fram yfir ára- mót gerðust háværari þegar leið á vikuna. Freðfiskur til Sovét í lok vikunnar var samið um sölu á 9.700 tonnum af freðfíski til Sovétríkjanna á næsta ári. Samningurinn felur í sér 5% verð- lækkun frá samningi sem gilti fyrir þetta ár og magnið er 1.000 tonnum minna nú. Háfvarður fékk kafaraveiki Kambháfur, sem kom í troll Guðbjargar ÍS á Vestíjarðamið- um, drapst úr kafaraveiki í físka- safninu í Vest- mannaeyjum á fímmtudag. Kambháfurinn, sem fékk nafnið Háfvarður, kom í trollið á 100 faðma dýpi, og hann var síðan fluttur flugleiðis frá ísafirði til Vestmannaeyja. Svín og kindur í nautahakk Verðlagsstofnun birti niður- stöður könnunar á nautahakkj, þar sem kom í ljós að í mörgum tilfellum hafði svínahakki og kindahakki verið blandað í nauta- hakk, auk þess sem sojamjöli hafði sumstaðar verið blandað í hakkið til að drýgja það. Hakk- framleiðendur komu af flöllum og báru því fyrir sig að blöndun hefði orðið í hakkavélum sem hefðu ekki verið hreinsaðar. Svört spá VSÍ Vinnuveitendasambandið sagði í vikunni að á næsta ári yrði að velja á milli kjaraskerðingar eða atvinnuleysis 6.000 manna. VSÍ spáir því að á næsta ári muni þjóð- artekjur dragast saman um 5% og um 3,3% á þessu ári, og því sé kaupmáttur hér á landi alltof hár. íslendingur fann misgengi í Kaliforníu íslenskur vísindamaður, Egill Hauksson, hefur fundið tvö jarð- Iagamisgengi undir Los Angeles- borg í Kalifomíu, og gæti hreyfíng á þeim haft í för með sér mikla jarðslq'álfta. ERLENT r Ottast að 100 þúsund manns hafi týnt lífí Talið er að um 100.000 manns hafí týnt lífí er einn öflugasti land- skjálfti aldarinnar reið yfír Kákus- lýðveldi Sovétrfkjanna að morgni miðvikudags. Jarðskjálftinn, sem mældist 6,9 stig á Richter, lagði þijár borgir í Armen'iu því sem næst við jörðu. Talið er að þetta sé fjórði mannskæðasti land- skjálfti sögunnar. Míkhaíl S. Gorbatsjov sem staddur var í New York ákvað að fresta för sinni til Kúbu og Bretlands og snúa til Moskvu til að stjóma hjálparstarfínu. Á föstudag bár- ust fréttir um að átök hefðu brot- ist út á ný milli Azera og Armena í Sovétlýðveldinu Azerbajdzhan. Tilkynningu Sovétstjómarinnar fagnað í ræðu sinni á allsheijarþingi Sameinuðu þjóðanna á miðviku- dag skýrði Míkhall S. Gorbatsjov frá því að ákveðið hefði verið að fækka um 500.000 manns í her- afla Sovétmanna á næstu tveimur árum auk þess sem ákveðið hefði verið að skera niður hefðbundinn herafla í A-Evrópu. Ronald Re- agan fagnaði þessari ákvörðun víð upphaf fundar leiðtoganna á miðvikudag og hefur henni al- mennt verið vel tekið víða um heim. PLO viðurkennir ísrael Á fundi með leið- togum banda- rískra gyðinga í Stokkhólmi á miðvikudag lýsti Yasser Arafat, leiðtogi PLO, yfír því að álykt- anir Þjóðarráðs Palestínu frá fyrrá mánuði fælu í sér viðurkenningu á tilverurétti ísraelsríkis. Ráðamenn í ísrael hafa sagt þessa yfirlýsingu áróð- ursbragð og talsmenn Bandaríkja- stjómar segja að hún muni í engu breyta afstöðu stjómvalda til PLO. Nýjar tillögur NATO Utanríkisráðherrar NATO sam- þykktu á tveggja daga fundi sínum á fímmtudag og föstudag að stefnt skyldi að helmings- fækkun skriðdreka í heijum aust- urs og vesturs í Evrópu í fyrir- huguðum viðræðum um niður- skurð hefðbundins herafla í álf- unni. Þá samþykktu þeir einnig fyrirkomulag viðræðnanna í sam- ræmi við ályktun Reykjavíkur- fundar ráðherranna í júní á síðasta ári. Walesa í Frakklandi Lech Walesa, leiðtogi Sam- stöðu og þekkt- asti andófsmað- ur Póllands, kom til Frakklands á fostudag í boði stjómvalda þar. Þetta er í fyrsta skipti frá árinu 1981 sem Walesa fær leyfí til að ferðast utan Pól- lands og sagði hann þessa ákvörð- un stjómvalda hafa komið sér mjög á óvart. Sakharov ásamt Edward Kennedy öldungadeildarþing- manni við komuna til Banda- ríkjanna í síðasta mánuði. Andrei Sakharov: V esturlönd knýi á um aukin mannréttindi París. Reuter. SOVÉSKI andófsmaðurinn An- drei Sakharov, sem nú er staddur í París í sinni fyrstu utanför, sagði I gær, að vestræn ríki ættu að setja það sem skilyrði fyrir stuðningi við umbætur Míkhaíls Marcos hjartveikur Honolulu. Reuter. FERDINAND Marcos, fyrrum for- seti Filippseyja, var fluttur í skyndingu í sjúkrahús f fyrradag vegna hjartveiki, sem lýsir sér í óreglulegum hjartslætti og ónóg- um blóðflutningi. ð sögn talsmanns Marcosar veiktist hann eftir að hafa heyrt um veikindi þungaðrar dóttur sinnar, Imee Manotoc, sem býr í Marokkó. Gorbatsjovs sovétleiðtoga, að mannréttindi væru virt i Sov- étríkjunum. Sakharov, sem kom á föstudag frá Bandaríkjunum til Frakklands, kvaðst einnig leggja til, að Vestur- landamenn snerust gegn andstæð- ingum „perestrojkunnar" með því að tengja beint sama.i framtíðarað- stoð við Sovétmenn og framgang umbótanna. Kom þetta fram í ræðu, sem hann flutti á blaðamanna- fundi, sem sovéska sendiráðið gekkst fyrir. „Skilyrði verðúr að setja, skilyrði um fullkomna virð- ingu fyrir mannréttindum," sagði hann. Sakharov og Lech Walesa, leið- togi Samstöðu í Póllandi, tveir merkisberar í baráttunni gegn kommúnísku einræði, eru nú í Frakklandi til að vera við athöfn í minningu þess, að 40 ár eru liðin frá undirritun Alþjóðamannrétt- indayfírlýsingarinnar. Sakharov sagði um Gorbatsjov, að hann væri einlægur maður og afar óvenjulegur en bætti því við án nánarí útskýr- inga, að sumt í fari hans ylli honum áhyggjum. Frakkland: Vegabréfs- árítun óþörf París. Reuter. FÓLK frá aðildarríkjum Evrópu- ráðsins, fyrir utan Tyrkland, þarf ekki lengur vegabréfsáritun til Frakklands. T alsmaður franska utanríkisráðu- neytisins sagði að reglurnar hefðu verið afnumdar vegna þess að sam- vinna Evrópuríkja í baráttunni gegn hryðjuverkum hefði batnað. Er lýðræðið á næsta leiti í Ungveijalandi? MIKLAR breytingar eiga sér nú stað í Ungveijalandi, i fyrsta sinn um áratugaskeið virðist sem lýðræðið sé ekki bara Qarlæg- ur draumur. I efnahagsmálunum hafa orðið og eru að verða meiri umskipti en í nokkru öðru kommúnistaríki, fyrsta verð- bréfamarkaðnum í Austur-Evrópu hefúr verið hleypt af stokkun- um og með nýjum lögum er hvatt til aukins einkaframtaks. Á bak við alla bjartsýnina býr þó ótti, ótti við að breytingarnar geti orðið of örar, að kommúnistaflokkurinn horfi ekki þegj- andi upp á sitt eigið dauðastríð og martröðin frá 1956 er eins og andlegur herQötur á mörgum manninum. Undir foiystu Karolys Grosz, formanns kommúnista- flokksins, og Miklos Nemeth, ný- skipaðs forsætisráðherra, hefur verið ráðist í víðtæka uppstokkun á ungverskum efnahagsmálum og er að því stefnt að taka upp markaðs- búskap að mörgu leyti. Meðai annars verður verulega dregið úr niðurgreiðslum og stuðningi ríkisins við óarðbær fyr- irtæki en talið er, að við það geti 100.000 manns misst vinnuna eða um 2% vinnufærra manna. Segir Grosz, að það sé erfíð inntaka en nauðsynleg eigi að koma efna- hagsiífínu á réttan kjöl. Þessi bylting iætur víðar til sín taka en í efnahagsmálunum. Fjöl- miðlamir eru miklu fijálsari en áður var og tímaritaútgáfa hefur margfaldast. Jafnvel sum neðan- jarðartímaritin eru nú kominn upp á yfírborðið. Ný, pólitísk samtök hafa litið dagsins ljós, allt frá Lýðræðisbandalaginu til stúd- entasamtaka, sem kreijast af- náms kommúnismans, og er nú í fyrsta sinn unnt að tala um eigin- lega stjómarandstöðu. Fyrir aðeins sex mánuðum sagði Karoly Grosz, að ekki kæmi til mála að taka upp fjölflokka- kerfí í Ungveij- alandi en nú er varla um annað talað. Imre Posz- gay, gamall jafn- aðarmaður og ráðgjafí Ne- meths forsætisráðherra í efna- hagsmálum, sagði fyrir skemmstu, að sósíalisminn í nú- verandi mynd væri kominn að leiðarlokum og stæði í vegi fyrir framfömm á öllum sviðum. Sagði hann, að vildu Ungveijar leita sér fyrirmyndar ættu þeir að horfa til Breta, Svía eða Austurríkis- manna. „Engum dettur lengur í hug að leita hennar í Moskvu." Þrátt fyrir vongleðina leynir sér ekki uggurinn, sem undir býr. Jafnvel þeir, sem mestar vonir binda við lýðræðislega þróun, ótt- ast, að ástandið geti orðið eins og á Spáni fyrst eftir fráfall Fran- cos. Þar risu upp 150 stjóm- máiafíokkar og um stund virtist sem upplausnin ætlaði að taka við af einræðinu. Þá spyija menn sig hvort kommúnistaflokkurinn sætti sig í raun við að tapa í fijáls- um kosningum og hvort Sovét- stjómin léti það líðast, að Ung- veijar sneru baki við sósíalisman- um. Ofar þessu öllu vakir minn- ingin um uppreisnina 1956 eins og þögul áminning um það hvar mörkin liggja. „Ef við neyðumst til að koma á fjölflokkakerfi til að halda friðinn innanlands, yrðu Sovétmenn líklega að samþykkja það,“ sagði félagi í kommúnista- flokknum, „en ef við segðum okk- ur úr Varsjárbandalaginu eins og gerðist 1956, skærust þeir óhjá- kvæmilega í leikinn." Miklos Nemeth, forsætisráð- herra Ungveijalands, er fertugur aldri, hagfræðingur að mennt og starfaði eitt ár við Harvard- háskóiann í Bandaríkjunum. Ný- lega varaði hann við „gagnbylt- ingaröflunum" í þjóðfélaginu og sagði, að yrði þeim ekki haldið í skefjum gæti „stjómleysi og upp- lausn" orðið hlutskipti Ungveija. Erlendir stjómarerindrekar segja, að vafalaust hafí .hann áhyggjur af framtíðinni en svona verði hann líka að tala til að sannfæra hina trúuðu um að flokkurinn sé ekki að fara í hundana. í nýlegu við- tali segir hann hins vegar, að þeir dagar séu liðnir þegar flokk- urinn var einn um að skipa fyrir. „Að tveimur árum liðnum er ekki alveg víst, að stjómarforystan verði í höndum manns, sem sæti á í stjómmálaráði kommúnista- flokksins," sagði Nemeth. BAKSVIÐ eftir Svein Sigurdison

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.