Morgunblaðið - 11.12.1988, Qupperneq 18
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. DESEMBER 1988
vULjá\tn«rafnarstræt\
SS vaf matvö^61
Miklar vangaveltur
um nýjar bjórstofur
í gamla miðbænum
Mun raunveruleg
ölstofumenning fest-
ast í sessi á íslandi?
Athafnamenn í
startholunum
eftir Svein Guðjónsson og Sigþór Einarsson
BJÓRBANNIVERÐUR senn aflétt hérlendis, og er
ekki að efa að margir eru farnir að hugsa sér gott
til glóðarinnar, bæði bjórþyrstir neytendur og
framsæknir athafhamenn. Islendingar hafa
löngum saknað þess að hér skuli ekki
íyrirfinnastmargrómuð„kráarmenning“ eins
og tíðkast víða erlendis, þó svo að vísir að slíkri
„menningu" hafi myndast undanfarin ár. En
kráarmenning verður aldrei nema nafiiið tómt ef
ósvikið öl er ekki til staðar og því má búast við
talsverðum breytingum á hinu hefðbundna mynstri
íslenskrar vínmenningar frá og með 1. mars á næsta
ári þegar bjórinn loksins kemur. Þá gæti raunveruleg
öistofiimenning haldið innreið sína á íslandi og þótt
enn sé með öllu óljóst hvert sú þróun muni leiða
þjóðina er hitt víst, að ýmsir eru farnir að velta fyrir
sér hugsanlegum möguleikum á arðbærum
atvinnurekstri í tengslum við afléttingu bjórbannsins.
Þannig bendir margt til að talsverð fjölgun verði á
ölstofum í gamla miðbænum og þótt ekki sé komin
nema ein umsókn um vínveitingaleyfi til viðbótar
þeim sem fyrir eru í miðbænum er ljóst, að margir
eru í startholunum og miklar vangaveltur í gangi
hvað þetta varðar.
VEITINGASTAÐIR
í MIÐBÆ REYKJAVÍKUR
# Þeir sem fyrir eru
O ÁÆTLAÐIR
? Á umræðustigi
Morgunblaðið/ KG
igldir íslendingar
kannast margir
við sig í alræmd-
um skemmtihverf-
um erlendra stór-
borga svo sem
Nýhöfninni í Kö-
ben, Soho í Lon-
don og St. Pauli í Hamborg. Menn
velta því nú fyrir sér, í gamni og
alvöru, hvort sú þróun kunni að
verða ofan á að gamli miðbærinn
í Reykjavík verði, er fram líða
stundir, einhvers konar ölstofu- eða
skemmtihverfi og að verslunin muni
smátt og smátt þoka fyrir bjórkrám.
Vísbendingar um slíka þróun eru
vissulega fyrir hendi þótt of snemmt
sé að segja fyrir um í' hve ríkum
mæli og hversu hratt ölstofuvæðing
gamla miðbæjarins muni ganga
fyrir sig. Heimildir Mogrunblaðsins
herma, að rótgrónir kaupmenn í
miðbænum hafi það nú í flimtingum
sín á milli að Laugavegur muni inn-
an fárra ára fá á sig svipaðan sið-
ferðisstimpil og Istedgade í Kaup-
mannahöfii og þróunin verði sú að
fyrst muni bjórknæpur ryðja versl-
uninni úr vegi, síðan komi pomó-
sjoppumar og að lokum muni port-
konur taka þar völdin. En þetta er
nú meira sagt í gamni en alvöru.
Sýnd veiði en ekki gefin
Þeir sem hyggjast leggja fyrir
sig veitingarekstur á bjórknæpum
þurfa að ýmsu að gæta. Öflun
vínveitingaleyfis er kapítuli út af
fyrir sig. í fyrsta lagi þurfa veit-
ingamenn að leggja í kostnað við
smíði fullkomins eldhúSs, eigi þeir
ekki slíkt fyrir, þar sem ekki fæst
vínveitingaleyfi nema að góð mat-
reiðslu- og veitingaaðstaða sé fyrir
hendi. Heimildir Morgunblaðsins í
dómsmálaráðuneytinu herma, að
vínveitingaleyfi til ölstofa sé sýnd
veiði en ekki gefin. Staðsetning
slíkra veitingahúsa verður að vera
vandlega valin, og ekki mun mögu-
legt að fá vínveitingaleyfi með sölu
á samlokum eingöngu. Ein af for-
sendum vínveitingaleyfís er að
............— „, að hefias1
NaustsuftS-
snyrtingar séu með þeim hætti, að
salemisskálarnar sjáist ekki undir
neinum kringumstæðum frá mat-
salnum.
En það er fleira en öflun vínveit-
ingaleyfis sem gæti reynst bakslag
í segl bjórveitingamanna. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
er lögleg álagning á sterkt áfengi
um 80%, en 50% á veikt. Við þetta
bætist síðan 15% þjónustugjaldj
sem veitingamenn fá í sinn hlut. I
nágrannalöndum okkar mun álagn-
ing á áfengi hins vegar vera á þriðja
hundraðinu, og er mál veitinga-
manna að slík álagning sé forsenda
reksturs vínveitingahúsa. Það sem
hefur hingað til bjargað íslenskum
veitingamönnum er hins vegar
fijáls álagning á gosdrykki. Þannig
hafa þeir látið háa álagningu á gos
vega upp lága álagningu á áfengi.
En hvemig er ætlunin að hafa
hagnað af slíkum rekstri þar sem
uppistaða sölunnar er bjór, með
lágri álagningu og goslausum? Því
er enn ósvarað enda engin ákvæði
Sessi^
Morgunblaðið/Rax