Morgunblaðið - 11.12.1988, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 11.12.1988, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. DESEMBER 1988 4 KOMINN í KRAPPAN DANS Stórfellt bankahneyksli, heilsuleysi, Papandreou á einnig í erfiðleikum í einkalífi. Hann vill ganga að eiga glæsilega flugfreyju, Dimitru (,,Mimi“) Liani, sem er helmingi yngri en hann, en Margaret kona hans vill ekki veita honum skiln- að. Hún er bandarísk og þau hafa verið gift í 37 ár. Eitt flögurra bama þeirra er Georg Papandreou mennta- málaráðherra og forsætisráðherrann virðist vilja gera hann að eftirmanni sínum, þótt hann hafi verið dreginn inn í bankahneyks- lið og bróðir hans líka. Grísk blöð fylgjast með málum fjölskyldunnar eins og „Dallasó- peru“ og almenningsálitið breytist frá einni viku til annarrar. Þegar leiðtogar Evrópubandalagsins ræddu framtíð þess á fundi sínum á Rhódos um síðustu helgi notaði Andreas Papandreou tækifærið til að kynna frú Liani fyrir heims- pressunni og „stal senunni". Sumir álösuðu honum fyrir heimsku, hæddust að honum eða sökuðu hann um að gera Grikki hlægi- lega. Aðrir töldu þetta sýna að hann vildi búa almenning undir skilnaðinn áður en kosningabaráttan hæfist. Fundurinn á Rhó- dos styrkti ekki stöðu hans eins og hann ætlaðist til og hann virtist þreytulegur. Stórmál Bankahneykslið er miklu hættulegra frá pólitísku sjónarmiði fyrir Papandreou og PASOK. Það varð að stórmáli þegar banka- stjóri Krítarbanka, grísk-bandaríski auðjöf- urinn og blaðakóngurinn Georg Koskotas, hvarf 6. nóvember. Úrvalssveit lögreglu- manna hafði fylgzt með honum dag og nótt -og sá grunur vaknaði að stjórnin hefði hjálp- að honum að flýja. Endurskoðendur segja að 200 milljónir dollara hafi horfíð úr bankanum. Stjórnar- andstaðan heldur því fram að nánir sam- starfsmenn Papandreous hafí verið viðriðnir peningahvarfið og ber stjóminni á brýn að hafa tafið rannsókn málsins. Koskotas er sakaður um að hafa dregið sér fé af inni- stæðum ríkisins í bankanum og notað ólög- leg eða fölsuð bandarísk skjöl í gjaldeyr- isviðskiptum. Saga Koskotas, sem er 34 ára gamall, er ótrúleg skv. lýsingu Financial Times. Hann fluttist ungur með foreldrum sínum til Bandaríkjanna, þar sem faðir hans kom sér upp fyrirtæki sem sá um að mála og gera upp hús. Þegar hann kom aftur til Grikklands 1979 varð hann starfsmaður Krítarbanka. Hann vakti fyrst athygli 1982, þegar hann stofnaði útgáfufyrirtækið Grammi og hóf útgáfu vikublaðs, Ena. Blöð Grammi veittu sljóm Papandreous mikilvægan stuðning á sama tíma og hún átti í útistöðum við önnur blöð. Fljótt á litið byggðust áhrif Koskotas á útgáfufyrirtæk- inu. Að sögn The Economist byggðust þau einnig á því að PASOK-stjómin reyndi að finna ungan „galdramann“ í fjármálum til að binda enda á kyrrstöðu í grísku efna- hagslífi með einhveijum ráðum. Tveimur ámm síðar keypti Koskotas meirihluta hlutabréfa í Krítarbanka og áhrif hans jukust jafnt og þétt. Grammi eignaðist sex tímarit, þijú dagblöð og fijálsa útvarps- stöð. Fyrirtækið bjó við þröngan húsakost í miðborg Aþenu, en flutti starfsemina í rándýr húsakynni fyrir norðan borgina. Útibúum Krítarbanka fjölgaði úr 30 í rúmlega 60. Sparifjáreigendur fengu 1-2% hærri vexti en annars staðar, fé frá ríkis- fyrirtækjum streymdi í bankann og hann varð annar stærsti einkabanki Grikklands. Skjótur frarrii Sennilega hafa fáir náð jafnmiklum áhrif- um í grískum íjármálum og stjómmálum á jafnskömmum tíma og Koskotas. Fleiri ráð- herrar mættu í boðum hjá honum en í mörg- um sendiráðaveizlum. Hann safnaði um sig mönnum úr PASOK. Lögfræðingur hans hafði verið ríkisstjómarritari. Ráðunautur Grammi var fv. talsmaður stjórnarinnar. Koskotas náði undir sig tveimur hægri- blöðum. Frú Helena Vlachos, kunnur rit- stjóri og útgefandi, seldi honum blað sitt, Kathimerini, og síðan bætti hann öðm helzta blaði hægrimanna, Vradyni, í safnið. Koskotas haslaði sér einnig völl á íþrótta- sviðinu þegar hann keypti knattspyrnuliðið Olympiakos í Píreus seint á síðasta ári. Sjálf- ur mat hann heildarverðmæti ljárfestinga sinna á 100 milljónir Bandaríkjadala og kvaðst hafa fengið fjármagnið erlendis frá. Grikklandsbanki segir hins vegar að hann hafí notað sjóði Krítarbanka og fyrst fært ijármuni bankans á einkareikning sinn. í október 1987 kom í fyrsta skipti í ljós að ekki var allt með felldu. Þá var Koskotas í hópi kaupsýslumanna, sem var boðið til Hvíta hússins, og þegar ferill hans var at- hugaður í öryggisskyni sást að hann var eftirlýstur í Bandaríkjunum fyrir skattsvik. Einnig kom í ljós að hann hafði ekki doktors- próf, eins og hann hafði haldið fram, og verið sektaður í Bandaríkjunum 1974 fýrir að falsa prófskírteini frá bandarískum há- skólum. Vegabréf hans var gert upptækt og hann reyndi að komast úr landi með því að Ijúga eftir Guðm. Halldórsson ANDREASPAPANDREOU, forsætisráðherra Grikkja, hefiir ekki átt sjö dagana sæla síðan hann gekkst undir hjartaaðgerð í London í haust. Sljórn hans hefiir beðið mikinn hnekki vegna mesta banka- og stjórnmálahneykslis í sögu landsins. Nokkrir ráðherrar hafa sagt af sér eða verið leystir frá störfiim og hálfgert upplausnarástand ríkir í flokki hans, sósíalistaflokknum (PASOK). Líf sljórnarinnar hangir á x bláþræði og ekkert bendir til þess að staða hennar batni. Kosningar eiga að fara fram í júní og margir efast um að Papandreou þoli langa og stranga kosningabaráttu, þar sem hann hefúr ekki náð sér eftir aðgerðina. Hann er 69 ára gamall. Papandreou og Liani: kynnti hana fyrir heimspressunni. I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.