Morgunblaðið - 20.12.1988, Side 68
68
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1988
t
Eiginkona mín og móðir okkar,
SIGRÍÐUR KJARTANSDÓTTIR,
Engihjalla 19,
Kópavogi,
lést í sunnuda.ginn 18. desember.
Tryggvi Benediktsson og börn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
MAGNÚS AXELSSON,
Skólavegi 38,
Keflavfk,
er látinn.
Kristfn Þórðardóttir og fjölskylda.
t
ANTON SIGURÐSSON
leigubifreiðastjóri,
Birkihlíð 9, Reykjavík,
andaðist 16. desember.
Pálma Guðmundsdóttir,
Anna Eygló Antonsdóttir,
Erna Björk Antonsdóttir.
t
GÍSLI GUÐMUNDSSON
frá Bjamastaðahlíð,
Hraunbraut 45, Kópavogi,
andaðist á Vífilsstöðum föstudaginn 16. desember.
Fyrir hönd aðstandenda.
Sveinn Gfslason,
Jóhannes Gíslason.
t
Faöir minn,
LÚTHER SALOMONSSON
pípulagningameistari,
Reynimel 82,
andaðist 17. desember á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund.
Fyrir hönd systkina,
Hilmar Lúthersson.
t
Móðir okkar,
JAKOBÍNA H. ÞÓRÐARDÓTTIR,
Háuhlíð 20,
andaðist föstudaginn 16. desember.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 21. desember
kl. 10.30.
Ásgeir Einarsson, Þórður Einarsson,
Sigrfður Einarsdóttir Zoega, Óskar Einarsson,
Ragnar Einarsson, Björn Einarsson.
t
Eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR R. BJARNASON
frá Látrum í Aðalvík,
til heimilis á Ásbraut 19, Kópavogi,
andaðist föstudaginn 16. desember.
Pálfna Friðriksdóttir,
Matthildur Guðmundsdóttir,
Erna Guðmundsdóttir,
Bjargey Guðmundsdóttir,
Kristín Guðmundsdóttir,
Valdimar K. Valdimarsson,
börn og
Jón Freyr Þórarinsson,
Gunnar Örn Gunnarsson,
Jakob Þór Jónsson,
Guðmundur Þórðarson,
Rósa Sigurjónsdóttir,
barnabörn.
Anna E. Ólafsdóttir
Johnsen - Minning
Fædd 4. september 1898
Dáin 14. desember 1988
Stráin sölna. Stofnar falla.
Stormur dauðans næðir alla.
Ljóselskandi, langan þrungið.
Lífið fyllir öll þau skörð.
Sækir ffarn í sigurvissu.
Svo er strítt um alla jörð.
Öm Amarson
Hjúkrun hefur maðurinn stundað
frá örófi alda, en sem sérstök starfs-
stétt er hjúkrunarstéttin ung sé hún
sett undir mælistiku mannkynssög-
unnar. Það voru framsýnar braut-
ryðjendakonur sem vörðuðu leiðina
er fetuð hefur verið í hjúkrunarmál-
um hér á landi, oft við skilyrði sem
við í dag eigum erfítt með að
ímynda okkur að hafi verið raun-
veruleg.
I dag kveðjum við eina slíka
konu, Onnu Elísabetu Ólafsdóttur
Johnsen sem eins og svo margar
starfssystur hennar braust til
mennta í hjúkrunarstarfíð á er-
lendri grund þar sem enginn hjúkr-
unarskóli var hér fyrr en Hjúkr-
unarskóli Islands var stofnaður árið
1931.
Anna Elísabet Ólafsdóttir John-
sen fæddistþann 4. september 1898
á Eysteinseyri við Tálknafjörð. Fað-
ir hennar var Ólafur Björnsson
bóndi í Norðurbotni og móðir
Málfríður María Arngrímsdóttir.
Það þurfti mikinn kjark og trú á
sjálfan sig á þessum árum að fara
utan til náms, en utan fór Anna
og lauk hjúkrunamámi í Nyköbing,
Danmörku, árið 1927. Framhalds-
nám við fæðingadeild í Árósum
stundaði hún að námi loknu og fór
síðar í geðhjúkrunarnám, allt í Dan-
mörku. Þegar Anna kom heim að
námi loknu hóf hún störf við Vífils-
staðaspítala sem deildarhjúkrunar-
kona og starfaði þar til ársins 1935
að hún réðst sem forstöðukona að
Reykjahæli í Hveragerði.
Hjúkrunarstarfinu má skipta í
þrjá meginþætti, umönnun, stjórn-
un og kennslu/fræðslu. Starfsvett-
vangur Önnu var stjórnun og því
taldi hún eðlilegt að afla sér meiri
þekkingar á því sviði. Enn þurfti
að leita út fyrir landsteinana, því
þótt hjúkrunarnámið væri nú komið
í heimahöfn, var ekki um neina
framhaldsmenntun að ræða. Bein-
ast lá við að sigla aftur til Dan-
merkur, þar þekkti Anna vel upp-
byggingu námsins og samfélagið.
Árið 1936 sótti hún nám í spítala-
stjómun á vegum Dansk Sygeplej-
erád — danska hjúkrunarfélagsins.
Þegar heim kom tók hún við starfi
yfírhjúkrunarkonu á Vífilsstað-
aspítala og gegndi því til ársins
1947. Anna var vel látin sem yfir-
hjúkrunarkona jafnt af sjúklingum
t
Minningarathöfn um
PÉTUR STEFÁNSSON
frá Nöf
fer fram í Víöistaðakirkju í Hafnarfiröi miövikudaginn 21. desember
kl. 15.00. Jarðsett veröur frá Siglufjaröarkirkju þriöjudaginn 27. des-
ember kl. 11.00. Fyrir hönd barnabarna og systur hins látna.
Indriði Pótursson,
Ólöf Pétursdóttir, Guðjón Jóhannsson,
Guðmundur Pétursson, Pálfna Bjarnadóttir,
Dýrleif Pótursdóttir, Sveinn Rúnar Björnsson,
Dröfn Pétursdóttir, Páll Þorsteinsson.
t
Útför ástkaerrar eiginkonu minnar,
STEFANÍU SIGRÚNAR STEINSDÓTTUR,
Hólsvegi 16,
er lést í Landspítalanum 13. desember sl. fer fram frá Fossvogs-
kirkju miðvikudaginn 21. desember nk. kl. 15.00.
•Fyrir mína hönd, barna okkar og annarra vandamanna,
Hörður Runólfsson.
t
Útför
KRISTJÁNS ELIASSONAR
frá Elliða, Staðarsveit,
Kleppsvegi 6, Reykjavík,
fer fram frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 21. desember kl.
13.30.
Guðný Jónsdóttir,
Edda Sigurðardóttir, Guðný Einarsdóttir,
Elías Kristjánsson, Bára Bjarnadóttir,
Hörður Kristjánsson, Ester Valtýsdóttir
og barnabörn.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÐUR EINARSSON
frá ívarsseli
fyrrv. vörubíistjóri,
Laufásvegi 10,
lést í Landspítalanum að morgni 17. desember.
Helgi Sigurðsson,
Elín Hildur Sigurðardóttir, Ómar E. Ólafsson,
Elvar Sigurðsson, Guðrún Jóna Jóhannsdóttir,
Einar Sigurðsson,
Hörður Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Dóttir, móðir, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR,
Höllviken, Svfþjóð,
andaðist í sjúkrahúsi í Trelleborg þann 12. desember 1988.
Hún verður jarðsungin þann 21. desember 1988 kl. 13.30 frá
safnaðarheimili Votta Jehova, Sogavegi 71.
Guðbjörg Guðmundsdóttir,
Sigurður Þórir Hansson, Elfsabet Einarsdóttir,
Lóa Hansdóttir,
Guðný Steinunn Hansdóttir,
Sigmunda Björg Pálsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
sem starfsfólki. Vífílsstaðir voru á
þessum árum mikið meira en venju-
legt sjúkrahús, þar var heimili
berklaveiks fólks oft svo árum
skipti. Það þurfti því að búa vel að
sjúklingunum svo þeir næðu sér
bæði líkamlega og andlega og væru
færir um að takast á við lífið eftir
að dvöl þeirra á Vífilsstöðum lauk.
Þáttaskil verða í lífi Önnu er hún
giftist Gísla Johnsen stórkaup-
manni árið 1947. Þá hættir hún
störfum á Vífílsstöðum og eftir það
eru það félagsmál hjúkrunarstéttar-
innar sem hún helgar krafta sína,
ásamt því að stýra stóru heimili
þeirra hjóna. Þegar Anna lét af
störfum sem yfírhjúkrunarkona gaf
samstarfsfólk hennar á Vífilsstöð-
um henni að skilnaði málverk eftir
Jóhannes Kjarval, það málverk gaf
hún síðar Hjúkrunarfélagi Islands.
Önnu var það mikið kappsmál að
hjúkrunarkonurnar hefðu samveru-
stað þar sem þær gætu komið sam-
an. A 25 ára afmæli félagsins 30.
nóvember 1944 gaf Anna eitt þús-
und krónur til húsbyggingarsjóðs
hjúkrunarkvenna og var það stofn-
framlag Heimilissjóðs Hjúkrunarfé-
lags Islands. Heimilissjóðurinn
gerði félaginu kleift að kaupa fyrst
húsnæði í Drápuhlíð, síðan í Þing-
holtsstræti og síðast að festa kaup
á því glæsilega húsnæði sem félags-
menn nú eiga á Suðurlandsbraut
22.
Þær hjúkrunarkonur sem þekktu
Önnu Johnsen vel segja að þau
hafi bæði hjónin verið jafn samtaka
í þessu máli. Stjórn Hjúkrunarfé-
lagsins vildi sýna Önnu virðingar-
vott fyrir hennar óeigingjömu störf
fyrir félagið og gerði hana að heið-
ursfélaga árið 1964. Hún var sæmd
riddarakrossi íslensku fálkaorðunn-
ar fyrir hjúkmnarstörf.
Merk kona er gengin, hvíldin var
kærkomin líkn þar sem heilsa og
kraftar vom búin. Að leiðarlokum
þakkar Hjúkmnarfélag íslands
höfðingsskap og fómfúst starf í
þágu íslenskra hjúkmnarkvenna.
Guð blessi minningu Önnu Elísa-
betar Ólafsdóttur Johnsen.
Sigþrúður Ingimundardóttir,
formaður Hjúkrunarfélags
íslands.
Blómastofa
fíiðfinm
Suðuriandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
tll kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öli tilefni.
Gjafavörur.