Morgunblaðið - 30.12.1988, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1988
15
Girðingin sem nefhd er í textanum, trygg, en ekkert allt of falleg.
ir kom urðu þeir þess varir að bif-
reið hafði verið ekið inn á svæðið
og lagt uppi á lautarbrún. Er þeir
könnuðu málið, komu þeir að göml-
um manni sem átti bílinn. Var hann
í þann mund að tappa olíunni af
bíl sínum, en sem alkunna er, getur
slíkt valdið mikilli mengun í jarð-
Vatni svo nærri vatnsbólum. Þessu
slysi tókst að afstýra, en sagan
sýnir nauðsyn þess að halda uppi
eftirliti og hafa tryggar girðingar.
Og það er annað sem nýtur friðar-
ins, það er náttúrulífið. Þama er
himbrima- og álftavarp, gæsa-
anda- mó- og vaðfuglavarp. Gró-
skumikill gróður og tjamir fullar
af vænum silungi. Þarna er líka
mikið af mink, en hann er ekki frið-
aður. Þetta mikla náttúrulíf þrífst
þarna betur en annars staðar í
næsta nágrenni vegna friðarins sem
girðingin og eftirlitið veitir. Það er
einnig af hinu góða. -gg.
Hver myndi trúa því að innan þessara dyra væri að finna 2000 tonna
vatnstank?
Fækkun nema í meinatækni
Ottast fólk smitsjúkdóma?
Er hætta á smiti á rannsóknastofum?
eftir Mörthu Á.
Hjálmarsdóttur og
Guðrúnu Yngvadóttur
Fyrr í vetur var frétt á baksíðu
Morgunblaðsins, sem fjallaði um
fækkun nemenda í námsbraut í
meinatækni við Tækniskóla ís-
lands. Bar hún fyrirsögnina
„Hætta á smiti virðist fæla fólk
frá námi í meinatækni". Senni-
lega hefðum við ekki séð sérstaka
ástæðu til þess að ræða þessa
grein ef staðið hefði „ótti við
smit“. Og þar sem sérstaklega var
vísað til hættu á alnæmissmiti er
enn frekari ástæða til að tala um
ótta en hættu í þessu sambandi.
Fylgir smithætta störfum
meinatækna?
Vissulega fylgir smithætta störf-
um meinatækna þar sem þeir fást
oft á tíðum við sýni frá sjúklingum
með smitsjúkdóma. Einnig geta þeir
sýklar, sem venjulega eru til staðar
á tilteknum stöðum líkamans valdið
sýkingum ef þeir berast út fyrir
heimkynni sín. Þetta vita meina-
tæknar og leitast því við að draga
úr jiessari hættu.
I menntun meinatækna er mikið
fjallað um meðferð sýna með tilliti
til smithættu og meinatæknar í
starfi hafa gert auknar kröfur hvað
snertir öryggismál. Það má vera að
fólk setji þetta starf frekar en önnur
í samband við smithættu af ainæmi.
Meinatæknar ráku harðan áróður
fyrir því að fá úrbætur í öryggismál-
um um svipað leyti og fyrst var far-
ið að ræða um alnæmi hér á landi.
Það var víða pottur brotinn í þeim
málum áður og það má segja að
meinatæknar hafi notað þennan
sjúkdóm til þess að leggja áherslu á
kröfur sínar um úrbætur. Þess ber
líka að geta að úrbætur fengust.
Rannsóknarstofur heilbrigðis-
þjónustunnar eru því nú mun betur
búnar með tilliti til smithættu en
áður var. Þannig að reyndin er sú
að dregið hefur verið verulega úr
smithættu á rannsóknarstofum.
Athugun á alnæmissmitun
heilbrigðisstarfsmanna
Athuganir, hafa verið gerðar á
þeim tilvikum þegar starfsfólk í heil-
brigðisþjónustu hefur smitast af al-
næmi. I könnun, sem birt var í
Sænska læknablaðinu 38/1988 er
talið sannað að 18 starfsmenn í heil-
brigðisþjónustu hafi smitast af al-
næmi við störf sín. Þessi könnun tók
til alls heimsins nema Afríku og tók
til þess tíma frá því sjúkdómsins
varð fyrst vart og fram í júlí 1988.
Þetta er lágt hlutfall miðað við alla
þá, sem önnuðust þá 80.000 alnæ-
missjúklinga, sem skráðir voru á
sama svæði á sama tíma.
Flestir smituðust með því að
stinga sig á nálum, sem voru meng-
aðar af sýktu blóði. Oftast gerðist
það þegar verið var að setja hettu
á nál að notkun lokinni. Dregið hef-
ur verið úr þessari hættu með því
að hætt er að ganga frá nálum á
slíkan hátt. Önnur tilvik um smitun
voru vegna þess að sýkt blóð barst
í sár eða á slímhúð. Verulega er
dregið úr þeirri hættu með notkun
á viðeigandi hlífum.
Ljóst er að hætta er fyrir hendi,
en mjög lítil. Aukin þekking og góð-
ur öryggisbúnaður er sú vöm sem
beitt er gegn sýkingum af þessu
tagi, sem og öðram.
Launakjör
I greininni var einnig talað um
að launakjör fæli fólk frá námi í
meinatækni. Það er rétt. Þetta hefur
verið vandamál, sem flestar heil-
brigðisstéttir eiga við að glíma.
Meinatæknar hafa heldur dregist
aftur úr viðmiðunarstéttum undan-
farin ár. Þetta þarf að lagfæra til
þess að nemar fælist ekki frá námi
vegna þess.
A þessu ári var hlutverki Meina-
tæknafélags Islands breytt. Áður
starfaði það, sem öflugt fagfélag,
en er nú einnig stéttarfélag, sem
nær til meinatækna um land allt.
Það mun því í framtíðinni semja
beint við launagreiðendur og getur
þá komið sínum sjónarmiðum á
framfæri milliliðalaust.
Störf meinatækna
Það era margir sem lítið vita um
störf meinatækna þar sem megnið
af vinnu þeirra fer fram á rannsókn-
arstofum sem aðrir eiga mjög sjald-
an erindi til. Þetta á bæði við um
sjúklingana og einnig marga starfs-
menn heilbrigðisþjónustunnar.
Vinna meinatækna er mismun-
andi eftir því hvetjar sérgreinar
meinarannsókna þeir hafa. Einnig
er vinnan mjög_ fjölbreytt innan
hverrar greinar. Áður fyrr vora fáar
rannsóknir gerðar og fólust þær
aðallega í smásjárskoðun og ein-
faldri efnagreiningu. Þróun í að-
ferðafræði og tælqabúnaði hefur
leitt tii fjölgunar rannsókna sem
jafnframt hafa orðið nákvæmari og
markvissari. Þetta er því skemmti-
legt og hvetjandi starf, því stöðugt
er eitthvað nýtt að gerast.
Menntun meinatækna
{ samræmi við breytingar á starfi
meinatækna hafa orðið breytingar á
námsefni meinatækninema. Námið
tekur nú 3'/2 námsár og lýkur með
B.Sc. prófgráðu frá Tækniskóla ís-
lands. Fyrstu tvö árin era eins fyrir
alla nemendur og síðan er námið
sérhæft, og nemendur velja sér-
greinar. Námsefnið skiptist í grófum
dráttum í raungreinar, greinar heil-
brigðisvísinda og faggreinar.
Menntunarmál meinatækna era
sífellt í brennidepli í alþjóðasam-
starfi og standa íslenskir meina-
tæknar fyllilega jafnfætis öðram
hvað menntun snertir. Þó er ekki
enn hægt að stunda framhaldsnám
hér á landi, en góð tækifæri bjóðast
víða erlendis bæði til framhaldsnáms
og vinnu.
Meinatæknar eru lifandi
stétt
Það er síður en svo að meinatækn-
ar séu deyjandi stétt. Því hefur ver-
ið haldið fram að svo sé vegna
minnkandi aðsóknar í meinatækni-
nám 2—3 síðastliðin ár. Það hafa
alltaf verið sveiflur í aðsókn að námi
meinatækna, sem og annarra stétta.
Nú era um það bil 230 meinatæknar
starfandi hér á landi, flest allt ungt
og hresst fólk. Starfið er fjölbreytt
og skemmtilegt og í hraðri þróun.
Meinatæknafélag íslands og
Tækniskóli íslands standa fyrir nám-
skeiðum fyrir meinatækna, þar sem
fjallað er um helstu nýjungar í starf-
inu eða efni, sem era í brennidepli
hjá meinatæknum. Má þar meðal
annars nefna námskeið um öryggi á
rannsóknastofum.
Félagið á einnig gott samstarf við
erlend meinatæknafélög og er aðili
að alþjóðasamtökum meinatækna.
Reglulega er boðið upp á námskeið,
sem alþjóðasamtök eða deildir innan
þeirra standa fyrir. Er það góður
fengur fyrir íslenska meinatækna,
því ekki er hægt að fjalla um mjög
sérhæfð efni nema á slíkum vett-
vangi. Ekki má heldur gleyma því
að menntun meinatækna nýtist þeim
érlendis og oft bjóðast skemmtileg
atvinnutækifæri á fjarlægum slóð-
um. Af þessu má ráða að orðrómur
um yfirvofandi andlát stéttarinnar
er stórlega ýktur.
Höfundar eru meinatæknar.
INNLAUSNARVERÐ
VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍ RTEINA RÍKISSJÓÐS
Í1.FL.B1985
Hinn 10. janúar 1989 er áttundi fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í 1. fl. B1985.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 8 verður frá og með 10. janúar n.k. greitt sem hér segir:
Vaxtamiði með 5.000,- kr. skírteini kr. 373,80
Vaxtamiði með 10.000,- kr. skírteini kr. 747,60
Vaxtamiði með 100.000 kr. skírteini kr. 7.476,00
Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið 10. júlí 1988
til 10. janúar 1989 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun sem orðið hefur
á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1006 hinn 1. janúar 1985 til 2279 hinn 1. janúar 1989.
Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aidrei eftir gjalddaga
Innlausn vaxtamiða nr. 8 ferfram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka Islands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. janúar 1989.
Reykjavík, 30. desember 1988
SEÐLABANKIÍSLANDS