Morgunblaðið - 30.12.1988, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 30.12.1988, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1988 18 Vímuefnavandi ungs fólks eftir Sigiirð Þór Guðjónsson Laugardaginn 29. október var stofnað í Reykjavík Félag aðstand- enda og áhugamanna um máleftii ungra vímuefnaneytenda. Fólks svona á aldrinum 14—25 ára. Að sjálfsögðu er ekki gert upp á milli löglegra og ólöglegra vípiuefna. Átt er við öll efni er breyta hugar- ástandi einstaklingsins og valdið geta fíkn er leiðir til sjúklegra breyt- inga á líkama og sál. Félagið gengur út frá því að óhófleg neysla vímu- efna sé sjúkdómur, alkóhólismi, og ofneytendur séu þar af leiðandi sjúklingar, alkóhólistar. Alþjóðaheil- brigðismálastofnunin og heilbrigðis- yfirvöld margra landa, þ.á m. Is- lands, telja alkóhólisma sjúkdóm. í viðtali við tímaritið Nýtt líf 4. tbl. 1987 sagði Þórarinn Tyrfingsson fyrrum yfirlæknir sjúkrastöðvar SAA á Vogi og núverandi formaður SAÁ; „Alkóhólismi er krónískur, margþátta sjúkdómur. Þá á ég við að ýmsir þættir spila inn í sjúk- dómsmyndina, hafa áhrif á gang sjúkdómsins og batahorfur. Líkam- legur þáttur, andlegur eða sálfræði- legur og félagslegur þáttur spila inn í sjúkdómsmyndina, mismikið eftir einstaklingum. Þessir þættir eru all- ir fyrir hendi í verstu mynd sjúk- dómsins." Félag aðstandenda mun leitast við að veija hagsmuni ungmenna sem eiga við vímuefnavanda að stríða. Það er því í rauninni enn ein baráttu- samtök sjúklinga eins og t.d. Gigtar- félag íslands, Félag nýrnasjúkra og Samtök sykursjúkra. Hins vegar geta ungir vímuefnaneytendur yfir- leitt ekki barist sjálfir fyrir rétti sínum sökum eðlis sjúkleikans og vegna æsku og þroskaleysis. Barátta félagsins í bili er fyrst og fremst að beijast fyrir sérhæfðum meðferðarstofnunum fyrir þessa sjúklinga. Nú er engin stofnun eða aðili í landinu sem getur veitt þeim þá hjálp sem þeir þarfnast. Unglingarnir þurfa sérstaka meðferð En geta ekki þær áfengismeð- ferðarstofnanir sem fyrir eru á veg- um ríkisins og SÁA leyst vanda þessara einstaklinga? Þann 26. októ- ber síðastliðinn efndi samstarfs- nefnd ráðuneyta um ávana- og fíkni- efnamál til ráðstefnu í Reykjavík. Þar kom greinilega fram það álit fagfólks, að reynslan Hafði sýnt að þó þessar stofnanir hafi hjálpað ein- staka ungmennum koma þær ekki þorra þeirra að gagni. Ástæðan er sú að þær eru miðaðar við þarfir fullorðinna. Meðferðin beinist að því að endurhæfa þá til einhvers sem þeir þekkja en hafa misst, t.d. fjöl- skyldu og vinnu. Unglingar, sem verið hafa á valdi vímugjafa frá unga aldri, áður en persónuleikinn var fullmótaður, hafa hins vegar aldrei lifað eðlilegu lífi. Þeir hafa að engu að hverfa. Þeir þurfa ekki endurhæfingu heldur enduruppeldi frá grunni: langtíma meðferð þar sem mið er tekið af þörfum hvers og eins. Unglingaheimili ríkisins hefur einnig að mestu leyti orðið að gefast upp fyrir vímuefnavandanum, þó heimilunum hafi vissulega tekist ágætlega upp við einstök tilfelli. Þess vegna er talin brýn þörf á sér- hæfðum stofnunum sem veitt geti meðferð ungmennum í alvarlegum vímuefnavanda. Fjöldi unglinga í alvar- legrim vímuefhavanda En eru þessir unglingar það marg- ir að þörf sé á slíkri stofnun hér á landi? Á ráðstefnu samstarfsnefndarinn- ar kom Einar Gylfi Jónsson forstöðu- maður Unglingaheimilis ríkisins og einhver helsti sérfræðingur þjóðar- innar í vímuefnavanda ungs fólks, fram með tilgátu um fjölda þeirra unglinga er eiga við alvarlegan vímuefnavanda að stríða. Tilgátan er byggð á rannsókn er gerð var 1976 af sálfræðinemum við Árósaháskóla og vann Brynjólfur G. Brynjólfsson sálfræðingur úr könnuninni. Rannsóknin er aðferðar- fræðilega talin sú áreiðanlegasta er gerð hefur verið á vímuefnaneyslu unglinga. Hún náði til allra 14 ára unglinga í Reykjavík sem mættu í skóla einn ákveðinn haustdag. Það Opið bréf til Más Guðmundssonar eftir Torben Friðriksson Undanfama daga og vikur hafa fjölmiðlar landsins keppst við að birta útreikninga um áhrif hinna ýmsu skattaálagningarforma ríkis- stjómarinnar, þ.e. hækkun tekju- og eignaskatts. Hafa niðurstöður þessara útreikninga verið allt frá því að engin hækkun muni verða og upp í að um rúmlega tvöföldun á greiðslubyrði sé að ræða. Ljóst má vera að reiknimeistarar hinna ýmsu ráðuneyta og stofnana hafa stuðst dyggilega við kennisetningar hinnar frægu bókar „How to Lie with Statistics" (Hvemig ljúga má með aðstoð tölfræðinnar), enda ekki í fyrsta sinn að kenningar hennar eru notaðar til að rugla landsmenn í ríminu. í grein á bls. 2 í Þjóðviljanum í dag um áhrif hækkunar eignaskatts segir orðrétt: „Már Guðmundsson, efnahagsráðgjafi fjármálaráðherra, sagði að þessu tilefni að um feiki- legar eignir (áhersla bréfritara) væri af ræða ef fólk ætti raðhús og skrifstofuhúsnæði upp á 12,5 milljónir skuldlaust og því ekki óeðlilegt að greiddir væru af þeim eignaskattar." Rak mig í rogastans við lestur þessara ummæla og fór sannast að segja að efast um að ég hafi á sínum tíma skilið merk- ingu orðsins „feikilegur" rétt þegar ég lagði mig sem mest fram um að læra íslensku (maður er jú alltaf að læra). En uppfletting í orðabók Sigfúsar Blöndal, Islandsk-Dansk Ordbog, staðfesti að skilningur minn á þessu orði væri réttur en þar stendur „uhyre stor, voldsom". Eins og fyrr segir birtust ummæli þessi í Þjóðviljanum í dag. Þó að dagblað þetta sé ekki með víðlesn- ustu blöðum landsins má alltaf bú- ast við að ákveðinn fjöldi lands- manna taki boðskap þess sem hei- lögum sannleik. Því tel ég rétt að benda efnahagsráðgjafa fjármála- ráðherra á að hæpið sé að þorri landsmanna telji skuldlausar eignir svo sem raðhús og skrifstofuhús- næði að verðmæti 12,5 milljónir króna vera feikilegar, enda þótt slíkt kynni að vera reyndin í fjar- lægum löndum, sem búa við aðrar efnahagsaðstæður en við íslending- ar. En ekki á íslandi, Már Guð- mundsson, ekki á Islandi. Er það þvf von mín og vafalítið margra annarra landsmanna að efnahagsráðgjafí ^ármálaráðherra taki framvegis meira tillit til íslenskra aðstæðna við myndun skattlagningarstefnu ríkisstjómar- innar og ráðgjöf þar að lútandi, — að öðrum kosti má aðeins vona að fjármálaráðherra noti sem mest eigin skynsemi við mat á greiðslu- getu skattborgara og á efnahags- ástandinu í landinu þegar um stefnumótun í skattamálum er að ræða. Með vinsemd óg virðingu, Torben Friðriksson voru 7,8% unglinga er sögðust nota áfengi einu sinni í viku eða oftar en 1,3% tvisvar til þrisvar í viku eða oftar. Jóhann Loftsson sálfræðingur setti á grundvelli þessarar niður- stöðu fram tilgátu á þessu ári (í óbirtri skýrslu) um fjölda ung- menna á aldrinum 14-19 ára sem misnota áfengi. Hann gaf sér þær forsendur að 10% einstaklinga 25 ára og eldri misnota áfengi (neyti þess a.m.k. einu sinni í viku). Áfeng- isdrykkja fari stigvaxandi á aldrin- um 14-19 ára og ekki sé munur á drykkju unglinga í Reykjavík og úti á landi. Samkvæmt þessu eru það 1.785 unglingar 14-19 ára sem drekka einu sinni í viku eða oftar.- Það er talin misnotkun. Einar Gylfi Jónsson notaði hins vegar strangari skilgreiningu. Alvarleg misnotkun sé áfengisneysla tvisvar til þrisvar sinnum í viku eða oftar og studdist við hlutfallið 1,3%. Hann gerði og ráð fyrir að þetta hlutfall ykist ekki heldur væri óbreytt upp aldurs- hópana. Það eru 50-60 unglingar í hveijum árgangi samkvæmt þessum forsendum sem eiga í alvarlegum vímuefnavanda. Tilgáta um flölda unglinga í alvar- legum vímuefnavanda á Islandi (vímuefnaneysla tvisvar til þrisvar í viku): 14 ára 1,3% af 4098:53 15 ára 1,3% af 3868:50 16 ára 1,3% af 4062:53 17 ára 1,3% af 4047:53 18 ára 1,3% af 4234:55 19 ára 1,3% af 4490:58 Samtals 322 Af hinum gefnu forsendum sést að hér er um lágmarkstölur að ræða. Auk þess bætist við ýmis konar að- ferðarfræðilegur vandi við hefð- bundnar kannanir af þessu tagi. Of langt mál yrði að gera sérstaka grein fyrir þeim hér, en þær felast m.a. í því að erfitt reynist að ná til þeirra unglinga sem verst eru staddir af völdum vímugjafa. Þetta eru því al- gerar lágmarkstölur. Þannig eru þá staðreyndimar um áætlaðan fjölda ungmenna á aldrin- um 14-19 ára í alvarlegum vímu- efnavanda. En það er hætt við því að í næstu aldurshópum fyrir ofan „Því tel égf rétt að benda efhahagsráð- gjafa Qármálaráðherra á að hæpið sé að þorri Iandsmanna telji skuld- lausar eignir svo sem raðhús og skrifstofú- húsnæði að verðmæti 12,5 milljónir króna vera feikilegar, enda þótt slíkt kynni að vera reyndin í Qarlægum löndum, sem búa við aðrar efnahagsaðstæð- ur en við Islendingar. En ekki á íslandi, Már Guðmundsson, ekki á íslandi.“ I Sigurður Þór Guðjónsson „í ljósi þessara stað- reynda og annarra sem fram hafa komið und- anfarið um vímuefiia- vanda ungs fólks verða sfjórnvöld að gera upp hug sinn um aðgerðir eða aðgerðarleysi.“ sé ótalinn hópur sem er mjög illa á vegi staddur. Á ráðstefnu samstarfs- nefndarinnar komu jafnvel fram þær raddir að einmitt þar leynist mesti vandinn. Neysluvenjur og félags- legar aðstæður En hvemig er ástandið meðal ungmenna sem eru á valdi vímu- efna? Hvemig em neysluvenjur þeirra og félagslegar aðstæður? í fyrra gerðu starfsmenn Ungl- ingadeilar félagsmálastofnunar Reykjavíkur og Útideildar í sam- vinnu við unglingaráðgjöf Unglinga- heimilis ríkisins kerfisbundna rann- sókn á þessu. Starfsmennimir leit- uðu þeirra ungfinga í skjólstæðinga- hópnum sem þeir töldu að glímdu við vímuefnavanda. Það vom sam- tals 83 unglingar, þar af 51 stúlka eða 61,4%. Þau vom 13-20 ára en 85% þeirra á aldrinum 15-18 ára. Á kerfísbundinn hátt var reynt að draga upp mynd af högum þeirra. Spurt var um fjölskylduaðstæður, atvinnu, vímuefnaneyslu, skólanám, afbrot, félagstengsl og vistanir á stofnunum. Niðurstöður þessarar könnunar endurspegla þær breytingar sem orðið hafa síðustu áratugi í vímu- efnaneyslu unglinga. Þeir bytja fyrr að drekka en áður og önnur vímu- efni hafa bæst við. í skýrslu um könnunina er gerð nákvæm grein fyrir útkomunni. Ekki er hægt að fara nánar út í hana hér en látið nægja að vitna til orða Ein- ars Gylfa Jónssonar: „Þegar heildamiðurstöðumar em skoðaðar kemur í ljós að þeir ungl- ingar sem starfsmenn unglingadeild- ar, útideildar og unglingaráðgjafar meta sem „unglinga í vímuefna- vanda" em í mjög alvarlegum vanda. Heildarhópurinn neytir að meðaltali tveggja til þriggja tegunda vímu- efna. Þorri hópsins neytir vímuefna hveija helgi og aðeins lítið brot heild- arhópsins telst ekki nota vímuefni á virkum dögum. Tæplega 40% em sagðir nota vímuefni tvö kvöld í röð og rúm 40% em komin út í sam- fellda neyslu í sólarhring eða leng- ur. Vandamál tengd neyslu em einn- ig margvísleg. Heimilis- og fjöl- skylduaðstæður hópsins virðast líka mjög erfíðar. Þannig hefur meiri- hlutinn ekki alist upp hjá báðum kynforeldmm sínum. Tæp 40% búa ekki í heimahúsum. Foreldrar langf- lestra þeirra virðast eiga við ýmiss konar vandamál að etja. Þar sem upplýsingar fengust um vandamál systkina kom í Ijós að einnig þau em gjaman í alvarlegum vanda. Samskipti þorra hópsins við fjöl- skyldur sínar einkennast af árekstr- um og aðhaldsleysi, auk þess sem ýmis mun alvarlegri vandamál koma upp í samskiptum stórs hluta hóps- ins við Qölskyldur sínar. Hjá a/4 hlut- um hópsins em tengsl einstakling- anna við fjölskyldur sínar slæm eða engin. Mikill meirihluti þeirra sem kominn er út á hinn almenna vinnu- markað gengur illa að spjara sig þar. Meirihluti heildarhópsins hefur dottið út úr skóla áður en skyldun- ámi lauk og flestir þeirra hættu reyndar í 8. bekk. Meirihluti hópsins telst eiga við margvíslega skólaerfíð- leika að stríða. Aðeins tæpur fjórð- ungur hópsins tilheyrir föstum fé- lagahóp, hinir ýmist flakka á milli félagahópa eða búa við algjöra fé- lagslega einangmn. Meirihluti þeirra sem upplýsingar fengust um hafa lent í útistöðum við lögin einu sinni eða oftar. 2/3 hlutar heildarhópsins hafa dvalið á einni eða fleiri stofnun- um.“ (Einar Gylfi Jónsson: „Ungl- ingar í vímuefnavanda. Könnun á fjölda, aðstæðum, og neyslumunstri" — Unglingadeild Félagsmálastofn- unar Reykjavíkurborgar, maí 1987, bls. 18-19.) Hinir verst stöddu Þetta er sem sagt ágrip ,af niður- stöðu könnunar Unglingadeildar Félagsmálastofnunar. Ekki mega menn mgla henni saman við tilgátu Einars Gylfa Jonssonar um fjöld ungmenna í alvarlegum vímuefna- vanda. Sú tilgáta er miðuð við allt landið út frá gefnum forsendum. En mat starfsmanna Félagsmála- stofnunar og Unglingaheimilisins er byggt á beinum kynnum af ákveðn- um hópi unglinga í Reykjavík og nágrenni sem em eða hafa verið í vandræðum vegna vímuefna. En ekki virðist ósennilegt að könnunin bregði upp mynd af högum þeirra unglinga yfirleitt sem áneljast hafa vímugjöfum. Könnunin segir þó auð- vitað ekki alla sögu um raunvemleg- an fjölda þeirra sem eiga í vandræð- um. Af ýmsum ástæðum, sem hér yrði of langt mál að rekja, er ekki víst að starfsmenn þessara deilda hafi náð til allra unglinga í Reykjavík, sem áttu í vímuefna- vanda er könnunin var gerð. Verður það reyndar að teljast næsta ólík- legt. Og könnunin nær ekki út á land. En ýmislegt bendir til þess að vímuefnamisnotkun ungmenna sé ekki bundin við Reykjavík og ná- grenni. Árið 1987 komu á meðferð- arstöð SÁÁ Vogi 69 unglingar 15-19 ára. Þar af vom 30 sem áttu lög- heimili utan Reykjavíkur og ná- grennis, úr 19 sveitarfélögum. Þó yfir 300 ungmenni séu talin í alvarlegum vímuefnavanda sam- kvæmt ákveðinni skilgreiningu er þar með ekki sagt, sem betur fer, að þau séu öll komin á síðasta snún- ing. En þau em í vemlegum vand- ræðum. En þetta er breiður hópur og vandinn á ýmsum stigum og ein- staklingamir þurfa því mismunandi meðferð. Á r'áðstefnu samstarfs- nefndar tilgreindi Einar Gylfi Jóns- son í framsöguerindi þijá hópa ung- menna í vímuefnavanda: „Verst staddi hópurinn er í mikilli bland- aðri neyslu og hefur hætt í skóla áður en skyldunámi lauk, tollir mjög iila í vinnu, tengsl við fjölskylduna em ýmist alveg rofín eða mjög erf- ið. Afskipti opinberra aðila, t.d. lög- reglu eða barnavemdamefnda, em tíð en ómarkviss, vegna skorts á viðeigandi úrræðum." Emar telur að flest þessara ungmenna séu ekki til samvinnu um meðferð. Samfélag- ið verði að taka af þeim ráðin svo þau fari ekki sjálfum sér og jafnvel öðmm að voða. En nú má spyija: Hve fjolmennur er verst staddi hópurinn? í könnun Félagsmálastofnunar og Unglinga- heimilisins eru 18 unglingar i hon- um. En ég vek athygli á því, sem fram hefur komið hér að framan, að ólíklegt virðist að könnunin nái til allra ungmenna í Reykjavík og nágrenni á aldrinum 13 til 18 ára og með fullri vissu aðeins til fárra á aldrinum 18-20 ára á sama svæði (samanber bls. 23 og 3 í fyrr- greindri skýrslu). Þá er landsbyggð- in eftir. Og öll þau ungmenni sem em eitthvað yfir tvítugt en eiga við flest sömu vandamál að stríða — eða jafnvel verri. Á títtnefndri vímuefn- aráðstefnu komu fram ágiskanir um allt að 60 unglinga. En jafnvel þó aðeins væri um að ræða 18 ungar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.