Morgunblaðið - 30.12.1988, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 30.12.1988, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1988 Flugeldasala á Akureyri Morgunblaðið/Rúnar Þói íþróttafélögin og Hjálparsveit skáta keppa um flugeldakaupendur AKUREYRINGUM bjóðast flugeldar til sölu á óvenju mörgum stöðum fyrir þessi áramót. Hjálparsveit skáta selur þessa vöru eins og venjulega, og íþróttafélögin KA og Þór gera það nú einn- ig — og heflir verið talað um „flugeldastríð" í bænum, þó fúlltrú- ar þessara þriggja aðila vilji alls ekki kalla keppni þeirra um flugeldakaupendur því naflii. Hjálparsveit skáta hefur, eitt félaga, stundað flugeldasölu í fjölda ára í fjáröflunarskyni og íþróttafélögin ákváðu að gera það nú einnig. Skátar hafa haldið því fram að í gildi hefði verið óform- legt samkomulag milli þeirra og íþróttafélaganna þess efnis að hjálparsveitin sæti ein að flug- eldasölu, eða yrði a.m.k. látin vita með góðum fyrirvara, þar sem þeir verði að panta sínar birgðir með nærri árs fyrirvara. Það hafi hins vegar ekki verið gert. For- ráðamenn félaganna vilja hins vegar ekki kannast við slíkt sam- komulag. Hjálparsveitin selur sína flug- elda á fjórum stöðum í bænum, .en íþróttafélögin á einum stað hvort — KA í skúr við KA-heimil- ið og Þórsarar í Hamri, félags- heimili sínu sem er í byggingu. Forráðamenn félaganna segjast helst höfða til hörðustu stuðnings- manna félaga sinna í þessari fjár- öflun, en „við viljum reyna að höfða til bæjarbúa í heild í þeirri von að þeir vilji styrkja okkur. Það er ekki svo oft sem þeir fá tækifæri til þess,“ sagði einn fé- lagsmanna hjálparsveita skáta sem Morgunblaðið ræddi við í gær. Salan virðist hafa farið heldur rólega af stað í bænum að þessu sinni, en þriðji söludagur var í gær.„Þetta fer sæmilega af stað, en við erum ekkert í skýjunum, en ég held að við getum verið þokkalega ánægðir," sagði einn sölumannanna í gær. Hann gat þess að venjulega seldist um 80% flugeldanna síðustu tvo dagana fyrir áramót, sem sagt í dag og á morgun. Sölustaðir íþróttafélaganna eru á félagssvæðum þeirra sem fyrr segir en hjálparsveitin býður flug- elda til sölu á fjórum stöðum — í húsnæði sínu í Lundi við Skógar- lund, í Bílvirkja við Fjölnisgötu, í Gierárgötu 26 og í söluskúr við Hagkaup. Rúnar bikarmeist- ari Skákfélagsins RÚNAR Sigurpálsson sigraði á bikarmóti Skákfélags Akureyrar, sem nýlega fór fram, og telst því bikarmeistari félagsins. Rúnar hlaut 8'/2 vinning en annar varð Kári Elísson með 6V2 vinning. Mótið var með útsláttarfyrir- komulagi — keppandi var úr leik eftir að hafa tapað þremur vinning- um. Jón Björgvinsson varð þriðji á mótinu með 5 vinninga og Þór Valtýsson fjórði með 4 vinninga. Nú milli jóla og nýárs gekkst Skákfélagið svo fyrir jólamóti, þar sem umhugsunartími var aðeins 15 mínútur. Amar Þorsteinsson var hlutskarpastur í þeim skiptum sem þarna áttu sér stað; sigraði á mót- inu með 6 vinninga af 7 möguleg- um, en í öðru til þriðja sæti urðu jafnir Ólafur Kristjánsson og Gylfi Þórhallsson með 5 vinninga hvor. Þess má geta að í kvöld, 30. desember, gengst Skákfélagið fyrir jólahraðskákmóti í húsnæði sínu í Þingvallastræti 18. Mótið hefst kl. 20.00. Fyrrnefndur Arnar Þor- steinsson sigraði á jólahraðskák- mótinu í fyrra og á því titil að veija. Peningagjöf til FSA FÆÐINGARDEILD Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri barst á mið- vikudag peningagjöf, 25.000 krónur, sem veija á til áhaldakaupa. Gjöfin barst frá kvenfélaginu í Fnjóskadal og það voru þær Kristín Ketilsdóttir og Hlín Guðmunds- dóttir sem afhentu gjöfina. Gjöfin er til minningar um Amdísi Kristjánsdóttur ljósmóður frá Víðivöllum í Fnjóskadal sem lést í nóvember síðastliðnum. Á mynd Rúnars Þórs em frá vinstri: Jónas Franklín læknir, Kristín Ket- ilsdóttir, Hlín Guðmundsdóttir, Bjami Rafnar yfirlæknir og Frið- rika Ámadóttir yfirljósmóðir. Þess má geta að fæðingardeildinni barst önnur gjöf í síðustu viku — þá komu Lionessur í Ösp í heimsókn og færðu deildinni mynbandstæki í jólagjöf. Ffett þessi birtist í Morgunblað- inu í gær með rangri mynd og birt- ist því aftur nú. Morgunblaðið biðst velvirðingar á mistökunum. Innanhússknattspyrna: KA sigraði á eig- in afinælismóti A-LIÐ Knattspyrnufélags Akureyrar sigraði á innanhússknatt- spyrnumóti sem haldið var í íþróttahöllinni í fyrraflag, í tilefni af 60 ára aflnæli félagsins sem var fyrr á þessu ári. A-liðið lék við B-lið KA í úrslitum, og hafði betur, 6:4, eftir mikla og skemmtilega baráttu. Keppt var í tveimur fjögurra liða riðlum, en um boðsmót var að ræða. í öðrum riðlinum voru Þór, Tinda- stóll, A-lið KA og Ungmennafélag Svarfdæla og í hinum Magni, B-lið KA, Reynir, Ársskógsströnd og Leiftur. Völlurinn var breiðari en venjulega í knattspymu, mörkin stærri, fimm leikmenn voru í hveiju liði og þar af einn markvörður. Sama fyrirkomulag var notað á Bautamótinu í fyrra, í fyrsta skipti hér á landi, og gafst vel. Leikimir þykja skemmtilegri en með gamla laginu; leikurinn líkist meira þeirri knattspymu sem leikin er utanhúss en „gömlu innanhússknattspyrn- Unni“ sem leikin hefur verið hér á landi um árabil. Jólatré Þórs ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ Þór heldur árlega jólatrésskemmtun sína á Hótel KEA í dag. Skemmtunin hcfst kl. 16.00 og stendur til kl. 18.00. Úrslitin í riðlunum urðu þessi: A-riðill Tindastóll-KA A.............1:9 Þór-UMFS....................2:1 UMFS-KA A...................0:8 Þór-Tindastóll..............4:2 Tindastóll-UMFS.............6:8 KA A-Þór....................6:4 B-riðill KA B-Reynir.................5:2 Magni-Leiftur...............1:1 Leiftur-Reynir..............4:4 Magni-KAB...................1:1 KAB-Leiftur.................3:1 Reynir-Magni................1:1 Síðan var keppt um sæti, Reynir hreppti 7. sæti eftir 11:3 sigur á Tindastóli, Leiftur varð í 5. sæti eftir að hafa lagt UMFS 3:2 og Þór varð í 3. sæti eftir 3:2 sigur á Magna. Til úrslita léku svo KA-liðin tvö, og í byijun höfðu menn á orði að ekki væri Ijóst hvort væri hvað. B-liðið komst nefnilega í 2:0 með kröftugum leik í byijun, en síðan réttu A-liðs drengimir úr kútnum °g tryggðu sér sigur, 6:4, í skemmtilegum og fjörugum leik. Morgunblaðið/Rúnar Þór Ormarr Orlygsson, sem lék í fyrsta skipti með KA eftir nokkurra ára veru hjá Fram, skorar síðasta mark A-liðsins í úrslitaleik af- mælismótsins. A-lið KA, sigurvegari á afmælismóti KA, frá vinstri: Guðjón Þórðar- son þjálfari, Bjarni Jónsson, Gauti Laxdal, Ormarr Örlygsson, Frið- finnur Hermannsson, Þorvaldur Örlygsson, Birgir Arnarson, Haukur Bragason. Brotist inn í fjárhús og kindum misþyrmt AFLÍFA varð tvær gimbrar á Þorláksmessu eftir að þeim hafði verið misþyrmt hrottalega í fjárliúsi við Lónsbrú. Kind í húsinu var einnig misþyrmt, en ekki þurfti að aflífa hana. Rannsóknarlögreglan á Akur- eyri hefur málið til rannsóknar. Þegar eigandi fjárins kom í fjárhús sitt um hádegi á Þorláksmessu sá hann hvers kyns var og lögregla og dýralæknir voru kvödd á vett- vang. Sá er braust inn í fjárhúsið hafði átt við dýrin og úrskurður dýralæknis var sá að eitthvert áhald eða verkfæri hafði verið not- að, auk þess sem viðkomandi er grunaður um að hafa notað dýrin kynferðislega. Gimbrarnar voru taldar vera svo skaddaðar inn- vortis að þær varð að aflífa. Rannsókn málsins er enn á byij- unarstigi. Rannsóknarlögreglan á Akureyri hefur einnig til meðferðar sams konar mál frá því um sama leyti í fyrra. Þá varð að aflífa tvær gimbrar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.