Morgunblaðið - 30.12.1988, Síða 40

Morgunblaðið - 30.12.1988, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER1988 Minning: Ernst Gíslason yfír- fíugumferðarstjóri Fæddur 17. október 1921 Dáinn 21. desember 1988 Elsku pabbi er dáinn. Þó að þetta hafi legið í loftinu í hálft ár, þá er erfitt að sætta sig við það. En ég veit að honum líður betur núna. Krabbamein er oftast ólæknandi sjúkdómur og í hans tilfelii var ekkert hægt að gera. En hann gafst ekki upp og barðist hetjulega í tæpt ár. Hann gekkst undir erfiða uppskurði, þá síðustu nú í október. Hann ætlaði að sigra í baráttunni við sjúkdóminn. En hún var ójöfn, því að það var þegar búið að ákveða hver átti að sigra í þessari baráttu. Allt sitt líf helgaði pabbi því sem honum þótti vænst um, íjölskylduna og starfíð. Við systkinin gátum öll reitt okkur á hann ef eitthvað bját- aði á. Hann var alltaf til staðar fyrir okkur. Ég veit að pabbi verður alltaf hjá okkur, þó hann sé farinn yfir móðuna miklu. Hann var alltaf svo bjartsýnn á framtíðina þó hann vissi í hvað stefndi. Það var alltaf auðvelt að fá hann til að hlæja, hversu þjáður sem hann var. Þó það sé búið að taka pabba frá mér, þá á ég minningamar um hann og þær tekur enginn frá mér. Við áttum margar góðar stundir saman og ég er þakklát fyrir þær. Hann var eins lengi hjá okkur og hann gat og mun lifa í hugum okkar að eilífu. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Sb. 1886 - V. Briem) Ásdís Emst Gíslason, yfirflugumferð- arstjóri, lést í Borgarspítalanum í Reykjavík þann 21. þessa mánaðar. Þessi fregn kom á óvart jafnvel þó að aðdragandinn væri orðinn nokkur, því að það var í febrúar- mánuði síðastliðnum, sem Emst fyrst kenndi einkenna þess sjúk- dóms, sem leiddi til andláts hans. Emst fæddist í Stavanger í Nor- egi 17. október 1921, sonur hjón- anna Fríðu Tómasdóttur frá Bratt- holti í Biskupstungum og Gísla Jo- hannsen frá Ólafsfírði. Hann var því nýorðinn 67 ára, þegar hann lést. Emst kynntist ég fyrst fyrir ijörutíu árum, er hann hóf störf hjá Flugmálastjóm íslands og urðum við samstarfsmenn ásamt fjölda annarra ungra manna í því braut- ryðjendastarfi, sem unnið var á þeim tíma í íslenskum flugmálum. Þá opnuðust nýir heimar fyrir ís- lendinga og raunar allar aðrar þjóð- ir í flugmálum. Tækni á því sviði hafði fleygt fram og þróast ótrúlega hratt á stríðsárunum. Nú var komið að því að nýta þá tækni til hags- bóta fyrir allan almenning. Hlutur íslands í alþjóðaflugi varð stórum meiri en vænta mátti af svo fá- mennri þjóð. Okkar afmarkaða svið var flug- umferðarþjónusta, en við þeirri þjónustu tóku íslendingar af .her- námsliði Breta í lok stríðsins og af Bandaríkjamönnum á Keflavíkur- flugvelli tíu árum seinna. Þetta var það andrúmsloft, er ríkti, er Emst hóf störf hjá Flugmálastjóm 1948. Þegar hann er nú kallaður burt frá jarðvist sinni hrannast upp minningar um liðnar samverustund- ir, um ýmsar glímur við erfið verk- efni á liðinni starfsævi, er leystust á farsælan hátt. Hæfileikar Emst og rólegt, yfir- vegað og öruggt fas hans leiddu til þess, að hann valdist til trúnaðar- starfa fyrir stofnunina. Hann var í framvarðaliði því, sem valið var til að taka við ábyrgð á rekstri flug- tumsins á Keflavíkurflugvelli af Bandaríkjamönnum ogtil undirbún- ings þess fór hann til framhalds- náms í flugumferðarstjórn hjá flug- málastjóm Bandaríkjanna. Hann lauk prófi í radsjárflugum- ferðarstjóm við skóla bresku flug- málastjómarinnar og upp úr því hófust afskipti hans af skóla- og þjálfunarmálum Flugmálastjómar og kenndi hann radsjárflugumferð- arstjóm flugumferðarstjórum, er störfuðu við ratsjár á Reykjavíkur-, Akureyrar-, ísafjarðar- og Egils- staðaflugvöllum. Emst var skipaður varðstjóri við flugtuminn á Reykjavíkurflugvelli 1963, varðstjóri í flugstjómarmið- stöðinni 1973, yfirflugumferðar- stjóri þjálfunar flugumferðarþjón- ustu 1977 og yfirflugumferðarstjóri skipulagssviðs flugumferðarþjón- ustu frá 1. janúar 1986. Hér hefur verið stiklað á stóm um starfsferil Emsts. Að baki þess- ari upptalningu eru ónefnd störf, sem ekki verða metin 'né vegin. Hann var einstakt prúðmenni og vann sín störf með ró og festu. Emst starfaði mikið að félagsmál- um, bæði í fagfélagi sínu, Félagi íslenskra flugumferðarstjóra, þar sem hann var formaður, og innan Frímúrarareglunnar. Emst var gæfumaður í einkalífí sínu, eignaðist indæla eiginkonu, Ingunni H. Þorsteinsdóttur og með henni mannvænleg böm, en þau Minnmg: Sveinn Ólafsson slökkviliðsmaður Fæddur 31. ágúst 1926 Dáinn 20. desember 1988 Um morguninn 20. desember 1988, er ég mætti í vinnuna, bárust mér þær sorglegu fréttir að Sveinn Ólafs- son slökkviliðsmaður, einn af starfs- mönnum mínum hefði dáið um nótt- ina. Lát hans kom mér ekki á óvart, en samt var það sárt. Sveinn hafði verið sjúkur í nokkum tíma, barðist hart við illskeyttan óvin, sem sigraði loks eins og oft er nú raunin, og kannski besta lausnin þegar á allt er litið, eins og hann sjálfur orðaði það, honum var lagið að sjá hlutina í réttu ljósi. Nafni minn, eins og Sveinn heitinn Eiríksson kallaði hann oft, byrjaði að vinna í slökkviliðinu á Keflavíkur- flugvelli 1964. Fljótt kom í ljós að Sveinn var einstaklega laginn maður á allt, hvort sem um var að ræða tæki eða menn, og fór svo að hann var kosinn af félögum sínum strax árið 1968 slökkviliðsmaður ársins á Keflavíkurflugvelli, það er heiður sem fáum hlotnast. Sveinn átti ekki alltaf náðuga daga í h'finu, en tók sínu eins og það var, með skynsemi og af öryggi, sem aðdáunarvert var. Það var áberandi hvað Svanhvít, eiginkona og ævifélagi Sveins, og hann voru samrýnd, þau voru hvort öðru allt, börðust saman til hinstu stundar. Mér er minnisstætt er ég heimsótti Svein vin minn í síðasta sinn í þessum heimi, við hlið hans dvaldi Svanhvít honum til halds og styrktar dag og nótt, og leyndi sér ekki að á milli þeirra hjóna ríkti mikil ást. Sveinn leysti öll störf af hendi of sérstakri natni og hæfni hans var einstök. Hann var öðrum færari að finna lausn á aðsteðjandi vanda í viðgerðum á flóknum búnaði slökkvibifreiða og átti hann stærstan hlut í því að tekist hefur að halda tækjum slökkviliðsins í fullkomnu lagi alla tíð. Þetta er árangur sem ekki þekkist annars staðar hjá okkar atvinnurekanda, bandaríska flotan- eru: Þorsteinn, flugmaður hjá Cont- inental í Bandaríkjunum, fæddur 1956. Öm, tannlæknanemi, fæddur 1958, Gylfí, flugumferðarstjóri, fæddur 1961. Birgir, nemandi í við- skiptafræði, fæddur 1965. Ásdís, fædd 1969, stúdent sl. vor. Góður drengur er genginn. Minn- ingin um hann lifír áfram í hugum okkar alla tíð. Fyrir hönd Flugmálastjórnar sendi ég aðstandendum, eiginkonu hans, bömum og bamabömum inni- legustu samúðarkveðjur. Guðmundur Matthíasson Við fráfall Emsts Gíslasonar æskuvinar míns úr Vesturbænum rifjast upp samverustundir okkar á atvinnuleysis- og kreppuámnum fyrir 1940, og göngutúmm okkar niður Túngötu á leið niður í bæ, frá heimili Emsts við Bræðraborg- arstíg, en mínu við Hofsvallagötu. Þá deildum við með okkur draumum um betri og bjartari framtíð, m.a. drauminn um að komast í atvinnu- flug sem þá var að hefjast á ís- landi. Þá var það draumur að kom- ast í atvinnu og nám, úr fótboltan- um í KR sem var aðaláhuga- og tómstundagamanið. Áhugi til náms var ríkur í fari Emsts á þeim ámm atvinnuleysis, eymdar og volæðis. Leiðir okkar Emsts skildu, því er verr, þegar ég komst til náins að Laugarvatni og komst síðan að við Tollgæslu utan Reylqavíkur sem tollvörður í Vestmannaeyjum, á Seyðisfirði, Siglufirði og Ákranesi, og nokkmm ámm síðar til Reykjavíkur, eða árið 1942. Emst komst um svipað leyti til náms og ég og starfa við flugumferðarstjóm á Reykjavíkurflugvelli. Ég hitti þó Emst af og til er ég kom til Reykjavíkur af landsbyggðinni. Síðar frétti ég um giftingu og bam- eignir hans og Ingunnar, eftirlif- andi eiginkonu hans. Ég læt þessa fátæklegu upprifjun á æviminningum frá æsku okkar Emsts, af hallærisámnum fyrir stríð, lokið. Eftirlifandi eiginkonu og bömum sendi ég hugheilar jólakveðjur og samúðaróskir vegna fráfalls Emsts vinar míns. Megi hann hvfla í friði á þessari ljóssins hátíð sem nú stendur yfír þessa dagana. Páll Hannesson í dag kveðjum við flugumferðar- stjórar einn af traustustu og ágæt- ustu frumheijum starfsgreinar okk- ar á íslandi, Émst Gíslason yfirflug- umferðarstjóra. í skammdeginu, þegar lengri og bjartari dagar hefjast, hóf andi hans flug sitt til annarrar tilveru, það flug sem við öll eigum í vænd- um, aðeins óvíst hvenær. Þegar ólæknandi sjúkdóma ber að garði horfast hraustmenni í augu við staðreyndir, þakka góðar gjafír skaparans í þessari tilvist, taka því sem að höndum ber og að loknu um, enn eitt dæmið um hvað Sveinn heitinn lagði mikið af mörkum. Hér fyrir nokkrum árum var það svo að starfsmönnum slökkviliðsins var kennd enska og var þá ýmislegt rætt og kom þá fyrir að ýmis orð vöfðust fyrir mönnum, þá var það að Sveinn heitinn kom með réttu orðin og réttar þýðingar, alltaf tilbú- inn að hjálpa félögunum. Hann var sérstaklega vel að sér í enskri tungu. Hann starfaði fyrir bandaríska her- inn strax á stríðsárunum, þannig að lengi hafði hann starfað og haldið tryggð við sama atvinnurekanda. Sveinn tók að sér ýmis sérverkefni i starfinu og var sendur utan til náms í fræðum slökkviliðsins, einnig löngu og farsælu ævistarfi er aðeins góðs að vænta. Emst fæddist í Stavanger í Nor- egi og foreldrar hans yoru hjónin Gísli Jóhannesson frá Ólafsfirði, f. 1877 og Fríða Tómasdóttir frá Brattholti í Biskupstungum, f. 1888. Gísli lauk gagnfræðaprófi frá Möðruvallaskóla, búfræðingsprófí frá Hólaskóla, stundaði kennslu um hríð, en fluttist til Stavanger árið 1913 og starfaði þar um 6 ára skeið í skipasmíðastöð og við siglingar á fyrri heimsstyijaldarárunum. Hann lést 1. nóv. árið 1941. Fríða, móðir Emsts, var systir Sigríðar frá Brattholti, sem þjóðkunn varð af hetjulegri baráttu sinni gegn sölu Gullfoss í Biskupstungum og heim- sókn sinni til Reykjavíkur til að koma vitinu fyrir ráðamenn þjóðar- innar. Fríða hélt bömum sínum heimili eftir lát eiginmannsins og vann hörðum höndum, jafnt utan heimilis sem innan og lést 17. júní árið 1972. Emst var 5 ára gamall er hann fluttist með foreldrum sínum heim frá Noregi. Fjölskyldan bjó fyrst á Ránargötunni, en síðar við Hað- arstíg. Alsystkinin voru 4, Óskar f. 1917 (dó ungur), Gunnar f. 1919, starf- aði síðar lengi hjá Reykjavíkurhöfn, þá Emst f. 1921 og yngst Olga f. 1923. Þijá hálfbræður átti Emst frá fyrra hjónabandi Gísla, en af þeim er nú aðeins Þorbergur á lífi, 81 árs að aldri. Emst stundaði nám f Miðbæjar- skólanum og var síðan í kvöldskóla KFUM og náði mjög góðu valdi á ensku og íslensku, þó skólagangan yrði ekki löng á kreppuárunum, og hann ritaði stórglæsilega hönd, sem vakti sérstaka athygli og gefur oft fleiri mannkosti til kynna. Eftir fermingu vann hann að ýmsum mismunandi störfum, m.a. varhann þingskrifari Alþingis um vetur, þar sem hans góða rithönd naut sín vel. Síðari hluta vetrar árið 1948 sótti hann bóklegt námskeið í flugum- ferðarstjóm á vegum Flugmála- stjömar og var einn hinna fáu, sem að loknum prófum voru valdir til verklegs framhaldsnáms og hóf störf við flugumferðarstjómina í lauk hann við sémámskeið í faginu héma heima og var öll hans þátt- taka í því sem öðm honum og okkur öllum til mikils sóma. Sveins Ólafssonar verður lengi minnst í slökkviliðinu á Keflavíkur- flugvelli, nafn hans og verk hafa grópast fast og munu standa áfram öðrum mönnum til eftirbreytni og velfamaðar. Blessuð sé minning hans. Eiginkonu og öðrum ástvinum sendi ég mínar innilegustu samúðar- kveðjur á þessari saknaðarstundu. Guð styrki ykkur. Haraldur Stefánsson slökkviliðsstjóri, Keflavíkurflugvelli. Með örfáum orðum viljum við vakt- félagar Sveins minnast hans, kveðja og þakka góða samfylgd öll þau ár, sem við höfum fengið að starfa með honum í slökkviliðinu á Keflavíkur- flugvelli, þau hefðu orðið 25 í marz á næsta ári. Hans sérgrein var viðhald og við- gerðir á bifreiða- og tækjaflotanum sem slökkviliðið hefur til umráða. Þessari sérgrein sinnti Sveinn með sérstökum ágætum, hann hafði mikla reynslu fyrir sem hann átti mjög auðvelt- með að bæta við og aðlaga þeim öru breytingum sem átt hafa sér stað, einnig átti hann stór- an hlut í að betrumbæta og auka Reykjavík í júlímánuði 1948. Undir- ritaður hafði þá starfað þar í 2 ár og ég minnist þess hve fljótt komu í ljós ágætir hæfileikar Ernsts til þessa starfs. Traustvekjandi rödd í talstöðina og róleg yfirvegun vandasamra viðfangsefna, áður en ákvörðun var tekin. Ég á vissulega margar ljúfar minningar frá sam- starfi okkar, hlið við hlið, í miklum önnum við erfið starfsskilyrði, áður en nútímatækni flugsins kom til sögunnar. Ernst var við framhaldsnám í Atlanta í Bandaríkjunum, 1950- 1951 og varð einn af fyrstu rat- sjársérfræðingum Flugmálastjóm- ar, sótti einnig framhaldsnámskeið í þeirri grein í London og kenndi síðan öðrum flugumferðarstjórum hér á Fróni. Hann starfaði um hríð í flugtuminum á Keflavíkurflug- velli, einn fyrstu íslendinganna þar, en annars löngum í gamla flugtum- inum í Reykjavík, tumi og flug- stjómarmiðstöð, þar til starfsemin var flutt í nýrri flugtumsbygging- una, 1962—1963. Þar varð hann varðstjóri á efstu hæðinni, sjálfum tuminum, um árabil og jafnframt kennari og leiðbeinandi í ratsjár- málum. Síðar varð hann varðstjóri í flugstjómarmiðstöðinni þar til hann var valinn jrfirflugumferðar- stjóri kennslu og þjálfunar flugum- ferðarstjóra, sem hann annaðist um 10 ára skeið, eða til ársloka 1985. Við skipulagsbreytinguna í árs- byijun 1986 varð hann fyrsti yfir- flugumferðarstjóri skipulagssviðs flugumferðarþjónustu og gegndi því starfi þar til veikindin komu til sög- unnar, í febrúar 1988. Emst hafði áhuga fyrir félags- málum, var m.a. formaður Fél. ísl. flugumferðarstjóra árið 1973 er alþjóðaþing flugumferðarstjóra var haldið hér í Reykjavík og hefir lengi starfað í félagsskap frímúrara. Emst kvæntist eftirlifandi konu sinni, Ingunni H. Þorsteinsdóttur, 25. júní 1955 og þau eignuðust 5 mannvænleg böm, Þorstein f. 1956, sem er atvinnuflugmaður og starfar hjá flugfélaginu „ContinentaT í Bandaríkjunum, kvæntur Þórlaugu Daníelsdóttur, Öm f. 1958, nem- anda í tannlækningum, Gylfa f. 1961, flugumferðarstjóra, sem kvæntur er Þorbjörgu Jónsdóttur, Birgi f. 1965, nemanda í viðskipta- fræðum og Ásdísi, einu dótturina, augastein föður síns, f. 1969, lauk stúdentsprófi sl. vor og starfar nú hjá Eimskipafélagi íslands. Nú, að leiðarlokum, þakka ég og starfsbræðumir Emst Gíslasyni ágætt samstarf, þeir elstu um 40 ára skeið, við söknum vinar og góðs félaga. Innilegustu samúð okkar vottum við Ingunni, bömum þeirra, bama- bömum og öðmm vandamönnum. „Fljúgðu á vængjum morgunroðans meira að starfa guðs um geim.“ Valdimar Ólafsson öryggi tækja okkar, en þær breyt- ingar hafa náð langt útfyrir okkar slökkvilið. Sveinn var mikill hæfi- leikamaður, á eldstað var hann ætíð ein styrkasta stoðin, yfirvegaður eins og alltaf kunni hann einhver ráð ef eitthvað ætlaði að fara úr- skeiðis. Nærvera hans var okkur mikill styrkur í orðsins fyllstu merkingu. Hann er einn af fáum sem hafa verið valdir af okkur vinnufélögun- um, slökkviliðsmaður ársins. Kímni- gáfa hans var rík, léttur og skemmti- legur vinnufélagi sem gott var að umgangast. Sveinn bar tilfinningar sínar ekki á torg en við sem þekktum hann vissum að hann hafði hjartað á rétt- um stað. Þrátt fyrir hetjulega baráttu við þann erfiða sjúkdóm, sem Sveinn veiktist af fyrir tæpu ári, gat hún ekki endað nema á einn veg. Hann vissi að hveiju stefndi, lagði fastur og öruggur á brattann yfírvegaður eins og alltaf. Nú er hann lagður af stað í ferða- lagið mikla sem fyrir okkur öllum liggur, við biðjum Guð að gefa hon- um góða heimkomu í landi ljóss og friðar. Við vottum eiginkonu og öðrum aðstandendum innilega samúð. Minningin um góðan dreng er hugg- un í harmi. Vaktfélagar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.