Morgunblaðið - 30.12.1988, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1988
Hljómsveitin Ham, sem vakið
hefur athygli tónleikagagn-
rýnenda og þá ýmist fengið
mjög góðar viðtökur eða mjög
slæmar, kom nýverið til
landsins eftir að hafa leikið
með Sykurmolunum á fimm
tónleikum í Þýskalandi. í kjöl-
far þess berast svo fregnir
af því að One Little Indian,
útgáfufyrirtæki Sykurmol-
anna í Bretlandi, ætli að gefa
út tólftommu með sveitinni í
janúar/febrúar og svo stóra
plötu seinna á árinu.
Ham er um þessar mundir að
vinna að nýrri plötu í hljóðveri, en
á tólftommunni sem gefin verður
út ytra verður eitt nýtt lag, Crime,
og tvö eldri. Rokksíðan hitti þrjá
Hammeðlimi og staðgengil Sigur-
jóns í húsi í Hafnarfirði.
Segið mór frá þessari Þýska-
landsferð.
Hún var mjög góð að öllu leyti.
Þetta var glöð ferð, fallegt land,
Þýskaland og skemmtilegt fólk,
Þjóðverjar.
Hluti Ham neðanjarðar f Munchen. Ljósmynd/Schnellfoto
Fallegt land, Þýskaland
Skemmtilegtfólk, Þjóðverjar— Ham segirfrá Þýskalandsförm.m.
Hvernig voru viðtökurnar?
Það var baulað á okkur þegar
við vorum að spila og við vissum
ekki hvað það þýddi, en svo var
líka baulað á Sykurmolana, bara
miklu hærra. Það er óhætt að
segja að okkur hafi verið ótrúlega
vel tekið. Þess má geta að austur-
þýsk útvarpsstöð sýndi okkur mik-
inn áhuga, þannig að kannski eig-
um við eftir að spila í Austur-
Evrópu. Þá væntanlega fyrst í
Transylvaníu.
Náðuð þig einhverju sambandi
viö áheyrendur? Er einhver
þýskumælandi í hópnum?
Nei, það talar enginn okkar
þýsku, en við lærðum fljótt allra
nauðsynlegustu orð eins og „ein
bier“ og það sem skipti kannski
mestu máli „noch ein bier“. Við
horfðum náttúrurlega á áheyrend-
ur, en það var mikið af fötluðu
fólki fremst og það var upp og
ofan hvað því fannst. Þeir sem
voru fjærst hljómsveitinni virtust
skemmta sér best. Það kom fyrir
á einum stað að fólk dansaði.
Hvað með plötuna sem One
Little Indian gefur út?
Við hittum Derek Birkett (aðal-
eiganda One Little Indian) í Þýska-
iandi, en hann var með í ferðinni
til að byrja með. Við spurðum hann
hvort hann væri til í að gefa út
plötu með okkur og hann sagði „no
problem". Það kemur svo út tólf-
tomma í lok janúar og önnur fljót-
lega eftir það. Við förum sennilega
út í febrúar til að spila eitthvað.
Ég heyrði að það hefði bæst
við nýr meðlimur í hijómsveitina.
Já, Jón Egill Eyþórsson heitir
hann, fyrrverandi Besti vinur Ham.
Hann hefur spilað í nokkrum hljóm-
sveitum frá því hann var í Nef-
rennsli á sínum tíma. Hann kom
inn í sveitina eftir að Gunni hætti,
því þessi lög sem við erum með
núna verða að hafa tvo gítara. Það
kom vel fram á tónleikum í Berlín,
því þá datt út gítarmagnarinn hans
Sigurjóns og þá þurftum við að
reka Jón Egil af sviðinu og spila
göhnu lögin, sem var ekki það sem
við ætluðum okkur.
Þessi plata kynnir vonandi
sveitina i Englandi, en ég hef líka
heyrt að Ham só vi'ðar þekkt.
Já, platan okkar hefur víst verið
spiluð víða í Bandaríkjunum, enda
voru Sykurmolarnir iðnir við að
dreifa plötunni þegar þau voru á
sínu ferðalagi. Við fengum t.a.m.
bréf frá klæðskiptingi og fatafellu
í New York sem iýsti áhuga sínum
á að fækka fötum við tónlist okkar.
Við þetta má svo bæta þvi að
Ham heldur tónleika í Duus 12.
janúar næstkomandi og gefst þá
mönnum kostur á að fá að heýra
í hinum nýja gítarleikara. Hamar
hyggjast leika lög sem sveitin er
að vinna í hljóðveri þessa dagana,
en upphitunarsveit verður Wapp.
Forsala aðgöngumiða er í Gramm-
inu og hjá Smekkleysu s/rrP/f.
SIDAN
Mosi Irændi
allur
Hljómsveitin Mosi frændi
hefur vakið blendnar tilfinning-
ar á sínum ferli og ýmist hafa
menn verið hæstánægðir með
hana eða óskað henni alls hins
versta. Framanaf var uppistað-
an í dagskrá sveitarinnar paród-
íur, eða afskræmingar, á lögum
annarra tónlistarmanna og þá
gjarnan ætlaðar til að sýna
poppgoð í spespegli. Smám
saman náðu frumsamin lög þó
yfirhöndinni og sveitin sendi frá
sér eina kassettu og eina
smáskífu með lögunum Ástin
sigrar og Katla kalda
Ekki er langt síðan Mosi
frændi lagði upp laupana með
lokatónleikum í Norðurkjallara
MH, sumum til gleði en öðrum
til ama. Rokksíðan hitti að máli
einn af aðstandendum Mosa
frænda til að forvitnast um andl-
átið.
Hvers vegna hætta?
Ástæðan er fyrst og fremst
sú að við sjáum okkur ekki fært
að gefa Mosa frænda þann tíma
sem hann þarf. Okkur hefur alltaf
langað meira til að stefna uppá-
við en niöur eða beint áfram og
til að halda áfran að stefna upp
þyrftum við að gefa ýmislegt
annaö upp á bátinn og við erum
ekki reiðubúnir til þess. Það var
því fýsilegra að hætta núna frek-
ar en að standa í sömu sporum
öllu lengur.
Er það ekki með nokkurri eft-
irsjá sem Mosi frændi er lagður
í gröfina?
Jú, þetta hafa verið skemmti-
legir 1132 dagar sem við höfum
starfað saman og við erum allir,
get ég fullyrt, mjög ánægðir og
stoltir og þakklátir fyrir að hafa
verið Mosi frændi. Við erum þó
fegnir því að hætta núna og vera
ánægðir með allt sem við höfum
gert heldur en að halda áfram inn
í einhverja vafasama framtíð.
Finnst ykkur að Mosi frændi
hafi náð þeim markmiðum sem
menn settu sér f upphafi.
Já, við náðum öllum þeim
markmiðum sem við settum okk-
ur í upphafi, náðum þeim marg-
faldlega, enda voru þau mjög
hógvær. Ég held við getum verið
ánægðir með það sem við kom-
um í verk.
ELDHÚ SKRÓKURINN
Tveir veizluréttir
Tilvaldir í áramótaboðin
„Gratineraður“
kræklingur
Meirháttar forréttur
fyrir 6
1 stór dós kræklingur - IV2 dl
þurrt hvítvín -1 dl vatn -1 lítill
laukur - 4 heil svört piparkorn -
1 lítið lárviðarlauf -1 tesk. stein-
selja - 250 g sveppir - 50 g smjör
eða smjörlíki -1 meðalstór laukur
- 2-3 tómatar - 2 matsk. hveiti -
15 g smjör eða smjörlíki -1 eggja-
rauða - 3 matsk. ijómi - sítrónu-
safí - salt + pipar - 2-3 matsk.
brauðrasp (ólitað).
Skreyting: steinselja og sítróna.
Hvítvín, vatn, fínt saxaður
laukur, svört piparkom, lárviðar-
lauf og steinselja soðið í um 10
mínútur. Síðan síað. Á meðan það
mallar skerið þá sveppina í fjórð-
unga, saxið stærri laukinn og lát-
ið krauma í smjörinu á pönnu.
Bætið svo tómötunum út á pönn-
una og látið krauma áfram í fáein-
ar mínútur.
Komið suðunni upp á síaða leg-
inum og jafnið með smjörbollu úr
smjöri og hveiti. Látið malla við
vægan hita í 5 mínútur. Hrærið
saman eggjarauðuna og 3 matsk.
rjóma og bætið út í jafninginn.
Kryddið eftir smekk með salti og
pipar.
Látið renna af kræklingnum
og deilið honum síðan ásamt
sveppa-jukkinu í litlar eldfastar
skálar eða diska. Hellið sósunni
yfír og stráið brauðraspi ofan á
(helzt úr tvíbökum). Svona má
undirbúa réttinn, og þá er ekkert
eftir nema bregða honum í 10-15
mínútur í 220 gráðu heitan ofn.
Skreytið svo með þunnri sítrónu-
- sneið og smá steiriseljukvisti ef
vill áður en rétturinn er borinn á
borð.
Gómsætur ábætisréttur
Appelsínusalat með
jarðarbeijum og Grand
Marnier líkjör, fyrir 6
6 appelsínur - V2 kg fryst jarð-
arber - 3 matsk. Grand Marnier-
líkjör - sykur eftir smekk - 3-4
matsk. nýpressaður appelsínusafí
- þeyttur ijómi.
Afhýðið appelsínurnar og fjar-
lægið allt þetta hvíta. Skerið app-
elsínumar í þunnar sneiðar og
látið í skál með hálf-frosnum, nið-
urskornum jarðarbeijunum. Notið
nokkur jarðarber til að „músa“
með líkjörnum, appelsínusafanum
og dálitlum sykri, og hellið þessu
yfir.
Gott að láta réttinn standa í
ísskáp í um klukkutíma. Svo er
hann borinn fram með ískældum
þeyttum ijóma. Þeir sem vilja
geta að sjálfsögðu stækkað líkjör-
skammtinn.
Verði ykkur að góðu!
Að lokum vil ég svo þakka fyr-
ir öll bréfin og upphringingarnar
á árinu sem er að líða og vona
að framhald verði á okkar góðu
samvinnu. Mínar beztu óskir um
heillaríkt komandi ár ykkur til
handa.
Með kveðju,
Jórunn.