Morgunblaðið - 30.12.1988, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 30.12.1988, Qupperneq 52
SÍMANÚMER m 606600 Verslunardeild SÍS: Tuttugu sagt upp TUTTUGU manns var sagt upp hjá verslunardeild Sambands islenskra samvinnufélaga í gær. Auk þess kom fram að tveir til þrír aðrir starfsmenn höfðu áður sagt sjálfir upp störfiim, þar á meðal Snorri Egilsson, aðstoðar- firamkvæmdastjóri deildarinnar, sem sagði upp um mánaðamót. Auk þess sem almennu starfsfólki fækkaði var yfirstjóm deildarinnar dregin saman, og meðal annars Sig- urði Jónssyni markaðsstjóra sagt upp. Ólafur Friðriksson, fram- kvæmdastjóri verslunardeildarinnar, segir að ekki sé ætlunin að ráða aft- ur í stöðu hans eða aðstoðarfram- ,.kvæmdastjóra. Ólafur taldi ekki tímabært að skýra frá frekari hagræðingu í rekstri deildarinnar. Ekki væri þó á döfinni að leggja niður neinar af rekstrareiningum hennar. Síðustu dagar gömlu bílnúmeranna: Lágu núm- erin boðin á gjafverði MIKIÐ hefiir verið um það að menn reyni að koma gömlum tveggja eða þriggja stafa bilnúm- erum í verð síðustu daga, að sögn bílasala sem Morgunblaðið hafði samband við. Síðustu forvöð að setja númer af gömlu gerðinni á bíla eru i dag, og bjóða menn þau þess vegna föl á margfalt lægra verði en áður. „Tveggja eða þriggja stafa Reykjavíkumúmer eru núna boðin á 15 - 20.000 krónur, en voru ekki föl nema fyrir allt upp í 150.000 krónur áður en breytingin yfir í fastnúmerakerfí ' var ákveðin," sagði starfsmaður á einni bílasöl- unni, en þar höfðu fjölmargir fal- boðið lág númer í gær og fyrradag. Að sögn bílasala er eftirspum eftir gömlu númerunum í engu sam- ræmi við framboðið; það eru helst fáeinir eigendur fombíla, sem eru á höttunum eftir lágum númerum þessa dagana. Fáir aðrir sækjast eftir þeim, enda má ekki flytja núm- erin milli bfla eftir áramótin og það verða því fá ár enn sem menn halda þeim. „Menn hafa haldið í þessi númer pg haldið að breytingin myndi taka lengri tíma en raun varð á. Núna er þetta að skella á og þá reyna menn í flýti að Josa sig við lágu númerin," sagði Ámi Sveinsson hjá Bflakjörum. Bylgjan ágaflinn Þrjátíu fermetra málverk af vél- bátnum Bylgjunni piýðir nú hús- gafl útgerðarhússins við Strand- veg í Vestmannaeyjum.Á mynd- inni er listamaðurinn Jóhann Jónsson að ljúka við málverkið í brúnni en við hluta útimálverksins stendur skipstjórinn og útvegs: bóndinn Matthías Óskarsson. í fjarska á málverkinu eru Elliðaey, Eyjafjallajökull og Bjamarey. Sjá frásögn á bls. 5 FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1988 VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR. Banaslys á Gufunesvegi Morgunblaöið/JúHus IBANASLYS varð á Gufiinesvegi við Reykjavík í gærkvöldi, þegar tveir bílar lentu þar saman. Ökumaður annars bílsins, 58 ára gömul kona, lést á leið á sjúkrahús, en ökumaður hins slapp lítið meiddur og fékk að fara heim að lokinni skoðun á sjúkrahúsi. Areksturinn varð klukkan 18.54 i gærkvöldi, á Gufunesvegi skammt ofan við Grafarvog. Ekki er vitað um tildrög þess að bílarnir, sem voru af Mazda og Volvogerð, óku saman, en árekst- urinn var mjög harður. Samband almennra lífeyrissjóða: Skuldabréfum Atvinnu- tryffgingarsjóðs hafnað 0 Onógar tryggingar og of lágir vextir Framkvæmdastjórn Sambands almennra lífeyrissjóða hefur lagt til við lífeyrissjóðina að þeir kaupi ekki skuldabréf Atvinnutryggingar- sjóðs útfiutningsgreina. Ástæðurnar eru þær að skuldabréfin eru ekki með ríkiiábyrgð eða tryggð á annan viðunandi hátt og að þau bera of lága vexti, eða 5% umfram verðtryggingu. Lffeyrissjóður sjómanna hefur þegar hafnað skuldabréfakaupum vegna skorts á ríkisábyrgð. Þetta kemur fram f nýju firéttabréfi SAL, sem dreifit var í gær. Framkvæmdastjóm SAL ákvað á fundi skömmu fyrir jól að leggja til við lífeyrissjóðina „að þeir hafni skuldbreytingum með þeim hætti sem kveðið er á um í reglugerð At- vinnutryggingarsjóðs útflutnings- greina," segir í fréttabréfínu. Tvíþættar skýringar eru gefnar, annars vegar að lánin séu ekki með ríkisábyrgð, hins vegar að ávöxtun þeirra sé ekki næg. Atvinnutryggingarsjóður á að ábyrgjast lánin með eignum sínum. Um það segir svo í fréttabréfí SAL: „Samkvæmt reglugerðum lífeyris- sjóða skortir algjörlega heimildir að taka við slíkum bréfum. Lífeyrissjóð- um er því óheimilt að taka við skulda- bréfum Atvinnutryggingarsjóðs til lúkningar iðgjaldaskuldum, án þess að til frekari ábyrgðar komi, t.d. ríkis- eða bankaábyrgðar. Tekið skal fram að Lífeyrissjóður sjómanna hef- ur fyrir sitt leyti hafnað öllum skuld- breytingum vegna skorts á ríkis- ábyrgð." Um ávöxtunina segir í fréttabréf- inu: „Skuldabréf Atvinnutryggingar- sjóðs eru verðtryggð, - lánstfminn er 6 ár en vextir eru aðeins 5%. Talið er að hægt sé að selja þessi skuldabréf á verðbréfamarkaði með 20-25% afföllum. Ljóst er að vaxta- kjör þessara skuldabréfa eru í ósam- ræmi við þá raunvexti sem almennt bjóðast á fjármagnsmarkaðnum. Má í því sambandi geta þess að í ný- gerðu samkomulagi lífeyrissjóða við stjómvöld var samið um 6,8% fasta vexti til 15 ára en sambærileg bréf til skemmri tíma bera hins vegar almennt enn hærri raunvexti." • Hrafn Magnússon framkvæmda- stjóri SAL sagði í samtali við Morg- unblaðið að ekki væri fært fyrir lífeyrissjóðina að kaupa skuldabréf Atvinnutryggingarsjóðs með þessum skilmálum. „Það er alveg ljóst að jafhvel þótt viðunandi ábyrgðir fengj- ust, þá mun þessi ávöxtun standa í lífeyrissjóðunum," sagði Hrafn. Grafarvogur: Sækja um lóðir undir iðnað á hafiiarsvæði BJÖRGUN hf. og Ármannsfell hafa sótt um lóðir undir léttan iðnað í Grafarvogi. Á því svæði er sótt er um er gert ráð fyrir hafnarað- stöðu samkvæmt aðalskipulagi. Reykjavíkur og því síðan frestað. Svæðið sem hér um getur nær frá núverandi hafnaraðstöðu Björg- unar og Sementsverksmiðjunnar og fram undir Gullinbrú. Hannes Valdimarsson aðstoðarhafnarstjóri segir að hafnaryfirvöld í Reykjavík séu ekki tilbúin að svo komnu máli að láta þetta svæði undir annað en hafnaraðstöðu eins og gert er ráð fyrir í aðalskipulagi og því hafí málið verið lagt til hliðar í bili. „Það þarf að fara fram mat á Málið var kynnt í hafnarstjórn því hvort þau hafnarsvæði önnur, sem til eru eða áformuð, muni duga á þeim tíma sem aðalskipulagið nær til áður en við getum tekið ákvörð- un í þessu máli,“ segir Hannes. „Ljóst er að samkvæmt tillögum Björgunar og Ármannsfells um þetta svæði er ekki gert ráð fyrir neinum hafnarrekstri á því.“ Aðaðskipulagið sem hér um ræð- ir nær yfir árin 1984 til 2004.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.