Morgunblaðið - 04.02.1989, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.02.1989, Blaðsíða 1
48 SIÐUR OG LESBOK 29. tbl. 77. árg. LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 1989 Prentsmiðja Morgnnblaðsins Tékkóslóvakía: Þrengt að flokknum ^ Vín. Reuter. Á ANNAÐ þúsund tékkneskir listamenn hafa ritað nöfa sin und- ir áskorun þess eftiis, að andófs- maðurinn Vaclav Havel verði Moskvuháskóli: Nafti Súsl- ovs útmáð Moskvu. Reuter. VEGGSKJÖLDUR með nafiii Mikhaíls Súslovs, helsta hug- myndafræðings sovéska komm- únistaflokksins í valdatið Leoníds heitins Brezhnevs, hefur verið fjarlægður af einni af byggingum Moskvuháskóla. Dagblaðið íz- vestía, málgagn Sovétstjórnarinn- ár, skýrði frá þessu á fimmtudag. „Þetta er öldungis sanngjamt. Súslov átti engan þátt í þróun þess- arar miklu menntastofnunar," hafði blaðið eftir kennara einum við há- skólann. I fréttinni sagði að skjöldur- inn hefði verið fjarlægður í samræmi við þá ákvörðun stjómvalda að aftur- kalla sérstaka samþykkt miðstjómar flokksins frá árinu 1982 þar sem Súslov var óspart lofaður fyrir fram- göngu sína á vettvangi sovéskra stjómmála. Súslov, sem lést árið 1982, var annálaður harðlínukommúnisti og gekk næstur Brezhnev að völdum. Súslov átti þátt í því að koma Níkíta Khrústsjoff til valda árið 1957 og hann gekk jafnframt vasklega fram er flokksfoiystan ákvað að velta Khrústsjoff úr sessi sjö árum síðar. leystur úr haldi og stjórnvöld taki upp viðræður við stjórnarandstöð- Fjörutíu listamenn, sem hingað til hafa verið þóknanlegir yfírvöldum, áttu í fyrradag fund með Miroslav Stepan, formanni ' kommúnista- flokksins í Prag, og ræddu við hann um áskorunina. Voru upphaflega 692 nöfn undir henni en síðan.hafa nokk- ur hundruð manna bæst við og fjölg- ar enn. Listamennimir segja, að Stepan hafi sagt, að viðræður við andstæð- inga sósíalismans væm út í hött. „Hvergi í heimi fyrirfinnst sá flokkur eða forystumenn, sem vilja afsala sér völdum þegjandi og hljóðalaust," höfðu þeir eftir honum. Segja andófsmenn, að straum- hvörf séu að verða í baráttunni gegn einræði kommúnistaflokksins. Nú sé fólk, sem starfar innan sjálfs kerfis- ins, farið að þora að láta í sér heyra. Reuter Hermaður gefur sigurmerki með fingrunum eftir að byltingarmenn innan hersins höfðu náð á sitt vald bækistöðvum forsetalifvarðarins. Alfredo Stroessner, sem ráðið hafði ríkjum í Paraguay I 24 ár, var rekinn frá völdum og foringi uppreisnarmanna, Andres Rodriguez hershöfðingi, heftir tekið við forsetaembættinu. Stroessner steypt af stóli í Paraguay: Heita að koma á lýðræð- islegfum stj órnarháttum Asuncion. Reuter. HERBYLTING var gerð í Paraguay i fyrrinótt og Alfredo Stroessner forseta og einræðis- Mílanó í mengunargreipum Reuter f Mílanó á Ítalíu er mengunin svo mikil, að hún er jafnvel talin geta verið lífshættuleg heilsuveilu fólki, einkum í iðnaðarhverfum norður- borgarinnar. Mengunin kemur frá bflum og verksmiðjum og er í sjálfri sér ekkert meiri en venjulega en nú vill svo til, að í borginni og ná- grenni hennar hefur ekki hreyft vind í langan tíma. Af þeim sökum hefur óþverrinn ekki borist í burt. Götusóparinn á myndinni vinnur verkin sín með öndunargrímu fyrir vitum og svo er einnig með marga aðra Mílanóbúa. herra steypt af stóli. Herforingj- arnir, sem tóku völdin, segjast ætla að koma á lýðræðislegum stjórnarháttum en Stroessner, sem ríkt hafði í 34 ár, er hafður í haldi í herbúðum í höfiiðborg- inni, Asuncion. Leiðtogi bylting- armanna, Andres Rodriguez hershöfðingi, sór í gær embættis- eið sem forseti og almenningur í Paraguay fagnaði fréttinni um forsetaskiptin með þvi að dansa á götum úti. í yfírlýsingu frá Rodriguez hers- höfðingja og forsprakka byltingar- mannanna kvaðst hann hafa steypt Stroessner „í nafni lýðræðisins" en sjónarvottar segjast hafa séð lík 12 manna eftir átökin í fyrrinótt milli uppreisnarmanna og lífvarða for- setans. Útvarpsstöðvar skýrðu frá því, að verið væri að leita uppi alla helstu stuðningsmenn Stroessners en að Sabino Augusto Montanaro innanríkisráðherra hefði leitað hæl- is í sendiráði Suður-Afríku í Asunc- ion. Útvarpsstöð kaþólsku kirkjunn- ar sagði einnig, að Stroessner yrði sendur í útlegð til Chile en utanrík- isráðuneytið þar í landi vildi ekki staðfesta, að borist hefði bón þess efnis. í Asuncion, einu stórborginni f Paraguay, búa um 700.000 manns og tóku borgarbúar tíðindunum með miklum fögnuði. Var dansað og sungið á götum úti enda Stroessner og stjóm hans helst kunn fyrir mannréttindabrot og fyr- ir að skjóta skjólshúsi yfír þýska stríðsglæpamenn. Þeir, sem stóðu að byltingunni, voru eins og fyrr segir Andres Rodr- iguez hershöfðingi og klofnings- hópur úr stjómarflokknum, Col- orado-flokknum. Dóttir Rodriguez er raunar gift syni Stroessners en haft er eftir heimildum, að Stroessner hafi verið búinn að ákveða að setja Rodriguez, sem er 64 ára að aldri, á eftirlaun. Marlin Fitzwater, talsmaður Bandaríkjastjómar, sagði í gær, að hún fylgdist grannt með þróun mála í Paraguay og vonaði, að nýir stjómendur stæðu við yfirlýsingar sínar um aukið lýðræði í landinu. Þjóðarleiðtogar í Rómönsku Ameríku, sem nú eru margir í Caracas vegna embættistöku Carl- os Andres Perez, forseta Venezú- ela, tóku í sama streng. Sjá „Valdaskeiðinu lauk . bls. 20. “á Grænlendingar í Washington: Vilja traust samstaif við Bandaríkjamenn Washington, KaupnuuinahBlh. Frá ívari Guðmundaayni og Nils JBrgfen Bruun, frétta- riturum Morgunblaðsins. JONATHAN Motzfeldt, formaður grænlensku landstjómarinnar, hefiu* hvatt til þess á fimdi með George Bush, Bandaríkjaforseta, og forystumönnum á Bandarfkjaþingi, að Bandaríkjamenn breyti engu í rekstri flugvallarins i Syðri-Straumfirði. Þá vilja þeir endur- skoða vamarsamninginn við Bandarfldn frá 1951 þannig, að tekið sé tillit til skoðana grænlensku heimastjómarinnar en þegar samn- ingurinn var gerður var Grænland nýlenda Dana. Jafhframt sýndu Grænlendingar áhuga á að svoneftidur varaflugvöllur yrði lagður á Austur-Grænlandi. Eftir fundina í Washington á fimmtudag sagði Jonathan Motz- feldt, að auk viðræðna við banda- ríska ráðamenn hefði hann notað ferðina til að vinna markaði fyrir grænlenskar þorskafurðir. Hefði hann haft samband við umsvifa- mikinn fiskinnflytjanda og sagði, að kanna mætti, hvort unnt væri að flytja fiskinn til Bandaríkjanna í samvinnu við íslendinga. Bandaríkjamenn hafa dregið saman seglin á Grænlandi og með- al annars lokað einni stöð í DEW- ratsjárkeðjunni og hafa uppi ráða- gerðir um að loka annarri. Vilja grænlensk stjómvöld spoma gegn því að sparnaðaráform Bandaríkja- stjómar komi niður á flugvellinum í Syðri-Straumfirði. Á blaðamanna- fundinum sagði Motzfeldt, að við athugun á vamarsamningnum yrði að líta á hve Grænlendingum væri brýnt að búa við öruggt samgöngu- kerfi, sem raskaðist ekki þótt Bandaríkjamenn drægju úr starf- semi sinni. í för með Motzfeldt í Banda- ríkjunum voru Lars Chemnitz, for- seti landsþingsins, og Lars Vester- brik, æðsti embættismaður land- stjómarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.