Morgunblaðið - 04.02.1989, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 04.02.1989, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 1989 fclk í fréttum lctljnJ'i yok*nic tuiurc IkIie* u» fnváy rtame !l» peopic art 'v;ir~. natura) hof wai«r (ÍIi* outóxn vwintmim poois. #ml evcn thc tconomy i* mxrhatiiitp Jmi * throw frcm thc Arriic C.irdr, Osthertn* Bouiscr ihuwcd nmtcr Ihc mUinight sun. PJuxojiaplu hy Boh Krist ►•**- Istmd multli BRETLAND: „Það er hlýtt á íslandi og þar er margt að sjá“ - segir í grein í The Sunday Telegraph St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðarí Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðs- ins. Það er hlýtt á íslandi, fólkið gott i viðkynn- mgu og þar er margt að sjá,“ segir í grein um ísland í blauð- auka The Sunday Telegrapb síðastliðinn sunnudag. Blaðamaður blaðsins segir í ferðadálki, að ísland sé land nútfmans, þar sé vöxtur í öllum hlutum og á síðustu árum séu jafnvel trén farin að teygja sig hærra en áður. í aðalverslunar- götu Reykjavíkur megi sjá merki þess mikla vaxtar, sem sé f efna- hagslífínu. I greininni er sagt í örstuttu máli frá aðalatriðunum í sögu lands og þjóðar og þeim land- kostum, sem fískimiðin eru. Þess er getið, að ísland hafí verið fá- tækt land vel fram á þessa öld, en sé nú í hópi ríkustu þjóða. Það sé vel þekkt með fátæklinga, að þeir séu ákafír í að njóta nýfeng- ins auðs, og það eigi einnig við um íslendinga. Fólk vinni mikið og margir hafí tvö störf til að uppfylla ströngustu kröfur um lífsgæði. Unglingar taki sér gjama aukastörf til að afla sér tekna og það komi niður á skóla-> náminu. Þess er getið, að nú ríki verð- stöðvun, ýmsar blikur séu á lofti í atvinnulífinu og verðbólgan á þessari eyju sé eins og kraumandi jarðeldur. En það er haft eftir Asgeiri Sverrissyni, blaðamanni á Morgunblaðinu, að fólk hafí á til- fínningunni, að þetta sé ekkert nýtt. Það sé hins vegar meiri ástæða til að hafa áhyggjur af framtíð þjóðarinnar eftir 1992. Sagt er, að þjóðin sé veisluglöð þrátt fyrir stefnu ríkisvaldsins í áfengismálum, sem sé arfleifð öflugrar góðtemplarareglu, en 1. mars næstkomandi fái landsmenn að drekka bjór í fyrsta skipti síðan 1915. Þar megi iíka fínna íslenskt brennivín, sem menn drekki án nokkurs tillits til næsta dags. Blaðamaður The Sunday Te- legraph greinir frá herferð til að græða landið, Þingvöllum, heitu hverunum og hitaveitunni. í lokin er lögð áhersla á sterka þjóðemis- vitund íslendinga. Með greininni fylgja stórar lit- myndir frá Svaitsengi, Vest- mannaeyjum, Reykjavík og Skógafossi. HRAU STMENNI SUNDSPRETTURIPO-FLJOTI Tórínó. Frá Brynju Tómer, fréttaritara Morgunblaðsins Mikil veðurblíða hefiir verið í vetur á Ítalíu, enda hefur lítið snjóað í Norðurhlutanum og lítið rignt á Suður-Ítalíu. Það mælir þess vegna ekkert á móti því að stinga sér til sunds í Pó- fljótinu um miðjan vetur. Eða það finnst „ísbjörnunum" að minnsta kosti ekki. Hópur sundfólks í Tóríno, sem kallar sig „ísbimina", hefur haft það fyrir venju í 90 ár að stinga sér til sunds í Pó-fljóti síðasta sunnudag í janúar. „ísbimimir" brugðu ekki út af venjunni í ár og á sunnudaginn mátti sjá 60 manns á svamli í menguðu fljótinu. „Ifyrir 90 árum voru aðeins þijú hraust- menni í borginni sem stungu sér til sunds hér,“ segir einn „ísbjöm- inn“ stoltur. „í dag erum við hins vegar 60, sá elsti, Ademaro Sco- velli, er áttræður og sú yngsta, Roberta Panaretto, er aðeins sex ára.“ „ísbimir" á svamli í Pó-fljóti. Morgunblaðið/Bryiya Tomer „ísbimimir" voru sammála um að í ár væri vatnið óvenju heitt. „En það skiptir ekki máli hvemig veðrið er, við gerum þetta á hveiju ári meðan yfírvöld gefa okkur leyfí til þess,“ segja bimimir. Pó-fljótið, Iengsta fljót á Ítalíu, á upptök sín við rætur fjallsins Mon Viso. Það rennur 652 kílómetra leið um ger- valla Norður-Italíu og til sjávar í Adríahaf. Raquel Welch var kyntákn í kvikmyndum en hefur nú snúið sér að annarskonar hlutverkum. Nýleg mynd af Raquel Welch. ÞRIÐJI SKILNAÐURINN Raquel og André skilin Eftir átta ára hjónaband eru þau Raquel Welch, 48 ára, og hinn franski André Weinfeld, 42 ára, skilin að skiptum. André er oftast í New York að skrifa handrit en Raquel að leika í kvikmyndum hér og þar. Þannig hefur það verið síðastliðin ár. Að sögn Raquel hefur hjónaband þeirra aldrei verið neitt „venjulegt" og gráti þau ekki skiln- aðinn. „Kærleikurinn getur varað allt lífíð þvort sem maður er giftur eður ei. Ég trúi á þann lífsmáta sem hjónabandið býður upp á, jafnvel þó að ég sé að skilja í þriðja skipti," segir Raquel. Hún hefur hjálpað André að koma undir sig fótunum sem kvikmyndaframleiðanda og handritahöfund. Nú hefur honum gengið allt í haginn og segja illar tungur að hann þurfí ekki lengur á Raquel að halda til þess að koma sér á framfæri. Raquel Welch er fögur kona og hafa bæði karlar og konur sþurt hana um leyndarmál fegurðarinnar. Er það líkamsrækt og fegmnarað- gerðir eins og hjá flestum? Nei, því þvemeitar Raquel. „Fegurðin kem- ur innan frá. Hugleiðsla gefur mér styrk og kemur mér í það jafnvægi sem er nauðsynlegt," segir hún. Um árabil lék Raquel fagrar kon- ur og fávísar en í kvikmyndum frá því í lok síðasta áratugar fór að kveða við annan tón. Þar fyrir utan kom hún aðallega fram í leiknum sjónvarpsþáttum. í nýjustu kvik- myndinni, „Síðasta árstíðin" er hún í hlutverki miðaldra konu með MS-sjúkdóm sem situr í hjólastól. COSPER COSPER 10730 —Þú getuyr ekki hætt.gestimir hafa skipt um skoðun, þeir vilja fá niðursoðna sfld en ekki steikta rauðsprettu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.