Morgunblaðið - 04.02.1989, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 04.02.1989, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 1989 AF INNLENDUM VETTVANGI AGNES BRAGADÓTTIR Framtíð Amarflugs: Meirihluti ríkisstjórnar vill tryggja félaginu líf VANDKVÆÐI og rekstrarörðugleikar Amarflugs eru enn að velkjast í meðforum ríkisstjórnarinnar, en heimildir Morgun- blaðsins herma að meirihluti ríkisstjómarinnar vilji tryggja félag- inu líf. Þar með er líklegast að stoðum verði rennt undir rekstur Arnarflugs, með aukningu hlutafjár og stóraukinni aðstoð ríkis- ins, miðað við það sem hingað til hefur verið rætt um. Þetta verður þó ekki nema ríkisstjórnin sannfeerist um getu félagsins til þess að leggja sitt af mörkum til að rétta við hag sinn. Samkvæmt mínum heimildum kynnti Steingrímur J. Sigfússon samgönguráðherra nýtt bréf og upplýsingar frá forsvarsmönnum Amarflugs á ríkisstjómarfundi á fimmtudag. Þar mun hafa verið greint frá því að Amarflug treysti sér til þess að auka hlutafé félags- ins um 60 milljónir króna, jafn- framt' því sem tryggt væri að hollenska flugfélagið KLM myndi gefa fyrirtækinu eftir 40 milljóna króna skuld. Því væri óskað eftir því að ríkið legði sitt af mörkum, svo tryggja mætti áframhaldandi rekstur félagsins og var farið fram á meiri fyrirgreiðslu en hing- að til hefur verið rætt um, eða 150 milljóna króna hlutaflárfram- lag, auk þess sem 150 milljóna króna skuld félagsins við ríkið væri afskrifuð. í ríkisstjóminni mun vera meirihlutavilji fyrir því að tryggja megi áframhaldandi rekstur Am- arflugs, en einna harðastur and- stæðingur þessa mun vera Steingrímur J. Sigfússon sam- gönguráðherra sem hallast frem- ur að því að Flugleiðir yfírtaki rekstur Amarflugs með einum eða öðmm hætti. Ákveðið hefur verið í ríkis- stjóminni að samgönguráðherra hefli viðræður við Flugleiðir, til þess að kanna afstöðu fyrirtækis- ins til sammna fyrirtækjanna, yfirtöku Flugleiða á Amarflugi eða samstarfs féiaganna tveggja, án nokkurra skuldbindinga um framhaldið. Þetta var ákveðið að yrði eins konar millileikur, meðan beðið væri eftir endanlegum, full- nægjandi svömm frá Amarflugs- mönnum. Að mati ríkisstjómarinnar em svör þau sem borist hafa frá KLM ekki fullnægjandi, að því leyti að ekki liggur fyrir hvort þessi 40 milljóna króna skuld Amarflugs við KLM verður felld niður eða hvort henni verður skuldbreytt. Jafnframt vill ríkisstjómin fá frekari skýringar á því hvað átt er við þegar KLM býður Amar- flugi upp á afsiátt. Auk þess vili ríkisstjómin fá úr því skorið hvort hlutafjárlof- orðin sem safnast hafa em gild og þar með hvort þessar 60 millj- ónir muni skila sér inn í rekstur- inn. Ástæða þessarar kröfu ríkis- stjómarinnar er einfaldlega sú, að enn em tugir milijóna óinn- heimtir af fyrri hlutaQárloforðum. Ráðhermm Framsóknarflokks- ins og Aiþýðuflokksins hefur að undanfömu verið það nokkurt gamanefni, hversu mjög ráðherr- ar Alþýðubandalagsins, og þá einkum Steingrímur J. Sigfússon samgönguráðherra hafa haliast á sveif með Flugleiðum í þessu máli og hafa í því sambandi riflað upp sín á milli stóiyrði allaballa í gegnum tíðina í garð „stórkapí- talisma Flugleiða og Eimskips". Meirihluti ríkisstjómarinnar er hins vegar þeirrar skoðunar að ákjósanlegt væri fyrir íslenskt þjóðfélag, að hér væri til flutn- ingafyrirtæki til þess að koma í veg fyrir allsheijar einokun „Flug- leiðaklíkunnar" eins og það var orðað. Þessi sami meirihluti telur jafn- framt að til þess að koma megi í veg fyrir allsheijar einokun á sviði vöm- og fólksflutninga til og frá landi, og vísa þar með til Flug- leiða og Eimskips, gæti verið full ástæða til þess að kanna hvort með einum eða öðmm hætti væri hægt að ná fram nánu samstarfi á milli Arnarflugs og t.d. Skipa- deildar SÍS, en það mál mun þó varla komið á rekspöl, þótt ákveð- inn vilji sé vissulega fyrir hendi. Ráðherrar í ríkisstjóminni telja jafnvel koma til greina að þessi tvö fyrirtæki myndi með sér eitt félag. Því sé það þess virði að kanna hvort einhveijir slíkir aðilar vildu koma að málinu og leggja fram meira fé. Þó em vissar efasemdir meðal ráðherra, sem vilja sjá hag Amar- flugs borgið. Benda ákveðnir ráð- herrar á að upplýsingagjöf for- stöðumanna Amarflugs hafi eng- an veginn verið sem skyldi, á meðan þetta mál hafí verið til umfjöllunar innan ríkisstjómar- innar, allt frá sl. hausti. Sagt hafi verið að fjárþörfín væri 90 milljónir króna. Bent er á að upp- lýsingar um áætlaða afkomu fé- lagsins á þessu ári hafi verið rang- ar. Þá hafi þeir gefið rangar upp- lýsingar um heildarskuldir fyrir- tækisins. Auk þess hafi þeir greint frá því að það væm góðar horfur á að nýir hluthafar frá Þýskalandi vildu fjárfesta í fyrirtækinu, en það hafí gengið til baka. Þeir hafí jaftiframt verið vongóðir mjög um að KLM vildi koma inn- í reksturinn, en það hafi ekki komið á daginn, fyrr en Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra hafí átt viðræður við forstjóra KLM í Hollandi í síðasta mánuði að slíkt var alls ekki á döfinni hjá KLM og áhugi fyrirtækisins fyrir slíku væri eng- inn. Þeir ráðherrar ríkisstjómarinn- ar, sem þrátt fyrir ofangreint vilja koma fótunum undir Amarflug á nýjan leik, segja sem svo: Fyrir- tækið er gjaldþrota. Því er fleytt áfram af ríkissjóði frá degi til dags. Það sem nú blasir við er að taka af skarið um hvort hér eigi tvö flugfélög að starfa hlið við hlið og í samkeppni hvort við annað, og líkast til verður það niðurstaðan, þar sem það er vilji meirihluta ríkisstjómarinnar. Kvöldmess- ur í Hall- grímskirkju ÁKVEÐIÐ hefur veríð að bjóða að nýju til guðsþjónustuhalds I Hallgrímskirkju klukkan 17.00 á sunnudögum, auk venjubundinn- ar guðsþjónustu klukkan 11.00. Þetta er m.a. gert til að koma til móts við þá sem ekki hafa tök á að sækja guðsþjónustu á hefð- bundnum tímum. Hér er um að ræða guðsþjón- ustur með altarisgöngu og stuttri hugleiðingu. Fyrsta kvöldguðsþjón- ustan að þessu sinni verður sunnu- daginn 5. febrúar og hefst eins og fyrr segir klukkan 17.00. Myndasýning í Hafiiarborg LJÓSBROT, félag áhugamanna um ljósmyndun í framhaldsskól- um, stendur fyrir ljósmyndasýn- ingu sem opnuð verður í Haftiar- borg í dag laugardaginn 4. febrú- ar. Á sýningunni verða á annað hundrað ljósmynda eftir félags- menn víða af landinu. Sýningin verður opin frá klukkan 14.00— 19.00 alla daga nema þriðjudaga og henni lýkur sunnudaginn 19. febrúar. Breyting á akstri leiðar 2 BREYTJNG verður gerð á akstri leiðar 2 Grandi-Vogar, mánudag- inn 6. febrúar nk. Tímajöfnun á kvöldin og um helgar flyst frá Hlemmi að Lækjar- torgi og er þar með færð til baka breyting sem gerð var 9. janúar sl. Vagnamir hafa biðstöð í Hafnar- stræti í sama stæði og leið 16 hef- ur endastöð til um klukkan 19.00. (Fréttatílkynning) Leiðrétting MISSAGT var 1 dagskrárblaði Morgunblaðsins í gær að kamm- ertónleikar íslensku hljómsveitar- innar ættu að vera kl. 12.30 á sunnudag. Hið rétta er að tónleik- amir eru kl. 16.00 í Menningarmið- stöðinni Gerðubergi. Morgunblaðið biðst velvirðingar á þessum mistök- um. Fríkirkjan Hafnarfirði: Sunnudaga- skólinn í ferðalag BARNASTARF Fríkirkjunnar í Haftiarfirði fer á morgun, sunnudag, i heimsókn í Halí- grimskirkju og tekur þar þátt í barnasamkomu með sunnudaga- skólum í Reykjavík. Farið verður í rútu frá Fríkirkj- unni klukkan 11.40 stundvíslega og eru yngri bömin beðin að taka með sér einhvem fullorðinn. (Fréttatilkynning) Frá kynningu á hinu nýja fræðsiuefni um líf og aðstæður fatlaðra. Frá vinstrí: Helgi Hróðmarsson, starfsmaður Landssamtakanna Þroskahjálpar og Öryrkjabandalags íslands, Ásgerður Ingimars- dóttir, framkvæmdastjóri Öryrkjabandalags íslands, Jón Sævar Al- fonsson, varaformaður Landssamtakaima Þroskahjálpar, Andrés Ragnarsson, framkvæmdastjóri Landssamtakanna Þroskahjálpar, Arnþór Helgason, formaður Óryrkjabandalags íslands, Sigrún Stef- ánsdóttir, framkvæmdastjóri Fræðsluvarps og Dóra S. Bjamason, lektor. „Haltur ríður hrossiu: Nýtt fræðsluefiii um líf og aðstæð- ur fatlaðs fólks ÖRYRKJABANDALAG íslands og Landssamtökin Þroskahjálp hafa í samvinnu við Fræðsluvarp látið gera fimm sjónvarpsþætti og rítað fræðsluefhi um líf og aðstæður fólks sem býr við and- lega eða líkamlega skerðingu, en tekur samt virkan þátt í lífi og starfi þjóðfélagsins og leggur þar sitt af mörkum. Sjónvarps- þættirnir verða á dagskrá Fræðsluvarps næstu vikurnar, og verða þeir sendir út með sérstökum texta fyrír heyrnarskerta. Amþór Helgason, formaður Öryrkjabandalags ísíands, segir að hér sé um einstakt tækifæri sem samtökum fatlaðra bjóðist í áróðurs og kynningarstarfi fyrir málefnum fatlaðra, en kostnaður vegna gerðar fræðsluefnisins hafi verið greiddur með tekjum frá ís- lenskri Getspá. Fræðslueftiið er ætlað nemend- um á grunnskólastigi, framhalds- skólastigi svo og nemendum í ákveðnum greinum innan Háskóla íslands, kennaraháskólanemum og fleirum. Auk þess getur fræðsluefnið gagnast foreldrafé- lögum, félagasamtökum fatlaðra og á vinnustöðum, en að sögn Amþórs er öllum heimii notkun sjónvarpsþáttanna, sem á annað borð telja sig geta haft gagn af þeim, og leyfilegt verður að afrita þá á myndbönd. Meginuppistaða myndefnisins em viðtöl við fatlað fólk sem lifir innihaldsríku lífi, sjálfu sér og öðmm til gagns og ánægju, auk viðtala við aðstandendur þess. Flestir viðmælendur í þáttunum hefðu tæpast átt þess kost fyrir einum til tveimur áratugum að geta notað sér almenna þjónustu í sama mæli og nú, en það bendír til þess að ákveðnar breytingar hafi átt sér stað í viðhorfum al- mennings til þeirra. Margir af við- mælendunum em forgöngufólk annarra fatlaðra, sem vilja leggja sitt af mörkum við hlið ófatlaðra og njóta sambærilegra kjara og þeir. Dóra S. Bjamason, lektor, er höfundur bókarinnar sem gefin verður út í tengslum við sjónvarps- þættina með nánari skýringum á ýmsu því sem fjallað verður um í þáttunum, en hún og dr. Sigrún Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Fræðsluvarps, em höfundar hand- rits og stjómendur upptöku sjón- varpsþáttanna og vinnslu. Þátta- röðin og væntanleg bók hafa hlot- ið nafnið „Haltur ríður hrossi". Að sögn Dóm er fyrsti þátturinn hugsaður sem undirstaða þeirra þátta sem fylgja í kjölfarið og fyall- ar hann um viðhorf og viðmót gagnvart fötluðu fólki í ljósi sög- unnar, bókmennta, siðfræði og kristinnar trúar. Síðari þættimir byggja síðan hver um sig á þessum fýrsta þætti, en þeir fjalla um heimilið, skóla og dagheimiii, vinnu, frístundir og vináttu. Hver þáttur er um það bil 20 mínútur að lengd. Dóra sagðist vera þakk- lát því fólki sem hefði haft kjark til þess að koma fram í þáttunum og gefa þannig brot af reynslu sinni, sem bæði væri um margt sár og ánægjuleg, en auk þess mjög sérstök. Fyrsti þátturinn verður sýndur mánudaginn 6. febrúar kl. 16.30, og endursýndur laugardaginn 11. febrúar kl. 11.30. Þumall kvik- myndagerð annaðist klippingu og framleiðslu. Þulur er Róbert Am- finnsson leikari, en tónlist er eftir Hjálmar H. Ragnarsson og Magn- ús Blöndal Jóhannsson. Fagnar sölu á plastpokum Náttúruverndarráð fagnar þeim samningi, sem tekist hefúr á milli Landverndar, Kaup- mannasamtaka íslands og versl- unardeildar SÍS um sölu plast- poka í verslunum. Sala þeirra poka mun vonandi hafa í för með sér betri nýtingu þeirra auk þess sem umtalsverður hiuti af söluhagnaðinum mun renna til umhverfismála, segir í ályktun frá Náttúrvemdarráði. Ennfremur segir að ráðið hafi árum saman reynt að stuðla að því að stjómvöld setji reglur um notkun svokallaðra einnota um- búða. Mikilvægt er að menn geri sér grein fyrir að auðævi jarðar eru ekki óþijótandi. Ráðið skorar á stjómvöld að tryggja framgang þessa máls sem er stórt fram- faraskref í umhverfísmálum hér á landi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.