Morgunblaðið - 04.02.1989, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 1989
19
Nautgriparæktarfélögin:
Mesta ársnyt frá
upphafi skýrsluhalds
mesta frá upphafi skýrsluhalds,
3.998 kg mjólkur að meðaltali, og
vantaði því aðeins 2 kg upp á að
meðaltalið næði 4.000 kílóa mark-
inu. Árið 1987 var meðaltalið 3.986
kg og 3.936 árið 1986. Fyrir 6—7
árum var ársnytin innan við 3.800
kg, þrátt fyrir að þá hafi mun meira
kjamfóður verið notað.
Laufa á Efra-Ási, sem mjólkaði
mest á síðasta ári, er dóttir Víðis
76004 og mjólkaði hún 9.462 kg
Laufa á Efra-Ási mjólkaði mest o g
Búrfell var með hæstu meðalafiirðirnar
KÝRIN Laufa 130 á Efra-Ási í Hjaltadal í Skagafirði mjólkaði mest
á síðasta ári, 9.462 kg. Eru þetta næst mestu afurðir frá upphafi
skýrsluhalds nautgriparæktarfélaganna. íslandsmetið á Fía á
Hríshóli í Eyjafirði, en hún mjólkaði 9.551 kg árið 1983. Bú eiganda
Laufu, Sverris Magnússonar á Efra-Ási var með næst mestu meðalaf-
urðir eftir hverja kú í fyrra. Mestu afúrðimar vom hjá Jóni Eiríks-
syni og Sigurbjörgu Geirsdóttur á Búrfelli i Miðfirði. Til saman-
burðar má geta þess að meðaltalið í fyrra var 3.998 kg á árskú.
Arsnyt kúnna í fyrra var sú yfir árið. Fjóla 286 á Hvanneyri í
Borgarfirði kom næst með 8.919
kg, síðan Skvetta 88 á Syðri-
Bægisá í Öxnadal 8.820 kg, Vigga
53 í Borgarholti í Biskupstungum
8.789 kg og Flóra 113 á Efra-Ási
8.632 kg. Aðrar kýr sem mjólkuðu
yfir 8.000 kg eru Gullhúfa á Ytri-
Reistará, Hjálma á Efri-Brunná,
Linda í Leirulækjarseli, Sveitasæla
á Búrfelli, Freyja á Ketu og Rín á
Brakanda.
Bú Jóns Eiríkssonar og Sigur-
bjargar Geirsdóttur á Búrfelli í Mið-
firði var með bestu meðalafurðim-
ar, 5.940 kg og Sverrir Magnússon
í Efra-Ási í Hjaltadal var í öðru
sæti, 5.879 kg. Önnur afurðahæstu
búin em: Þorsteinn Tr. Þórðarson
á Gmnd í Svínavatrishreppi, Krist-
inn Markússon í Dísukoti í Djúpár-
hreppi, Sturlaugur Eyjólfsson á
Efri-Bmnná í Saurbæ í Dölum,
Félagsbúið Efri-Brúnavöllum II á
Skeiðum, Klemens Halldórsson á
Dýrastöðum í Nprðurárdal í Borgar-
firði, Viðar Þorsteinsson á Brak-
anda í Eyjafírði, Guðlaugur Jónsson
á Voðmúlastöðum í Austur-Land-
eyjum og Sigurður Bjömsson á
Stóm-Ökmm í Skagafirði.
Mestu meðalafurðir eftir hveija
árskú vora í fyrra í Skagafírði, sam-
kvæmt uppgjöri nautgriparæktar-
félaganna, 4.177 kg mjólkur. Síðan
kom Vestur-Húnavatnssýsla
(4.133), Vestfírðir (4.092), Eyja-
fjörður (4.038 kg) og Suður-Þing-
eyjarsýsla (4.038). í Ámessýslu
vom meðalafurðimar 3.989 kg og
í Borgarfirði 3.969 kg svo dæmi
séu tekin. Minnstu meðalafurðimar
vom á Austurlandi, 3.676 kg., en
Guðrún Hrund Sigurðardóttir
sem vann til verðlauna í keppni
ungra Norrænna fatahönnuða.
Keppni í fatahönnun:
Islendingur einn af
fímm signrvegnrum
Kaupmannahöfn.
GUÐRÚN Hrund Sigurðardóttir
varð sigurvegari fslensku kepp-
andanna í samkeppni ungra fata-
hönnuða í keppninni „Smimoff
Nordic Fashion Show“, sem hald-
in var á Queen’s Garden, á Hótel
Kong Fredrik i Kaupmannahöfn.
Smimoff fyrirtækið sem stendur
fyrir keppninni, hefur staðið fyrir
samskonar keppni í Englandi und-
anfarin 6 ár. Tilgangur keppninnar
er að gefa ungum fatahönnuðum
og nemendum í fataiðnaði sem og
skólum sem kenna hönnun tæki-
færi til að koma hugmyndum sínum
á framfæri og styrkja jafnframt
vinningshafana með peningaverð-
launum. '
Fimm þátttakendur frá hveiju
landi vora valdir og fslensku kepp-
endumir vom þær: Jóna María
Nordal, Inga Nína Matthíasdóttir,
Bergdís Gunnarsdóttir, Oddný
Kristjánsdóttir og Guðrún Hmnd
Sigurðardóttir.
Verk íslendingana fimm vöktu
athygli og þóttu virðulegar og vand-
aðar flíkur. Þær fjórar fyrst nefndu,
hafa allar numið fag sitt við fataiðn-
aðardeild Iðnskólans í Reykjavík,
en Guðrún Hmnd er að ljúka námi
í Kaupmannahöfn við „Köbenhavns
mode og designskole".
Sigurvegaramir fimm fara til Lon-
don eftir mánuð þar sem verk þeirra
verða sýnd sérstaklega í úrslitum
bresku keppninnar.
það er rakið til vegna slæms árferð-
is þar á síðasta árí.
828 kúabændur, með 23.788 kýr
alls, tóku þátt í skýrsluhaldinu, en
reiknað út frá mjólkurskeiði vom
árskýr 18.402. 541 kg af kjam-
fóðri var gefið á hveija árskú, sem
er svipað og í fyrra og hittiðfyrra,
en 200—300 kg minna en fyrir
nokkmm áram. Jón Viðar Jón-
mundsson ráðunautur hjá Búnaðar-
félagi íslands, sem gerir skýrslum-
ar upp, sagði að minnkandi kjam-
fóðumotkun sé hin jákvæðu áhrif
kvótakerfísins. Menn séu famir að
framleiða á heimafengnu fóðri og
nái góðum árangri. Þrátt fyrir að
kjamfóðurgjöf minnki og sé raunar
í lágmarki aukist afurðimar. Um
ástæðu þess að afurðimar aukast
ár frá ári sagði Jón Viðar að stofn-
inn hefði verið að batna hægt og
sígandi og stæðist árangur
íslenskra kúabænda fyllilega sam-
anburð við bændur í nágrannalönd-
unum. Þá hefði orðið ákveðin grisj-
un vegna kvótakerfisins. Og síðast
en ekki síst þá væm bændur að
ná betri tökum á heyverkuninni,
auk þess sem síðustu ár hefðu ver-
ið góð til heyöflunar.
Hekla hf. sýnir nýjungar frá Pajero nú um helgina.
Hekla sýnir nýj-
ungar frá Pajero
HEKLA hf. sem hefur umboð
fyrir bUa frá Mitsubishi- og
Volkswagen-verksmiðjunum
efiiir til sérstakrar bílasýningar
nú um helgina. Verða sýndir
Pajero- og Range Rover-jeppar
og Passat- og Colt-fólksbílar sem
fengu m.a. viðurkenninguna
Gullna stýrið í Þýskalandi fyrir
síðustu áramót.
Pajero-jeppamir hafa tekið ýms-
um breytingum og á það bæði við
um bflana með bensín- og díselvél-
um. Bensínbfllinn hefur nýja þriggja
lítra, 6 strokka vél sem er 141
hestafl og er hún með svonefndri
rafstýrðri fjölinnsprautun. Þá er
bfllinn nú með gormafjaðrir að aft-
an í stað blaðfjaðra áður. Díselbfll-
inn hefur einnig verið nokkuð end-
urbættur. Með millikæli fæst nú um
17% betri orkunýting. Range Rov-
er-jeppinn fæst nú með nýjum milli-
kassa sem þýðir betra jafnvægi
milli fram- og afturdrifanna og
hann er einnig búinn nýrri klæðn-
ingu að innan. Hins vegar hefur
bfllinn ekki tekið neinum útlits-
breytingum í allmörg ár. Bflasýning
Heklu stendur á laugardag milli
klukkan 10 og 17 og á sunnudag
frá klukkan 13 til 17.
Hljóðver
á vegnm
blindra
BLINDRAFÉLAGBÐ hefúr ný-
lega hafið starfrækslu hljóðvers,
sem er sérstaklega ætlað tÚ
hljóðritunar á töluðu máli.
I hljóðveri Blindrafélagsins er
aðstaða til alls kjms hljóðvinnslu á
segulböndum, til dæmis til hljóðrit-
unar á upplestri bóka, auglýsingum,
námsefni og fræðsluefni. í hljóðver-
inu er einnig aðstaða til viðgerða á
eldri hljóðritunum, og möguleikar á
að færa þær ásamt nýjum hljóðrit-
unum yfir á stafrænt band. Þá er
þar góð aðstaða til fjölföldunar á
hljóðsnældum.
(Úr frétttjtilkynningu)
VERSLANIRNAR
VATNSRÚM OG RÚMGOTT
GANGA í EINA SÆNG UNDIR
HEITINU VATNSRÚM
- í NÝJU HÚSNÆÐI AÐ
SKEIFUNNI 11
OPNUM I DAG
Nú lást á einum stað öti þau rúm sem þú
getur látið þig dreyma um eða í.
Lítil rúm, stór rúm, mjúk rúm, stinn rúm,
dýr rúm, ódýr rúm, rúm lyrir einn, rúm fyrir
tvo, og ennþá rúmþetri rúm...
En umfram allt falleg rúm, vönduð rúm.
Verið veikomin i glæsilega verslun okkar
að Skeifunni 11.
Vatnsrum hf
SKEIFUNNI 11 - SlMI 688 466