Morgunblaðið - 04.02.1989, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 04.02.1989, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 1989 33 Dýraverndunarfélög: Hænsnahald í búrum kannað STJÓRN Sambands dýravernd- unarfélaga íslands hefiir rök- studdan grun um að mikið skorti á að farið sé eftir reglu- gerð um hænsnahald í búrum sem sett var fyrir tæpum tveim- ur árum, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá samtök- unum. Stjórnin er nú að láta kanna ástandið. Trúnaðarmönnum Sambands dýraverndunarfélaga íslands er ætlað að skoða búin og gefa SDÍ skýrslu um ástand þeirra. í frétt SDÍ kemur fram að þegar stjóm- in hefur kynnt sér þessar skýrslur ætíar hún að ákveða til hvaða aðgerða verður gripið ef reglu- gerðin er brotin í einhverjum hænsnabúum. Jafnframt verður þeim búum sem halda hænsni í samræmi við gildandi reglugerð veitt sérstök viðurkenning. Myndirgam- alla meist- ara í Borg í GALLERÍ Borg, Pósthús- stræti 9, stendur nú yfir sýning á myndum gömlu meistaranna sem galleríið hefúr til sölu. Þar eru t.d. myndir eftir Jó- hannes S. Kjarval, Kristínu Jóns- dóttur, Jóhann Briem, Ásgrím Jónsson, Jón Þorleifsson, Svein Þórarinsson, Snorra Arinbjamar og fleiri. Opnunartími Gallerís Borgar er frá kl. 10—18 virka daga. Sunnudaginn 12. febrúar verð- ur uppboð á vegum gallerísins á Hótel Borg.-Þeir sem áhuga hafa á að koma myndum á uppboð hafi samband við Gallerí Borg. Rúnar Georgsson Rúnar Ge- orgs í Heita pottínum RÚNAR Georgsson saxófón- leikari leikur sunnudagskvöld- ið 5. febrúar í djassklúbbi Reyk- víkinga, Heita pottinum í Du- us-húsi. Rúnar hefur um langa hríð verið einn af þekktustu djasslei- kumm landsins. Hann varð at- vinnumaður í tónlist snemma á sjöunda áratugnum og hefur síðan leikið með miklum fjölda hljóm- sveita og spilað inn á hljómplötur. Tríó Kristjáns Magnússonar píanóleikara mun spila með Rún- ari á sunnudagskvöldið, en það skipa auk Kristjáns þeir Guð- mundur R. Einarsson trommuleik- ari og Tómas R. Einarsson kontrabassaleikari. Tónleikamir heíjast kl. 21.30. (Fréttatilkynning). Leiðrétting í frétt Morgunblaðsins um punga- próf nýlega var sagt að menn þyrftu ekki réttindi á minnstu- bátanna. Þetta er ekki rétt. í gildandi lögum um atvinnuréttindi skipstjóra og vélstjóra er krafa um að maður með réttindi sé um borð í bátum allt niður í sex metra á lengd. Er beðist velvirðingar á þessum mis- tökum. AfinæUskveðja: Sigríður Guðmundsdóttir Sigríður Guðmundsdóttir, Hring- braut 56, Reykjavík, er sjötíu og fimm ára í dag. Hún fæddist í Vest- mannaeyjum 4. febrúar 1914. Foreldrar hennar voru merkis- hjónin Guðmundur Magnússon og Sigríður Ólafsdóttir og eignuðust þau hjónin sjö böm, Emelíu, Jónu, Þórð, Hönnu, Elísu, Mejrvant Lút- her og Sigríði. Sigríður eða Sísí eins og við köll- um hana öll, byijaði ung að vinna hjá Ellingsen og vann hún þar í nokkur ár. Síðan réð hún sig til starfa hjá Pósti og síma í Reykjavík og vann þar til fjölda ára. Heimilið á Hringbrautinni hefur verið hennar heimili alla tíð. Faðir hennar og móðir byggðu sér þetta heimili og bjuggu hjá þeim í gegn- um árin þau Hanna frænka og Bói, einnig ólu þau upp Margréti Siguijónsdóttur, sem er elsta bamabam þeirra Guðmundar og Sigríðar. Gréta ólst upp hjá ömmu sinni og afa, síðan tók Sísí við upp- eldinu, þegar þau vom fallin frá. Þess er að minnast að þau systkin- in Hanna, Bói og Sísí önnuðust for- eldra sína á þeirra síðustu ámm. Var sú umhyggja þeirra allra til fyrirmyndar, en þau létust á sama árinu, Guðmundur lést 19.4.1954 og Sigríður 23.12. sama ár. Einnig urðu systkinin að fylgja Bóa, bróður sínum, en hann lést langt um aldur fram. Sísí hefur þurft að horfa á eftir þeim öllum með söknuði og í dag era þau aðeins tvö eftir, Þórður og Sísí. Sísí frænka hefur aldrei gifst og ekki orðið bama auðið en Grétu systurdóttur sína hefur hún tekið eins og sína eigin dóttur og alið önn fyrir henni alla tíð. Sísí heáir alltaf borið mikla um- hyggju fyrir öllu sínu fólki. Það þekkjum við best sem þekkjum hana. Afkomendur þeirra Guðmundar og Sigríðar em gæfusamir að eiga slíka konu í fjölskyldunni. Ég veit ekki um neinn í þessari fjölskyldu sem hún hefur ekki hjálpað á ein- hvem hátt eða stutt í gegnum erfið- leika. Við emm mörg sem eigum henni mikið að þakka og vil ég koma hér á framfæri þakklæti frá mér, hún studdi mig á sínum tíma og það gleymist aldrei. Sísí hefur ferðast mikið um önn- ur lönd og er það eitt af hennar áhugamálum og á hún ömgglega eftir að ferðast meira í framtíðinni. Sísí frænka er sú huggulegasta kona á besta aldri sem ég hef séð. Það er alls staðar tekið eftir henni þar sem hún kemur. Tengdamóðir mín sagði við mig fyrir nokkm, að fyrst þegar hún sá Sísí, fannst henni þessi kona bera af. Létt á fæti, eins og ung stúlka, glæsilega klædd og gaf af sér fallegan þokka. Þar finnst mér henni vera rétt lýst, og mættum við konurnar í fjölskyldunni taka hana til fyrirmyndar. Heimili hennar við Hringbraut er fallega búið og er alltaf jafn gaman að koma til hennar, því gestrisin er hún með eindæmum og em Sísíar-sérréttirnir og Sísíar- bollurnar alveg frábærar. Hún get- ur hreinlega búið til veislumat úr engu og kann að nýta vel allt sem viðkemur matargerð. Sísí er í miklu uppáhaldi hjá bömunum í fjölskyld- unni og hefur verið það í mörg ár. Mörg af þeim líta á hana sem sína bestu ömmu og lái ég þeim það ekki. Það má segja að Sigríður Guðmundsdóttir sé höfuð fjölskyldu okkar og verði hún það sem allra lengst. Vona ég að hún eigi eftir að njóta lífsins enn lengur. Sendum við þér, Sísí mín, innileg- ar kveðjur frá Lísu og hennar fjöl- skyldu á Ítalíu og Hönnu Siggu. Lifðu heil um langa daga. Veiga frænka í Keflavík. Sigríður tekur á móti gestum sínum í dag, afmælisdaginn, á heimi dótt- ur sinnar í Flúðaseli 14 eftir kl. 15. SKRIFSTOFUTÆKM Hópar að byrja í Reykjavík og Keflavík Upplýsingaroginnritunídagfrákl. 12-17 ísímum 687590 og 686790. Hringdu og við sendum þér bæklinginn. Ath! Verðum með námskeið í ENABLE hugbúnaði fljótlega. ^TÖLVUFRÆÐSLAN Borgartúni 28 Simai 35408 og8303S GAMLI BÆRINN Hverfisgata 4-62 Lindargata 39-63 AUSTURBÆR Heiðargerði Fellsmúli OFNHITASTILLAR OG BAÐBLÖNDUNARTÆKI NORÐURBÆR Voga-ogHeimahverfi BREIÐHOLT Stekkir I Stjórntæki í efnahagsráðstöfunum heimilisins. Gæta ítrustu sparsemi án þess að skerða þjónustuna. = HEÐINN = seljavegi 2, sími 624260 gœtir hófsemi SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER ARGUS/SÍA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.