Morgunblaðið - 04.02.1989, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 04.02.1989, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ IAUGARDAGUR' 4.‘ PÉÉRÚ'ÁR'1989 Fiskmarkaðurinn í Haftiarfírði: Fjarsala á gámafiskí innanlands tekin upp Fiskurinn keyptur óséður, en seljandi ábyrgist gæðin Fiskmarkaðurinn hf. í Hafoarfirði hyggst nú bjóða viðskiptavinum sinum upp á nýja þjónustu, Qarsölu á fiski. Aflinn getur þá verið í vörzlu seljandans, hvar sem er á landinu, en hann tekur ábyrgð á upplýsingum um fisktegund, stærð og vigt, aldur fisksins og gæði, auk ákveðins afhendingarstaðar og tíma. Kaupandi aflans eða foll- trúi hans verður hins að vera viðstaddur uppboðið. „Þetta þýðir að það er ekkert því Einar sagði að með þessu yrði til fyrirstöðu að fiskverkunarhús á Sauðárkróki kaupi afla frá Homa- firði, eða þá á hinn veginn,“ sagði Einar Sveinsson, framkvæmdastjóri Fiskmarkaðarins. „Seijandinn þarf aðeins að tilgreina ákveðið lág- marksverð innan skynsamlegra marka, sem hann vill fá fyrir fisk- inn. Ef fiskurinn selst ekki fyrir það verð, hefur seljandinn hann áfram í sinni vörzlu og getur gert það sem hann vill með hann.“ Að sögn Ein- ars er gert ráð fyrir að fiskurinn sé seldur í stórum einingum; gám- um eða stórum bílförmum. til nýr kostur fyrir þá sem hefðu um það að velja að selja fiskinn óunninn úr landi eða ráðstafa hon- um á annan hátt. „Ef samgöngur leyfa, er með þessu móti hægt að selja físk í gegn um okkur hvert á land sem er. Aflinn þarf ekkert frekar að fara um Hafnarfjörð. Við vonum að með þessu geti kannski tekizt að ná ' meira af fiski, sem annars færi úr landi,_ og koma hon- um i vinnslu hér á íslandi. Hér er oft verið að senda físk á erlenda markaði, þótt aðra vanti vinnslu- efni.“ fYrst um sinn verður fyrirkomu- lag ijarsölunnar með þeim hætti að fulltrúar kaupanda þurfa að vera viðstaddir uppboðið. Þeir þurfa einnig að hafa bankatryggingar hjá markaðnum svo greiðslur séu tryggðar. „Það er tæknilega hægt að hafa þetta með öðrum hætti; en til að byija með þurfum við að sjá hvaða fyrirkomulag er hagkvæm- ast. Það er enginn vafi á því að þetta er það sem koma skal,“ sagði Einar. „Við tökum við fiski hjá þeim, sem þarf að selja, við tilboði frá þeim sem vantar hann - og sá sem vantar hann mest, borgar hæst.“ Fiskmarkaðurinn hf. mun áfram starfrækja gólfmarkað, en einnig verða nú tekin upp uppboð á afla um borð í veiðiskipum. VEÐURHORFUR í DAG, 4. FEBRÚAR YFIRUT f GÆR: Skammt norður af Húnaflóa er 958 mb lægð sem hreyfist austnorðauetur en um 200 km vestur af iandinu er 954 mb lægð sem þokast austsuðaustur. SPÁ: Norðanátt um allt land, víðast 5-7 vindstig. Snjókoma norðan- lands en þurrt að mestu syðra. Frost 4-11 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Suðaustanátt og snjó- koma um land allt, fyrst suðvestantil. Hiti um frostmark. MÁNU- DAG: Norðan- og norðvestanátt. Él um norðanvert landið en létt- skýjað syðra. Frost 5-10 stig. TÁKN: Heiðskírt y, Norðan, 4 vindstig: ^ Vindörín sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * ■\ 0 Hftastig: 10 gráður á Celsíus ý Skúrir = Þoka = Þokumóða ’, » Súld OO Mistur —J- Skafrenningur K Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að fsl. tíma hhi vsður Akureyri 1 skýjað Reykjavík +2 haglél Bergen 7 akýjaS Helsinki 8 léttskýjað Kaupmannah. 5 þokumóða Naresarasuaq +6 anjókoma Nuuk +16 snjókoma Ostó 10 tóttskýjað Stokkhólmur 8 láttskýjað Þórehöfn 9 alskýjað Algarve 16 Mttskýjað Amsterdam 3 þoka Barcelona 13 mlstur Berifn 1 þokumóða Chlcago +8 snjóél Feneyjar 9 þokumóða Frankfurt +2 hrfmþoka Glaagow 10 rignlng Hamborg 2 þokumóða La> Palmas 21 haiðskfrt London 8 mistur Loa Angalea 10 skýjað Lúxemborg +4 hrfmþoka Madrfd 8 þokumóöa Malaga 16 léttskýjaö Mallorca 16 skýjað Montreal +13 snjókoma New York 1 rignlng Orlando 16 þokumóða Parfa +2 hrfmþoka R6m 11 þokumóða San Dlego 12 akýjað Vín 1 súld Waahlngton 7 rtgning Wlnnipeg +36 heiðskfrt Sjúkraflugí Trékyllisvík ÞYRLA Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, náði í botnlangasjúkling, 12 ára gamalt barn, í Finnbogastaðaskóla í Trékyllisvík i gær og var barnið lagt inn á Landspitalann. Barnið veiktist i fyrra- kvöld. f gær var komið sæmilegt flugveður. Flugvél frá Emi á ísafírði var höfð tilbúin til sjúkraflugsins en vegna ófærðar innan- sveitar og erfiðleika við að koma sjúklingnum til flugvallarins á Gjögri þótti heppilegra að fá þyrluna. Einar Úrskurðamefnd: Niðurstaðan hef- ur afgerandi áhrif - segir Benedikt Daviðsson formaður SAL „Þetta var tveggja tíma þrasfondur, þar sem engin efoisleg niður- staða náðist, en það var ákveðið að hittast aftur á þriðjudaginn kemur,“ sagði Benedikt Daviðsson, formaður Sambands almennra lífeyrissjóða, aðspurður um fund forsvarsmanna lifeyrissjóðasam- bandanna með ráðherrum Qármála og viðskipta um gildissvið breyttrar lánskjaravísitölu á fimmtudag. Benedikt sagði að nú væru sjóð- imir að láta vinna lögfræðilega álitsgerð á málinu í heild. Sjóðimir hefðu ennþá ekki fengið álitsgerð lögfræðinga ríkisstjómarinnar í hendur um lögmæti þess að breyta vísitölunni, en vilyrði hefði fengist þar að lútandi án þess að því hefði beinlínis verið lofað. „Þetta inngrip úrskurðamefnd- arinnar undir forystu Hallgrims Snorrasonar, hagstofustjóra, sem er jú ráðneytisstjóri í einu af ráðu- neytum forsætisráðherra, hefur auðvitað afgerandi áhrif. Þar kemst nefndin að allt annari niðurstöðu en forsætisráðherra, niðurstöðu sem stangast alveg á við þau sjónar- mið sem ráðherramir hafa verið að kynna og þetta er sérfræðinefndin í málinu," sagði Benedikt ennfrem- ur um þá niðurstöðu nefodarinnar að breyting á lánskjaravísitölu jafngilti því að um nýja vísitölu væri að ræða. Nauðsynlegt að Sjálfstæð- isflokkur og Kvennalisti myndi næstu ríkisstjórn —segir Halldór Blöndal alþingismaður HALLDÓR Blöndal alþingismaður Sjálfetæðisflokksins segir, að eftir næstu kosningar sé nauðsynlegt að Sjálfetæðisflokkur og Kvenna- listi myndi ríkisstjórn saman. Samkvæmt sfðustu skoðanakönn- unum, sem birtar hafa verið í fjöl- miðlum um fylgi stjórnmálaflokk- anna, fengju þessir tveir flokkar meirihluta þingmanna ef kosið værí nú. Halldór sagði við Morgunblaðið að það hefði komið í ljós, að þessir flokkar ættu mjög auðvelt með að vinna saman í stjómarandstöðu, og hann hikaði ekki við að fullyrða að milli flokkanna ríkti gagnkvæmt traust í vinnubrögðum og málsmeð- ferð. Hann sagði að það hefði komið sér skemmtilega á óvart, hvað skoð- anir Kvennalistans í atvinnumálum væru nálægt skoðunum sjálfstæðis- manna. Þannig legði Kvennalistinn áherslu á það, eins og Sjálfstæðis- flokkur, að atvinnufyrirtæki verði að eiga mikið eigið fé, og það verði ekki tryggt nema með því að skapa almennan rekstrargnindvöll. Einnig tæki Kvennalistinn undir það með Sjálfstæðisflokknum, að nauðsynlegt væri að fyrirtækin gætu lagt til hlið- ar í góðærum, í nokkurskonar sveiflusjóð. Sjálfstæðisflokkurinn átti m.a. viðræður við Kvennalista, í stjómar- mynduninni árið 1987, en þá náðu flokkamir ekki saman. Halldór sagði um þetta, að þá hefðu flokkamir ekki verið í þeirri stöðu á þingi, að þeir tveir gætu myndað meirihiuta- stjóm. Því hefðu tilraunir þessara flokka verið meira og, minna fálm- kenndar. Halldór sagði að vissulega greindi þessa flokka á um mikilvæg mál, eins og öryggismál og utanríkismál. Hann sagði aðspurður, að flokkamir yrðu að leggja slík ágreiningsmál niður f bili, á meðan reynt væri að vinna að öðram hlutum. „Ég hef aldr- ei látið mér detta í hug, að Sjálfstæð- isflokkurinn og Kvennalistmn gætu verið saman jáfn lengi og viðreisnar- stjómin á sínum tíma, en ég held að það sé einnig hollt fyrir Alþýðu- flokkinn og Framsóknarflokkinn, að þeir sjái að hægt sé að komast af án þeirra við myndunar ríkisstjómar á íslandi," sagði Halldór Blöndal. Skotíð á bíl úr loftriffli LÖGREGLAN í N-Múlasýslu rannsakar nú atvik sem átti sér stað á Vopnafirði á mánu- dag. Þá var skotið úr loft- riffli í bifreið þar sem maður sat, að sögn Sigurðar Helga- sonar sýslumanns. Skotið hæfði manninn ekki en fór í gegnum rúðu og hafaaði í sæti hans. Að sögn sýslumanns hafa farið fram yfírheyrslur vegna þessa en ekki er upplýst hver hleypti af skotinu. Sýslumaður sagði að ekki væri íjóst hvort um ásetningsverk hefði verið að ræða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.