Morgunblaðið - 04.02.1989, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 04.02.1989, Blaðsíða 22
esei SAð&íCJi ,tr. sítöA.ctiA.c'Siwj] m&wtMJZMfíW: MÖRGUNBLÁÐIÐ LAUGÁRDÁGUR 4. FEBRUAr' Í989 Reuter Mobutu — Gæti hann greitt erlendu skuldirnar úr eigin vasa? Zaire: Verður stjórnmálasam- bandi við Belgíu slitið? Einkaauður Mobutus sagður jafin mik- ill erlendum skuldum þjóðarinnar Brassel. Reuter. Stjómarflokkurinn i Afríkurikinu Zaire samþykkti á fimmtu- dag að leggja til við Mobutu Sese Seko forseta, að öllum sam- skiptum og sambandi við Belgiustjóm yrði hætt fyrir fullt og allt. Er búist við, að stjómmálasambandi ríkjanna verði slitið um helgina. Hefur verið grunnt á þvi góða milli ríkisstjómanna í þrjá mánuði eða siðan belgískir Qölmiðlar fluttu þær fregnir, að Mobutu hefði stungið i eigin vasa þróunarhjálpinni frá Belgiu. Talsmaður stjómarflokksins sagði í Kinshasa, höfuðborg Za- ire, að Belgar kæmust ekki lengur upp með að óvirða Mobutu forseta og Zairebúa og því hefði verið ákveðið að leggja til við forset- ann, að hann sliti öllu sambandi við Belgíustjóm. í síðasta mánuði rifti Mobutu tveimur samstarfs- samningum við Belgíustjóm, hætti að greiða af 1,2 milljarða dollara skuld við Belga og lokaði skrifstofum zaírskra ríkisfyrir- tækja í Belgíu. Eins og fyrr segir hófust þessar deilur þegar belgískir fjölmiðlar skýrðu frá því, að Mobutu hefði stolið belgísku þróunaraðstoðinni, og fyrir nokkrum dögum var sýnd í belgíska sjónvarpinu bandarísk heimildamynd þar sem því var haldið fram, að einkaauður Mob- utus væri jafn mikill öllum erlend- um skuldum ríkisins. Zaire er fyrrum belgísk nýlenda og fékk fullt sjálfstæði árið 1960. Hefur ríkið alla tíð fengið mikla hjálp frá nýlenduheminum fyrr- verandi en Belgíustjóm hefur nú lýst yfir, að henni verði hætt. Áðstoð Belga hefur numið helm- ingi allrar erlendrar aðstoðar við Zaire. Finnski Jafiiaðarmannaflokkurinn: Hætt við ráðherra- skipti vegna mót- mæla flokkskvenna Helsinki. Renter. HEIFTARLEG mótmæli flokkskvenna Jafiiaðarmannaflokksins í Finn- landi neyddu flokksforystuna til að hætta við fyrirhuguð ráðherra- skipti á fimmtudag, en þá átti kona að vfkja úr ríkisstjóminni. Ætlun flokksforystunnar var, að láta Önnu-Liisu Kasurinen menning- armálaráðherra vílqa fyrir Matti Ahde, fyrrverandi þingforseta, sem fyrr í þessari viku varð að rýma for- setastólinn fyrir Kalevi Sorsa, fráfar- andi utanríkisráðherra, að sögn heimildarmanna innan flokksins. Heimildarmennimir sögðu, að ráð- herrar jafnaðarmanna hefðu ákveðið á fundi sínum á fimmtudag að fresta framkvæmd málsins. Anna-Liisa Kasurinen hefur ekki hlotið neina gagnrýni fyrir embættisfærslu sína í ráðherraembætti. Hin hörðu viðbrögð jafiiaðar- kvennanna komu flokksforystunni sýnilega á óvart og drógu úr henni kjarkinn. Tíu kvenfélög innan flokks- ins hótuðu fjöldaúrsögnum. „Ef Kas- urinen verður neydd til að segja af sér, verða það eingöngu karlar, sem halda upp á 90 ára afmæli flokksins í sumar," sagði í yfirlýsingu eins kvenfélagsins. Fjórir af ráðherrum finnsku ríkis- stjómarinnar, sem er samsteypu- stjóm fjögurra flokka, eru konur. Kasurinen er önnur tveggja kverrna af átta ráðherrum Jafnaðarmanna- flokksins. í Noregi eru átta af átján ráð- herrum konur, þar á meðal forsætis- ráðherrann, Gro Harlem Brundtland. í Svíþjóð gegna átta konur ráðherra- dómi í 21 manns ráðuneyti Ingvars Carlssons forsætisráðherra. Yfirvöld í Eistlandi við- urkenna Þj óðfylkingnna Flokksmálgagnið segir Sovétmenn hafa hernumið landið Moskvu. Reuter. STJÓRNVÖLD í Sovétlýðveldinu Eistlandi hafa heimilað með lög- formlegum hætti starfsemi Þjóð- fylkingarinnar, fjöldasamtaka sem hyggjast bjóða fram fulltrúa gegn frambjóðendum kommún- istaflokksins í kosningum í lýð- veldinu. í gær gerðist það í fyrsta skipti að sagt var í blaðagrein í Eistlandi að Sovétmenn hefðu „hernumið" landið árið 1940. Eistneskur blaðamaður sagði í samtali við fréttamann Reuters- fréttastofunnar í gær að stefnuskrá Þjóðfylkingarinnar væri nú opinbert plagg samkvæmt ákvörðun Æðsta ráðs Eistlands. „Yfirvöld hafa nú fyrst viðurkennt samtökin sem þýð- ir að fulltrúar þeirra geta keppt við fulltrúa stjómvalda í kosningum í haust,“ bætti hann við. Þjóðfylking- unni var komið á fót á síðasta ári og er þegar orðin öflug fjöldahreyf- ing. Sambærileg samtök hafa verið stofnuð í hinum Eystrasaltsríkjun- um, Lettlandi og Litháen, en eitt helsta baráttumálið er að yfírvöld hafni þeirri söguskýringu stjóm- valda í Moskvu að ríkin þijú hafi óskað eftir að sameinast Sovétríkj- unum árið 1940 er þau höfðu notið sjálfstæðis í rúma tvo áratugi. í grein sem birtist í gær í mál- gangi eistneska kommúnistaflokks- ins, Sovetskajá Estonfa var þessari skýringu vísað á bug og fullyrt að Sovétmenn hefðu „hemumið" landið árið 1940. Fræðimenn og rithöfundar hafa löngum haldið þessu fram en þetta er í fyrsta skipti sem fullyrðing í þessa vem birtist í opinberu málagni. í grein- inni, sem sagnfræðingurinn Edgar Mattisen ritaði, sagði að hemámið hefði verið bein afleiðing griðasátt- mála sem Sovétmenn og nasistar gerðu með sér árið 1939. Dali ánafiiaði Spán- verjum eigur sínar Madríd. Reuter. SALVADOR Dali, sem lést í síðustu viku, ánafiiaði spænsku þjóðinni allar eigur sínar, að sögn talsmanns menningar- málaráðuneytis Spánar. í erfðaskrá Dali stóð að ríkinu bæri allar eigur hans, réttindi og sköpunarverk, að sögn talsmanns ráðuneytisins. Lögmaður Dalis sagðist áætla að einkasafn lista- mannsins og fasteignir væm að verðmæti um 130 milljónir doll- ara, eða jafnvirði 6,5 milljarða íslenzkra króna. í erfðaskránni sagðist Dali ætlast til þess að verk hans yrðu varðveitt og jafnan höfð til sýnis. Dali dó í síðustu viku, en erfða- skrána gerði hann í september 1982. Hann var á 85. aldursári. Hann var síðasti stórmálarinn úr röðum súrrealista. Foreldrar! Leyfið börnunum að rasa út. Reynsia okkar er sú að börn losna við feimni og verða öruggari í framkomu á að stunda danstíma. Nú erum við búin að vera með Jazz-funk síðastliðin námskeið og alveg geggjað stuð. Því ætlum við að bæta viðöðrum hópumfyrir13-15 ára. Nýjasta nýtt frá New York. Jazz-funk byggist upp á meiri hreyfingu og reynt að losa um feimni og hlédrægni. Eingöngu ernotuð „house" músik. Kennari: Bryndís Ein- arsdóttir. Innritun á Michael Jackson námskeið og Jazz-funk. Byrjum 6. febrúar með nómskeið fyrir 8-9 óra, 10-12 óra og 13 óra og eldri stelpur og stróka. Innritun í símum 687701 og 687801. MICHAEL JACKSON MÚSIK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.