Morgunblaðið - 04.02.1989, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 1989
21
Reuter
Starfsmaður hafiiaryfirvalda í Bremerhaven skoðar gáma með
kemískum efiium, sem senda átti til Líbýu. Lagt hefur verið hald á
gámana en i þeim voru 255 tonn af efiiablöndu, sem nota má til
framleiðslu efiiavopna.
V estur-Þýzkaland:
Eftiasending til
Líbýu stöðvuð
Bonn. Reuter.
VESTUR-þýzk tollyfirvöld
lögðu fyrir hálfiun mánuði hald
á 17 gáma sem innihéldu 255
tonn af kemískum efiium og
fara áttu til Líbýu, að því er
talsmaður stjórnarinnar í Bonn
staðfesti í gær. Hann sagði að
nota mætti efiiið við framleiðslu
efiiavopna.
Hald var lagt á gámana í útskip-
unarhöfninni í Bremerhaven og
mun það vera fyrsta vörusending-
in til Líbýu, sem stöðvuð er eftir
að fram komu ásakanir um að
vestur-þýzk fyrirtæki hefðu hjálp-
að Líbýumönnum við smíði eitur-
vopnaverksmiðju.
Að sögn embættismanna reynd-
ust gámamir innihalda efnablönd-
una hexamethylene-tetramine.
FVamleiðandi var vestur-þýzka
fyrirtækið Degussa AG. Talsmenn
þess sögðu í gær að fyrirtækið
hefði selt Líbýumönnum efnabl-
önduna í sex ár til áburðarfram-
leiðslu. Hefði varan verið undan-
þegin útflutningsleyfum, sam-
kvæmt þýzkum lögum.
Fækkun herafla í
Evrópu og varn-
arstöðin 1 Keflavík
Morgunblaðinu bárust í
gær tilmæli um að birta eftir-
farandi athugasemd:
í viðtali, sem Ríkisútvarpið
átti við undirritaðan í frétt-
atíma í gærkvöldi, mun frétta-
maður hafa gefið í skyn þegar
hann dró saman höfuðþætti við-
talsins að ég teldi að til greina
kæmi, á einhvem hátt, að
fækka mannafla við vamarstöð
Atlantshafsbandalagsins í
Keflavík. Þetta er ekki skoðun
undirritaðs og viðtalið rennir
ekki stoðum undir þessa niður-
stöðu fréttamannsins.
I viðtalinu var fjallað um
væntanlegar samningaviðræð-
ur um hefðbundinn herafla í
Evrópu og nýlega yfírlýsingu
Gorbatsjovs um einhliða niður-
skurð Sovétmanna. Benti ég á
að í samningatillögu Atlants-
hafsbandalagsins væri lögð
mest áhersla á niðurskurð
þeirra vopna, sem gera Varsjár-
bandalaginu kleift að gera
skyndiárás gegn Atlantshafs-
bandalaginu, þ. á m. skrið-
dreka, stórskotaliðsvopn, bryn-
varin fótgönguliðstæki og að
tillagan miðaði að því að koma
á lægri, sameiginlegum mörk-
um austurs og vesturs fyrir slík
vopn. Af þessum sökum væri
ekki stefnt fyrst og fremst að
samningum um fækkun mann-
afla, en líta mætti á slíka fækk-
un sem óbeina afleiðingu af
niðurskurði tækjabúnaðar.
Ógnunin af hugsanlegum hem-
aðaraðgerðum Varsjárbanda-
lagsins stafaði ekki lengur af
mannafla.
Erfítt er að segja um það
fyrirfram hvemig vamaráætl-
un Atlantshafsbandalagsins
yrði hagað eftir að dregið hefði
úr árásarmætti Varsjárbanda-
lagsins. Almenn ummæli mín
um þetta efni ber hins vegar
ekki að heimfæra á vamarstöð-
ina í Keflavík, sem gegnir m.a.
því lykilhlutverki að tryggja
samvirkni ríkjanna beggja
vegna Atlantshafsins og liðs-
flutninga á milli þeirra á ófrið-
artímum. Ég vil nota tækifærið
og árétta mikilvægi stöðvarinn-
ar og þann skerf sem ísland
leggur af mörkum til sameigin-
legra vama Atlantshafsbanda-
Iagsins í krafti vamarsamnings
íslands og Bandaríkjanna.
Reykjavík 3. febrúar, 1989.
Henning Wegener,
aðstoðarframkvæmdastjóri
Atlantshafsbandalagsins.
Sterkir
oghlýir
snjósleða-
gallar.
Loðfóðraðir
snjósleðagallar með
tvöfaldri ísetu og ytra
byrði úr vatnsheldu
nylonefni. Hlýir,
þægilegir, sterkir og
endingargóðir.
Grandagarði 2, Rvík., sími 28855
_
4ÉB
■ ' • ' 'v -
.
■
: ■: ::
'
Engjateig 9, sími 689155.