Morgunblaðið - 04.02.1989, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 04.02.1989, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 1989 31 smáauglýsingar smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar | □ GIMLI5989627 -1 Atkv., Fri. □ MÍMIR 5989627 = 1 Frl. Auöbrekku 2.200 Kópavogw Samkoma i kvöld kl. 20.30. Allir velkomnir. KFUM & KFUK 1899-1969 90 ár fyrir eeAbu lslands KFUM og KFUK Almenn samkoma á morgun kl. 16.30 á Amtmannstig 2b. Bústaður Guðs! (Jes. 57,15). Ræðumaður Benedikt Jasonar- son. Barnasamkoma verður á sama tíma. Allir velkomnir. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 SÍMAR 11798 og 19533. Dagsferðir sunnudag- inn 5. febrúar 1) Kl. 13.00 Þorlákshöfn - Hafn- arskeið. Ekið til Þorlákshafnar, gengið með ströndinni í átt að Hafnar- skeiði. Ekið að Óseyrarbrú. Verð kr. 800,- 2) Kl. 13.00 Eldborg - Leiti - Geitafell, skíðagöngur. Verð kr. 800,- Brottförfrá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Farmiðar við bil. Næsta myndakvöld verður mið- vikudaginn 8. febrúar f Sóknar- salnum, Skipholti 50a. Sýndar myndir frá Breiðafjarðareyjum og loftmyndir af hálendinu. Ferðafélag íslands. ÚtÍVÍSt, Giol'nni 1 Sunnudagur 5. febr. kl. 13.00 Landnámsgangan 3. ferð Strandgangan frá Blikastaðakró, með Leirvogi að Víðinesi. Áhugaverð leið. Stærstu sjávar- fitjar á Suðvesturlandi. Staðkunnugur heimamaður slæst i hópinn og fræðir um sitthvað sem fyrir augu ber. I landnámsgöngunni er gengiö með ströndinni frá Reykjavík i Hvalfjörð og á mörkum land- náms Ingólfs að Ölfusárósum i 21. ferð. Framhald af hinni vel- heppnuðu strandgöngu i fyrra. Verið með frá byrjun. Allir geta verið með. Ferð nr. 2 verður far- in í vor. Verð 500,- kr. fritt f. börn m. fullorönum. Brottför frá BSÍ, bensinsölu. Viðurkenning veitt fyrir góöa þátttöku. Utivistarganga er besta heilsu- bótin. Gerist Útivistarfélagar. Fáið ykkur feröaáætlun Útivistar 1989. Útivist: Sími/símsvari: 14606. Sjáumst. Útivist, ferðafélag. Hvítasunnukirkjan Ffladelfía Almenn bænasamkoma i kvöld kl. 20.30. i dag kl. 14.00-17.00 eropiðhús í Þribúðum, Hverfisgötu 42. Lítiö inn og spjallið um daginn og veginn. Heitt kaffi á könn- unni. Við tökum lagiö og syngj- um saman kóra kl. 15.30. Takið með ykkur gesti. Allir velkomnir. Samhjálp. raðauglýsingar raðauglýsingar Skrifstofan opin Skrifstofa Týs er opin fyrir allt ungt fólk i Kópavogi sem vill kynna sór sjálfstæöis- stefnuna og starf Týs. Helgi Helgason, formaður skólanefndar Týs verður við á skrifstofu Týs sem hér segir: Mánudaga frá kl. 16-17 og föstudaga frá kl. 16-17. Skrifstofan er í Hamraborg 1, 3. hæð, sími 40708. Stjóm Týs. Akranes Bæjarmálefni Fundur um bæjar- málefni verður hald- inn í Sjálfstæðis- húsinu við Heiðar- gerði sunnudaginn 5. febrúar kl. 10.30. Bæjarfulltrúar Sjálf- stæöisflokksins mæta á fundinn. Sjálfstæðisfólögin á Akranesi. Fyrirkomulag ökuprófa: Lítilsvirðing við landsbyggðina eftir Gunnar Hallsson og Kristján Rath Guðmundsson Undanfarið hefur verið mikil um- ræða um framkvæmd ökuprófa á landsbyggðinni í kjöifar þess að Bif- reiðaeftirliti ríkisins var lokað nú um síðustu áramót. Vegna þeirrar óánægju sem fram hefur komið hjá landsbyggðarfólki og þá sérstaklega á Vestfjörðum þá hafði Morgunblaðið samband við Hjalta Zóphóníasson, skrifstofu- stjóra hjá dómsmálaráðuneytinu, þann 17. janúar sl. Þar staðfesti hann það að prófdómara er ætlað að koma á Vestfírði einu sinni í mánuði og það er athyglisvert að hann byrjar á því að segja að þetta sé auðvitað engin þjónusta. Það þyk- ir okkur mikil lítilsvirðing við þá sem þurfa á þessari þjónustu að halda á árinu, og er auðvitað viðurkenning á því sem við erum að segja, að þetta fyrirkomulag ökuprófa geti ekki gengið í þessum landsijórðungi og þess vegna krefjumst við lagfær- inga. En það er ýmislegt annað í við- talinu við Hjalta sem kallar á at- hugasemdir aí okkar hálfu. Hjalti nefnir það að nú sé að störf- um nefnd sem fjallar um þessi mál og framtíðarskipan þeirra, og að frá þessari nefnd komi væntanlega til- lögur um það, en hann segir jafn- „ Allt tal um að hér þurfí að þjálfa menn í svo og svo langan tíma svo að hægt verði að löggilda þá er undan- sláttur.“ framt að þær tillögur eigi eftir að fara sinn gang í gegnum kerfið. Landsmenn vita að það getur tekið sinn tíma að ekki sé nú talað um ef festa þarf þær með lögum frá hinu háa Alþingi, þannig að bráða- birgðafyrirkomulagið í eitt ár gæti auðveldlega varað lengur en það. Hjalti segir að þessar bráða- birgðareglur hafi verið settar í sam- ráði við ökukennara á landsbyggð- inni. Þetta á ekki við um okkur sem störfum á Vestfjörðum því við okkur hefur ekki verið talað um þessi mál og allar upplýsingar um þetta fyrir- komulag verið af mjög skomum skammti. Því verður seint trúað að menn í dómsmálaráðuneyti lýðveldisins telji Vestfírði ekki með landsbyggðinni. Þá segir Hjalti að í athugun sé í ráðuneytinu að fá trúnaðarmenn á hveijum stað til að annast hin bók- legu próf viku áður en nemandinn fer í akstursprófið. Þetta er auðvitað vísbending um að menn eins og Hjalti geri sér grein fyrir því að þetta fyrirkomulag getur ekki gengið því þeir sem vinna við ökufræðslu og þeir sem þessa fræðslu eru að öðlast vita að mark- miðið er að þreyta próf þegar þekk- ing og hæfni hefur náð tilskildum kröfum, en ekki þegar einhver í ráðuneytinu ákveður að senda próf- dómara á staðinn. En mergur málsins er einmitt sá að það er í höndum Hjalta að lag- færa þetta ástand og það hið fyrsta. Hjalti nefnir í viðtalinu að meðal þess sem nefndin er að skoða er að löggilda einstaklinga sem sinni þess- um málum og fái greitt fyrir hveija dæmingu. Hvað er því til fyrirstöðu að gera tilraun með þetta fyrirkomu- lag í eitt ár? í öllum landsfjórðungum er val hæfra manna til að sinna þessu verk- efni, og allt tal um að hér þurfi að þjálfa menn í svo og svo langan tíma svo að hægt verði að löggilda þá er undansláttur. Að lokum þetta, það er víða pott- ur brotinn í fyrirkomulagi öku- kennslu hér á landi og um það mætti rita margar línur, en við und- irritaðir viljum fá aðstöðu til að vanda sem best fræðslu og þjálfun þeirra einstaklinga, sem til okkar leita og gerum þess vegna kröfu til þess að fá aðstöðu til þess. Þetta fyrirkomulag ökuprófa er ekki til þess fallið að stuðla að því, miklu frekar að ökunámið snúist um það hvenær prófdómari kemur næst frekar en að prófið verði þreytt þeg- ar þekkingu og hæfni er náð. Höfundar eru ökukennarar i Bol- ungarvík og ísaSrði. Allir vegir í Strandasýslu ófserir Laugarhóli, Bjarnarfírði. M/ SAMKVÆMT upplýsingum Vegagerðarinnar er ófært frá Brú í Hólmavík og allir vegir norðan Hólmavíkur eru ófærir, þar með taldir vegir um Bjarnarfjörð og um Drangsnes og vegurinn um SteingrímsQarðarheiði. Vegurinn um Bjamarfjörð var opnaður á miðvikudag og gripu menn þá tækifærið og fóm á Hólmavík að versla. Einnig hélt hússtjóm félags- heimilisins Laugarhóls fund hér. Þegar fundi hússtjómarinnar lauk var komið nokkuð snjókóf og jókst það stöðugt eftir því sem leið á kvöldið. Um miðnætti var svo kom- ið aftakaveður. Vegurinn sem opn- aður var á miðvikudag er því alger- lega orðinn ófær. Fyrir skömmu var settur upp nýr spennir á raflínuna í Bjamarfirði, við Sandnes, og búum við nú að því og höfum hér mun stöðugra rafmagn og betri spennu. En áður gat spennan fallið niður í 203 volt. Þá hefur sími hér á þessu svæði haldið, þegar þetta er ritað á há- degi á fimmtudag. Skólar em lokaðir hér um slóðir nema heimavistarskólamir og í Broddanesi, þar sem ekki er heima- vistarskóli en skólastjórinn lætur bömin sofa í herbergjum í íbúð sinni. Enginn býst við að sólin setjist í heiði í kvöld, svo vera kann að ekki þurfi að vænta svo mikilla snjóa upp úr þessu, samanber gamla spádóminn „Ef í heiði sólin sest á sjálfa kyndilmessu, snjóa vænta máttu mest, maður upp frá þessu.“ - SHÞ Matarskattur á bókvitið eftir Kristin Má Gunnarsson Frá örófi alda hafa íslendingar lagt stund á ritun bókmennta. Eng- in þjóð á jafnmiklar heimildir um upphaf byggðar sinnar og menning- ar og við. Bókmenntimar hafa flutt þekkingu milli kynslóða um aldir og vonandi gera þær það um ókomna framtíð. Nú á dögum búum við í velferð- arríki, þar sem hugtakið penntun er á hvers manns vörum. Aður fyrr var menntun forréttindi fárra. Það var líka ríkjandi viðhorf fyrr á tímum að bókvitið yrði ekki í askana látið. Þetta viðhorf hefur breyst; enginn þykir maður með mönnum nema vera skólagenginn. Menn hljóta jafnvel ekki starfsréttindi nema hafa tilskilda menntun. Bókvitið verður með öðmm orð- um í askana látið. Og þetta virðast stjómvöld hafa hent á lofti: fyrst sömu lögmál eru farin að gilda um menntun og mat, skattleggjum við hvort tveggja. Matarskattur er lagður á matvælin, en á skólabækur er lagður 20% söluskattur. Ég gerði' samantekt á þvi hvað það kostaði fyrir nýnema að heija nám í framhaldsskóla í Reykjavík. Útkoman var vægast sagt skelfileg. Það kostar hátt á þriðja tug þús- unda að setjast í framhaldsskóla. Það sem veldur því að námsbækur eru svona dýrar, er að stórum hluta 20% söluskattur stjórnvalda. Það virðist orðinn gamaldags hugsunarháttur að ríkisstjómin sé fyrir fólkið; til þess að auðvelda því lífsbaráttuna. Nú er fólkið til fyrir stjómina - námsmenn líka. Niðurfelling skatta af náms- bókum ætti að vera sjálfsagt mál í augum stjórnmálamanna, sem básúna það á mannamótum að jafn- rétti eigi að ríkja til náms og styðja beri ungmenni í leit sinni að mennt- un. Nám skilar sér nefnilega, ef til langs tíma er litið. Það gildir það sama um menntunina og atvinnu- Kristinn Már Gunnarsson „Bókvitið verður í askana látið, O g þetta virðast stjórnvöld hafa hent á loffci; fyrst sömu lögrnál gilda um mennt- un og mat, skattleggj- um við hvort tveggja.“ vegina, að hvort tveggja þrífst bet- ur, ef því er ekki íþyngt með skat- taklafa hins opinbera. Það má jafn- vel færa rök fyrir því að menntun sé undirstöðuatvinnuvegur ekki síðar en sjávarútvegur, hún er að minnsta kosti undirstaða atvinnu- veganna. Höfundur er nemi i FjölbrauUi- skólanum við Ármúla.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.