Morgunblaðið - 04.02.1989, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 04.02.1989, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ A-^EBBý&R ia&9 7 Síðari umræða um flárhagsáætlun Reykjavíkurborgar Utgjöld aukast um 142 milljónir frá fyrri umræðu Frá fundi borgar- stjórnar á fimmtu- daginn: Á myndinni eru f.v.: Hilmar Guð- laugsson, VUhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Páll Gíslason, Katrín Fjeldsted og Árni Sigfusson. Morgunblaðið/Sverrir samningum í sambandi við upp- steypu og gerð þaksins. Hann bætti við að fróðlegt væri að fara yfir þau verkefni sem minnihlutinn hefði gegnum tíðina kallað „gæluverkefni borgarstjórans og meirihlutans". Nefndi hann Nesjavallavirkjun í því sambandi og minnti á bókun Kristínar Ólafsdóttur og fleiri, þar sem virkjunin er kölluð „óráðsíu- verkefni". Sagði hann að tilburðir minnihlutans gagnvart þessu og öðrum þjóðþrifamálum, sem nú væri unnið að í borginni, yrði þeim ekki til framdráttar þegar fram í sækti. Milljón á dag í ráðhúsið Sigurjón Pétursson (Abl) sagði að nú stæðu minnihlutaflokkamir sameiginlega að breytingartillögum við ijárhagsáætlun í þriðja skipti á þessu kjörtímabili. í þessum tillög- um væri gert ráð fyrir betri inn- heimtu útsvars og aðstöðugjalda en í tiliögum meirihlutans, enda væri það í samræmi við reynslu undan- farinnar ára. Hann sagði að minni- hlutinn teldi ástæðu til að verja tekjunum í þarfari verkefni heldur en þau, sem væru í uppáhaldi hjá sjálfstæðismönnum. í tillögunum fælist, að 600 milljónum yrði varið á annan hátt en meirihlutinn legði til og auk þess væru minnihluta- flokkamir andvígir því að snúnings- hús og bílageymslur yrðu byggðar fyrir lánsfé. Siguijón gagnrýndi þau áform meirihlutans, að veija um 1.000.000 krónum á dag til ráðhús- byggingarinnar á sama tíma og smásálarskapur ríkti í Qárveiting- um tii annarra mála. I tillögum minnihlutans væri hins vegar miðað að því að bæta hag almennings með ýmsu móti. Siguijón sagði síðan að borgarstjóri hefði farið með staðlausa stafi um dagvistar- mál; á valdatíma vinstri manna hefði verið gert hlutfallslega meira í þessum málaflokki en frá því sjálf- stæðismenn komust aftur í meiri- hluta í borgarstjórn. Að síðustu kynnti hann bókun frá minnihlutan- um, þar sem lögð var áhérsla á Heilsugæslustöðvar í Reykjavík: Framlag* ríkisins 60 milljónir í ár DAVÍÐ Oddsson, borgarstjóri, sagði við afgreiðslu fiárhagsáætiunar Reykjavikur á fundi borgarstjórnar á fimmtudag, að allt bendi nú til þess að samningar náist milli borgaryfirvalda og fjárinálaráðu- neytisins um framlög ríkisins til byggingar heilsugæslustöðva við Hraunberg og Vesturgötu. Borgarstjóri sagði að framlag ríkisins til þessara tveggja heilsu- gæslustöðva yrði samtals 60 millj- ómr króna og sagðist hann þakka íj'ármálaráðherra atbeina hans í þessu máli. Stefnt er að því að taka stöðina við Hraunberg í notkun sem fyrst, en fresta kaupum á öllum búnaði til stöðvarinnar við Vestur- götu til næsta árs. Sagði borgar- stjóri að engu að síður ætti að reyn- ast unnt að taka þá heilsugæslustöð í notkun á fyrrihluta næsta árs. launahækkun hjá borgarstarfs- mönnum. Breytingartillögnr minnihlutaflokkanna Borgarfulltrúar minnihlutaflokk- anna lögðu fram fjölmargar breýt- ingartillögur við fjárhagsáætlunina og voru 26 þeirra fluttar sem sér- stakar ályktunartillögur. í þeim fólst meðal annars aukið framlag til dagvistarstofnana, félagsmið- stöðva og stofnana aldraðra. Enn fremur var lagt til að borgin léti merkja gönguleið frá miðborginni og upp í Heiðmörk, veitt yrði fram- lag til starfslauna „skólalista- manns" Reykjavíkur, í Laugardal yrði sundstaðnum breytt og skapað- ur „vatnaheimur" með leiktækjum og borgin stæði fyrir a.m.k. 4 fjöl- skyldudögum, með uppákomum fyrir unga jafnt sem aldna. Borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins fluttu frávísunartillögur við flestar breytingartillögur minni- hlutans, á þeim forsendum að þar væri um að ræða yfirboð og sýndar- mennsku og tillögumar væru ýmist óraunhæfar eða óþarfar. Hins vegar var tillögu minnihlutans um kaup á snjóruðningstækjum til að hreinsa gangstéttir vísað til gatnamála- stjóra og tillögu um fjárveitingu til byggingar geymslu í Árbæjarsafni var vísað til menningarmálanefnd- ar. Tillaga minnihlutans um 500 þúsund króna styrk til rithöfunda, til kynningar verka sinna í skólum, var felld af sjálfstæðismönnum. Hins vegar lögðu þeir fram tillögu um 250 þúsund króna fjárveitingu í sama skyni. Sjálfstæðismenn í borgarstjóm samþykktu tillögur minnihlutans um að lækka fjárveitingu til launa- málanefndar borgarinnar úr 500 þúsund í 200 þúsund og um að styrkja Tómstundaskólann um 400 þúsund krónur. Sjálfstæðismenn greiddu einnig atkvæði með tillög- um minnihlutans, sem fólu í sér ívið hærri styrki til íþróttastarfs aldraðra og bama- og mæðradeilda Heilsuvemdarstöðvarinnar. Söluskattur- inn og Ríkis- útvarpið DAVIÐ Oddsson, borgarstjóri, hefur beðið Morgunblaðið um leiðréttingu vegna fréttar af ræðu hans i Borgarstjórn í fyrra- dag. I ummælum borgarstjóra kom fram, að Ríkisútvarpið greiddi ekki söluskatt af auglýsingum. Sagði hann þessi ummæli sín á misskiln- ingi byggð; Ríkisútvarpið hefði greitt þennan söluskatt um árabil. Sinfóníuhljómsveit æskunnar: Einnar milljónar styrk- ur frá Reykj avíkurborg REYKJ AVÍKURBORG mun veita Sinfóniuhljómsveit æskunnar styrk að upphæð 1000.000 kr. á þessu ári. Tillaga um þetta kom fram við 2. umræðu um fjár- hagsáætlun borgarinnar síðast- liðinn fimmtudag. Samkvæmt tillögum meirihluta borgarstjómar voru styrkir til ýmis konar menningar- og fræðslustarf- semi hækkaðir um tæplega 5,3 milljónir við 2. umræðu. Munar þar mest um byggingarstyrk til skóla ísaks Jónssonar að upphæð 4.500.000 kr. SÍDARI umræða um frumvarp til fjárhagsáætlunar Reykjavík- urborgar fyrir árið 1989 fór fram siðastliðið fimmtudags- kvöld og aðfaranótt föstudags. Við síðari umræðu voru sam- þykktar breytingartillögur meirihluta Sjálfstæðisflokksins, sem fela i sér um það bil 142 milljón króna útgjaldaaukningu fyrir borgina. Þar af hækka rekstrargjöld um 107,3 milljónir króna en eignabreytingagjöid um tæplega 34,7 milljónir. Minni- hlutaflokkarnir lögðu sameigin- lega fram breytingartillögur, sem fólu I sér að 600 milljónum yrði varið á annan veg en gert var ráð fyrir í tillögum meirihlut- ans. Enn fremur reiknuðu full- trúar minnihlutans með því, að tekjur borgarinnar af útsvörum og aðstöðugjöldum yrðu 140 miUjón krónum hærri heldur miðað var við í frumvarpinu. Þesstun tiUögum minnihlutans var flestum vísað frá. Davíð Oddsson borgarstjóri gerði grein fyrir breytingartillögum meirihlutans. Sagði hann að gera mætti ráð fyrir því að útsvarstekjur borgarinnar myndu hækka um 142 milljónir frá því, sem gert var ráð fyrir við fyrri umræðu um íjár- hagsáætlunina. Tillögur meirihlut- ans fælu í sér hækkun á gjaldaliðum borgarsjóðs um tæpar 142 milljón- ir; rekstrargjöld myndu hækka um 107,3 milljónir en eignabreytinga- gjöld um 34,7 milljónir. Borgarstjóri gerði síðan grein fyrir hækkun styrkveitinga, sem nemur í heild ríflega 36,4 milljónum króna. Sagði hann að þar munaði mestu um hækkun styrkja til fé- lagsmála, sem hækka um 28,7 millj- ónir. Styrkir til menningar- og fræðslumála eiga að hækka um 5,3 milljónir frá frumvarpstölum en framlög til íþróttamála um 13 millj- ónir. Eignabreytingagjöld borgarinnar hækka alls um 34,7 milljónir. í máli borgarstjóra kom meðal ann- ars fram, að mest munaði þar um hækkun á framlag til lokaáfanga Seljaskóla úr 34 milljónum í 50 milljónir króna. Pólitískur loddaraleikur minnihlutans Borgarstjóri vék að lokum nokkr- um orðum að breytingartillögum minnihlutans. Sagði hann þær byggja á því að áætla heldur ríflegri tekjur en meirihlutinn hefði gert. Vel mætti vera, að slíkar áætlanir gætu staðist, en þá hefði verðlag sennilega hækkað á móti. Hann benti einnig á hugmyndir um að hægja á framkvæmdum við ráð- húsið og sagði, að þeir sem vildu vinna heiðarlega að þessu máli hlytu að sameinast um að byggja eins hratt og kostur væri á þessum viðkvæma stað. Sagði hann tillögu- flutning og málatilbúnáð minnihlut- ans vera pólitískan loddaraskap; þeir peningar sem minnihlutinn væri að ráðstafa væru ekki til og smávægileg yfirborð minnihluta- flokkanna hér og þar væru lítils virði. Hann fjallaði síðan um dagvistar- mál og sagði að framkvæmdir á því sviði hefðu verið minni að magni til á valdatíma vinstri flokkanna 1978 til 1982 heldur en í tíð sjálf- stæðismanna, bæði fyrir þann tíma og eftir. Reyndar hefði fjárhagur borgarinnar batnað svo mikið á undanfömum 6 árum að hægt hefði verið að ráðast í verk eins og ráð- húsbyggingu, án þess að það bitn- aði á framkværhdum í hinum „mýkri" málaflokkum. „Gæluverkefiii“ Borgarstjóri sagði að lokum, að tillaga minnihlutans um að fresta framkvæmdum við útsýnishúsið á Öskjuhiíð væri marklaust bull þar sem gengið hefði verið frá öllum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.