Morgunblaðið - 04.02.1989, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRUAR 1989
Ríkisstjórnin um
Amarflug:
Veitir að-
stoð með
skilyrðum
MEIRIHLUTI ríkisstj ómarinnar
er þeirrar skoðunar, samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins, að
veita beri Amarflugi aðstoð og
fyrirgreiðslu, til þess að renna
megi stoðum undir rekstur fé-
lagsins á nýjan leik. Þetta verður
líklegast niðurstaða ríkisstjórn-
arinnar, uppfylli Amarflug
ákveðin skilyrði. Þannig gæti
aðstoð sú, sem rætt hefur verið
um að rikið veiti félaginu m.a. í
formi afskrifta á lánum, numið
um 300 milljónum króna, i stað
þeirra 150 milljóna sem hingað
til heflir verið rætt um.
Ekki er eining um þessa afstöðu
innan ríkisstjómarinnar, en ákveð-
inn meirihluti stjómarinnar telur
nauðsynlegt að tryggja að tvö flug-
félög starfi í þessu landi. Steingrím-
ur J. Sigfússon samgönguráðherra
mun einna einarðastur gegn þess-
ari afstöðu og vill að Flugleiðir yfir-
taki rekstur Amarflugs með einum
eða öðmm hætti.
Hann mun í umboði ríkisstjómar-
innar ræða við Flugleiðir og kanna
hver afstaða þess fyrirtækis er til
samstarfs, samruna, eða yfirtöku á
Amarflugi. Þessar viðræður em þó
án skuldbindinga og hugsaðar sem
biðleikur á meðan ríkisstjómin
bíður þess að fá fullnægjandi svör
frá forsvarsmönnum Amarflugs um
ákveðin atriði.
Sjá nánar Af innlendum vett-
vangi á bls. 19.
Laufe á Efra-
Ási afiirða-
mesta kýrin
LAUFA 130 á Efra-Ási í
Hjaltadal var afurðamesta
kýrin á siðasta ári, injólkaði
9.462 kg, sem eru næst mestu
afurðir einnar kýr frá upp-
hafi. íslandsmetið á Fia frá
Hríshóli en hún mjólkaði 9.551
kg árið 1983.
Afurðahæsta kúabúið á
síðasta ári var Búrfell í Mið-
firði, hjá Jóni Eiríkssyni og Sig-
urbjörgu Geirsdóttur. Kýr þeirra
mjóikuðu að meðaltali 5.940 kg.
Næst afurðahæsta búið var hjá
Sverri Magnússyni á Efra-Ási i
Hjaltadal, eiganda Laufu, 5.879
kg. Meðaltalið yfir landið er
3.998 kg, og em það mestu af-
urðir frá því skýrsluhald naut-
griparæktarfélaganna hófst.
Sjá frétt bls. 19.
Frá dýpkunarfræmkvæmdum í Hafnarfjarðarhöfh.
Morgunblaðiö/Ámi Sæberg
Dýpkunarframkvæmdir í HafiiarQarðarhöfii
MIKLAR hafiiarframkvæmdir
eiga sér stað í Hafnarljarðar-
höfin um þessar mundir, en þar
er nú meðal annars unnið við
smábátahöfnina. Dýpkunarfé-
lagið h/f á Siglufirði sér um
framkvæmdir.
Að sögn Guðmundar Áma Stef-
ánssonar, bæjarstjóra hafa fram-
kvæmdir við höfnina staðið jrfir
síðan skömmu fyrir áramót.
Dýpkað er við Óseyrarbryggju,
Suðurbakka og við smábátahöfn-
ina þar sem fyrirhugað er að
leggja út flotbryggju fyrir um
50-100 smábáta. Gert er ráð fyrir
að unnið verði fyrir 18 milljónir
króna við höfnina þar af fyrir um
8 milljónir króna við smábáta-
höfnina.
Guðmundur sagði ennfremur
að dregið hefði úr umferð um
höfnina á síðasta ári. Dregið hefði
úr innflutningi á stykkjavöru en
aukist til dæmis á salti og öðrum
vörutegundum. Þá hefur umferð
grænlenskra togara um höfnina
aukist mikið. (Guðmundur sagði
að lokum að " framkvæmdimar
myndu gera': höfnina mun
skemmtilegri fyrir gesti og gang-
andi. Gamlir og nýir Hafnfirðing-
ar gætu bmgðið sér í göngutúr
niður að höfn og kynnt sér atvinn-
ulífið.
Þrotabú Kaupfélags Svalbarðseyrar:
Kröfuhafar felldu tillögu
um málshöfðun gegn SIS
Sýslumaður tekur sér frest til úrskurðar
Á skiptafundi, sem haldinn var i þrotabúi Kaupfélags Svaibarðs-
eyrar á fimmtudag, lagði Jón Oddsson hrl., lögmaður Jóns Laxdal
bónda, fram tillögu um að þrotabúið höfðaði mál á hendur Sam-
bandi íslenzkra samvinnufélaga til viðurkenningar á eignarrétti og
réttindum búsins í SÍS, og að umræddar eignir og réttindi verði
dregin undir skiptin. Kröfuhafar greiddu atkvæði um tillögu lög-
mannsins og felldu með miklum meirihluta atkvæða. Samband
íslenzkra samvinnufélaga og Samvinnubankinn eiga stærstu kröfiim-
ar i þrotabúið. Jón Oddsson telur atkvæðagreiðsluna ólögmæta og
krefist úrskurðar.
—
Á fundinum kynnti Örlygur
Hnefill Jónsson, hrl., svar SÍS um
eignaraðild kaupfélagsins að Sam-
bandinu og er niðurstaða lögmanns
þess, Jóns Finnssonar hrl., sú, að
kaupfélögin eigi engan rétt til að
krefjast skipta á eignum Sam-
bandsins.
í framhaldi af niðurstöðu Jóns
Finnssonar lagði Jón Oddsson fram
tillöguna um málshöfðun, sem er
svohljóðandi:
„Ákveðið verði að þrotabú Kaup-
félags Svalbarðseyrar höfði mál á
hendur Sambandi ísl. samvinnufé-
laga til viðurkenningar á eignar-
Ingi Björn Albertsson:
Viðræðurnar við sljórn-
ina að renna út í sandinn
BORGARAFLOKKURINN fékk I gærmorgun tillögur að samstarfs-
grundvelli frá ríkisstjórainni og efitir að viðræðuneflid flokksins
hafði gert við þær athugasemdir voru þær sendar rikisstjórninni
aftur. „Þetta er fyrst og fremst orðið taugastríð," sagði Júlíus Sólnes
í samtaii við Morgunblaðið í gærkvöldi. Ingi BjÖrn Albertsson telur
að viðræður við ríkisstjórnina séu að renna út í sandinn þar sem
þær hafi ekki leitt til neinnar niðurstöðu.
„Við bíðum nú eftir viðbrögðum hvetju athugasemdir viðræðunefnd-
frá ríkisstjóminni við athugasemd-
um okkar, en ágreiningur er fyrst
og fremst um söluskatt á matvæli.
Tíminn er að renna út og öllum
ætti að vera ljóst að það verður að
vera kominn botn í þetta mál þegar
Alþingi kemur saman á mánudag-
inn,“ sagði Júlíus.
Ingi Bjöm Albertsson, sem sæti
á í viðræðunefnd Borgaraflokksins,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að honum væri ekki kunnugt um í
arinnar við tillögum ríkisstjómar-
innar væru fólgnar, þar sem hann
hefði orðið að hverfa af fundi nefnd-
arinnar áður en honum lauk I gær.
„Við höfum verið með fastmótaðar
kröfur varðandi matarskattinn, og
litið á það sem ákveðinn þröskuld
sem við verðum að komast yfír til
þess að áframhald geti orðið á þess-
um viðræðum. Ég sætti mig ekki
við þær hugmyndir sem komið hafa
frá ríkisstjóminni þar sem þær
bjóða ekki upp á að við komumst
yfir þennan þröskuld. í mínum huga
höfum við ekkert komist áfram
þessar þijár vikur sem viðræður
hafa staðið þar sem þær hafa ekki
leitt til neinnar niðurstöðu, og því
má segja að þær séu alveg að renna
út I sandinn," sagði Ingi Bjöm.
í dag verður fundur aðalstjómar
Borgaraflokksins haldinn á Selfossi
og einnig almenn flokksráðstefna.
Júlíus sagði að þar sem málið væri
ekki til lykta leitt væri ekki hægt
að taka ákvörðun um tillögur ríkis-
stjómarinnar. „Við munum kynna
tillögumar fyrir aðalstjóm og leita
álits hennar á þeim, og ég tel líklegt
að fundurinn muni senda frá sér
sérstaka ályktun um tillögumar,"
sagði Júlíus Sólnes.
Frá Svalbarðseyri.
rétti og réttindum þrotabúsins í
Sambandi ísl. samvinnufélaga, dótt-
urfyrirtækjum þess og öðrum eign-
um og rekstri því tengdu og að
umræddar eignir og réttindi verði
dregin undir skiptin. Um er að
ræða hlutdeild Kaupfélags Sval-
barðseyrar í ofangreindu er féllu
til þrotabúsins við gjaldþrotaúr-
skurð á búi Kaupfélags Svalbarðs-
eyrar 28. ágúst 1986. Um er að
ræða efnislega hlutdeild þrotabús
Kaúpfélags Svalbarðseyrar í öllu
eigin fé eða hreinni eign hinnar
óskiptu sameignar samvinnufélag-
anna í Sambandi ísl. samvinnufé-
laga og eignum og réttindum þvi
tengdu, þ.e. þeirra samvinnufélaga
er aðild eiga að Sambandi ísl. Sam-
vinnufélaga."
Atkvæðagreiðsluna um tillöguna,
þar sem hún var felld, taldi Jón
ekki lögmæta og mótmælti henni,
þar sem hann taldi, að samkvæmt
108. og 114. grein gjaldþrotalag-
anna frá 1978 hefðu Sambands-
félögin ekki atkvæðisrétt, þar sem
þau væru aðilar að málinu. Krafðist
Jón úrskurðar í þessu máli.
Dómarinn, Halldór Kristinsson,
sýslumaður, tók sér frest til úr-
skurðar og er hans að vænta áður
en langt um líður. Jón Oddsson
áskildi sér rétt til að áfrýja úrskurð-
inum til Hæstaréttar.
Lagmeti fyrir 250 millj.
kr. til Sovétríkjanna
SAMNINGAR um sölu íslenzks
lagmetis tíl Sovétríkjanna voru
undirritaðir á Akureyri i gær.
Söluverðmæti lagmetisins er
um fimm milljónir Banda-
ríkjadala, eða um 250 milljónir
króna. Að sögn Theodórs Hall-
dórssonar, framkvæmdastjóra
Sölustofiiunar lagmetis, er
þetta stærsti samningurinn við
Sovétmenn frá upphafi.
Fulltrúar sölustofnunar lag-
metis undirrituðu samningana
fyrir hönd sjö lagmetisfyrirtækja,
en sovézki samningsaðilinn er fyr-
irtækið Sovrybflot. Báðir aðilar
voru ánægðir með nýja samning-
inn.
Sjá „Sovétmenn kaupa. . .“
á bls. 28.