Morgunblaðið - 04.02.1989, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 04.02.1989, Qupperneq 14
14 esex SAuflaa'í .t- fluoAtiflAUUAj uiUAjanuuflOM MORGUNBLAÐÍÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚÁr’ í989 Islenska hljómsveitin Islenska hljómsveitin: Fyrstu tónleikar af ellefti á starfsárinu Ætlum að láta verkin tala, segir Guð- mundur Emilsson, hlj óms veitar stj óri KAMMERTÓNLEIKAR íslensku hljómsveitarinnar í Gerðubergi á morgxin eru þeir fyrstu á starfsárinu en langt frá því þeir síðustu, því fyrirhugað er að halda tónleika í Gerðubergi fyrsta sunnudag hvers mánaðar árið út. Á tónleikunum á morgun verða leikin verk eftir Francis Poulenc, Albert Roussel. Francois Devi- enne og Wolfgang Amadeus Mozart. Flytjendur eru sjö: klarinettu- leikaramir Jón Aðalsteinn Þorgeirsson, Sigurður I. Snorrason og Óskar Ingólfsson, fagottleikaramir Rúnar Vilbergsson og Björn Th. Árnason auk þeirra Þóru Fríðu Sæmundsdóttur píanó- leikara og Gunnars Gunnarssonar flautuleikara. Heilsárs starf- semi svo stórrar hljómsveitar er nýjung hérlendis og var Guð- mundur Emilsson, formaður Samtaka um íslensku hljómsveitina, spurður hvort enginn uggur væri í meðlimum vegna sumarstarf- seminnar. „Nei, við erum ekkert hrædd við það. Það verða væntanlega 250.000 manns á íslandi í sumar eins og endranær. Þetta er glæsi- legur hópur 40 velmenntaðra og hæfileikaríkra tónlistarmanna sem gefur mikil fyrirheit. Þetta fólk þyrstir í að fá að láta gott af sér Ieiða í íslensku menning- arlífi. Við flönum ekki að neinu, ætlum að láta verkin tala og átta ára reynsla hefur kennt okkur ákveðið raunsæi. Innan samtak- anna ríkir einhugur um að láta íslensku hljómsveitina vaxa og dafna á nákvæmlega þeim hraða sem kringumstæður, framboð, eftirspum og gæði tónlistarinnar gefa tilefni til. Að finna rétta hraðann í rekstri hljómsveitar er eins vandasamt og viðkvæmt og að fínna rétt tempó í langri og mikilli hljómkviðu." Hvert er hlutverk íslensku Hljómsveitarinnar? „Það er margþætt. Meðal ann- ars það að gefa ungu tónlistar- fólki tækifæri til að öðlast reynslu og þroska í list sinni. Við höfum reynt að sinna því hlutverki eftir bestu getu en af svo miklum van- efnum að okkur mundi verulega muna um aukatekjur sem næmu flugfari og uppihaldi eins erlends einsöngvara, einleikara eða stjómenda sem hingað em fluttir í stómm stíl á hveiju ári.“ Finnst þér gæta lítils stuðnings við unga íslenska tónlistarmenn? „Já, á mörgum sviðum. Til að mynda ber Stefna Sinfóníuhljóm- sveitar íslands í dag um of keim af því að verið sé að týna ávext- ina af tijánum í garði nágrannans í stað þess að hlúa að sínum eigin garði, einfaldlega vegna þess að það var sáð fyrr í garð nágrann- ans. Þetta er kolröng stefna. Ef þessi stefna hefði ráðið ferðinni þegar Sinfóníuhljómsveitin var stofnuð hefði aldrei orðið til nein Sinfóníuhljómsveit íslands. Það þýðir ekki að bera því við að ekki tjói að bjóða íslenskum tónleika- gestum uppá annað en aðflutt stór- og smástimi. Ég fullyrði það Guðmundur Emilsson, hljóm- sveitarsljóri að innan vébanda Sinfóníuhljóm- sveitarinnar em margir hljóð- færaleikarar sem ættu fullt eins mikið erindi upp á einleikarapall og sumir þeirra erlendu gesta sem hingað eru fluttir með æmum til- kostnaði. íslendingar vilja styðja íslenska listamenn og vonandi fara stjómendur íslenskra menn- ingarstofnana að skilja það fyrr en seinna. Það væri raunar nógu gaman að vita hversu margir af þeim stjómendum mundu stand- ast próf á móti erlendum sér- menntuðum og reynsluríkum stjómsýslumönnum listastofnana? Annars emm við bjartsýn á að þetta sé að breytast; það skal breytast." Umhverfis- mál á ráðu- nautafundi LANDNÝTING, landvemd, um- hverfismál og eftirlit með mat- vælum verða meðal helstu mála- flokka á ráðunautafundi Búnað- arfélags íslands og Rannsókna- stofnunar landbúnaðarins sem hefst næstkomandi mánudag, 6. febrúar og stendur til fostudags. Umræðuefni fyrsta dagsins er beit og landnýting. Þar verða tveir erlendir fyrirlesarar, Frederick D. Provenza, prófessor í beitarfræðum í Bandarílq'unum og Mike Alcock, lektor við landbúnaðar- og skróg- ræktardeild háskólans í Bangor í Wales, auk íslenskra sérfræðinga. Á þriðjudag verður fjallað um land- nýtingar- og landvemdarrannsókn- ir, á miðvikudag verður fundur landsráðunauta með héraðsráðu- nautum og heimsókn til RALA og á fimmtudag verður rætt um um- hverfismál og eftirlit með fóðri og matvælum. Síðasta daginn er loks fjallað um atvinnumöguleika kvenna, kanínurækt og fleira ásamt hrossarækt. Fyrirlestrar Sigurbjörns um trú og trúarlíf Dr. Sigurbjörn Einarsson bisk- up flytur Qögur erindi í safnað- arheimili Neskirkju í febrúar- mánuði og byijun mars. Þau bera yfírskriftina Trú og trúarlíf og verður hið fyrsta þeirra sunnudaginn 5. febrúar og hefst að lokinni guðsþjónustu kl. 15.30. Síðari erindin verða flutt 12. og 26. febrúar og síðasta 5. mars. Öllum er heimill aðgangur. Veitingar verða á boðstólum að lokinni guðs- þjónustu hveiju sinni. Líf á landsbyggðinni Enn heilsum við nýju ári, það er enn svo nýtt að maður verður að gæta að sér við að skrifa árta- lið rétt, talan 88 er enn ekki þurrkuð út úr þessari mannlegu tölvu sem kölluð er hugur. Fljótlega verður þó talan 89 okkur töm og fylgispök uns fram- vinda tímans rennir henni út í straum aldanna. Með byjun hvers árs vakna nýjar vonir og nýr ótti, þessir föstu fylgifiskar mannlegrar til- veru. í raun og veru breytist ekk- ert með nýju ári, ekkert byijar og engu er lokið sérstaklega við þessi tímamót, nema bankaupp- gjöri og hver einstaklingur skoðar fjárhagsstöðu sína. Ég sagði að í byijun nýs árs vöknuðu nýjar vonir og nýr ótti, þetta er ekki allskostar rétt, við eigum sömu vonimar og beijumst við sama óttann að morgni nýárs- dags og við sofnuðum frá, eða vöktum með uns bjarmaði af nýj- um degi, degi sem er lítið frá- brugðinn deginum áður að öðru leyti en því að honum fylgir ný tala. Áramótum er fagnað á landsbyggðinni á svipaðan hátt og í þéttbýlinu, þ.e.a.s. með brennum og flugeldum. Frá hveiju heimili er gamla árið kvatt og nýju heilsað með því að skjóta á loft litfögmm blysum og sólum, bömin brenna stjömuljós og skjóta pappírslengjum yfír vini og vandamenn. Hér um slóðir lítur fólk á það sem skyldu að kaupa flugelda því flugeldasala er aðal fjáröflunar- leið hjálparsveita á hveijum stað. Einhvem daginn milli jóla og nýárs klæðast hjálparsveitarmenn búningum sínum og heimsækja alla bæi í sveitinni, þeir em vel- komnir gestir á hveiju heimili og bömin bíða komu þeirra með eftir- væntingu. Ekki er mikið um að efnt sé til dansleikja í sveitum á nýár- snótt, en fölskyldur og vinir koma saman til að mæta nýju ári, hlusta á klukkumar boða tímaskiptin og óska hver öðram gæfu og gengis. Þegar ég var bam lagði gamla fólkið mikla áherslu á að fjölskyld- ur, sem ættu þess kost að vera saman um áramót, ættu ekki að sleppa því tækifæri, enginn vissi hveijir lifðu næstu áramót eða ættu kost á samvistum. Jól í sveit- um em óhjákvæmilega að sumu leyti ólík jólum bæjarbúans, bændur verða að hirða um skepn- ur sína alla daga jafnt, þeir geta ekki sofið út á jóladagsmorgun frekar en aðra daga. I sveitum er mikið um útiljósa- skreytingar og híbýli em skreytt ekki síður en í bæjunum. Á aðfangadagskvöld setjast all- ir prúðbúnir að borðum kl. 6 eða 7 eftir venju hvers heimilis og njóta venjulegrar jólamáltíðar þar sem valið er til veislunnar eftir smekk hverrar fjölskyldu. Víðast þar sem ég þekki til em hafðar ijúpur eða hamborgarhiyggur á aðfangadagskvöld. Laufabrauð er sjálfsagt að eiga öll jólin og helst svo mikið að eftir sé vænn búnki til að fara með á þorrablót. Seinni- part aðfangadags laumast heima- menn einn og einn inn í stofuna þar sem jólatréð stendur skreytt og bíður kvöldsins, allir halda á pökkum sem þeir leggja undir greinar trésins sem trúlega varð- veitir leyndarmálin, enginn leyfir sér að gæjast á pakka sem búið er að leggja undir jólatréð, þó menn kannski kíktu á merkispjald og jafnvel hristu svolítið pakka sem skilinn var eftir á glámbekk. Eftir því sem bögglunum fjölgar undir trénu eykst spenna bam- anna. Jólagjafir em mjög álíka í dreif- býli og þéttbýli hvað varðar gjafa- val. Smekkvís gefandi stillir verð- mæti gjafa í hóf, en velur fremur annan tíma til dýrra gjafa, ef for- eldrar vilja gefa bömum sínum, eða hjón hvort öðm mjög verð- mætar gjafir er valinn til þess annar tími. íbúar sveitanna bæta sér að nokkm upp daglegar annir um hátíðimar með því að halda fast í jólin, það er að segja hafa hátíð í bæ alveg fram á þrettánda. Skólaböm gera ýmislegt til hátíðarbrigða um jólin, t.d. era sumstaðar gluggar skólanna skreyttir svo að unun er á að horfa. Gluggar bamaskóla Húsavíkur era allir myndskreyttir svo að ekki sér í autt gler. Hver gluggi er samstætt listaverk og hugmyndir að myndunum teknar úr Jjjóðsögum og Biblíunni. I myndunum er mikil litagleði, þær em bæði klipptar og málaðar og svo fagurlega gerðar að glugg- amir líkjast helst blýlögðum lista- verkum. Margir leggja leið sína að skólanum til að horfa á mynd- imar. Nemendur Hafralækjar- skóla og foreldrar þeirra fluttu ópemna Amal og næturgestina fyrir jólin og eftir nýár vom tvær sýningar, en sýningar var ekki hægt að hafa á milli jóla og ný- árs vegna jólaleyfis tónlistarkenn- ara Hafralækjarskóla sem em ensk hjón. Þessi sýning hefði sómt sér vel hvar sem var bæði hvað varðar allan flutning og uppsetn- ingu, reyndar er alveg óhætt að kveða fastar að orði og segja að hún var á heimsmælikvarða. Reyndar er þetta ekki í fyrsta sinn sem nemendur Hafralækjarskóla ráðast í-stór verkefni á sviði tón- listar, síðastliðið ár fluttu þeir söngleikinn Jónas í hvalnum og fyrir nokkurm ámm óperettuna Ull í gull undir stjóm þáverandi tónlistarkennara, Guðmundar Nordahl. Já, við gemm okkur dagamun héma á landsbyggðinni, við höf- um gaman af að koma saman við ýmis tækifæri og fókið er engu síður vel klætt og konumar alveg eins vel greiddar og snyrtar og gerist í þéttbýlinu. Ég segi þetta að gefnu tilefni: Gestur kom á bæ hér í sveit- inni og dvaldi nætursakir. Um kvöldið þurfti húsmóðirin að bregða sér á nefndarfund, auðvit- að mjólkaði hún kýmar með bónda sínum, en geystist svo inn, fór í sturtu og hafði fataskipti, fór í þokkalega blússu og pils. Um leið og hún hljóp út kastaði hún kveðju á gestinn og hann sagði undrandi: Ég sé að það er ekki eins og maður hefur alltaf heyrt að konur í dreifbýli séu lak- ar klæddar en hinar. Vafalaust hafa þessar „hinar“ verið konur þéttbýlisins. Þetta var auðvitað kjánalega sagt, en þessi gestur er ekkert flón, hann er bara af Stór-Reykjavíkursvæðinu. Þessi saga er ekki búin til, hún er alveg sönn. Jóhanna Á. Steingrímsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.