Morgunblaðið - 04.02.1989, Side 40
40
: MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4!. FEBRÚAR 1989
í mistrinu; Weaver í hlutverki Dian Fossey og Bryan Brown sem
reynir árangurslaust að færa hana aftur til siðmenningarinnar.
sem Fossey vingaðist við og rann-
sakaði. Það hlýtur að hafa kostað
ótrúlegt erfíði að koma kvikmynda-
tökuhópi upp fjöllin og það hefur
kostað hugrekki að stilla kvik-
myndavélunum upp inn á milli gór-
illanna, sem eru engin smásmíði,
og ekki síst að gabba þær til að
leika. En öðruvísi er erfítt að
ímynda sér að í þokumistri hefði
getað verið gerð af einhveiju viti.
Hin frábæru myndskeið með öpun-
um gefa myndinni fyrst og fremst
aukna þýðingu, spennu og blákalt
raunsæi, myndatakan öll er safarí-
ferð um gullfallegt, seiðandi og
dulúðugt landslag Afríku.
Fossey var rétt kona á réttum
stað og sama má segja um Weav-
er. Það er stundum tekið þannig
til orða að leikarar sýni hugrekki
þegar þeir velja ákveðin hlutverk,
sem eru kannski ekki á allra færi.
Það er sjaldnar sem þeir þurfa að
sýna raunverulegt, áþreifanlegt
hugrekki í hlutverkum sínum eins
og Sigoumey Weaver gerir þegar
hún sest niður á meðal górillanna
og hænir þær að sér.
Hún leikur Fossey af miklum eld-
móði dg vægðarlaust þegar hún
sýnir okkur inní líf þessarar oft
ofsafengnu konu, sem jafnvel var
reiðubúin að pína lítinn dreng til
að komast að veiðimönnunum og
brenna kofa innfæddra í hefndar-
skyni þegar ráðist hafði verið á
górillumar „hennar“. Hún kom sér
upp einkaher til að veija þær fyrir
veiðimönnunum, sem sóttust ein-
göngu eftir hausum og höndum
górillanna — annað var ekki sölu-
vara — og afkvæmum þeirra fyrir
dýragarða í Evrópu. Myndin tekur
sterka afstöðu með baráttu Fossey
og er þannig mjög áhrifamikill
málsvari dýra- og náttúmvemdar
en lýsir Fossey í leiðinni án sér-
stakrar persónudýrkunar þótt virð-
ingin fyrir viðfangsefninu sé alltaf
mikil. Hún bar gríðarlega um-
hyggju fyrir fjallagórillunum og
varð ágengt í baráttunni fyrir fjölg-
un þeirra en hún átti líka sínar
dökku hliðar og þær fá rúm í túlk-
un Weavers.
Með górillum í
fjallamistrinu
Kvikmyndir
Amaldur Indriðason
í þokumistrinu („Gorillas in the
Mist“). Sýnd í Bióborginni.
Bandarisk. Leikstjóri: Michael
Apted. Handrit: Anna Hamilton
Phelan. Framleiðendur: Peter
Guber og Jon Peters. Kvik-
myndataka: John Seale. Helstu
hlutverk: Sigourney Weaver,
Bryan Brown.
Það vora skiptar skoðanir um
hana. Afrísku veiðimennimir, sem
hún hrelldi svo mikið, héldu hún
væri nom og hún gerði allt til að
ýta undir þá trú þeirra. Aðrir sögðu
að hún væri óð, enn aðrir stórskrýt-
in og í besta falli sérkennileg kona.
Kannski var hún allt þetta og meira
til en Dian Fossey varðaði aldrei
um hvað fólk hélt um hana. Hún
var stórmerkileg og starf hennar
allt og hún er gott efni í bíómynd,
eins og menn hafa bersýnilega gert
sér grein fyrir.
Hún yfirgaf unnusta sinn og
starf í Bandaríkjunum um miðjan
sjötta áratuginn og flutti til Kongó
í Afríku til að kanna lifnaðarhætti
ijallagórillunnar án þess að hafa í
rauninni nokkra hugmynd um hvað
hún var að fara út í. Hún hafði
enga þekkingu á öpum eða villtum
dýram yfírleitt, hafði enga þekk-
ingu á Afríku, hafði ekki hugmynd
um hvemig ætti að bera sig að við
rannsóknir á þeim en hún var fjand-
anum frekari, ákveðin og metnaðar-
full og fylltist næstum sjúklegum
eldmóði þegar kom að því að bjarga
fjallagórillunni.
Þetta er sú lýsing sem gefín er
á Dian Fossey í hinni æfísögulegu
mynd í þokumystrinu („Gorillas in
the Mist“), sem sýnd er í Bíóborg-
inni. Um leið og Fossey öðlaðist
heimsfrægð fyrir rannsóknir sínar,
nábýli við górillumar og baráttu
fyrir lífí þeirra, en þær vora og era
í mikilli útrýmingarhættu, eignaðist
hún óvini og efndi til illdeilna við
heimamenn sem endaði með hrylli-
legu morði á henni um jólaleytið
1985.
í þokumistri lýkur á morðinu án
þess að greina frá því nánar. Allt
fram að því — en myndin spannar
20 ára tímabil — er óvenjulegt og
spennandi ævintýri með Sigoumey
Weaver sem Fossey í einu af sínu
bestu hlutverkum ef ekki því besta.
En það er ekki aðeins athyglisverð
sagan og stjömuleikur Weavers,
sem gerir myndina jafn góða og
raun ber vitni, heldur líka sú stað-
reynd að hún er tekin á söguslóðum
í Afríku, uppi í flöllunum langt
fjarri mannabyggð á meðal apanna,
BORGIN VERÐURIÐANDIAF
LÍFIUMHELGINA
jkvokJopnumviðki 22
AÐGANGS-
EYRIR KR. 700,-
nincun
• •
MSKO
skemmtíríkvöld.
«im®rniL»
laaB
- Aðgangseyrlr kr. 300 eftlr kl. 21:00.
X-Töfðar til
JTXfólksíöllum
starfsgreinum!
OLÆSIBJm____I
AUjHE»IUM*lSÍ*Ma22aJ^
LAUGARDAGUR:
Allt upppantað í mat.
GÖMLU DANSARNIR
íkvöldfrákl. 22.00-03.00.
Hljómsveitin DANSSPORIÐ ásamt söngvurunum Örnu Þor-
steíns og Grétari.
Stórsýningin
10 íslenskir söngvarar í hlutverkum 30 heimsf rægra
söngvara og hljómsveita. Kynnlr: Bjarni Dagur Jóns-
son. Hljómsveitarstjóri: Grétar örvarsson.
STJÓRNIN leikur fyrir dansi.
BorÖapaníanir ogmiðasala isima 687111.
Aðgöngumiðaverð á dansleik kr. 750.-
Húsið opnað kl. 19.
Hfm |Æ,AND
Stjörnuball
Bein útsending
BrimklO leikur fyrir
dansi í kvöld.
Kynnar kvöldslns:
Gulli Helga, Jón Axel og
ÞorgeirÁstvalds.
Sórstakur gestur kvöldslns:
Karl örvarsson, heitasti söngv-
arinn I dag.
Verð aðgöngumiða kr. 750,-
%
BITLAVINAFELAGIÐ
Söngskemmtunin
GÆJAR OG GLANSPÍUR
Diskótek
í k v ö I d
Pottþétt skemmtun - engin spurning
Hollywood - Restaurant
Maturframreiddurfrá kl. 20
Frítt inn á sýningu og dansleik fyrir
matargesti
Aðgöngumiðaverð á dansleik kr. 750,-
Borðapananir í síma 83715
H0LUW00D
á
(/J J jjf.-. (/ (/ (/ (/ (/ (/ (/ (/ 'J- (/
i I . I I '■ I I I ( ! . ’ ( (
Hefst kl. 13.30____________. |
Aðalvinninqur að verðmæti__________ t s |
__________100 þús. kr._____________ íf
Heildarverðmæti vinninqa um _______ TEMPLARAHÖLLIN
__________300 þús. kr. ____________ Eiríksgötu 5 — S. 20010