Morgunblaðið - 31.03.1989, Qupperneq 1
64 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
72. tbl. 77. árg.
FOSTUDAGUR 31. MARZ 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Friðarumleitanir í Nicaragua:
Bush mæiist til þátt-
töku Sovétleiðtogans
Washington. Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti hefur sent Míkhaíl Gorbatsjov Sovét-
leiðtoga bréf og hvatt hann til að taka þátt í friðarumleitunum í Nic-
aragua, að sögn Marlins Fitzwaters, talsmanns Bandaríkjaforseta. Var
frá þessu skýrt í Washington í gær en í síðustu viku komust Bush
og forystumenn beggja flokka á Bandaríkjaþingi að samkomulagi um
fjárstuðning við kontra-skæruliða sem beijast gegn stjórninni í Nic-
aragua er nýtur stuðnings Sovétmanna og Kúbveija.
„Forsetinn vill að Sovétmenn beiti
áhrifum sínum í Nicaragua til að
stuðla að friðsamlegri lausn mála í
landinu," sagði Fitzwater, „hann
hefur gert Gorbatsjov Sovétleiðtoga
grein fyrir sinni hlið mála.“
Gorbatsjov er væntanlegur í opin-
bera heimsókn til Kúbu á sunnudag
þar sem hann hittir Fidel Castro,
leiðtoga landsins, að máli. Banda-
ríkjamenn segja að stjórnvöld í
Land-dagur í Israel:
Dræm þátt-
taka víðast
Kafr Kana, Gaza. Reuter.
ÞRÍR Palestínumenn féllu í átök-
um við ísraelska hermenn og að
minnsta kosti 33 særðust á Vest-
urbakkanum og á Gaza-svæðinu
í gær. Þá minntust arabar þess
að 13 ár eru liðin frá því að sex
kynbræður þeirra voru myrtir af
ísraelskum leyniþjónustumönnum
er þeir mótmæltu hernámi ísraela
á landsvæði araba, er hann síðan
kallaður land-dagurinn.
Yfir 5.000 ísraelskir lögreglu-
menn og hermenn voru sendir til
herteknu svæðanna en liðsaflinn
hélt sig fyrir utan bæjarmörk í sam-
ræmi við samkomulag sem ísraelsk
stjómvöld gerðu við þorpsleiðtoga.
Flestir hinna 700.000 araba sem
búsettir eru í ísrael hundsuðu til-
mæli leiðtoga Palestínumanna um
að þeir tækju þátt í uppreisninni
gegn hernámi ísraela.
Moskvu beiti áhrifum sínum á Kúbu
til að ná ítökum í þessum heims-
hluta og að þau beini nú sjónum
einkum að Nicaragua.
Fitzwater sagði að sér væri ekki
kunnugt um að svar hefði borist frá
Gorbatsjov. Það myndi bæta sambúð
stórveldanna enn frekar ef jákvætt
svar bærist.
Á þriðjudag hvatti Dan Quayle,
varaforseti Bandaríkjanna, Gorb-
atsjov til að stuðla að bættri sambúð
ríkjanna og nota til þess fyrstu heim-
sókn sína til Kúbu. Hann mæltist
til þess að Sovétmenn drægju úr
stuðningi sínum við stjómvöld á
Kúbu og í Nicaragua.
Lögreglumenn standa vörð við innganginn í moskuna í Brussel. Þar voru forstöðumaður
aðstoðarmaður hans skotnir til bana á miðvikudag.
Reuter
hennar og
Morð á yfirmanni moskunnar í Brussel:
Orðrómur um innbyrðis mis-
klíð múhameðstrúarmanna
Brussel. Frá Kristófer Má Kristinssyni, fréttaritara Morgnnblaðsins. Reuter.
LÖGREGLAN leitaði í gær að morðingja Abdullahs al-Ahdals, æðsta
manns stærstu mosku í Belgíu, sem á miðvikudag fannst myrtur ásamt
aðstoðarmanni sínum, Salim Bahri. Að sögn embættismanna hafa
belgisk yfirvöld aukið öryggisgæslu við flugvelli og landamæri og auk
þess farið þess á leit við lögregluyfirvöld erlendra ríkja að eftirlit við
landamæri þeirra verði hert.
Flestir hallast að því að Ahdal,
sem var Saudi-Arabi og leiðtogi
múslima í Benelúxlöndunum þrem-
ur, Hollandi, Belgíu og Lúxemborg,
hafi verið myrtur vegna hófsamrar
afstöðu sem hann tók til Salmans
Rushdies, höfundar bókarinnar
Söngvar Satans. Khomeini erki-
klerkur í íran hefur hvatt múslima
hvarvetna í heiminum að ráða Rush-
die af dögum. í belgískum dagblöð-
um var á hinn bóginn greint frá því
Mengunarslysið í Alaska:
Ottast verulegt
tjón á lífnkinu
Valdez. Reuter.
í GÆR var hafist handa við að hreinsa upp olí-
una, 240.000 föt, sem Iak I sjóinn þegar olíuskip-
ið Exxon Valdez strandaði við Prins William-
sund í Suður-Alaska. Er hér um að ræða mesta
mengunarslys í Norður-Ameríku frá upphafi.
Rúmlega 500 manns vinna við að þrífa upp olíu-
brákina, sem teygir sig 65 km langa leið suður eft-
ir Prins William-sundi í átt að Alaskaflóa. Frank
Iarossi, forstjóri skipadeildar Exxon, sagði, að ekk-
ert yrði til sparað við verkið en viðurkenndi hins
vegar, að tilraunir til að halda brákinni innan ákveð-
inna marka hefðu mistekist.
í Alaskaflóa og Prins William-sundi eru mjög
auðug fiskimið og Alaskabúar óttast, að mengunin
eigi eftir að vinna lífríkinu mikið tjón og þar með
afkomu þeirra. Hefur reiði manna ekki síst beinst
gegn Exxon-olíufélaginu og er talið, að slysið geti
haft veruleg áhrif á olíuvinnsluna í Alaska. Þegar
olíuleiðslan var lögð þvert yfir Alaska fullyrtu olíufé-
lögin, að af henni og flutningunum frá Valdez staf-
aði engin hætta.
Reuter
Olíuútskipun er aftur hafin í Valdez-höfii en
henni var lokað þegar olíuskipið strandaði.
í gær að fulltrúar nokkurra múha-
meðstrúarsöfnuða í Belgíu staðhæfi
að morðin tengist á engan hátt
Rushdie-málinu, heldur hafi inn-
byrðis deilur múslima um sameigin-
legan leiðtoga verið undirrót ódæðis-
ins.
Ahdal var myrtur á skrifstofu
sinni að afloknum fundi í moskunni
þar sem reynt var að lægja öldur
meðal múslima vegna ummæla Ah-
dals um Rushdie-málið. í skrifstof-
unni lá einnig lík aðstoðarmanns
hans, Salims Bahris. Þeir höfðu báð-
ir verið skotnir í höfuðið af stuttu
færi með skammbyssu.
„Allt bendir til þess að einn mað-
ur hafi verið að verki og að fórn-
arlömbin hafi þekkt ódæðismann-
inn,“ sagði Raymond Bossuyt, tals-
maður belgíska ríkissaksóknarans.
„Ahdal lét orð falla um Rushdie fyr-
ir tveimur vikum þar sem hann
nefndi hann guðlastara en engu að
síður tók hann hófsamari afstöðu til
rithöfundarins en Khomeini erki-
klerkur. Síðar bárust honum morð-
hótanir," sagði Bossuyt. Ahdal hafn-
aði lögregluvemd sem belgísk yfir-
völd buðu honum eftir að honum
bárust hótanimar.
Alls búa um 250.000 múhameðs-
trúarmenn í Belgíu og em flestir
þeirra súnnítar frá löndum Norður-
Afríku, einkum Marokkó, og um
fjórðungur þeirra er frá Tyrklandi.
Saudi-Arabar em fjárhagslegir bak-
hjarlar trúarsöfnuða múslima í Ben-
elúxlöndunum og staðhæfingar
nokkurra leiðtoga múhameðstrúar-
manna í belgískum dagblöðum
ganga í þá vem að Marokkómenn
hafi verið ósáttir við að Saudi-Arabi
gegndi leiðtogaembætti múslima í
löndunum.
Skömmu eftir að líkin fundust
hljóp ekkja Ahdals út úr moskunni
með byssu á lofti og hótaði að skjóta
fréttamenn á staðnum. Lögreglu-
menn yfirbuguðu konuna og tóku
hana í sína vörslu. Stuttu síðar var
hún látin laus.
Kvarts frá Grænlandi:
Verða famigjöld lækkuð?
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
GRÆNLENSKA landssijórnin vinnur að þvi að ná fram farmgjalda-
lækkun hjá skipaútgerð Grænlandsverslunarinnar svo hagkvæmt verði
fyrir íslensk og dönsk fyrirtæki að flytja inn kvarts frá Suður-Grænl-
andi. íslenska vegagerðin hefúr sýnt áhuga á kaupum á kvartsi en há
farmgjöld frá Narsaq í Suður-Grænlandi hafa staðið viðskiptunum
fyrir þrifurn.
Formaður grænlensku landstjóm- menn Grænlandsverslunarinnar
arinnar, Jonathan Motzfeldt, sem lækkuðu farmgjöldin.
jafnframt er formaður hráefnanefnd-
ar landsstjómarinnar, sagði að Kvarts er steintegund sem finnst
afloknum fundi í Kaupmannahöfn í miklu magni á Grænlandi. Ending
um hráefnisvinnslu á Grænlandi, að malbiks eykst umtalsvert þegar
teikn væm á lofti um að forsvars- kvartsi er blandað við það.