Morgunblaðið - 31.03.1989, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1989
5
Bifreiðatryggingar:
Hækkanir á bilinu 10-58%
Jeppar og sendibílar flokkast nú eins og fólksbílar
MJOG ER mismunandi hve mik-
ið ábyrgðartryggingar bifreiða
hækkuðu mikið á milli ára, sam-
kvæmt verðskrám tryggingafé-
laganna. Vegið meðaltal hækk-
ana er 20%, en tryggingar fyrir
einstakar gerðir bíla hækka allt
frá 10% upp í 58%. Minnst
hækka bflar til útleigu og krana-
bílar, um 10%, en jeppar á lands-
byggðinni hækka mest, um 58%.
Astæðumar era að við endur-
mat áhættu kom í ljós að hún
var tiltölulega lítil fyrir bíla-
leigubíla og kranabíla og jeppar
hækka svona mikið vegna þess
að nú eru þeir ekki lengur í
sérstökum áhættuflokki, heldur
flokkaðir á sama hátt og fólks-
bílar, að sögn Hreins Berg-
sveinssonar hjá Samvinnutrygg-
ingum.
„Jeppar og sendibílar voru áður
í sérstökum áhættuflokki, en þar
sem notkun þeirra er í engu frá-
brugðin notkun fólksbíla í dag hef-
ur áhættuflokkun þessara bíla ver-
ið samræmd," sagði Hreinn.
Bílum er skipt í þijá áhættu-
flokka. í fyrsta flokki eru minnstu
bílar með vélar upp í 1.200 rúm-
sentimetra að slagrúmmáli. I öðr-
um flokki frá 1.201 upp í 2.300
rúmsentimetra og í þriðja flokki
eru stærstu bílar og með vélar-
stærð 2.301 rúmsentimetra og yfir.
Ábyrgðartrygging bíla í fyrsta
flokki hækkaði um 24%, í öðrum
flokki um 16% og í þriðja flokki
um 24%. Hreinn Bergsveinsson
sagði að bílar í öðrum flokki hafi
komið best út við mat á breyttri
áhættu og þess vegna hækkað
minnst.
Við endurmat varð niðurstaðan
sú, varðandi einStök notkunarsvið
bíla, að ábyrgðartrygging bíla-
leigubíla og kranabíla hækkar um
10% vegna minnkandi áhættu.
Dráttarbílar hækka um 24% og
leigubílar um 30%.
„Þetta verður að vera svona
mismunandi. Ef við ætlum að meta
áhættu, þá verðum við að taka til-
lit til reynslunnar," sagði Hreinn.
„Það kemur hins vegar .í ljós við
þetta endurmat að menn hafa ver-
ið furðu getspakir í upphafi þegar
skipt var í flokka."
Áhættusvæði eru nú tvö og var
breytt í fyrra frá þremur svæðum.
Svæði eitt eru höfuðborgarsvæðið,
Gullbringu- og Kjósarsýsla,
Keflavík, Akureyri og Eyjafjarðar-
sýsla og loks Keflavíkurfiugvöllur.
Ragnar Ragnarsson hjá Trygg-
ingaeftirlitinu segir að til sé skil-
greining á áhættusvæði fjögur,
sem er ekki eiginlegt svæði, heldur
ákveðnir bílar svo sem tankbílar
og áætlunarbílar.
Flokkun í svæði fer í reynd eft-
ir gamla bílnúmerakerfinu, segir
Ragnar, þar sem farið er eftir lög-
heimili bíleigenda. Hins vegar seg-
ir hann að unnið sé að því að koma
á nýju flokkunarkerfi sem miðist
við póstnúmer. Þegar það kerfi
komist í gagnið sé hægt að greina
á milli dreifbýlis og þéttbýlis með
tilliti til mismunandi áhættu.
Slysatrygging ökumanns hefur
einnig hækkað, um 34%. Að henni
viðbættri hafa heildartryggingar-
gjöld fyrir jeppa á áhættusvæði
tvö, það er í dreifbýli, hækkað um
65,8%. Hafi bifreiðaeigandi skipt
um lögheimili og færst á svæði
eitt, hækka tryggingagjöld hans
sem nemur mismun á svæðunum
auk hinnar almennu hækkunar
trygginganna, að sama skapi
lækka gjöld hans við að flytja af
svæði eitt.
Krónan úr
húðuðu stáJi
NÆSTU daga verður látin í
umferð 1 krónu mynt með
breyttu málminnihaldi. Frá
gjaldmiðilsskiptum 1981 hefur
krónumynt verið slegin úr kop-
ar/nikkeli, en krónur með ártal-
inu 1989 og þær sem síðar kunna
að verða slegnar verða úr nikk-
elhúðuðu stáli.
Útlit og stærð nýju krónunnar
er að öllu leyti óbreytt frá því sem
verið hefur, en hún er aðeins létt-
ari eða 4,0 gr. í stað 4,5 gr. áður.
Hins vegar er hún mun ódýrari í
framleiðslu og kostar nú um kr.
1,20 stk., en væri um 40% dýrari
með óbreyttu málminnihaldi.
í frétt frá Seðlabankanum kem-
ur fram að eldri krónumynt heldur
áfram gildi og verður jafnhliða í
umferð.
Erfitt að fá
gönguskíði
Von á nýjum
sendingum
GÖNGUSKÍÐI, bindingar og
skór eru víða uppseld í verslun-
um í Reykjavík en von er á nýj-
um sendingum næstu daga.
Kjartan Guðmundsson verslun-
arstjóri í Sportval sagði að óvenju-
lega mikil sala hefði verið á
gönguskíðum fyrir páska. Þurftu
margir frá að hverfa og bíða næstu
sendingar. „Þetta er orðinn svo
langur tími sem við höfum haft
samfelldan snjó í borginni og
margir hafa sést á gönguskíðum
og þá vakið áhuga annarra á að
reyna og ekki má gleyma að pásk-
arnir voru snemma í ár en ég hef
trú á að það verði nægur snjór út
apríl þó að rigni næstu daga,“
sagði Kjartan. Sagði hann að von
væri á nýrri sendingu með flugi
frá Danmörku en þar er nóg til
af skíðum í snjóleysinu.
Að sögn Amórs Guðbjartssonar
verslunarstjóra í Útilífi eru
gönguskíðin til í flestum stærðum
en hörgull er á bindingum og skóm.
„Við eigum eitthvað af þessu öllu
en okkur skortir aðallega bindingar
og verður bætt úr því,“ sagði hann.
„Það er greinilega aukinn áhugi
fyrir gönguskíðum núna þegar
snjór er yfir öllu og ekki má gleyma
því að fólki leiðist að standa í löng-
um biðröðum við skíðalyfturnar.
Það vill þá frekar ganga þegar
mest er að gera í lyftunum."
PHILIPS býöur þessa fullkomnu samstæðu á sérstæöu veröi í tilefni
ferminga. - Geislaspilari, plötuspilari, tvöfalt snældutæki, útvarps-
viötæki, magnari og tveir hátalarar. - PHILIPS er brautryöjandinn í
gerö geislaspilara; gæði, frágangur og útlit í sérflokki.
• Geislaspilari. 20 laga minni, fullkominn lagaleitari ásamt
fínstillingu, stafrænn gluggi. Tekur bæöi 5 og 3ja tommu diska.
• Plötuspilari. Hálfsjálfvirkur, 2ja hraöa, 45 og 33 snúninga.
• Útvarpstæki. Stafrænt meö 10 stööva minni. FM sterio/mono.
Sjálfvirkur leitari og fínstilling á hverri bylgju.
• Tvöfalt snældutæki. Hámarks hljómgæði. Sjálfvirk stöövun viö
enda á snældu. Teljari. Pása. sjálfvirk upptökustilling.
• Magnari. 2x40 músik-Wött. Grafiskurtónjafnari. Hljómstilling
á sleða. Steriójafnvægi á sleöastillingu. Stungur fyrir
hljóönema og heyrnartól.
• Hátalarar. Stafrænir, 40 músík-Wött.
Fermingin
hljómar betur
með PHILIPS.
Heimillstæki hf
Sætum 8 • Krtnglunnj
SIMI69 15 15 SIMI69 1520
(/cd e'iUMSveájyœ/téegA i saftouttíjUin