Morgunblaðið - 31.03.1989, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 31.03.1989, Qupperneq 11
11 __________________ (;;MQR6!U?ýlBLiAÐlD TOgTUDAqUR;31. MAR2 Æ-9,89 Samviska þjóðarínnar eftir Vestarr Lúðvíksson Á hvaða mælikvarða ætli sam- viska íslensku þjóðarinnar sé stödd í dag!? Forsætisráðherra birti á liðnu ári þann gleðiboðskap, að íslenska þjóð- in væri sú hamingjuríkasta í heimi, samkvæmt könnun; þetta voru mjög athyglisverð tíðindi! Það fór um mann á dögunum að sjá og heyra viðtal við starfsmenn Stálvíkur, sem komnir eru vel yfir miðjan aldur, upplýsa okkur um — að ekkert blasi við þeim annað en atvinnuleysi, í fyrsta skipti á ævinni, sagði starfsmaðurinn, nema menn leiti sér atvinnu erlendis. í Morgunblaðinu í dag, sunnudag 5. mars 1989, hugsar formaður Borgaraflokksins, Júiíus Sólnes, lét ekki plata sig inn í núverandi stjóm- armynstur, eða öllu heldur stjórnar- ste&iu vonleysisins, sem nú á að framfylgja. Forveri Júlíusar í embætti for- manns gaf tóninn með eftirminni- legri sviðsframkomu á Alþingi, sem minnti mann helst á Nikitu Krústj- off, foringja Sovétríkjanna, þegar hann forðum daga lamdi skóinn sinn í borðið á þingi Sameinuðu þjóð- anna, honum var hreinlega nóg boð- ið þá. Þetta kalla ég að hugsa upphátt Það er sorgleg staðreynd að vel rekin fyrirtæki í málmiðnaðinum sé gert ókleyft að starfa eðlilega í landi okkar. Einn vinur minn af gamla skólanum, sem á og rekur eitt virt- asta fyrirtæki í þessari iðngrein, Ijáði mér klökkur að hann væri knúinn til þess að segja upp 6 mönn- um úr sínu starfsliði, vegna þess hörmungarástands sem málmiðnað- inum er búin í dag og Júlíus Sólnes lýsir svo lifandi og eftirminnilega í grein sinni. Undirritaður vonar bara að Júlíus dæmi ekki alla bankamenn eins, heldur snúi sér að þeim verk- efnum með viðskiptaráðherra að skapa forsendur fyrir stofnun öflugs viðskiptabanka, sem verði þess um- kominn að styrkja og veita íslensk- um iðnaði eðlilega fyrirgreiðslu. Svona getum við skoðað allt svið- ið. Fjármálaráðherra fer með offorsi á hendur læknastéttinni í landinu, með umræddan spamað í huga. Eflaust eru flestir læknar okkar það bjargálna að þeir séu full færir um að sjá sínum farborða, og er það vel. En við skulum ekki gleyma því að ein forsenda þess að hér lifir heilbrigt fólk í heilbrigðu landi sé meðal annars sú, að vel sé búið að heilbrigðiskerfínu, þannig að það sé í stakk búið að viðhalda þekkingu og þjónustu við landsmenn. Eflaust á íjármálaráðherra ekki náðuga daga með „öfugan“ ríkissjóð á bakinu, en hann er þegar búinn að nefna nokkur ágæt dæmi til úr- lausnar, m.a. að koma í veg fyrir hverskonar brask og undandrátt í sambandi við gjaldþrot fyrirtækja, þar er höfundur þessara hugleiðinga honum rrgög sammála. Félagsmálaráðherra Jóhanna Sigurðardóttir hefur greinilega bein í nefinu. Hún hótar að segja af sér ráðherradómi við þinglausnir í vor, fái hún ekki samþykktar nauðsyn- legar breytingar á sprungnu hús- næðiskerfi. Jóhanna er án efa einn okkar allra hæfasti stjómmálamaður í dag, sannur kvenskörungur. Undirritaður „frétti“ af nýlegu dæmi þess að einn hinna fjölmörgu umsækjenda hjá Húsnæðisstofnun ríkisins á annað ár, fékk synjun fyrir því að komast í „forgangs- hóp“, vegna einhverra tilvitnanna í reglum, sem þó alls ekki hafa við rök að styðjast í umrædda máli. Það virðist vera að stofnunin geri sér ekki nógsamlega grein fyrir upplýs- inga- og leiðbeiningastarfinu, gagn- vart fáfróðum umsækjendum í frumskógi reglna. Utan á hinu fræga umslagi með synjunarbréfínu stóð með prentaðri frímerkjamerk- ingu: „Kapp er best með forsjá"! Það skyldi þó ekki vera túlkun stofn- unarinnar að um „ofurkapp" sé að ræða þegar fólk er að reyna að komast í eigið húsnæði til þess að losna við okurleigu. Það kæmi mér ekkert á óvart að ein 80-90% leigjenda húsnæðis í þessu landi skrifi undir skattskýrsl- ur sínar með „drengskap" og von- andi samvisku, vegna þess að þjóð- félagsgerðin er þannig löguð — að leigjandinn og eigandinn sjái „gagn- kvæman ávinning" í því að „stela“ þannig undan skatti! Þetta er örugg- lega einn streituvaldur margra í þessu landi. Það væri fróðlegt að fá 1 stykki prófmál fyrir dómstólum úr þessum málaflokki, þar sem fjármálaráð- herra fyrir hönd ríkissjóðs væri sækjandi og eigendur/leigjendur yrðu veijendur ... Undirritaður las Rómarsáttmál- ann á sínum tíma, fyrir meira en tuttugu árum síðan. Þar er meðal annars fjallað um sameiginlegan vinnumarkað bandalagsins. Það gleður undirritaðan að sjá að höf- undur Reykjavíkurbréfs er honum sammála í þessu máli. Ég er hræddur um að það falli Islendingum vel í geð að búa við varanlegt atvinnuleysi og máske eiga yfír höfði sér líf farandverka- mannsins, að leita þangað sem vinnu er að fá, í það og það skiptið innan bandalagsins. Við eigum auðvitað, eins og fram kemur í grein Júlíusar Sólnes, að styrlqa okkar eigin atvinnuveg og meðal annars í því sambandi — stór- bæta samgöngumálin, eins og Færeyingar m.a. eru búnir að gera og Júlíus nefnir varðandi Þýskaland. Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, fer með kórrétt mál, þegar hann lýsir því hispurslaust yfír að yfírvofandi atvinnuleysi í stórum stíl sé ekkert annað en pólitísk ákvörðun. Þetta er kaldur veruleiki, ekkert annað. Þó að við séum smáir á heims- mælikvarða, hvað fólksfjölda varð- ar, erum við íslendingar samt stór- 'ir. Við höfum tekið í arf eitt auðug- asta land frá móður náttúru. Við sjáum þennan kraft í lífi og starfí okkar ástsæla forseta lýðveldisins, framgöngu landsliðsins okkar í handboltanum, skáksnillinga á heimsmælikvarða, fallegustu konu í heimu, sterkasta mann í heimi, flugmenn og lækna, með þeim bestu í heimi, að ógleymdum sjómönnun- um okkar, sem vinna hin vandasöm- ustu og erfiðustu verk við mjög erf- iðar aðstæður víða. Vinir mínir, félagar og sveitungar á Bakkafirði, fengu heldur betur að finna fyrir þessu sinnuleysi stjóm- valda nú á dögunum, þegar móðir náttúra minnti á sig og lét harða vinda leika á landann. Bakkfirðing- ar misstu þá einu aflavonina á þess- um árstíma, þegar stærsta bátnum þeirra var fómað á altari hafnleysis við blástur móður náttúra. Þessi bátur aflaði um 500 tonna á liðnu ári, sem gaf af sér einar 16 milljón- ir króna. Þetta var fjórði báturinn sem þannig ferst innan nýja hafnar- garðsins, á tiítölulega stuttum tíma. Aðeins fyrir þennan eina bát Sif NS þurfa tryggingamar að greiða einar 21 eða 22 milljónir í bætur. Væri ekki meira vit í því að setja þetta tryggingarfé sem svona fer strax í upphafi í það að klára um- ræddan hafnargarð, sem er /s af væntanlegri höfn, þar sem flotinn á RESTAURANT S ( M I 17 7 5 9 Síldarvagninn + B-matseóill alla virka daga VESTURGÖTU 10, 101 REYKJAVÍK að geta verið óhultur. Mér var tjáð að 2. áfangi muni kosta einar 26 milljónir, svona er opinbera fé sóað vegna stefnuleysis og getuleysis stjómvalda. Ráðherrar samgöngu- mála ættu að sjá sóma sinn í því að ljúka slíkum verkefnum. Þeir virðast ekki sjá hagkvæmni í því að ljúka slíkum framkvæmdum þeg- ar byrjað er á þeim. Hefði Bakka- tjörður, með nokkur af okkar bestu fískimiðum, bæði í flóanum og und- ir Langanesi verið staðsettur í Fær- eyjum, væri fyrir löngu búið að koma þar upp alvöra hafnarmann- virkjum. Þarna vilja sjómennimir búa, því stutt er út á miðin og þeir geta þarna verið í faðmi fjölskyldu sinnar að kvöldi dags, ef þeim era sköpuð starfsskilyrði til þess. Þorpið myndi vaxa hraðbyri á fáum áram. Það er skömm að máli þessu, að okkar stjómmálamenn skuli ekki sjá sóma sinn í því að tryggja öraggar hafnir handa undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar. Þeim ber skylda til þess, úr því þeir sjálfír hafa valið sér það hlutverk að vera með nef sitt niður í hvers manns koppi, ligg- ur við að segja. Ráðherramir skammast orðið út í heilar atvinnustéttir hér á landi, en gleyma eigin óheppilegum af- skiptum af málaflokkum, sem betur yrði séð fyrir í höndum annarra en þeirra. Það ætti fyrst og fremst að vera starf alþingismanna að setja þjóðinni lög og almennar leikreglur og síðan að rækta samskiptin við kollegana í umheiminum. Við sjáum eitt dæmið, sem er hvalamálið, þar stendur sjávarút- vegsráðherra sem klettur upp úr hafinu og á hann þakkir skyldar fyrir það. Hitt er allt annað mál, að maður er ansi hræddur um að Halldór, þessi annars ágæti og stefnufasti maður, hefði frekar átt að kynna málstaðinn á annan hátt. Jafnvel eins og fram kom nýverið á ágætis útvarpserindi Magdalenu Schram, þar sem hún leggur til að boðið verði upp á samstarf við græn- friðunga um náttúravemd og rann- sóknir út á miðunum. Þar gæfist gott tækifæri fyrir þessa menn, sem margir hvetjir era vísindamenn, að sjá með eigin augum hvað mikið er til af hval, þegar hann er að rífa og eyðileggja nótina eða trollið. Og jafnvel fá þá til aðstoðar okkar ann- ars ágætu sjávarlíffræðingum við margvíslega útreikninga, hvort skynsamlega sé nú staðið að veiðum loðnunnar, sem er ein aðalfæðuteg- und þorsksins og einnig hvað hval- urinn borðar nú mikið og beinlínis er í harðri samkeppni við mannfólk- ið um nýtingu auðlinda okkar kring- um landið!!! Sannleikurinn er einfaldlega sá að við íslendingar ættum að skamm- ast okkar all veralega, hvernig við höfum umleikið gjafír náttúrannar. Það er tími til kominn að stofnað verði ráðuneyti umhverfismála og tekið með festu á þessum málum öllum. Við eigum ekki að þola bama- þrælkun, en þegnskyldu væri gott að koma á í landinu, þar getur okk- ar unga fólk, senmma á lífsleiðinni, tekið þátt í uppgræðslu landsins, skógrækt og við landgræðslustörf. Einnig getur unga fólkið tekið að sér störf í landhelgisgæslunni og tollgæslunni. Við getum opnað landið fyrir umheiminum og boðið heimsbyggðinni í heimsókn, þar sem vel yrði tekið á móti gestum í hreinu og fallegu umhverfi og boðið yrði upp á besta fáanlega hráefni, þar sem rækt hefur verið lögð á gæðin, en magnið e’kki aðalatriði. Að lokum skal Eyjólfí Konráð Jónssyni þakkað fyrir allt hans starf Vestarr Lúðvíksson „Ég er hræddur um að það falli íslendingum vel í geð að búa við varanlegt atvinnuleysi og máske eiga yfir höfði sér líf farands- verkamannsins, að leita þangað sem vinnu er að fá, í það og það skipt- ið innan bandalagsins.“ á sviði samstarfs um nýtingu sam- eiginlegra auðlinda norðursins. Um þetta mál þarf að ijalla sérstaklega seinna. Ráðherrarnir mega skamma okk- ar bankamenn og aðra, en þeir verða að gera sér að góðu gagnrýnisradd- ir í þeirra garð. Þeir hafa nefnilega ekki efni á því að vera hörandsárir. Höfundur erfulltrúií Útvegs- banka íslands. NISSAIM ~V\l£utlrurtj Vió flytjum Varahlutaverslun okkar verður lokuð í dag, föstudag vegna flutninganna. Við vonum að lokunin valdi ekki viðskiptavinum okkar of miklum óþægindum. Opnum varahlutadeildina mánudaginn 3. apríl í Sævarhöfða 2 í nýju, glæsilegu húsi. Enn um sinn verður söludeildin í Rauðagerði. Nýtt símanúmer á nýjum stað er 67 4000 Ingvar Helgason hf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.