Morgunblaðið - 31.03.1989, Side 14
14
.’-'köRGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1989
H AKAKROS SINN
OG HUNDAVAÐH)
eftir Jóhannes Helga
íslensk málefni, þau sem á þrykk
út ganga, hvort heldur er í blöðum
eða á bókum, eiga ekki greiða leið
til vesturstrandar Noregs þar sem
undirritaður elur manninn um þess-
ar mundir. Landið er raunar ekki
nefnt á nafn heilu misserin fremur
en Tristan da Cuncha, nema þá
neðanmáls í tengslum við bjór og
brennivín og í veðurfréttum ásamt
Svalbarða.
Engin regla er þó án undantekn-
ingar. Ein þeirra er Dagblaðið frá
12. desember, sem elskuleg hjúkr-
unarkona bar mér um daginn sem
forrétt að frúkosti og pensillíni. Þar
var föðurlandið komið í allri sinni
dýrð — í gervi Illuga og Hrafns
Jökulssona í slagtogi við Pál Vil-
hjálmsson — og þó nokkur slagsíða
á móðurmálinu ásamt öðru litlu
skárra.
Eg er að tala um skrif Páls um
bók bræðranna, íslenskir nasistar,
undir liðnum Menning. Ég hafði
svo ekki stautað mig fram úr mörg-
um línum í hitakófínu þegar upp
vaktist gamalt vísubrot: Einn af
að smíða ausutetur og annar hjá
honum sat, sá þriðji kom og bætti
um betur og boraði á hana gat.
Ég þrælaðist þó í fyrstu lotu til
loka þriðju málsgreinar í grein
Páls. Þurfti samt að hvíla mig þeg-
ar ég hafði þrílesið síðustu setningu
þriðju málsgreinar, svo hljóðandi:
„Viðleitnin" (þ.e. viðleitni sið-
menntaðra þjóða til að reyna að
skilja hvemig nasisminn náði þeirri
lýðhylli sem raun ber vitni) „nær
einnig til íslands þar sem Hitlers-
menn voru þó ekki annað en fá-
mennur hópur sundurlausra
ungra karlmanna." (Leturbr. JH).
Eg klóraði mér í höfðinu. Gat
verið að menn sem skrifa í blöð á
Fróni í seinni tíð geri ekki greinar-
mun á lýsingarorðunum „sundur-
laus“ og „sundurleitur".
Þetta hlaut að vera prentvilla.
„Hópurinn" hefur a.m.k. tæpast
orðið „sundurlaus" fyrr en samtök-
in höfðu liðast sundur.
Svo mikið er víst að þeir voru
ekki úr liði útlimimir á frænda
mínum og tilsjónarmanni á þessu
tímaskeiði, kaupmanninum á því
sem næst hominu á Laugavegi og
Barónsstíg. Maðurinn hljóp í vinn-
una ofan frá Alafossi á morgnana
og til baka að loknum vinnudegi
með viðkomu í sundlaugunum, og
í matarhléum kýldi hann boxbolta
gormstrengdan í gólf og loftplanka,
til að styrkja handleggina til jafns
við fætuma. Þurfti á hvoratveggja
að halda á göngunum undir Þórs-
hamrinum og til að hrinda áhlaup-
um kommúnista.
Mér er þetta allt í bamsminni.
Ég var nefnilega yngsti nasistinn,
á níunda ári, marséraði hinn
hreyknasti undir blaktandi haka-
krossinum í skjóli fóstra.
En vel að merkja — svona í fram-
hjáhlaupi, svo fremi uppgjör Jök-
ulssona við íslensku þjóðemis-
sinnanna — séu ekki einkaslags-
mál, þá áttu þessir íjörkálfar svona
álíka mikið sammerkt með Hitleris-
manum og Sjálfstæðisflokkurinn
með stríðsrekstri Bandaríkjamanna
í Víet Nam eða Alþýðubandalagið
með innrás Rússa í Afganistan.
Liggur í augum uppi.
Þjóðemissinnamir vora þrek-
miklir ákafamenn sem skára upp
herör gegn því sjúklega vonleysi,
sem jafnan leggst á sálir manna á
krepputímum og erfitt getur reynst
að uppræta þótt búið sé að skera
fyrir sjálft meinið. Fyrir hitt er
ekki að synja að sá málstaður fyrir-
finnst ekki, að hann fari ekki alltaf
öfugur ofan í lítinn minnihluta sem
kemur þannig óorði á annars brúk-
legt málefni, tímabundið, ef ekki
vill betur. Kunnara en frá þurfti
að segja. Eins hitt, að fyrir lang-
flesta var hin þýskættaða þjóðem-
isstefna ekki annað en tímabundinn
farvegur fyrir andóf gegn sálræn-
um meinsemdum kreppunnar. Ein-
hver pundfet af orku fóra að vísu
forgörðum á þramminu og í svipt-
ingum á kolabingjum, en sömu
menn vora manna fljótastir á vett-
vang þar sem höfuðskepnur léku
lausum hala, svo sem eldur.
Tilsjónarmaður minn varð sér
t.d. fljótt úti um hjólhest, ekki samt
þannig reiðhjól sem fyrirmenn
stigu hofmannlega í gömlu
Reykjavík. Nei, nei, þau vora ekki
nógu hraðskreið. Hann fékk sér
kappaksturshjól, rauðan þramu-
fleyg, sem varð þess valdandi að
ég skynjaði Reykjavík öðram þræði
undan öðra sjónarhomi en önnur
böm, nefnilega úr láréttri stellingu
— sem böggull í handarkrikanum
á branandi kappanum, sem nú var
farinn að höndla með kjöt, kæfu
og kartöflur. Baráttan við mein-
vætti samfélagsins, hveiju nafni
sem þeir nefndust, var samt enn í
Jóhannes Helgi
fullu fjöri. Ef brunaliðið heyrðist
þeyta lúðra sína þá skellti hann
búðardyranum í lás á auga lifandi
bragði og kippti undirrituðum und-
ir handlegginn um leið og hann
kastaði sér á Rauð — og þá styttist
í flörið. Þefvís á borð við síðasta
Móhíkanann knúði hann þramu-
fleyginn rakleiðis á eldsupptökin,
stystu leið yfir gangstéttir og matj-
urðagarða, þannig að oftast varð
hann á undan branaliðinu á vett-
vang og stökk tafarlaust inn í
brennandi húsin og kom aftur að
vörmu spori gegnum reykslungnar
eldglæringar með eitt eða tvö ör-
vasa gamalmenni, annað í fanginu,
hitt á bakinu, þar næst níðþunga
servanta og eikarkommóður, ösl-
andi í vantssvelg og hoppandi yfir
branaslöngur og blés ekki einu
sinni úr nös. Kom fyrir að hann tók
að sér yfirstjóm slökkvistarfsins.
Orðakast. Láf og fjör og frískir
menn — og gaman að vera átta
ára. Bærinn var ekki lengur dauður
og grámyglulegur. Samstarf okkar
félaga fékk samt snöggan endi
þegar kappinn hugðist innræta mér
göfgi vinnunnar með því að gera
mér að vigta kartöflur í punds-
poka. Það þótti mér lítill nasismi
og sagði nei. Hergangan, silkifán-
amir, tramburnar, branaliðið og
ferska loftið, það var allt annar
metall. Skildi þar með okkur félög-
um og hefur hvoragur litið hinn
réttu auga síðan.
Þannig fór um nasismann minn.
Hann koðnaði niður í kartöflumar
í kjötbúðinni. En tilsjónarmaðurinn
hélt sínu striki og gerðist loðinn
um lófana. Skynsamur maður, en
undirritaður fór að skrifa bækur,
sem orðið er vanþakklátasta starf
sem fyrirfinnst á Fróni.
Eftir ofangreinar hugrenningar
yfir frúkostinum tók ég aftur til
við skrifín Páls. Eitthvað meira en
hugtakaruglingur hlaut að hanga
á spýtunni úr því verið var að senda
mér úrklippuna. Svo varð og raun-
in. í fjórða dálki fór að grilla í
gamalkunn tól bókrýna á Fróni:
Klípitöng og sleggju. Páll vitnar í
dálkinum í bók Jökulssona og far-
ast svo orð í framhaldi af hugleið-
ingu um mannkynbótafræði Eiðs
S. Kvaran. Páll skrifar:
„Eiður S. Kvaran varð ekki
morðingi. Hann hafði þó allar for-
sendur til þess, trúði á yfírburði
hins germanska kynstofns og fyrir-
leit aumingja á borð við verkalýðss-
krílinn og júðana. Eiður lærði
mannkynbótafræði í Þýskalandi og
kynnti þessi vísindi fyrir íslending-
um. Þó ekki yrði Eiði ýkja ágengt
hér á landi vora þeir nokkrir sem
gleyptu blekkinguna hráa. í bók-
inni er tilfært nöturlegt dæmi af
Agnari Kofoed-Hansen, flugmála-
stjóra og lögreglustjóra í
Reykjavík, sem lagði trúnað á þá
fírra að glæpir gangi að erfðum.
Agnar meðtók boðskapinn f náms-
ferð til Þýskalands á dögum Hitl-
ers og Himmlers og í viðtalsbók frá
árinu 1981 stendur hann fast á
þeirri skoðun að „ísköld vísindi"
sanni að bam erfí glæpahneigð frá
föður sínum.“
Lýkur tilvitnun í Pál. A hveiju
skyldi hann svo byggja ofangreind-
an sleggjudóm? Tvær aðrar spurn-
ingar era nærtækar: í fyrsta lagi:
Hvemig vogar maðurinn sér að
víkja með þessum hætti og f þessu
samhengi að látnum sæmdarmanni
SEM „SKYNLAUS“
SKEPNAN EÐA FÍFL
eftir Jens í Kaldalóni
Frá öllum klettum og fjöllum
þessa lands, hefur hið margtuggna
orð kreppa og gjaldþrot bergmál-
að, sem einhver dýrðaróður væri,
og þá ekki síður að þetta hrópandi
bergmál hefur svo kristallast í öll-
um fjölmiðlum þjóðarinnar, og
máli manna þar á milli, að svo til
öll önnur mannanna verk, yfirsjón-
ir og agnúar, hafa fallið í skugg-
ann, og fokið sem fis um helfrosið
hjam í næðingi norðanvinda, og
hvergi fest sig í vitundinni hvað
til grundvallar liggur öllum þessum
gjaldþrotaumþenkingum, sem
aldrei nokkum tíma hafa í neinum
mæli hrellt þessa þjóð jafn hrika-
lega í sögu hennar og tilvera allri,
allt frá landnámstíð.
En ef þessi kreppa, sem svo
mikið er umtöluð, ætti upprana
sinn að rekja til harðæris, gras-
brests og gróðurleysis, fiskiþurrðar
eða eldgosa, væri sök sér að mað-
ur fengi botn í upprana hennar,
en satt best að segja, í sem stystu
máli, er hún algerlega, og í öllu
formi, af mannavöldum þessarar
þjóðar, og algert sjálfskaparvíti frá
fyrsta upprana sínum. Löngu
löngu fyrirfram vitandi að ekki
yrði hjá komist svo sem að grund-
velli hennar lagt var, sem svo langt
frá nálgaðist hina minnstu skyn-
semi, eða lögmálskenndan bein-
harðan raunveraleikann.
En ef við færam nú að þreifa
ofaní skófnapott þann, sem hin
útvöldu stjómvöld hafa verið að
hræra í undanfarin ár, þá verður
ekki komist hjá að þukla þar um
hinar ógeðslegustu branaskófír,
sem ekki með neinu móti era svo
hreinsaðar frá botninum, að pott-
urinn með öllu saman verði ekki
svo illa farinn, að ekki megi með
öllu henda, hvað stór og veglegur,
sem í upphaflegri gerð sýndist
glansandi spegilfagur og fínn. Eða
gat nokkram lifandi óvitlausum
manni til hugar komið, að hægt
væri að reka nokkra atvinnustarf-
semi eða framleiðslu með 49-60%
vaxtaokri og þar að auki verð-
bótafé. Af hverri einustu einni
milljón króna í stofni eða rekstr-
arfé þyrfti að borga 600 þúsund
krónur í vexti ár eftir ár. Af einum
5.000 krónum í skuld skyldi eftir
eitt ár þurfa að greiða 33 þúsund
krónur með dráttarvöxtum og inn-
heimtukostnaði. Að 40 þúsund
króna skuld skuli vera komin í 220
þúsund krónur eftir 2 ár. Eða hvað
svo þegar vanskilaskuldir era orðn-
ar tugir eða hundruð milljóna.
Hvað á svona bijálsemi að þýða
og hveiju þjónar hún í raun og
vera? Hvað nálgast það frekar að
vera sem „skynlaus" skepna í öllu
dagfari sínu, en að láta sér detta
í hug, að slíkt og þvílíkt gæti með
nokkru móti staðist það raun-
hyggjulögmál, sem áskapað er
okkur, sem og öllum öðram, eftir
að lifa. Eða þegar einn maður á
sl. vori var að borga 30 þúsund
af húsnæðisskuld sinni, skuldaði
hann 31 þúsund krónum meira á
eftir en áður. Hver innleiddi slíkan
andskota inní fjármálakerfi þjóðar
sinnar? Vora það ekki okkar elsku-
legu þingmenn, eða hvað? Einhver
hlýtur að hafa staðið þar að verki
sem valdið hafði. Hveijir vora í
þeirri ríkisstjórn á landi hér fyrir
síðustu kosningar sem marglýstu
þá yfir löngu fyrir þær kosningar,
að allt væri að sigla norður og
niður og þyrfti skjótra aðgerða við
til að lagfæra eymdina alla og
volæðið. En renndu sér heldur, sem
um lífið væri að tefla, um miðjan
vetur, útí kosningar, sem enduðu
svo með þeim eindæma skelfing-
um, sem öll íslandssagan hafði
aldrei orðið vitni að áður, og öllum
er í fersku minni. Og hvað hefur
ekki riðið við einteyming, ef ekki
stjómarfarið síðan, og þó raunar
löngu áður Iíka. Hafa ekki alþingis-
menn horft uppá það aðgerðarlaus-
ir, að sjá allar eða flestallar at-
vinnugreinar þjóðarinnar brenna
upp til kaldra kola, og hvað getum
við komist nær þjóðargjaldþroti en
því, að flestöll atvinnufyrirtæki
þjóðarinnar fari á hausinn, og 150
gjaldþrotaauglýsingar birtist í einu
og sama blaðinu, eða rúmlega hálft
annað þúsund á einu ári, en svo
leika alþingismenn listir sínar út-
um landsbyggð alla nú um hávet-
ur, rétt eins og ekkert sé að gera,
á fullu þingfararkaupi sínu um
háveturinn, en að auglýsa eymd
sína og kæruleysi, hlaupandi frá
verkum sínum, sem enga bið þola
úr að leysa.
En hvað er maðurinn annars að
Jens Guðmundsson í Kaldalóni
„Þarna blasa við, — svo
ekki verður um villst,
stjórnvaldsaðg-erðir,
eða réttara sagt afleið-
ingar þeirra gerða í
hnotskurn ráðvilltrar
sljórnunar landsmál-
anna í flestum málum.“
þrugla um? Veit hann ekki, eða
hvað, að það var búið að innleiða
frelsið heim að hvers manns dyr-
um? Veit hann ekki að annar kaup-
maðurinn mátti selja sömu vöra-
tegundina fyrir 400 krónur, sem
hinn seldi á 100 krónur? Veit hann
ekki að ekkert er sjálfsagðara en
að flytja inn bamaleikföng fyrir
allan þann gjaldeyri sem kemur inn
fyrir loðnuafla landsmanna? Fjöra-
tíu til fímmtíu skip pæla í því öll
haust og vetur í hrakviðrum og
kulda að fylla sig svo að ekkert
stendur uppúr nema í mesta lagi
hvalbakurinn og brúin þá að landi
er komið til þess eins að kaupa
fyrir afurðirnar, eins og þær leggja
sig, leikföng fyrir bömin. Það er
eitthvað annað en þegar ég var
bam að tálga allra fugla líkingar
úr ýsubeinum úr soðningunni, eða
tálga trébátana úr spýtum til að
láta sigla um pollana. En þá vora
heldur engin loðnuskip komin í
íslenska útgerðarflotann. Og veit
hann ekki heldur að nú má flytja
inn allt það sem hugurinn girnist,
og eitthvað er hægt að hafa uppúr
að selja? Eða veit hann ekki að
af hverri einni milljón króna sem
lögð er inní banka, á fjórði partur-
inn að renna inní Seðlabanka ís-
lands og geymast þar vaxtalaust,
þar til bankamir era orðnir svo
blankir að þeir verða að taka það
þar að láni með okurvöxtum?
En var að furða þótt blessaðir
A-flokkaráðherramir yrðu frelsinu
fegnir, og gætu í allri ró, og sak-
leysi skroppið sem góðir gestir útí
fámennið nú um svartasta skamm-
degið, þar sem öllum gestum og
gangandi er innilega fagnað í þeirri
einmanakennd allri sem þar ríkir,
færandi fréttir og kostum búið
nýmeti af sjómvisku þeirri og ráð-
deild í öllum þeim háskasjó sem
kveðið er um að ríki nú við allar
strendur þessa lands, og brotaöld-
urnar hrikti svo við ráðherradyr
þeirra, að hveija einustu lýsisglætu
verði út að bera til að lægja brim-
rótið. Ekki síður þó þar sem í
skrokkum þessara höfðingja renn-
ur hið kjamaríka höfðingjablóð
feðra þeirra og mæðra útaf okkar
vestfirsku kjamakvistum, sem af
manngildi, reisn og dugnaði lögðu
sig alla fram um að vemda lítil-
magnann, og bæta sem best þeir
gátu kjör hans og umkomuleysi á
öllum mannlegum sviðum.
Nei, við skulum ekki vanmeta
slíka ferðareisu þeirra til huggunar
hrelldum sálum í einmanakennd
tilvera sinnar útum víðan völl þessa