Morgunblaðið - 31.03.1989, Page 21

Morgunblaðið - 31.03.1989, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1989 21 Málvísindi: Eru allar tungurnar runnar af sömu rót? Observer NOKKRIR bandarískir málvísindamenn telja, að nú sé farið að hilla undir lokalausnina í þessari fræðigrein — endurgerð sjálfs „móðurmálsins", tungunnar, sem fyrstu mennimir töluðu sín í milli. Vitaly Shevoroshkin, prófessor við Michigan-háskóla, segir, að mannkynið hafi í fyrndinni verið eitt að því marki, að það talaði aðeins eina tungu og fínnst honum líklegt, að það hafi verið fyrir 100.000 árum. Á þessum tíma var maðurinn í raun að stíga sín fyrstu skref í átthögunum í Afríku en síðan lagði hann undir sig lönd og álfur og ruddi burt keppinaut- um eins og Neanderthalsmannin- um. Með tíð og tíma greindist tungan í ólíkar mállýskur, sem aftur urðu undirstaða nýrra tungna. Þannig gekk það ár- þúsundum saman og útkoman er sú fjölskrúðuga tungumálaflóra, sem nú er að finna. Flestir málvísindamenn teija raunar, að núlifandi tungumála- flokkar séu svo fjarskyldir ef um einhvern skyldleika er þá að ræða, að útilokað sé að finna í þeim ein- hvem þann samnefnara, sem gefi hugmynd um „móðurmálið“. She- voroshkin og skoðanabræður hans eru þó á öðru máli. Segja þeir, að nýjustu rannsóknir bendi til, að allar tungur megi rekja til sjö frumgerða. Nefna þeir eina þeirra Nostratic, uppsprettu indó-evr- ópskra mála, þar á meðal ensku, þýsku, rússnesku, íslensku og annarra. „Nostratic var líklega töluð af fólki, sem bjó í Miðausturlöndum fyrir um 15.000 árum,“ segir Shevoroshkin, „og með nákvæmri greiningu höfum við endursmíðað nokkur hundruð orð úr henni, til dæmis „mi“ fyrir ég eða mig; „tu“ fyrir þú eða þið; „ku“ fyrir hver og „kerd“ fyrir hart.“ Shevoroshkin og félagar hans hafa minna rannsakað hinar sex frumgerðirnar en telja sig þó geta fundið eða endurgert orð, sem eigi sér rætur í þeim öllum. Þar á meðal er „huka“ fyrir auga; „teli“ fyrir tunga; „ngai“ fyrir ég og „nyin“ fyrir þú. mmm #ím Traktorsgröfur: CAT 428 JCB 3DX JCB 3DX4 JCB 3DX4 MF 50 CASE 580F CASE 580G Veghoflar: CAT 12F CHAMPION Jardýtur: CAT D4D CAT D5B CAT D6C CAT D7F IH TD-8 Hjólaskóflur: CAT 980Ð CAT 966C CAT 950 CAT 950B MICHIGAN 125 MICHIGAN 125 MICHIGAN 175 '87 ’80 ’82 ’87 ’82 '81-83 '83-87 '66 '83 '81 '73 '66 '74 '11 ’75 '74 ’78 ’84 ’69 ’73 ’73 Beltagröfur: CAT CAT OK OK 225 '80 225 LC '83 RH-12 '11 RH-6 ’74 ALLAR UPPLYSINGAR HJA SOLUMANNI IhÍHEKLAHF I " U Laugavegi 170-174 Slmi 695500 Caterplllar. Cat og Œ eru skrásett vörumerki. [0 CATERPILLAR YFIR 40 ARA FORYSTA A ISLANDI Blomberq vaskar í stáli og hvítu. 15 gerðir. Hagstætt verð. Góð greiðslukjör. i__________tó_ Einar Farestveit&Co.hf. , BOROAWTÚNI28, SÍM116995. Lelð 4 stoppar vlA dymar Fróöleikur og skemmtun fyrirháa semlága! AUGLÝSING UMINNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKIRTEINA RIKISSJœS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00 1980-1. fl. I 15.04.89-15.04.90 kr. 2.097,81 *lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs ferfram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, mars 1989 SEÐLABANKIÍSLANDS GREIÐSLU- ERFIÐLEIKAR HÚSBYGGJENDA 0G ÍBÚÐARKAUPENDA Margir þeirra, sem byggt hafa íbúðarhúsnæði eða keypt á síðustu árum, þekkja hvað það er að lenda í greiðsluerfiðleikum; að eiga ekki fyrir afborgunum lána og þurfa að taka lán til að greiða af eldri lánum. HELSTU ÁSTÆÐUR Ástæður greiðsluerfiðleikanna hafa veriö marg- víslegar. Sumir gátu ekki séð vandann fyrir. Áætlanir þeirra brugöust vegna aðstæðna sem þeir réðu ekki við. Allt of margir hefðu hins vegar getað séð erfiðleika sína fyrir. BYRJAÐ Á ÖFUGUM ENDA Stór hópur hefur lent í greiðsluerfiöleikum vegna byggingar eða kaupa sem ákveðin voru áður en þeir fengu svar við umsókn sinni um lán frá Húsnæðis- stofnun. Þetta heitir að byrja á vitlausum enda. Það er frumskilyrði, að þeir sem þurfa lán hjá stofnuninni, taki ekki ákvarðanir um byggingu eða kaup fyrr en þeir hafa fengið senda tilkynningu um afgreiðslutíma láns („lánsloforð"). LIFAÐ UM EFNI FRAM Margir hafa einnig lent í greiösluerfiðleikum vegna þess að þeir byggðu eða keyptu allt of stórt eða dýrt húsnæði. Sumir virðast halda að málin bjargist af sjálfu sér. Sú er sjaldnast raunin, því miður. Það er liðin tíð að það borgi sig að skulda. Láttu það ekki henda þig, að eyða mörgum árum ævi þinnar í erfiðleika og áhyggjur af íbúðarkaupum eða byggingu sem þú ræður engan veginn við. FÓLK HEFUR MISST ALEIGU SÍNA VEGNA 1 ÞESS AÐ ÓSKHYGGJAN EIN FÉKK AÐ RÁÐA. 1 ÞAÐ ER EKKI EFTIRSÓKNARVERT. fö' RÁÐGIAFASTÖÐ HUSNÆÐISSIÖFNUNAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.